Morgunblaðið - 21.04.2005, Side 21

Morgunblaðið - 21.04.2005, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 B 21  Í REKSTRI fyrirtækja hefur áherslan verið á niðurstöðutölur árs- reikninga, veltu og arðsemi eigin fjár. Ef fyrirtæki skila hluthöfum arði eru þau vel rekin. Raunin er sú að flest fyrirtæki í dag byggja tilvist sína á þekkingarverðmætum sem falin eru í starfsfólki. Áherslan á þekkingarstarfsmanninn hefur auk- ist og starf stjórnenda beinist nú í auknum mæli að óáþreifanlegum þáttum sem fólgnir eru í mann- auðnum. Það er einmitt í þessum óáþreifanlegu þáttum, sem erfitt er að líkja eftir, sem samkeppnishæfni fyrirtækja liggur. Helsta áskorun þekkingarfyrirtækja í dag er fólgin í annars vegar stýringu þessarar auð- lindar og hins vegar á mati á árangri þess starfs. Þróunin Þróun fyrirtækja síðustu áratugi hefur verið frá fyrirtækjum sem byggja kjarnastarfsemi sína á fram- leiðslu yfir í þjónustu. Samhliða þessari þróun hafa orðið miklar breytingar í stjórnunarfræðunum og áherslan í auknum mæli beinst að því að stjórna mannauðnum í átt til ár- angurs. Hversu mikið sem maður skráir þjónustuferla eða kynnir gildi í fyrirtækinu til að styðja við þá menningu sem er æskileg til að ná árangri, þá er hluti af þekkingunni alltaf leyndur. Hún leynist í huga einstaklinganna eða starfi teymisins. Allt þetta stendur og fellur því með mannauðnum. Í hröðu umhverfi við- skiptalífsins þurfa fyrirtæki að vera viðbúin breytingum til að verða ekki undir í samkeppni. Þau þurfa sífellt að standa sig betur en samkeppn- isaðilinn til að lifa af og þurfa að finna upp alveg nýjar leiðir til að ná samkeppnisforskoti Aðgengi fyrir- tækja að upplýsingum og í flestum tilfellum auðlindum er það sama og því liggur hæfni hvers fyrirtækis í leyndri þekkingu, þekkingu sem erf- itt er að beisla og nær ógjörningur fyrir önnur fyrirtæki að líkja eftir. Það er því eftirsóknarvert en vanda- samt verk að temja þessa leyndu þekkingu og ná með einhverju móti að mæla árangur þekkingarstarfs- mannsins. Spurningin er hins vegar sú hvernig best er að nálgast við- fangsefnið. Hlutverk mannauðsstjórans Óhætt er að segja, að í þessu nýja fyrirtækjaumhverfi er hlutverk mannauðsstjórans að breytast. Hann þarf að hafa rekstrarlega kunnáttu og geta skilið hvernig mannauðurinn skilar sínu framlagi í árangri fyrirtækisins. Það þarf að vera hægt að sýna á áþreifanlegan hátt hverju þessi óáþreifanlegi þátt- ur skilar. Flestir eru sammála um að mannauðsstjórnun gegni stóru hlut- verki í meiri velgengni sumra fyr- irtækja, en þar staðnæmast margir í röksemdafærslunni. Rannsóknir sýna að ef starfsmenn eru ánægðir í starfi skilar það sér til viðskiptavin- arins sem leiðir til þess að fyrirtækin halda í viðskiptavininn, sem er þeirra tekjulind. Ánægja starfs- manna skiptir því miklu máli, en það nægir ekki eitt og sér. Það þarf að vera hægt að sjá að þessi ánægja, ásamt þáttum eins og hæfni og þekk- ingu, skili sér í heildarárangri fyrir fyrirtækið. Til þess að hægt sé að sjá tengslin þarna á milli, þarf á ein- hvern hátt að vera hægt að mæla ár- angur þekkingarstarfsmannsins. Í iðnbyltingunni, þegar verksmiðjur framleiddu áþreifanlegar vörur, var auðvelt að mæla hve miklu hver starfsmaður skilaði. Í dag er þetta hins vegar flókið mál. Þetta er þó brýnt málefni og verður sífellt mik- ilvægara. Mæling á árangri Fram á sjónarsviðið hafa komið ýmis stjórntæki og aðferðafræði sem gætu aðstoðað okkur í þessari leit okkar. Sem dæmi má nefna stefnu- miðað árangursmat (e. Balanced Scorecard) sem var kynnt til sög- unnar af Kaplan og Norton. Þeir hönnuðu aðferðafræðina til að mæta aukinni þörf fyrirtækja í að mæla líka óáþreifanlega þætti. Hún miðar að því að miðla stefnu fyrirtækisins til starfsmanna og koma henni í framkvæmd. Verkfærin í aðferða- fræðinni eru svokölluð stefnukort og skorkort. Stefnukortið á að sýna myndræna framsetningu á stefnu fyrirtækisins þannig að allir starfs- menn og hagsmunaaðilar eigi auð- velt með að skilja stefnu þess og jafnframt hvert hlutverk þeirra er í að koma stefnunni í framkvæmd. Á stefnukortinu eru sýnd helstu mark- mið í fjórum víddum: Lærdómur og vöxtur sem er grunnurinn og vísar til mannauðsins, innri ferlar, viðskipta- vinurinn og fjárhagsvíddin. Víddirn- ar styðja hver við aðra og enda að lokum efst á stefnukortinu í ávinn- ingnum sem sóst er eftir. Hjá einka- fyrirtækjum eru það yfirleitt fjár- hagsleg markmið en stofnanir hafa þjónustuna og viðskiptavininn að leiðarljósi. Skorkort er síðan tengt við stefnu- kortið. Á því má sjá öll markmiðin sem koma fram á stefnukortinu, og þá mælikvarða sem mikilvægt er að fylgjast með í þeirri viðleitni að ná hverju markmiði. Þannig má sjá þró- unina og hvar gengur vel og hvar illa og þar af leiðandi bregðast við með ýmsum aðgerðum og umbótaverk- efnum ef þörf er á. Margar gildrur er hins vegar hægt að falla í á leiðinni og oft tekur langan tíma, jafnvel mörg ár að finna réttu mælikvarðana fyrir einstakt fyrirtæki. Þetta er þó dæmi um eina af þeim leiðum sem fyrirtæki hafa farið í að mæla einnig óáþreifanlega þætti. Hver er niðurstaðan? Sumir segja að ársreikningurinn í sínu núverandi formi sé að verða úr- elt fyrirbæri. Í þessu nýja umhverfi sýnir ársreikningurinn ekki nema 4–8% af því sem raunverulega er að gerast í fyrirtækjum. Tökum dæmi. Ef bónus stjórnenda er t.d. metinn eftir því hve miklum hagnaði fyrir- tækið skilar er lítil hvatning fyrir hann í bókhaldslegu tilliti að fjár- festa í þjálfun starfsfólks. Þjálfunin er færð sem kostnaður en ekki er hægt að eignfæra þekkingu starfs- manna. Þannig sýnir ársreikningur- inn ekki þá aukningu í auðlind mann- auðsins sem þjálfunin skilar sér í. Því hafa mörg fyrirtæki tekið upp á því að bæta inn í ársreikninginn lýs- ingu á því sem þau telja að komi ekki nógu vel fram í tölunum. Önnur fyr- irtæki gefa út svokallaða þekkingar- skýrslu. En ennþá er ársreikningur- inn, þetta 300 ára gamla verkfæri í notkun, og allt snýst þetta í dag sí- fellt um neðstu línuna í ársreikn- ingnum. Hvernig stendur fyrirtækið sig? Skilar það hagnaði? Hvernig á að mæla árangur þekkingarstarfsmannsins? ’Árangur í rekstri fyr-irtækja er gjarnan met- inn úr frá hagnaði. Því skiptir máli hvernig ár- angur þekkingarstarfs- mannsins er mældur. ‘ Meistaranemar Sonja Dögg Pálsdóttir, Inga Guðrún Birgisdóttir og Hall- ur Steinar Sævarsson. Höfundar eru meistaranemar í stjórn- un og stefnumótun við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Eftir Hall Steinar Sævarsson, Ingu Guðrúnu Birgisdóttur og Sonju Dögg Pálsdóttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.