Morgunblaðið - 15.05.2005, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.05.2005, Blaðsíða 34
34 | 15.5.2005 Það eru ekki allir golfboltar hvítir. Um tíma var vinsælt að nota gula golfbolta, appelsínugula og nú nýverið notuðu atvinnumenn á Masters-mótinu svartan golfbolta sem Nike framleiðir. Konur eiga sinn lit að sjálfsögðu. Og er sá bleikur. Fljúgandi hefðarfrúin, Flying Lady, hefur verið á markaðnum lengi en það er Top Flite sem fram- leiðir boltann. Boltinn hentar þeim sem eru með hæga sveiflu og er frekar auðvelt að pressa hann saman og ná honum á flug. Margir karlmenn og þá sérstaklega þeir sem eldri eru hafa laumast til þess að nota boltann en láta ekki bera mikið á því – líklega út af litnum. En það eru til fjölmargar tegundir ætlaðar konum og eru allir þeir boltar frekar mjúkir og ætlaðir kylfingum sem eru með hægari sveiflu. Á bleiku skýi SMÁMUNIR… Ég er alveg sérstaklega óeðlilegur. Það er í þaðminnsta álit kærustunnar þegar hún reynir að takaaf mér ljósmyndir. „Brosa!“ skipar hún mér og ég reyni að þóknast henni. „Nei, ekki svona gervibros, alvöru- bros!“ segir hún þá pirruð. „En það er ekkert til þess að brosa að,“ bendi ég á. Því sé gervibrosið það allra eðlileg- asta eða miðað við kringumstæður. Ég kreisti fram bros en myndinni er eytt samstundis. Sögufölsunin heldur áfram þar til ég þyki nokkuð nálægt því að vera eðlilegur sem sam- kvæmt henni er þegar ég brosi út að eyrum. Sem ég geri aldrei nema þegar mér þykir eitthvað fyndið eða er af- skaplega ánægður, einhverra hluta vegna. Að vísu er það rétt að brosandi fólk virkar yfirleitt betur á mann en alvörugefið fólk en ég sækist eftir raunsæi í myndatökum. Reyni helst að taka ljósmyndir fólki að óvörum. Þannig tel ég að fólk sýni sitt rétta andlit, hið eðlilega ástand. „Ojjj nei eyddu þess- ari, ég er með svo mikla undirhöku, skipar kærastan mér fyrir en ég mót- mæli og bendi á að ljósmyndin ljúgi ekki, undirhakan sé bara svona mik- il. Fæ högg að launum. Önnur mynd er tekin, að þessu sinni er húð undir höku ekki sjáanleg. Undirhaka er þó ekki eina vandamálið heldur einnig líkamsstaða og séu handleggir berir þá verður að halda þeim út frá líkamanum þannig að hinn svonefndi „bingó-vöðvi“ klessist ekki upp við búkinn. Tengdamóðir mín og mágkona komu í heimsókn fyrir skömmu og þá fyrst byrjaði myndatökuballið. Ég fékk það verkefni að taka hina fullkomnu ljósmynd af þeim mæðg- um. Brosið eðlilegt, engin undirhaka, enginn bingóvöðvi, hárið í lagi. Það sem flækti myndatökur enn frekar var að allar þrjár urðu að koma jafnvel út á myndinni. Ef ein var óvart að horfa á matseðil eða ekki brosandi þá varð að taka aðra mynd. Þegar linsunni var síðan beint að mér var við- kvæðið iðulega: „Nei, Helgi, ekki svona, vertu eðlilegur!“ og ég tók á öllum mínum eðlilegheitum til að þóknast kvensunum. Benti þeim þó á að hér væri verið að draga úr minningargildi ljósmyndarinnar því hún myndi alls ekki endurspegla sálarástand mitt á þeirri stundu sem hún væri tekin. Ég væri t.d. mjög svangur og æstur í að panta mér mat og því væri ég ekki skælbrosandi innan í mér. Þar að auki væri „slæmum“ ljósmyndum alltaf eytt og því sæist aldrei hið rétta andlit þess ljósmyndaða. Vanar slíku rausi létu þær sér fátt um finnast og sögðu engu betra að vera að gretta sig og fíflast, það væri enn síður mitt rétta andlit. Varð ég því að láta undan enda þrjár á móti einum. Í framhaldi af þessum heimspekilegu vangaveltum um hvenær maður væri eðlilegur og hvenær ekki fór ég að skoða betur ljósmyndir af mér. „Er ég svona rosalega asna- legur?“ spurði ég kærustuna sár og svekktur, hver myndin á eftir annarri af stórfurðulegum náunga með hárið út í loftið og einhvern óræðan kjánasvip. „Já, elskan mín, þú ert bara svona asnalegur,“ var svarað af miklum kvikindisskap. Nið- urstaðan varð sú að mitt eðlilega ástand, af ljósmyndum að dæma, væri að vera frekar asnalegur. Kannski ekki skrítið að fólk glotti þegar það sér myndina af mér á debet- og kreditkortinu. Og ég sem hélt að þetta væri vingjarnlegt og mjög eðlilegt afgreiðslubros. Jafnvel daður, hver veit. En nei, myndin er bara mjög asnaleg. Einu sinni fyrir langa, langa löngu var það merkisvið- burður að láta taka af sér ljósmynd. Fólk fór í sparifötin og stillti sér síðan bísperrt upp eins og það stæði frammi fyrir aftökusveit. Það myndi enginn brosa út að eyrum yfir því. Það væri óeðlilegt. | helgisnaer@mbl.is Og brosa svo! Pistill Helgi Snær Kannski ekki skrítið að fólk glotti þegar það sér myndina af mér á debet- og kred- itkortinu. Shiseido hefur bryddað upp á þremur nýjungum fyrir karla. Lykilorðin eru orka, úthald og hraustlegri lík- ami. Energizing Formula er rakagel sem ætlað er að endurlífga húðina; kælandi gel sem hressir þreytta húð. Moisturizing Self-Tanner er brúnkugel fyrir and- lit sem kemur í staðinn fyrir hefðbundið rakakrem. Hvorttveggja má bera á húðina eftir rakstur og hreinsun. Body Creator Abdomen Toning Gel er gel sem sagt er vinna á svæðum á maga og mjöðmum til þess að móta líkamann. Karlalína frá Shiseido

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.