Morgunblaðið - 05.07.2005, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
TO
Y
28
87
7
0
7/
20
03
LEXUS N†B†LAVEGI 6 SÍMI 570 5400 WWW.LEXUS.IS
af göfugum ættum
Nota›ir bílar
PR-109 Lexus LS430 President
Fyrst skráður 09.01.2003
Ekinn 27.000 km
Verð 5.660.000 kr.
Með öllu
LEIT AÐ LÍKI
Tilkynnt var um lík í sjónum í
Grafarvogi við Gullinbrú í gær. Leit
hafði ekki borið árangur í gærkvöldi.
Vonir bundnar við G8-fund
Loftslagsbreytingar verða rædd-
ar á leiðtogafundi G8-ríkja sem hefst
í Skotlandi á miðvikudag. George W.
Bush Bandaríkjaforseti sagðist í
gær ekki tilbúinn að skrifa undir
samkomulag þar, sem líkist Kyoto-
samkomulaginu, um aðgerðir gegn
gróðurhúsaáhrifum en viðurkenndi
að loftslagsbreytingar væru „alvar-
legt langtímavandamál“ sem yrði að
taka á og að athöfnum manna væri
„að einhverju marki“ um að kenna.
Geimflaug hitti halastjörnu
Geimfar frá NASA lenti í vel und-
irbúnum árekstri við halastjörnu í
gær. Áreksturinn átti sér stað í 134
milljóna kílómetra fjarlægð frá
jörðu en markmið vísindamanna
með honum er að reyna að afla meiri
þekkingar á uppruna sólkerfisins.
Fjölskipaður dómur
Dómur í Baugsmálinu svonefnda
sem þingfest verður í Héraðsdómi
Reykjavíkur í ágúst verður fjölskip-
aður.
Biðraðir eftir lóðum
Langar biðraðir mynduðust við
bæjarskrifstofur Kópavogs í Fann-
borg í gær en þá var síðasti dagur til
að sækja um lóðir í Þingahverfi á
Vatnsenda. Í boði eru lóðir undir
einbýlishús, raðhús, parhús og svo-
nefnd klasahús.
Banaslys í Grímsnesi
Banaslys varð í gær þegar pallbíll
og rúta rákust saman við Minni-
Borg í Grímsnesi. Ökumaður pall-
bílsins er talinn hafa látist sam-
stundis.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Fréttaskýring 8 Viðhorf 24
Úr verinu 12 Daglegt líf 25
Viðskipti 13 Minningar 26/29
Erlent 16/17 Dagbók 32/34
Minn staður 18 Myndasögur 32
Akureyri 19 Víkverji 32
Suðurnes 19 Velvakandi 33
Austurland 20 Staður og stund 34
Landið 20 Tónlistinn 38
Menning 21, 35/41 Ljósvakamiðlar 42
Af listum 21 Veður 43
Forystugrein 22 Staksteinar 43
* * *
Ráðstöfunartekjur á mann á íslensk-
um heimilum nær tvöfölduðust á níu
ára tímabili frá árinu 1995 til 2003.
Ráðstöfunartekjurnar, sem eru
tekjur heimilanna þegar skattar hafa
verið dregnir af þeim, jukust þannig
um 82% á þessu tímabili að því er
fram kemur í útgjaldarannsókn
Hagstofu Íslands, en sú rannsókn er
grundvöllur að samsetningu vísitölu
neysluverðs.
Í könnuninni kemur fram að með-
alráðstöfunartekjur heimila á Ís-
landi voru tæpar 4 milljónir króna á
árinu 2003 og höfðu hækkað um tæp-
ar 1,7 milljónir króna á þessu níu ára
tímabili. Tekjuaukningin er mismun-
andi eftir heimilisgerðum. Þannig
hafa ráðstöfunartekjur hjóna eða
sambýlisfólks með börn hækkað um
86% á ofangreindu tímabili, en um
71% hjá barnlausum hjónum eða
sambýlisfólki og um tæp 75% hjá
einstæðum foreldrum.
Tekjuþróunin hefur einnig verið
mismunandi eftir búsetu. Ráðstöfun-
artekjur eru nú hæstar á höfuðborg-
arsvæðinu eða tæp 4,1 milljón á ári
og eru um 500 þúsund krónum hærri
en í dreifbýli. Árið 1995 voru þær
nánast þær sömu á báðum þessum
svæðum eða rúmar 2,2 milljónir kr.
Dreifbýli eru sveitir landsins og þétt-
býlisstaðir með færri en 1.000 íbúa.
Fram kemur einnig að 80% fólks
búa í eigin húsnæði og um fimmt-
ungur er í leiguhúsnæði og að tíundi
hver á sumarhús. 98% heimila voru
með sjónvarp og helmingur þeirra
með fleiri sjónvörp en eitt.
Þá voru 13% heimila ekki með bíl,
61% með einn bíl og um fjórðungur
með tvo eða fleiri bíla.
Ráðstöfunartekjur heimila jukust um 82% frá árinu 1995 til ársins 2003
Ráðstöfunartekjur að
meðaltali tæpar 4 milljónir
500 þúsund kr. hærri meðaltekjur á höfuðborgarsvæðinu en í dreifbýli
Eftir Hjálmar Jónsson
hjjo@mbl.is
dvalið í Reykjahverfi undanfarna
daga og fengið að fara í fjós. Frændi
hennar, Jónas Þór Viðarsson frá
Hrísateigi, hjálpaði henni í fyrsta
skipti sem hún gaf kálfi og ekki var
Laxamýri | Pelakálfar geta verið
skemmtilegir enda ánægðir þegar
þeir fá volga mjólk. Þetta uppgötv-
aði Anna Björk Ólafsdóttir, þriggja
ára frá Hveragerði, en hún hefur
að sjá annað en að hin fimm daga
gamla verðandi kýr, nefnd Grá-
stjarna, kynni vel að meta sopann. –
„Gaman gefa kálfi,“ sagði Anna
Björk.
Gaman að gefa kálfi
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
VEGIR hafa verið
opnaðir austan-
lands á ný eftir
skemmdir sem
urðu á þeim á
sunnudag í gífur-
legu úrhelli. Búið
er að opna veginn
um Fagradal en
þar féllu nokkrar
aurskriður um há-
degið á sunnudag.
Á Fáskrúðsfirði
lokuðust Hlíðar-
gata og Skólaveg-
ur um tíma en á þeim hafa orðið
miklar skemmdir. Vegurinn um
Fagradal er illa farinn eftir skriðu-
föllin og voru vegavinnumenn í óða-
önn að laga veginn og hreinsa hann
í gær. Þrátt fyrir að bílar komist í
gegn er nauðsynlegt að fara varlega
að sögn lögregl-
unnar á Egils-
stöðum. Fossá,
sem byltist yfir
þjóðveginn sunn-
an Reyðarfjarðar
við bæinn Sléttu,
var enn kolmó-
rauð í gær enda
hafði ekki stytt al-
veg upp. Á Seyð-
isfirði urðu smá-
skemmdir við Há-
nefsstaði að sögn
lögreglunnar.
Veður versnaði mjög frá kl. níu á
sunnudag en gekk að mestu niður
þá um kvöldið. Telur lögreglan að á
milli 60 og 80 manns hafi þegið að-
stoð við að komast leiðar sinnar.
Talið er að tjón á vegamannvirkjum
nemi milljónum króna.
Vegir opnaðir en
talsvert skemmdir
Aurskriður á veginum í Fagradal.
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt þrjá menn í
6–7 mánaða fangelsi fyrir líkams-
árásir, þar af tveir gegn þeim
þriðja á tjaldstæðinu við Þórunn-
arstræti á Akureyri í júní 2004.
Árásirnar áttu sér stað í kringum
fjöldaslagsmál sem brutust út á
tjaldstæðinu og fengu tveir mann-
anna sex mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að berja og sparka í
höfuð þess þriðja. Kjálkabrotnaði
hann og hlaut fleiri áverka. Voru
honum dæmdar 662 þúsund krón-
ur í bætur. Árásin á hann var að
mati dómsins ófyrirleitin og hafði
alvarlegar afleiðingar. Þurfti
hann að gangast undir tvær að-
gerðir og ítrekað að leita læknis
vegna sýkinga. Hann var sjálfur
ákærður og sakfelldur fyrir að
hafa tvívegis slegið annan hinna
tveggja í andlit og hlaut sjö mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir
það auk skilorðsrofs vegna eldri
dóms.
Freyr Ófeigsson dómstjóri
dæmdi málið. Verjendur voru
Sveinn Andri Sveinsson hrl. fyrir
þann er kjálkabrotnaði og Guð-
mundur Ómar Hafsteinsson hdl.
og Gunnar Sólnes hrl. fyrir með-
ákærðu. Guðjón Jóel Björnsson
sýslufulltrúi sótti málið.
Í fangelsi eftir
fjöldaslagsmál
Ísskápur var algengasta heim-
ilistækið. Hann var á 98,6% heimila á
árinu 2003. Þvottavél var á 92%
heimila og myndbandstæki á 85%
heimila og svipað hlutfall var með
farsíma. Örbylgjuofn og tölva eru á
80% heimila, uppþvottavél á 56%
heimila og DVD-spilari og þurrkari
á rúmlega 40% heimila. Tjaldvagn,
hjólhýsi eða fellihýsi er á 5,8% heim-
ila, bátur á 3,9% heimila, 2,6% heim-
ila eiga vélsleða og 1,5% mótorhjól.
56% heimila með
uppþvottavél