Morgunblaðið - 05.07.2005, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
sömu aðila og í
mánuðinum á eft-
ir hafi verið
gengið frá endan-
legum kaup-
samningi.
Í yfirlýsingu
frá Framsóknar-
flokknum vegna
bréfs Helga er
tímasetning af-
salsins staðfest en þar segir einnig
að aðdróttanir um að kaupin á hús-
inu hafi á einhvern hátt tengst söl-
unni á Búnaðarbankanum séu alger-
lega úr lausu lofti gripnar.
Um afsal Kers á Hverfisgötu 33
til Framsóknarflokksins segir Helgi
orðrétt í bréfi sínu: „Samkvæmt af-
sali þinglýstu hjá Sýslumanninum í
Reykjavík í ársbyrjun 2003 afsalar
Ker hf. húseign sinni að Hverfis-
götu 33 í Reykjavík til Framsókn-
KER hf. afsalaði húseign á Hverfis-
götu 33 til Framsóknarflokksins 19.
desember 2002, að því er fram kem-
ur í bréfi Helga Hjörvars, þing-
manns Samfylkingarinnar, til for-
manns fjárlaganefndar. Í bréfi sínu
bendir Helgi á að í mánuðinum á
undan hafi verið samþykkt að ganga
til viðræðna við S-hópinn undir for-
ystu Kers hf. um sölu á hlut ríkisins
í Búnaðarbankanum og gengið hafi
verið frá rammasamkomulagi við
arflokksins hinn 19. desember 2002.
Nánar tiltekið sitt hvorum eignar-
hlutanum til Húsbyggingarsjóðs
flokksins annarsvegar og dóttur-
félags hans Skúlagarðs ehf. hins-
vegar.“
Helgi segir í bréfinu að þetta hafi
gerst að loknu veikindaleyfi for-
sætisráðherra og að viðskiptaráð-
herra, sem samkvæmt ríkisendur-
skoðanda beri hina stjórnsýslulegu
ábyrgð, sé einnig forystumaður í
Framsóknarflokknum og sé í dag,
eins og forsætisráðherra, óveruleg-
ur hluthafi í Skúlagarði ehf.
Hálfur milljarður í söluhagnað
Í bréfi sínu fjallar Helgi um hæfi
Halldórs Ásgrímssonar í sölu bank-
anna og segir að samkvæmt upplýs-
ingum sem hann aflaði sér hjá
Kauphöllinni hafi söluhagnaður af
viðskiptum Hesteyrar með bréf í
Keri og VÍS verið um hálfur millj-
arður á þriggja mánaða tímabili í
einkavæðingarferlinu en í minnis-
blaði Ríkisendurskoðunar kemur
fram að enginn söluhagnaður hafi
verið af viðskiptunum.
Ennfremur segir Helgi að Hall-
dór Ásgrímsson hafi vitað af við-
skiptum með bréf Hesteyrar í Keri
og VÍS, en í minnisblaði Ríkisendur-
skoðunar komi fram að Halldóri
hafi ekki verið kunnugt um þessi
viðskipti. Helgi bendir á umfjöllun
fjölmiðla um þessi viðskipti 16. og
17. ágúst árið 2002 og segir að for-
sætisráðherra hafi borið að vekja á
því athygli hafi hann vitað um atriði
sem gætu valdið vanhæfi hans í
málinu.
Í bréfi sínu óskar Helgi eftir að
formaður nefndarinnar beiti sér fyr-
ir því að svör fáist við spurningum
um þessi atriði.
Helgi Hjörvar ritar formanni fjárlaganefndar Alþingis bréf
Segir Ker hafa afsalað hús-
eign til Framsóknarflokksins
Helgi Hjörvar
KAUPSAMNINGUR um húseign-
ina að Hverfisgötu 33 var gerður við
Olíufélagið hf. árið 1997 og var
kaupverðið milli aðila að fullu greitt
árið 1999, að því er fram kemur í
yfirlýsingu sem Framsóknarflokk-
urinn sendi út í gærkvöldi vegna
bréfs Helga Hjörvars.
Þess má geta að Olíufélagið hf.
breytti nafni sínu í Ker hf. árið
2002.
Í tilkynningunni segir að sam-
komulagið frá 1997 hafi falið í sér að
ákveðnar endurbætur yrðu gerðar á
húsinu, sem Olíufélagið annaðist, en
þær hafi verið að fullu á kostnað
flokksins.
Þeim hafi lokið árið 1999 og í
framhaldinu hafi verið gengið frá
fjármögnun kaupanna, sem fór að
mestu fram með langtímalánum
með veði í eigninni.
Lánin hafi verið tekin í apríl 1999
og var lántaki Olíufélagið hf. en
Framsóknarflokkurinn greiddi af
þeim allt frá fyrstu afborgun árið
2000 og yfirtók þau árið 2003.
Eftirstöðvarnar af kaupverðinu
hafi verið greiddar upp á árinu
1999. Í tilkynningunni segir að
dráttur hafi orðið á því að gengið
væri frá afsali fyrir eigninni og það
hafi ekki verið gert fyrr en 19. des-
ember. Engar greiðslur hafi hins
vegar átt sér stað milli aðila eftir
árslok 1999. „Engin sérstök skýring
er á því af hverju þetta dróst en það
má segja að ekki hafi legið á vegna
þess að allar greiðslur höfðu verið
gerðar upp og Framsóknarflokkur-
inn bar allan kostnað af rekstri
eignarinnar frá afhendingu. [...] Að-
dróttanir um að kaupin á Hverfis-
götu 33 hafi á einhvern hátt tengst
sölunni á Búnaðarbankanum í árs-
lok 2002 eru því algerlega úr lausu
lofti gripnar,“ segir í tilkynning-
unni.
Yfirlýsing Framsóknarflokksins
Greiðslum milli aðila
lauk árið 1999
HJÓN á sextugsaldri liggja á lýta- og
brunadeild Landspítalans eftir
brunaslys í kjölfar gassprengingar í
tjaldvagni þeirra við Bjarkalund á
Barðaströnd á sunnudagskvöld.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti
hjónin á slysadeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss, LSH, um klukkan
1.30 í fyrrinótt. Áverkar þeirra reynd-
ust þó minni en talið var í fyrstu. Að
sögn læknis á LSH eru þau brennd á
um 10% líkamans. Þau eru vakandi og
nærast sjálf. Hins vegar munu þau
þurfa að dvelja á spítalanum í nokkr-
ar vikur.
Jens Kjartansson, læknir á lýta- og
brunadeild LSH, segir að sprenging-
in hafi orðið þegar maðurinn var að
skipta um gaskút í tjaldvagninum.
Líklegt þykir að kveikt hafi verið á
öðru gastæki í námunda við manninn
og er það ástæða þess að sprengingin
varð. Kviknaði í fötum hjónanna og
brenndust þau illa á höndum og and-
liti.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð út um klukkan 22.30 á sunnu-
dagskvöld. Starfsfólk Bjarkalundar
hlúði fyrst að fólkinu, sem var með
meðvitund allan tímann, og hringdi í
Neyðarlínuna 112. Svo vildi til að Jón-
as Sigurðsson, aðalvarðstjóri lögregl-
unnar á Patreksfirði, var á vakt og
kom á staðinn 3–4 mínútum seinna og
kallaði eftir þyrluaðstoðinni.
Ekki rakið til galla í gaskút
Lögreglan hefur lokið vettvangs-
rannsókn og segir Jónas að gaskút-
urinn hafi ekki verið gallaður en um
hafi verið að ræða einnota gaskút sem
festur er við lítið helluborð. Engir ör-
yggisventlar hafi verið á gaskútnum
heldur þurfi að halda við kútinn og
gæta þess að missa ekki takið á með-
an hann er festur. Að öðrum kosti geti
hann skotist út eins og virðist hafa
verið tilfellið í umrætt skipti.
Jónas tekur fram að það hafi ekki
verið gaskúturinn sjálfur sem hafi
sprungið heldur hafi sprenging
myndast þegar gasið úr honum komst
í snertingu við opinn eld á hellu rétt
við hlið mannsins. Eigi að síður sé nú
verið að skoða útbúnað af þessari
gerð í samstarfi við Landsbjörg.
Brenndust
í gassprengingu
í tjaldvagni
„ÞAÐ ER enginn fiskur á Klambra-
túni,“ kynni einhver að segja þegar
honum yrði litið á þessa mynd. Sá
hinn sami veit þá ekki sem er að
það krefst mikillar þjálfunar að
kasta flugu með góðu móti og þá er
oft gott að nýta sér opin svæði á síð-
kvöldum.
Klambratúnið er kjörinn staður
fyrir æfingar af þessu tagi og þess-
ir tveir menn nýttu sér blíðviðrið í
gærkvöldi til hins ýtrasta.
Morgunblaðið/ÞÖK
Flugukast á Klambratúni
OLÍUFÉLÖGIN hækkuðu í
gær verð á dísilolíu, véla- og
skipagasolíu um eina krónu
eða þar um bil. Eftir verð-
breytingarnar er verð á dísil-
olíu víðast hvar komið upp
fyrir verð á bensíni.
Þannig hækkaði Olíufélagið
verð á dísilolíu um 1,00 krónu
og flotaolíu um 1,50 kr. lítrann
og kostar lítrinn af 95 oktana
bensíni með fullri þjónustu nú
114,10 krónur en lítrinn af dís-
ilolíu 115 krónur.
Skeljungur hf. hækkaði
verð á dísilolíu, vélaolíu og
skipagasolíu um 1,00 kr. lítr-
ann. Ástæða verðbreytinga er
sem fyrr sögð hækkun á
heimsmarkaðsverði á olíu.
Dísilolía dýr-
ari en bensín
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsóms
Reykjavíkur yfir karlmanni sem
grunaður er um stórfellda dreif-
ingu fíkniefna. Í húsleit í kjölfar
handtöku lagði lögreglan hinn 28.
júní hald á tæp 3 kg af hassi og tæp
400 grömm af amfetamíni. Einnig
voru tekin ætluð íblöndunarefni og
búnaður sem ætla má að notaður
hafi verið til að pakka fíkniefnum.
Þykir maðurinn vera undir rök-
studdum grun um fíkniefnadreif-
ingu. Hann hefur viðurkennt vörslu
á hluta fíkniefnanna. Í dómi Hæsta-
réttar var þó ekki talin þörf á að
maðurinn yrði sviptur leyfi til að
fylgjast með fjölmiðlum á meðan
gæsluvarðhaldsvist hans stendur.
Í gæslu vegna 3
kg af hassi og 400
g af amfetamíni