Morgunblaðið - 05.07.2005, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 21
MENNING
Til sölu 63,6 fm sumarbústaður
í Grímsnesi (í landi Hallkelshóla)
með 53 fm verönd. Skilast full-
búinn að utan og innan 1. ágúst
nk. Getum afhent samskonar
hús ósamsett með 6 vikna fyrirvara. Ótrúlegt verð.
Upplýsingar í síma 893 3820.
Til sölu sumarbústaður
í Grímsnesi
Vitið þið hversu víða bækurHalldórs Laxness eru lesn-ar? Það er nefnilega ótrú-
legt hvað margir í heiminum hafa
áhuga á nóbelskáldinu okkar. Við
nánari umhugsun er þetta kannski
ekki svo ótrúlegt því maðurinn er
nú svipaður inn við beinið alls stað-
ar og það er eflaust hægt að finna
Bjart í Sumarhúsum í Kína, Ísrael
og Úsbekistan og hver veit nema
Eistland, Brasilía og Ungverjaland
eigi sína eigin Sölku Völku.
Í ár eru liðin 50 ár síðan Halldór
Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í
bókmenntum og af því tilefni hefur
Edda útgáfa sett mikinn kraft í að
kynna bækur hans erlendis. Stöð-
ugt er verið að gera samninga um
útgáfur og þýðingar nær sem fjær.
Valgerður Benediktsdóttir á rétt-
indastofu Eddu útgáfu sér um
samninga erlendis á verkum Lax-
ness og segir hún að mikið sé um
fyrirspurnir frá erlendum útgef-
endum en auk þess er Edda útgáfa
ætíð að leita nýrra möguleika.
Sjálfstætt fólk trónir hæst meðal
bóka Halldórs sem þýddar hafa ver-
ið á erlend tungumál en hún hefur
komið út í yfir 500 útgáfum og verið
þýdd á meira en fjóra tugi tungu-
mála.
Bækur Halldórs hafa mikið kom-ið út á ensku, bæði í Bandaríkj-
unum og Bretlandi. Ásamt því hafa
bækurnar fengið mjög jákvæða
dóma í þarlendum fjölmiðlum, segir
Valgerður.
Í kjölfarið á umfjöllun og útgáfu í
Bandaríkjunum hafa útgefendur í
Ísrael haft samband við Eddu úgáfu
og nýverið var gengið frá samn-
ingum við Schocken Publishing
House um útgáfu á Íslandsklukk-
unni þar í landi.
Salka Valka, sem kom út hér á
landi á árunum 1931–1932, var
fyrsta bók Halldórs Laxness sem
þýdd var á erlent tungumál en það
var árið 1934 þegar hún var þýdd á
dönsku. Síðan þá hefur Salka Valka
ferðast víða, meðal annars til Kína,
og nú hyggst færeyska forlagið
Ungu Færeyjar gefa bókina út.
Fyrir stuttu komu Sjálfstætt fólkog Brekkukotsannáll út á
Spáni en þar var Sjálfstætt fólk
einnig tilnefnd til hinna árlegu
katalónsku bóksalaverðlauna ásamt
sex öðrum skáldsögum sem besta
skáldsaga ársins. Í tilefni af þessu
hefur svo verið gefin út bók á Spáni
þar sem kaflar úr tilnefndu verk-
unum eru birtir.
Þá hefur Sjálfstætt fólk verið
endurútgefin í Noregi, Hollandi og
Danmörku.
Hluti af samningi Eddu útgáfu
við Harvill Press, hið enska forlag
Halldórs Laxness, felst í skuldbind-
ingu um að selja verk hans í yfir 50
löndum víða um heiminn. Þeirra á
meðal eru Indland, Nýja-Sjáland,
Bótsvana, Súdan, Sambía, Barb-
ados, Jamaíka, Trínidad og Tóbagó,
Bangladess, Írak, Maldíveyjar,
Jemen, Tonga og Vanúatú.
„Bækur þekktra rithöfunda
ferðast misvel og það er afskaplega
gaman að því hvað verk Halldórs
Laxness virðast ferðast vel hvar-
vetna,“ segir Valgerður.
Já það er vel hægt að vera sam-
mála Valgerði um það hve gaman
er að hnattferðalagi Halldórs.
Það er nefnilega svo mikilvægt
að kynnast öðrum menningar-
heimum og raunveruleika annars
fólks. Bókmenntir endurspegla
þessa þætti einna best því þar mæt-
ast sorg, gleði, aðstæður og lífs-
viðhorf – kjarni hverrar þjóðar.
Halldór Laxness er heimsflakkari
’Bækur þekktra rithöf-unda ferðast misvel og
það er afskaplega gam-
an að því hvað verk
Halldórs Laxness virð-
ast ferðast vel hvar-
vetna.‘
AF LISTUM
Vala Ósk Bergsveinsdóttir
Ljósmynd/Jóhannes Long
Halldór Laxness með Nóbelskjalið.
valaosk@mbl.is
Valgerður Benediktsdóttir
GESTALÆTI heitir kornungur tónlist-
arhópur, skipaður fimm ungum stúlkum
sem allar eru langt komnar í tónlistarnámi í
Tónlistarskólanum í Reykjavík. Í sumar
starfa þær á vegum Hins hússins við að
gleðja borgarbúa með leik og söng. „Við er-
um einn af skapandi sumarhópum Hins
hússins,“ segir Guðbjörg Sandholt, ein
fimmmenninganna. Gestalæti er ekki venju-
legur kammerhópur, – hann er skipaður
tveimur söngkonum, sópran og mezzósópr-
an, tveimur píanóleikurum og fiðluleikara.
„Þetta er óvenjuleg samsetning á kamm-
erhópi og við spilum aldrei fimm saman,
heldur skiptumst á í smærri einingum.“
Guðbjörg segir tækifærið að fá að starfa
að tónlistinni að sumri til ómetanlegt. „Það
hefur verið mikil lyftistöng fyrir okkur í
náminu að geta prófað að starfa sem tón-
listarkonur. Það er undir okkur sjálfum
komið hvernig við skipuleggjum vinnuna, og
við erum nú búnar að spila bæði á hádegis-
tónleikum í Dómkirkjunni og á kvöldtón-
leikum í Iðnó.“
Næstu þrjár vikur verða Gestalæti mikið
á ferðinni að sögn Guðbjargar og áfram
verður haldið með hádegistónleika og kvöld-
tónleika. „Á hádegistónleikum í Dómkirkj-
unni eru eingöngu íslensk verk og dag-
skráin létt. Þetta er fínt fyrir fólk sem vill
nota hádegishléið til að hlusta á músík og
eins fyrir ferðamenn sem vilja heyra ís-
lenska tónlist. Hádegistónleikarnir eru bara
hálftíma langir, en kvöldtónleikarnir í Iðnó
á fimmtudagskvöldum eru klukkutími. Þar
getur fólk setið við borð og fengið sér kaffi-
sopa eða vínglas meðan það hlustar á tón-
listina. Þá er efnisskráin blandaðri. Við höf-
um haldið eina tónleika í Iðnó, og það var
alveg fullt hús og mjög gaman. Það er létt
og notaleg stemmning yfir þessum tón-
leikum.“
Aðrir hádegistónleikar Gestaláta verða í
dag kl. 12.15 í Dómkirkjunni, en næstu
kvöldtónleikar verða í Iðnó á fimmtudags-
kvöld.
Stúlkurnar í Gestalátum eru píanóleik-
ararnir Anna Helga Björnsdóttir og Björg
Magnúsdóttir, Arnbjörg María Danielsen
sópran, Guðbjörg Sandholt mezzósópran og
Guðný Þóra Guðmundsdóttir fiðluleikari.
Aðgangur er ókeypis á alla tónleikana.
Frekari upplýsingar um starfsemi hópsins
má nálgast á Netinu.
Gestalæti í sólskinsskapi.
Tónlist | Skapandi sumarhópur Hins hússins
leikur klassíska tónlist fyrir borgarbúa
Gestalæti í Dómkirkjunni í
hádeginu í dag
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
http://kreditkort.is/klubbar/2005/07/07/
eventnr/61
www.hitthusid.is
TRÍÓ Trix-strengjatríóið heldur tónleika í Sig-
urjónssafni í kvöld. Tríóið, sem er tveggja ára
gamalt, er skipað Sigríði Bjarneyju Baldvins-
dóttur fiðluleikara, Vigdísi Másdóttur víóluleik-
ara og Helgu Björgu Ágústsdóttur sellóleikara.
Á efnisskránni í kvöld eru tvö verk; serenaða
fyrir strengjatríó eftir ungverska tónskáldið
Ernst von Dohnányi og strengjatríó op. 77b eft-
ir þýska tónskáldið Max Reger.
Ungverska verkið var samið árið 1902 og
segir Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir að í því
megi vel greina áhrif frá ungverski alþýðu-
tónlist. Reger samdi sitt verk árið 1904 og bæði
verkin eru undir heilmiklum áhrifum frá
Brahms.
Dohnányi ekki mikið þekktur
Sigríður segir Tríó Trix ekki hafa þekkt til
Dohnányi áður og hann sé lítt þekktur hér á
landi. „Strengjatríóið sem við flytjum eftir hann
í kvöld er hans mest spilaða verk. Það hefur þó
ekki verið spilað hér á landi þar sem lítið er til
af strengjatríóum,“ útskýrir hún. „Okkur var
bent á Dohnányi og leist strax það vel á verkið
að við ákváðum að taka það til æfinga.“
Sigríður er mikill aðdáandi nýrómantíkur og
segir þá tónlist vera í sérstöku uppáhaldi hjá
sér þótt að sjálfsögðu hafi hún gaman af öðrum
tímabilum tónlistarsögunnar.
Tríóstúlkur starfa meira og minna allan árs-
ins hring. „Það tekur mikinn tíma að koma sam-
an flottum tónleikum og er synd að spila efnið
aðeins einu sinni,“ segir Sigríður. Þess vegna
eru þær sérlega ánægðar yfir því að geta flutt
verkin á þrennum tónleikum. Þær komu fram á
hádegistónleikum á Akureyri síðastliðinn föstu-
dag og eftir tónleikana í kvöld verða þær með
sömu efnisskrá í Stykkishólmi hinn 10. júlí.
Tríó spennandi hugmynd
Spurð um tilurð Tríó Trix segir Sigríður að
þær hafi nú alltaf vitað hver af annarri. Hún og
Vigdís kynntust við nám í Þýskalandi en Vigdís
og Helga hafa þekkst síðan í æsku og allar
höfðu þær eitthvað spilað saman áður en tríóíð
var stofnað.
„Við Vigdís ákváðum eiginlega á fyrsta degi í
Þýskalandi að spila saman í framtíðinni. Kúnst-
in var svo að finna þriðja aðilann og Helga pass-
aði vel með okkur,“ lýsir Sigríður. „Í byrjun
spáðum við í að mynda kvartett en tímdum því
svo ekki þar sem samstarf okkar var það gott.
Langflestir stofna strengjakvartett á Íslandi og
það var því spennandi hugmynd að stofna tríó
og kynnast þeim verkum sem samin hafa verið
fyrir þau.“
Mikil æfingatörn hefur verið hjá tríóstúlk-
unum í júní fyrir tónleikana þrenna þótt þær
hafi byrjað að æfa verkin um áramót. Það verð-
ur því gaman að heyra loks afraksturinn í
Sigurjónssafni í kvöld.
Tónlist | Tríó Trix í Sigurjónssafni
Ungversk og þýsk ný-
rómantík tekur völdin
Morgunblaðið/ÞÖK
Tríó Trix: Helga Björg Ágústsdóttir sellóleik-
ari, Vigdís Másdóttir víóluleikari og Sigríður
Bjarney Baldvinsdóttir fiðluleikari.
Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur
valaosk@mbl.is