Morgunblaðið - 05.07.2005, Page 23

Morgunblaðið - 05.07.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 23 Á sl. mánuðum hafa veriðstöðugar umræður um for-gangsröðun framkvæmda ísamgöngumálum. Mestar hafa umræður orðið um jarðgöng og framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess. Af því tilefni er ástæða til þess að bregða upp mynd af því hvernig undirbúningi hefur verið háttað við ákvarðanir um umrædd jarðgöng. Umræðuna um fram- kvæmdir á höfuðborgar- svæðinu læt ég bíða betri tíma. Umræður um Héðinsfjarðargöng Í ljósi umræðu, við af- greiðslu samgönguáætl- unar á síðustu dögum þingsins og þá sér- staklega umræðna sem spunnust um Héðins- fjarðargöng, tel ég rétt að halda nokkrum stað- reyndum til haga. Krist- inn H.Gunnarsson, 7. þingmaður NV- kjördæmis, hefur dund- að sér við að skrifa gegn umræddum jarð- göngum. Kristinn hefur slegið um sig með um- ræðu um arðsemi fram- kvæmda, einkum þeirra sem bæta samgöngur við fámennar byggðir svo sem Héðinsfjarðar- göngin gera. Hann hefur viðrað sig upp við þá sem hafa leitast við að auka andstöðu íbúa á höfuðborgarsvæðinu gagnvart samgöngu- áætlun. Tilgangurinn er augljóslega að magna upp andstöðu við jarð- gangaframkvæmdir, sem þeir telja vera umdeildar. Í þeirri umræðu hef- ur Kristinn verið fremstur í flokki og ber fyrir sig ákvörðun um Héðins- fjarðargöngin. Hann hefur vænt- anlega kynnt sér rækilega fræðin á bak við arðsemisútreikninga fjárfest- inga þegar hann var formaður stjórn- ar Byggðastofnunar. Það verður fróð- legt að fylgjast með umræddum þingmanni þegar hann tekur til við að mæla fyrir því að hefja framkvæmdir við jarðgöng í kjördæmi okkar, NV- kjördæmi. Þar er af mörgu að taka þegar kemur að óskum um fram- kvæmdir í jarðgangagerð þrátt fyrir takmarkaða umferð. En einu hefur Kristinn gleymt í skrifum sínum um göngin. Hann sam- þykkti jarðgangaáætlunina sem setti undirbúning þeirra af stað. Og merki- legt nokk, hann flutti ræðu í þinginu þar sem hann áréttaði að þeim bæri að þakka sérstaklega fyrir, sem væru ábyrgir fyrir því að áætlunin var unn- in. Þannig ber ekki allt upp á sama daginn í málflutningi þingmannsins. Hann ætti að fletta upp í þingtíð- indum frá 13. maí árið 2000 þegar Al- þingi samþykkti áætlun um gerð Héðinsfjarðarganga. Aðdragandi og ákvarðanir Alþingis Ég vil í þessari grein fara yfir ákvörðunartökuferli Héðinsfjarðar- ganga. Verður hér leitast við að svara spurningum þeirra, sem hafa velt þessum framkvæmdum fyrir sér, með því að rekja sögu ákvörðunar um gerð þeirra. Í tengslum við breytingar á kjör- dæmaskipun var rætt um að samhliða þeirri ákvörðun að Siglufjörður fylgdi Norðausturkjördæmi yrði að tengja saman kjördæmið með jarðgöngum og efla um leið Eyjafjarðarsvæðið til mótvægis við höfuðborgarsvæðið. Um þá hugmyndafræði var ekki teljandi ágreiningur á sínum tíma. Með sama hætti var talað um Suðurstrandarveg til að tengja saman Suðurkjördæmi. Hinn 11. mars 1999 var samþykkt á Alþingi eftirfarandi þingsályktun: „Alþingi ályktar að fela samgöngu- ráðherra að vinna langtímaáætlun um gerð jarðganga á Íslandi. Áætl- unin feli í sér úttekt á kostum, sem taldir eru á jarðgangagerð á landinu, kostnaðarmat og arðsemismat ein- stakra framkvæmda og forgangs- röðun verkefna. Sérstaklega verði horft til framkvæmda sem rjúfa vetrareinangrun, koma í stað ann- arrar kostnaðarsamrar vegagerðar, stytta vegalengdir eða stækka at- vinnusvæði. Áætlunin liggi fyrir áður en lokið verður við næstu reglulegu endurskoðun vegáætlunar.“ Jarðgangaáætlun undirbúin Í framhaldi af þess- ari samþykkt Alþingis fól samgönguráðherra, Halldór Blöndal, Vega- gerðinni málið til af- greiðslu, með bréfi dags. 30. mars 1999. Um vorið, nánar til- tekið 28. maí 1999, tók ég við ráðuneyti sam- göngumála. Hélt ég áfram við það verk sem forveri minn hafði sett af stað við undirbúning jarðgangaáætlunar. Strax í maí 1999 skipaði vegamálastjóri vinnuhóp með helstu sérfræðingum Vega- gerðarinnar í jarð- ganga- og áætlanagerð til að leggja drög að langtímaáætlun um jarðgöng. Í byrjun árs 2000 skilaði Vegagerðin til mín jarðgangaskýrslu. Í henni var lagt mat á ýmsa jarðgangakosti á vegakerfinu sem nefndir höfðu verið. Var þar fjallað um tutt- ugu og fjögur hugsan- leg jarðgöng og reynt að meta þau á kerfisbundin hátt. Á vorþingi sama ár legg ég, sem samgönguráðherra, fram tillögu til þingsályktunar að jarðgangaáætlun 2000–2004. Þar voru þrenn jarðgöng tekin út úr og eru það göngin milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar, Héðinsfjarðargöng og milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Í meðförum Alþingis breyttist til- lagan og bætt var við að hefja ætti rannsóknir vegna jarðganga á Austurlandi. Í öllum umræðum um jarðgöng hef ég lagt áherslu á að göng milli Arnarfjarðar og Dýra- fjarðar ættu að vera næst á eftir Héð- insfjarðargöngum og síðan ný göng í stað Oddsskarðsganga. Jarðgöng undir Vaðlaheiði kæmu vel til greina sem einkaframkvæmd líkt og Hval- fjarðargöngin. Í tillögunni er tiltekið að fyrst og fremst verði lögð áhersla á verkefni sem styrki og stækki byggðakjarna með styttingu vega- lengda. Í fyrsta lagi sé verið að sporna við viðstöðulausri fólks- fækkun á landsbyggðinni með því að efla byggðakjarna, sem eru nógu stórir til þess að halda uppi atvinnu-, mennta- og menningarlífi. Í öðru lagi hafa framfarir orðið slíkar í vegagerð að hægt sé að halda uppi vetrar- samgöngum á vel uppbyggðum fjall- vegum þar sem það á við. Nefnt er að meginröksemd fyrir tillögu um jarðgöng milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar sé sú að með þeim tengist Siglufjörður við Eyjafjarð- arsvæði þannig að Eyjafjarðar- svæðið í heild sinni verði öflugt mót- vægi við höfuðborgarsvæðið. Þá er gert ráð fyrir að jarðgöngin þrenn verði einbreið en þó er settur sá fyrir- vari að seinni göngin tvenn geti allt eins orðið tvíbreið. Svo fór að Alþingi samþykkti til- löguna sem ályktun Alþingis 13. maí árið 2000 með öllum greiddum at- kvæðum. Í nefndaráliti samgöngu- nefndar er áhersla á að fjár, til að standa straum af kostnaði við jarð- gangagerð skv. tillögunni, verði aflað sérstaklega, m.a. með sölu ríkiseigna. Þessi samantekt sýnir að ákvörðun um gerð Héðinsfjarðarganga var tek- in annars vegar í tengslum við breytta kjördæmaskipan og hins veg- ar byggð á pólitískum forsendum þar sem litið var fyrst og fremst til efl- ingar Eyjafjarðarsvæðisins. Héðinsfjarðargöngin og arðsemi framkvæmda Eins og þekkt er var ekki hafist handa við gerð Héðinsfjarðaganga á þeim tíma sem fyrsta þingsályktun- artillagan gerði ráð fyrir. Jarð- gangaáætlun var felld inn í fyrstu samgönguáætlunina fyrir tímabilið 2003–2014, en hún var samþykkt vor- ið 2003. Í samgönguáætluninni er vís- að til þeirrar jarðgangaáætlunar, sem samþykkt hafði verið árið 2000 af Al- þingi. Þeim arðsemistölum, sem verið hafa í umræðunni, hefur hvorki verið haldið á lofti af mér né Vegagerðinni á neinu stigi málsins. Arðsemi þessi var reiknuð árið 1998 í tengslum við vinnu sk. Lágheiðarhóps, sem hafði það verkefni að kanna kosti í samgöngu- málum á utanverðum Tröllaskaga. Hópurinn bar saman ýmsa valkosti á svæðinu og niðurstaða hans var að besti kosturinn væri þessi sk. Héðins- fjarðargöng. Vegagerðin gaf út skýrslu árið 1998 sem nefnist „Vegtengingar milli byggðarlaga við norðanverðan Trölal- skaga“. Þar eru þessar niðurstöður allar vel tíundaðar. Enginn sam- anburður var gerður við aðra kosti í uppbyggingu samgöngukerfisins ann- ars staðar á landinu. Réttilega hefur fram komið að hópurinn gerði sína út- reikninga miðað við einbreið göng. Vegna umræðunnar óskaði ég eftir því við Vegagerðina að gerð yrði gróf tilraun til þess að setja inn í það reiknimódel, sem notað var, um 20% kostnaðarauka vegna tvíbreiðra ganga. Niðurstaða þeirra útreikninga Vegagerðarinnar gefur arðsemi upp á 12,5% fyrir tvíbreið göng m.v. 14,5% skv. eldri útreikningum fyrir einbreið göng. Þetta er ekki ýkja mikill mun- ur. Fram hefur hins vegar komið hjá þeim, sem að þessum útreikningum stóðu, að það var umferðarspáin en ekki fjárfestingarkostnaðurinn sem hafði mest áhrif á arðsemina og styð- ur þessi niðurstaða þá staðhæfingu. Einbreið jarðgöng ekki lengur á dagskrá Ég held að umræðan um tvíbreið og einbreið göng falli um sjálfa sig í ljósi breyttra tíma. Samkvæmt upp- lýsingum Vegagerðarinnar er hvergi, svo vitað sé, verið að grafa einbreið göng í heiminum í dag. Hönnun jarð- ganga hér er miðuð við norska staðla. Ákvörðun um að gera Héðinsfjarðar- göngin tvíbreið var þó tekin á grund- velli breytinga á norskum stöðlum í jarðgangagerð á árinu 2003. Þar segir að væru jarðgöng lengri en 5 km skyldu þau vera tvíbreið. Í dag eru þetta alþjóðlegar kröfur. Lengri kafli Héðinsfjarðarganga er 6,9 km. Ég tel að í framtíðinni muni engum detta í hug að nefna, hvað þá byggja, ein- breið jarðgöng. Nýjar aðferðir við mat á forgangsröðun framkvæmda í skoðun Samkvæmt lögum um samgöngu- áætlanir er það samgönguráð sem vinnur að undirbúningi samgöngu- áætlunar. Á vegum þess og í sam- starfi við samgönguráðuneytið var ákveðið að hefja samstarfsverkefni haustið 2004 í samvinnu við Hagfræðistofnun HÍ. Með þeirri vinnu er ætlað að kanna aðferðir við forgangsröðun framkvæmda hjá Vegagerðinni, Flugmálastjórn og Siglingastofnun, bera þær saman við aðferðir nágrannaþjóða okkar og leggja mat á það hvort þörf er á að endurskoða þær aðferðir sem nú eru notaðar við mat á framkvæmdum. Nýtt kerfi getur þannig leitt af sér nýja forgangsröðun á stærri verk- efnum þar sem vægi t.d. umhverfis- þátta og slysatíðni verður endur- metið. Vonast er til að endurskoðað kerfi fyrir forgangsröðun og arðsem- ismat muni veita stuðning við ákvarð- anatöku um verkefni á samgöngu- áætlun í framtíðinni. Jarðgangaframkvæmdir og arðsemi vegagerðar Sturla Böðvarsson fjallar um arðsemi jarðgangafram- kvæmda ’Sérstaklegaverði horft til framkvæmda sem rjúfa vetr- areinangrun, koma í stað ann- arrar kostnað- arsamrar vega- gerðar, stytta vegalengdir eða stækka atvinnu- svæði. ‘ Sturla Böðvarsson Höfundur er samgönguráðherra. ett niður í sínum sumarbústaðar- Eins getur verið fróðlegt fyrir ktarnema og áhugafólk um skóg- skoða safnið.“ ræktarstöðin Ölur var stofnuð á mum árið 1991 og Jónas tók við num árið 1998. „Við ræktum allar löntur á lífrænan hátt, án þess að mísk efni eins og skordýraeitur. min byggist mestmegnis á föstum ktarsamningum, til dæmis fram- við um 140 þúsund aspir á ári fyrir ndsskóga og rúmlega 100 þúsund fyrir Skógræktarfélag Íslands. Við m mikla áherslu á að vera með góða framleiðslu og það er lítið um af- gir Jónas. anna sjálfbært samfélag mar eru samkvæmt lögum sjálfs- tofnun í atvinnurekstri. Samfélagið reint sem sjálfbært byggðarhverfi búa um 100 manns, en auk þess angað vinnu um 15 manns sem bú- settir eru annars staðar. Samkvæmt stefnumótun Sólheima í atvinnumálum skal rekstur fyrirtækja þar taka mið af efnahagslegum og félagslegum áhrifum á samfélagið og leggja skal áherslu á líf- ræna ræktun, vinnslu afurða úr náttúru- legum efnum og endurvinnslu. Skógræktarstöðin Ölur er eitt fjögurra sjálfstæðra fyrirtækja sem starfa á Sól- heimum, en hin eru Garðyrkjustöðin Sunna, Gistiheimilið Brekkukot og Versl- unin Vala. Fyrirtækin eru óháð sjálfseign- arstofnuninni, en vefstofa, listasmiðja, tré- og hljóðfærasmiðja, kertagerð, keramik- verkstæði og jurtastofa eru hluti af starf- semi Sólheima. Fyrirtækin og verkstæðin, auk Sólheimabúsins og félagsþjónustu Sól- heima, veita samtals um 80 störf fyrir fatl- aða og ófatlaða. Sólheimar reka eigin hita- veitu, dreifikerfi fyrir rafmagn, vatns- veitu, fráveitukerfi, sorphirðu og endur- vinnslu. agnað með ýmsum hætti leg nýbygging mun m.a. hýsa matsal, eldhús, skrifstofur, þvottahús og bakarí. ignir Grétarsson kveðst hafa alið þann draum í nokkur ár að koma upp trjásafni ymi helstu trjátegundir landsins. Morgunblaðið/ÞÖK ðar með lífrænum hætti sem heimilisfólk á Sólheimum sér um af mikilli alúð. adalheidur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.