Morgunblaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ásta Laufey Har-aldsdóttir fædd-
ist að Reyni í Innri-
Akraneshreppi 15.
júlí 1920. Hún andað-
ist á Sjúkrahúsi
Akraness laugardag-
inn 25. júní síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Haraldur
Jónsson bóndi, f. í
Steinsholti í Leirár-
sveit 24. október
1890, d. 22. septem-
ber 1936, og Guðrún
Björnsdóttir, f. 9.
mars 1896 í Reykja-
vík, d. 12. desember 1948. Systkini
Ástu eru Ellert, f. 20 janúar 1914, d.
11. janúar 1976; Ingimar, f. 4. sept-
ember 1917, d. 12. júlí 1982; Sig-
urbjörn, f. 7. janúar 1919, d. 20. maí
1990; Jón Árni, f. 13. júlí 1923, bú-
settur í Hafnarfirði; Benedikt, f. 20.
ágúst 1924, d. 17. september 1995;
og Ingibjörg Jóhanna, f. 4. septem-
ber 1934, d. 22. júní 1935.
Hinn 28. júní 1941 giftist Ásta
nóv. 1948, búsett í Hrunagerði í
Hraungerðishreppi, maki Guð-
mundur Stefánsson. Synir þeirra
eru Stefán Þór, f. 30. nóvember
1971, og Jón Tryggvi, f. 30. júlí
1974. 4) Haraldur Jónsson, f. 4. des.
1950, búsettur á Móum í Innri-
Akraneshreppi, maki Sólveig Jóna
Jóhannesdóttir. Dóttir þeirra er
Ásta Laufey, f. 29. mars 1989, d. 14.
apríl 1989. Sonur Haraldar er Guð-
laugur Jón, f. 11. janúar 1971. 5)
Guðmundur Páll Jónsson, búsettur
á Akranesi, maki Sigurlína Guðrún
Júlíusdóttir. Börn þeirra eru Val-
geir Sigurðsson, f. 14. nóvember
1978, Steinunn, f. 9. ágúst 1990, og
Sigurjón, f. 13. janúar 1992. Lang-
ömmubörn Ástu eru 17.
Ásta ólst upp á Reyni til fimmtán
ára aldurs. Ung fór hún til starfa og
náms við saumaskap hjá Þórunni
Oddsdóttur á Akranesi. Veturinn
1940-41 stundaði Ásta nám við Hús-
mæðraskólann á Staðarfelli. Eftir
að uppeldi barna lauk starfaði Ásta
við saumaskap, fiskvinnslu og ýmis
þjónustustörf á Akranesi. Eftir að
hún fluttist til Reykjavíkur 1974
stafaði hún m.a. á Hrafnistu og við
heimilshjálp til margra ára.
Útför Ástu verður gerð frá Akra-
neskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
Jóni Eiríki Guðmunds-
syni sjómanni, f. 16.
september 1912, d. 17.
júlí 1995, og eignuðust
þau fimm börn. Þau
skildu. Árið 1966 hóf
Ásta sambúð með Sig-
urjóni Þorsteinssyni
frá Kjaranstöðum í
Innri-Akraneshreppi,
f. 11. júlí 1916, d. 24.
janúar 1989. Sigurjón
og Ásta giftust 10. jan-
úar 1988. Börn Ástu og
Jóns eru: 1) Soffía
Helga Guðrún, f. 25.
mars 1942, búsett á
Akureyri, maki Diðrik Jóhannsson.
Börn þeirra eru Elsa Björg, f. 2.
mars 1962, og Líney Snjólaug, f. 21.
júlí 1966. 2) Elísabet Guðbjörg, f.
11. september 1945, búsett í Garða-
bæ, maki Jóhann Jóhannsson. Börn
þeirra eru Inga Dóra Steinþórs-
dóttir, f. 18. júní 1964, Jóhann Egg-
ert, f. 23. júní 1965, Ástþór Vilmar,
f. 26. maí 1971, og Jón Eiríkur, f. 12.
júní 1975. 3) Guðrún Hadda, f. 5.
Það kom eins og köld vatnsgusa
þegar pabbi hringdi og tjáði mér að
amma ætti stutt eftir. Já, maður býst
víst aldrei við slæmum fréttum, hvað
þá á svona fallegu sumarkvöldi eins
og var þetta kvöld. En ég hugsaði
með mér að kannski væri þetta tákn-
rænt fyrir þá hlýju og birtu sem um-
vafði allt þar sem amma var, og því
við hæfi að veðrið væri þannig þegar
hún kveddi þetta jarðneska líf.
Amma hefur alltaf verið hluti af til-
verunni frá því að ég man eftir mér.
Það var alltaf mikil gleði og tilhlökkun
sem ríkti í hjarta mínu þegar fram
undan var heimsókn til „ömmu í
Reykjavík“. Hjá ömmu var, án und-
antekninga, gert vel við mann í mat
og drykk. Amma og Sigurjón voru
alltaf dugleg að spila og þá var jafnan
farið í rússa, vist og fleiri spil. Þó svo
amma hefði gert vel við okkur í ýmsu
þá var það ekki það sem málið snerist
um. Nei, það var hún sjálf, góðvildin
og þessi létta og jafna lund sem hún
hafði. Amma var mikil sögumann-
eskja. Hún var alltaf að segja frá ein-
hverju og oftar en ekki voru þetta
kómískar sögur af henni sjálfri. Þar
sem sagan snerist um einhverja „vit-
lausa“ karla eða þá hvað hún hefði
verið „vitlaus“ eða „rugluð“ í það og
það skiptið. Þegar hún fór með þessar
sögur þá gat maður setið tímunum
saman og hlustað.
Hún var gjafmild með eindæmum.
Það var aldrei svo að það biði manns
ekki pakki frá ömmu af minnsta til-
efni. Það var reyndar alltaf einhvern
veginn svo ljúft að þiggja gjafir frá
henni því hún hafði svo gaman af því
að gefa. Þegar ég eignaðist stelpurn-
ar mínar tvær byrjaði hún að gefa
þeim gjafir og oft voru þetta flíkur
sem hún hafði sjálf búið til. Sérstak-
lega man ég eftir pilsum sem hún bjó
til og gaf stelpunum mínum, þau voru
svo listavel gerð og flott.
Þú lékst á als oddi daginn áður en
þú veiktist, fíflaðist með það að þú
ÁSTA LAUFEY
HARALDSDÓTTIR
✝ Halldór SturlaFriðriksson
fæddist í Borgarnesi
11. júlí 1936. Hann
lést á heimili sínu 24.
júní síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Friðrik Þórðarson,
verslunarstjóri í
Borgarnesi, f. 25.10.
1903, d. 1.8. 1977, og
Stefanía Þorbjarnar-
dóttir organisti, frá
Hraunsnefi, f. 14.5.
1910, d. 31.5. 2002.
Bróðir Halldórs er
Óskar Viðar, f. 14.8.
1931.
Hinn 24. maí 1958 kvæntist Hall-
dór Ernu Sveinbjörnsdóttur stór-
kaupmanni, f. 3.4. 1939 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Sveinbjörn
Jónsson bifreiðastjóri og Elínborg
Ólafsdóttir. Systkini Ernu eru
Haukur, Sigríður og Bjarni (d. 11.2.
1996). Halldór og Erna eignuðust
1991, c) Helena Ír, f. 22.3. 1993.
Elsta dóttir Elínborgar, Erna, ólst
upp hjá Halldóri og Ernu.
Halldór lauk Verslunarskóla-
prófi frá Verzlunarskólanum í
Reykjavík 1955. Hann var við nám
við Pitmans Collage í London vet-
urinn 1955–56. Hann hóf starfsfer-
ill sinn sem skrifstofumaður hjá
Eimskipafélagi Íslands árið 1956 til
1958, var skrifstofustjóri hjá
Verzlunarsambandinu frá 1958 til
1962. Árið 1962 réðst hann til starfa
sem skrifstofustjóri hjá Hafskip hf.
og gegndi því starfi til ársins 1977.
Á þeim tíma gegndi hann ýmsum
trúnaðarstörfum, m.a. fyrir Vinnu-
veitendasamband Íslands. Árið
1977 hóf hann störf sem skrifstofu-
stjóri hjá Nesskipum hf. og gegndi
því starfi til ársins 1985 er hann hóf
störf við eigið fyrirtæki, Borgar-
hellu ehf., og starfaði hann þar til
dauðadags.
Halldór var virkur þátttakandi í
Oddfellowreglunni á Íslandi og
gegndi þar ýmsum trúnaðarstörf-
um og hefur reglan átt hug hans og
hjarta síðustu árin.
Útför Halldórs verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
fjörur börn. Þau eru:
1) Friðrik Stefán, f.
27.5. 1959, kona hans
er Bergljót Friðriks-
dóttir og eiga þau þrjú
börn: a) Auður, f. 10.6.
1984, b) Esther, f. 9.11.
1994, c) Íris, f. 21.1.
1997. 2) Elínborg, f.
16.4. 1962, og á hún
fjögur börn: a) Erna
Gunnþórsdóttir, f.
14.5. 1984, b) Þórarinn
Jökull, f. 7.4. 1994, c)
Alexandra, f. 7.6. 1995,
d) Halldóra Vera, f.
4.10. 1999. 3) Svein-
björn, f. 17.9. 1963, kona hans Ingi-
björg Erna Sigurðardóttir og eiga
þau þrjú börn: a) Ernam, f. 17.12.
1985, b) Halldór Freyr, f. 7.9. 1988,
c) Linda Björk, f. 27.11. 1995. 4)
Margrét, f. 1.3. 1965, maður hennar
Jóhann Viktor Steimann og eiga
þau þrjú börn, a) Thelma Björk, f.
6.12. 1989, b) Harpa Ruth, f. 12.4.
Við viljum kveðja föðurbróður okk-
ar, Halldór S. Friðriksson, með fáein-
um orðum. Halldór var tæplega 69
ára að aldri þegar hann lést. Andlát
hans bar óvænt að þótt hann hafi að
undanförnu átt við nokkra vanheilsu
að stríða.
Hann var annar tveggja sona
hjónanna Friðriks Þórðarsonar og
Stefaníu Þorbjarnardóttur sem
lengst af bjuggu og störfuðu í Borgar-
nesi. Halldór var fimm árum yngri en
Óskar, faðir okkar. Þrátt fyrir nokk-
urn aldursmun var alla tíð kært á milli
þeirra bræðra og saman báru þeir þá
arfleifð sem þeir höfðu fengið úr föð-
urhúsum. Líkt og faðir þeirra höfðu
þeir mikinn áhuga á þjóðmálum, ís-
lenskum staðháttum og síðast en ekki
síst bifreiðum. Halldór erfði einnig
áhuga föður síns á viðskiptum og
starfaði alla tíð við þau m.a. fyrir
Verslanasambandið, Hafskip og Nes-
skip. En mestum kröftum varði hann
til að byggja upp fyrirtækið Borgar-
hellu ásamt konu sinni, Ernu Svein-
bjarnardóttur. Enginn þarf að efast
um að Halldór var vinnuþjarkur og
dugnaður hans mikill.
Halldór og Erna eignuðust fjögur
börn sem eru á svipuðum aldri og við
systkinin. Venjulegast var kátt á
hjalla þegar við hittumst. Oftar en
ekki var það hjá föðurforeldrum okk-
ar sem kunnu sér ekki læti að fá okk-
ur í heimsókn. Sérstaklega amma
Stefanía sem bakaði fjall af pönnu-
kökum, kramarhús og kleinur, svo
fátt eitt sé nefnt, til að eiga eitthvað
til að gæða okkur öllum á. Og App-
elsínið og Sinalcoið flóði.
Halldór var líka örlátur maður og
greiðvikinn. Ef til hans var leitað
brást hann einatt vel við og hann var
hlýr í viðmóti og stutt í brosið. Hall-
dór var ekki nískur á takmarkaðan
frítíma sinn því hann var m.a. virkur í
starfi Oddfellow í Reykjavík og lagði
Sjálfstæðisflokknum lið. Þegar kosn-
ingar fóru í hönd aðstoðaði Halldór
bróður sinn Óskar, og aðra sem starf-
að hafa á utankjörstaðaskrifstofu
Sjálfstæðisflokksins, við að koma dýr-
mætum atkvæðum til skila í réttar
kjördeildir. Þar kom sér vel mikil
þekking Halldórs á íslenskri landa-
fræði og samgöngum. Brast oft út
mikill fögnuður þegar tekist hafði á
síðustu stundu að koma öllum at-
kvæðum til skila.
En nú er komið að leiðarlokum fyr-
ir þennan mæta mann. Við viljum
þakka honum samfylgdina og vottum
Ernu, börnum hans og barnabörnum
dýpstu samúð okkar.
Stefanía Óskardóttir,
Herdís Óskarsdóttir,
Þorleifur Óskarsson.
Hjartkæri Halldór minn, mágur og
vinur. Við áttum bágt með að trúa því
að þú værir svo sviplega genginn á
braut því það gekk allt svo vel og þú
varst að styrkjast eftir mjög erfið
veikindi.
Við minnumst gleði þinnar og glað-
værðar á góðum stundum og í góðum
félagsskap og þó sérstaklega þá er við
veiddum saman forðum.
Þú varst traustur vinur og trúr, í
orði og æði. Hugprýði, fegurð og
dyggðir prýða þín spor.
Með söknuði ertu kvaddur.
Við vottum aðstandendum dýpstu
samúð okkar.
Haukur Sveinbjarnarson,
Margrét Guðjónsdóttir.
Vinur minn Halldór S. Friðriksson
er látinn, langt um aldur fram, tæp-
lega 69 ára að aldri.
Við Halldór kynntumst árið 1957 er
hann og æskuvinkona mín Erna fóru
að vera saman. Mennirnir okkar,
Halldór og Páll heitinn, urðu hinir
bestu vinir og mátar. Þegar Erna og
Halldór bjuggu í Safamýri vorum við
nágrannar og varð mikill samgangur
á milli heimila okkar. Áttum við hjón-
in margar gleðistundir á heimilum
okkar beggja, sem og annars staðar.
Börnin okkar eru á svipuðum aldri,
lífið var dásamlegt, allt var svo gott og
skemmtilegt.
Árið 1969 gekk Halldór í Oddfell-
ow-regluna á Íslandi st. nr. 11 Þorgeir
og varð síðar tillögumaður Páls míns
inn í sömu stúku. Voru þeir ávallt góð-
ir Oddfellow-bræður.
Halldór var skemmtilegur maður,
orðheppinn, ákveðinn, en fyrst og
fremst góður drengur. Ég þakka hon-
um farsæla samfylgd.
Ég og börnin mín, Guðmundur,
Auður og Guðbjörg, biðjum Guð að
blessa Ernu, Friðrik, Ellý, Svein-
björn, Margréti, Ernu og fjölskyldur
þeirra. Megi minningin um góðan
eiginmann, föður og afa lifa.
Hrafnhildur Magnúsdóttir.
Fallinn er frá einn besti vinur
minn, Halldór Sturla Friðriksson.
Þessi fregn var mér mikið áfall þar
sem ekkert benti til þess að hann væri
haldinn einhverjum banvænum
sjúkdómi. Ég kynntist honum fljót-
HALLDÓR STURLA
FRIÐRIKSSON
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ÓLÖF AUÐUR ERLINGSDÓTTIR,
Eikjuvogi 1,
Reykjavík,
sem lést á Landakotsspítala mánudaginn
27. júní, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 6. júlí kl. 13.00.
Ingvar Gíslason,
Fanny Ingvarsdóttir,
Erlingur Páll Ingvarsson, Alda Sigmundsdóttir,
Gísli Ingvarsson, Ásthildur Magnúsdóttir,
Sigríður Ingvarsdóttir,
Auður Inga Ingvarsdóttir, Ingólfur Björnsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir, afi og langafi,
KARL JÓHANN KARLSSON
raffræðingur,
Kleppsvegi 144,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 8. júlí kl. 13.00.
Kristín Sighvatsdóttir,
Karl Örn Karlsson, Kristín Blöndal,
María Karlsdóttir
Sighvatur Karlsson, Auður Björk Ásmundsdóttir,
Erla Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar,
HRAFNHILDUR GÍSLADÓTTIR
Sólhól, Bogaslóð 6,
Höfn,
lést sunndaginn 3 júlí.
Útför fer fram frá Hafnarkirkju föstudaginn 8. júlí kl 15.00.
Stefán og Borgþór Arngrímssynir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN MARGRÉT ARNGRÍMSDÓTTIR,
áður til heimilis
að Harðangri,
lést á dvalarheimilnu Hlíð, Akureyri, fimmtu-
daginn 30. júní.
Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju fimmtu-
daginn 7. júlí kl. 14.00.
Þröstur Brynjólfsson, Sigríður Sigurðardóttir,
Reynir Brynjólfsson, Elísabet Erla Kristjánsdóttir,
Arngrímur Brynjólfsson, Jóhanna Magnúsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800