Morgunblaðið - 05.07.2005, Page 39
Frá leikstjóra Bourne Identity
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktarmeð rauðu
Sýnd kl. 6 og 8
553 2075☎
- BARA LÚXUS
Bourne Identity
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
Blaðið
Blaðið
ÞÞ - FBL
Miðasala opnar kl. 17.00
Hinn eini rétti
hefur aldrei verið
eins rangur!
Frábær
gamanmynd
sem fór beint á
toppinn í USA.
Sýnd kl. kl. 6, 8.30 og 10.40
„Skotheld frá A-Ö
Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari heims!
AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINSyfir 38.000 gestir
x-fm
Sýnd kl. 6 og 9 B.i 10 ÁRA Sýnd kl. 5.40 og 8 B.i 16 ÁRA
JANE
FONDA
JENNIFER
LOPEZ
kl. 10.10 B.i 16 ÁRA
ÞÞ - FBL
Bourne Identity
Blaðið
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i 14 ára
Ó.Ö.H - DV
Síðustu sýningar
Síðustu sýningar
Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i 14 ára
T O M C R U I S E
MYND EFTIR
Steven spielberg
I N N R Á S I N E R H A F I N
YFIR 30.0
00 GESTIR
POWERSÝNINgá stærsta thxtjaldi landsins
kl. 10.20
„Innrásin er girnileg
sumarskemmtun,
poppkornsmynd
af bestu gerð!“
-S.V, MBL
„EKTA STÓRSLYSAMYND“
-Ó.Ö.H, DV
-KVIKMYNDIR.IS
-Ó.H.T, RÁS 2
VINSÆ
LASTA
MYND
IN Á ÍS
LANDI
-
YFIR 1
6.000
GESTI
R
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 39
SVO mikið er víst að nýja Foo Fight-
ers-platan, hin smekkfulla tvöfalda In
Your Honor, er ólík öllum öðrum
plötum sem sveitin hefur sent frá sér.
Sem er út af fyrir sig jákvætt. Dave
Grohl, forsprakki,
söngvari og að-
allagahöfundur,
hefur viðurkennt
að hún sé í aðra
röndina viss af-
töppun, hafi að
geyma lög sem hrannast hafi upp hjá
honum vegna þess einfaldlega að
hann hafði ekki fundið þeim viðeig-
andi sess. Ástæðan er augljós. Þau
eru of róleg fyrir hina upptrekktu og
útvarpsvænu rokkstefnu sem Grohl
hefur rekið frá stofnun sveitarinnar.
Of órafmögnuð fyrir svona rosalega
rafmagnaða sveit. Þessi lög eru nú
loksins komin út á síðari plötu þess-
arar útgáfu, órafmögnuð mikið til eða
í berstrípuðum útsetningum, rólegri
lög en maður á að venjast og yfir það
heila betri. Það er meira í þau spunn-
ið en mörg af keyrslulögunum hans
Grohl sem eiga það til að verða ansi
einsleit, tilþrifalítil og bragðdauf í öll-
um hamaganginum. Og það eru þau
einmitt lögin á fyrri plötunni, sem
rennur í gegn af þessu líka óskaplega
fútti, en þó samt án þess að grípa
mann. Reyndar má finna þar nokkra
góða ekta Foo Fighters-rokkara; eins
og titillagið og smáskífuna „Best of
You“. Þessi eiga eftir að virka fínt í
Egilshöll. En lengst af er Grohl garg-
andi úr sér lungun, með storminn í
fangið, þannig að á endanum heyrist
lítið sem ekkert í honum. Fengurinn
er því í seinni plötunni þar sem Grohl
fær loksins tækifæri til að sýna ein-
hverja breidd sem tónlistarmaður.
Maður vissi svo sem að hann gæti
þetta, ætti nóg inni, enda klár náungi
með afbrigðum, lunkinn lagasmiður,
fínn söngvari, frábær trommari og al-
mennt góður gæi. „What If I Do?“ er
tvímælalaust eitt af bestu lögum sem
Grohl hefur samið, sem og „Friend
Of A Friend“, sem hann samdi um
Cobain, fyrir rúmum tíu árum; slá-
andi texti og Nirvana-leg lagasmíð.
Bossanóva-dúettinn „Virginia Moon“
með Noruh Jones er líka merkilega
vel heppnaður, ljúft lag með af-
brigðum og niðurlagið á plötunni gæti
ekki verið betra. „Razor“ er frábært
lag þar sem Josse Homme úr Queens
of the Stone Age fer fimum fingrum
um gítarinn.
Það virkar því margt á seinni plöt-
unni en sú fyrri er alltof fyrirsjáanleg
og dregur heildarpakkann svolítið
niður.
Rokk og
rólegheit
TÓNLIST
Erlendar plötur
Foo Fighters – In Your Honor
Skarphéðinn Guðmundsson
LEIKKONAN og leikstjórinn Liv Ullmann er
væntanleg hingað til lands í næstu viku en
hún er að undirbúa nýjustu mynd sína sem
gerð er eftir bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar,
Slóð fiðrildanna. Ullmann skrifaði handritið
sjálf eftir bók Ólafs Jóhanns og mun hún leik-
stýra myndinni sem hefur fengið nafnið A
Journey Home. Ólafur Jóhann sagði í samtali
við Ríkisútvarpið að hann hefði lesið handritið
og væri ánægður.
Sagan segir frá miðaldra konu sem búsett
er í Englandi en fer aftur heim til Íslands eft-
ir margra ára fjarveru. Áhorfendur fá svo
smám saman að komast að því hvers vegna
konan fer aftur upp á Íslands strendur og
hvers vegna hún fluttist þaðan upphaflega.
Ullmann segir búið að ráða þekkta Óskars-
verðlaunaleikkonu til að fara með aðalhlut-
verk myndarinnar en vill ekki upplýsa um
hver það er að svo stöddu.
Fyrirhugað er að framleiðsla við kvikmynd-
ina hefjist á næsta ári.
Ullmann er þessa stundina stödd á Karlovy
Vary-kvikmyndahátíðinni í Tékklandi þar sem
hún hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir fram-
lag sitt til kvikmyndalistarinnar.
Reuters
Liv Ullmann gerir kvikmynd á Íslandi eftir sögu
Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Slóð fiðrildanna.
Kvikmynd eftir Slóð fiðrildanna
Kvikmyndir | Liv Ullmann á leið til Íslands
Frétt um að bandaríski tónlist-armaðurinn Bruce Springs-
teen hafi spilað og sungið fyrir
starfsfólk í Leifs-
stöð snemma
nætur í síðustu
viku hefir vakið
talsverða athygli
og birst víða í
fjölmiðlum.
AP-fréttastof-
an segir, að
Springsteen hafi
verið á leið til
Bandaríkjanna aðfaranótt miðviku-
dags eftir að hafa leikið á tónleikum í
Berlín og flugvél hans hafi lent á
Keflavíkurflugvelli til að taka elds-
neyti um klukkan 2. AP hefur eftir
starfsmanni Leifsstöðvar að
Springsteen hafi komið inn og spilað
nokkur lög, þar á meðal „Dancing in
the Dark“ og „I’m on Fire“.
Springsteen hefur verið að halda
tónleika til að kynna plötuna Devils
& Dust. Hann mun halda næstu
formlegu tónleika sína í Toronto í
Kanada 13. júlí.
Bandaríski leikarinn Robert Red-ford, sem lék blaðamanninn
Bob Woodward í mynd um Water-
gate-hneykslið, sagðist á dögunum
harma að banda-
rískir blaðamenn
beittu engri rann-
sóknarblaða-
mennsku á rík-
isstjórn George
W. Bush á sama
hátt og þeir
gerðu þegar Wa-
tergate-hneykslið kom upp.
„Það er ýmislegt mjög sambæri-
legt sem er að gerast núna en hvar
eru blaðamennirnir?“ spurði Red-
ford blaðamenn á kvikmyndahátíð-
inni í bænum Karlovy Vary í Tékk-
landi sem nú stendur yfir.
Hann gagnrýndi hvernig ráða-
menn töluðu um Íraksstríðið og
sagði að „áfram væri logið að al-
menningi í Bandaríkjunum“.
Fólk folk@mbl.is