Morgunblaðið - 05.07.2005, Síða 40

Morgunblaðið - 05.07.2005, Síða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ BATMAN EINS OG ÞÚ HEFUR ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR ! Nýr og miklu betri leðurblökumaður. H.L. / Mbl. Loksins, Loksins  M.M.M / Xfm 91,9  Kvikmyndir.is Gleymdu hinum. Þetta er alvöru Batman Ó.Ö.H / DV Gleymið öllum hinum Batman myndunum. Þessi er málið Andri Capone / X-FM 91,9 Þórarinn Þ / FBL  D.Ö.J. / Kvikmyndir.com H.B. / SIRKUS T O M C R U I S E I N N R Á S I N E R H A F I N I N N R Á S I N E R H A T O m c r u MYND EFTIR Steven spielberg MYND EFTIR Steven spielberg     War of the Worlds kl. 6 - 8.30 - 11 b.i. 14 Batman Begins kl. 5.30 - 7.15 - 9 og 11 b.i. 12 Voksne Mennesker kl. 5.45 Crash kl. 8 og 10.15 b.i. 16  „EKTA STÓRSLYSAMYND“ -Ó.Ö.H, DV  -KVIKMYNDIR.IS  -Ó.H.T, RÁS 2  „Innrásin er girnileg sumar skemmtun, poppkorns mynd af bestu gerð!“ -S.V, MBL  „EKTA STÓRSLYSAMYND“ -Ó.Ö.H, DV  -KVIKMYNDIR.IS  -Ó.H.T, RÁS 2  VINSÆ LASTA MYND IN Á ÍS LANDI - YFIR 1 6.000 GESTI R BLAÐAMANNAFUNDUR var haldinn á hinu nýja hóteli 1919 í tilefni af tónleikum bandarísku hljómsveitanna Foo Fighters og Queens of the Stone Age sem verða í Egilshöll í kvöld. Meðlimir sveitanna virtust í þægileg- asta skapi og það er varla hægt að sjá annað, á myndunum hér að ofan, en að tónleikarnir hér á landi séu einnig hugsaðir sem stund milli stríða á annars erfiðri tónleikaferð. Blaða- menn frá hinum ýmsu fjölmiðlum voru sam- ankomnir í matsal hótelsins en eitthvað stóð á spurningunum, hvort sem það var almennum stjörnufans að kenna eða einhverju öðru. Josh Homme, söngvar Queens of the Stone Age, sagðist vera hæstánægður með heimsóknina og þakkaði Foo Fighters að gera þeim kleift að koma til Íslands. Dave Grohl rifjaði upp heim- sókn Foo Fighters hingað árið 2003 og sagði að þeir hefðu verið þeir bestu á tónleikaferð- inni. Nú vonaðist hann til að gera fleira á þess- um þremur dögum en að heimsækja dæmi- gerða ferðamannastaði en með honum í för eru þó nokkrir vinir og vandamenn. Strákarnir á Stöð 2 létu sig ekki vanta á þessum blaða- mannafundi frekar en öðrum og höfðu með sér lítið trommusett sem ku vera til staðar í mynd- veri þeirra. Dave Grohl áritaði fyrir þá trommuskinnið og endaði síðan á að tromma lítillega á settið. Líkt og Strákarnir sögðu var ljóst að hann hefði trommað áður. Eftir blaðamannafundinn fóru hljómsveit- irnar á Stokkseyri þar sem stærðarinnar grill- veisla var haldin þeim til heiðurs sem og í til- efni af fjórða júlí, þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna. Stokkseyri var einnig áfanga- staður Foo fighters árið 2003 og frægt er þeg- ar Dave Grohl æfði með hljómsveitinni Nilfisk í „hlöðu“, eins og Grohl minntist þess á blaða- mannafundinum. Eins og áður sagði eru tón- leikarnir í kvöld en áður en hljómsveitirnar halda af landi brott er bæði köfun og brim- bretti á dagskrá á „ævintýraeyjunni“ Íslandi. Tónlist | Blaðamannafundur Foo Fighters og Queens of the Stone Age Þónokkrir vinir og vandamenn eru í fylgdarliði hljómsveitanna, þar á meðal faðir Dave Grohls. Stund milli stríða DANSKI tónlistarmaðurinn og eftirlæti Íslendinga að því er virðist, Kim Larsen, heldur tónleika með hljómsveit sinni Kjukken hér á landi í lok ágústmánaðar. Upphaflega áttu tónleikarnir að vera tveir og varð uppselt á þá á tveimur klukkustundum. Eftir samn- ingaviðræður við Larsen hefur verið ákveðið að halda þriðju tónleikana hér á landi. Auka- tónleikarnir fara fram fimmtu- daginn 25. ágúst næstkomandi og hefst miðasala í verslun 12 tóna við Skólavörðustíg 11. júlí næstkomandi klukkan 10. Kjukken var stofnuð árið 1995 og hana skipa auk Lar- sens þeir Karsten Skovgaard, Jesper Rosenqvist og Jesper Haugaard. Tónlist | Kim Larsen heldur tónleika hér í ágúst Kim Larsen annar frá vinstri með hljómsveit sinni Kjukken. Þriðju tónleik- unum bætt við HIN breska Babyshambles með vandræðagemsann Pet- er Doherty í fararbroddi, hefur staðfest komu sína á Ice- land Airwaves tónlistarhátíðina sem verður haldin dag- ana 19.–23. október. Peter sem var áður í Libertines stofnaði hliðarverkefnið Babyshambles árið 2003 en eftir að hann sagði skilið við Libertines, hefur hann verið að sækja í sig veðrið að undanförnu með Babyshambles. Fyrir utan litríkan lífsstíl nýtur Peter Doherty gífur- legrar virðingar sem texta- og lagahöfundur og eru tón- leikar hljómsveitarinnar umtalaðir sem spennandi gjörn- ingur í hvert skipti þar sem traustir hljóðfæraleikarar gefa Peter svigrúm til að spinna að vild. Babyshambles á ört vaxandi vinsældum að fagna og eru mjög áberandi á mörgum af helstu útihátíðum sumarsins. Að sögn Hr. Örlygs er undirbúningur Iceland Air- waves í fullum gangi og búist er við að fleiri erlendir sem og innlendir listamenn verði kynntir til sögunnar á næstu vikum. Tónlist | Babyshambles spilar á Airwaves Peter Doherty væntanlegur Peter Doherty er alkunnur vandræðagemsi. Heimildarmyndinni AfricaUnited, sem framleidd er af Poppoli Pictures í samstarfi við Zik Zak og leikstýrt er af Ólafi Jó- hannessyni, hefur verið boðið að taka þátt í tveimur alþjóðlegum kvikmyndahátíðum. Um er að ræða heimildarmyndahátíðina í Yamagata í Japan og kvik- myndahátíðina Louis Vuitton á Hawaii. Er þetta í fyrsta sinn sem íslenskri mynd er boðin þátttaka á hátíðunum tveimur. Aðstandendur myndarinnar eru staddir þessa stund- ina á Karlovy Vary kvikmyndahátíðinni í Tékklandi þar sem Africa United verður frumsýnd næstkomandi mið- vikudag. Fólk folk@mbl.is ÞÁ HEFUR það verið staðfest að Chan Marshall, sem er ef til vill betur þekkt undir nafninu Cat Power, spili á Innipúkanum um verslunarmannahelgina. Chan Marshall er Suðurríkjapía sem hefur vakið athygli á jaðarsenunni fyrir frumlega og skemmtilega rokktónlist. Chan hefur unnið með ekki ómerkari tónlistarmönnum en Steve Shelly, trommuleikara Sonic Youth og Dirty Three, en Warren Ellis, fiðluleikari þeirrar hljóm- sveitar, lék með Nick Cave þegar hann kom hingað til lands árið 2002. Chan þykir frábær á tónleikum en duttlungafull og því verður áhugavert að fylgjast með stúlkunni þegar hún stígur á svið í Iðnó um verslunarmannahelgina. Chan Marshall, Cat Power Cat Power á Innipúkanum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.