Morgunblaðið - 05.07.2005, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 05.07.2005, Qupperneq 44
BANASLYS varð í gær þegar roskinn karlmað- ur á pallbíl lenti í árekstri við rútu við Minni- Borg í Grímsnesi nokkru eftir hádegið. Öku- maður pallbílsins er talinn hafa látist samstund- is að sögn lögreglunnar á Selfossi. Í rútunni voru 42 farþegar auk ökumanns hennar og leið- sögumanns. Þrír farþegar úr rútunni voru fluttir á sjúkra- hús í Fossvogi en meiðsli þeirra eru ekki talin alvarleg. Aðrir sem voru í rútunni voru fluttir af vettvangi með annarri rútu til aðhlynningar, fyrst á Selfossi en síðan í Reykjavík. Tilkynnt var um slysið til lögreglunnar klukk- an 13.43. Lögreglu- og sjúkraflutningamenn frá Selfossi fóru á vettvang ásamt fjölmennu liði lækna frá Sjúkrahúsi Selfoss. Einnig var lög- reglubifreiðum frá Kópavogi og Hvolsvelli stefnt á vettvang. Þá var þyrla Landhelgisgæsl- unnar send af stað en henni var snúið við fljót- lega. Í rútunni voru erlendir ferðamenn á vegum Kynnisferða sem voru að skoða Gullfoss og Geysi. Voru þeir meðal annars frá Frakklandi, Norðurlöndum og Þýskalandi. Gyða Helgadóttir hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir deildina hafa unnið að því að aðstoða Rauða krossinn við að upplýsa sendiráð ríkjanna sem fólkið er frá um slysið og líðan fólksins. Gyða segir að svonefnd samhæfingarstöð sé opin að hluta vegna slyssins en hún veiti yfir- völdum í Árnessýslu aðstoð við þær aðgerðir sem grípa þurfi til vegna þess. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Það sem af er árinu hafa 14 manns látist í umferðinni hér á landi. Lést í árekstri við rútu Ljósmynd/Guðmundur Karl Sigurdórsson Áreksturinn í Grímsnesi í gær var mjög harður og gjöreyðilagðist pallbifreiðin. Það sem af er árinu hafa 14 manns látist í umferðinni hér á landi. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Þrír af 44 í rútunni voru fluttir slasaðir á sjúkrahús MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. KJÖRIN verður ný stjórn FL Group á hluthafafundi félags- ins sem haldinn verð- ur næstkomandi laug- ardag. Eins og komið hefur fram hafa allir stjórnarmenn nema Hannes Smárason, stjórnarformaður, sagt sig úr stjórninni. Borist hafa sjö framboð og er því sjálfkjörið í stjórn þar sem hún er skipuð sjö mönnum. Þeir sem hafa boðið sig fram eru: Hann- es Smárason, Einar Ólafsson, Jón Ás- geir Jóhannesson, Skarphéðinn Berg Steinarsson, Magnús Ármann, Sigurður Bollason og Þorsteinn M. Jónsson. Vara- menn verða Kevin Stanford og Smári S. Sigurðsson. Jón Ásgeir í stjórn FL Group Jón Ásgeir Jóhannesson SÍÐASTI dagur lóðaumsókna í Þingahverfi á Vatnsenda var í gær og við bæjarskrifstofurnar í Kópavogi mynduðust langar raðir fólks sem var að sækja um fram á síðustu stundu. Sagði Marta Grettisdóttir hjá Bæjarskipulagi Kópavogs að biðröð hefði verið út á götu allan daginn. Í boði voru 75 einbýlishús, 20 íbúðir í raðhúsum, 38 íbúðir í parhúsum og 86 í klasahúsi, en Marta segir að á milli tvö og þrjú þúsund umsóknir hafi bor- ist. Listi umsækjenda verður lagður fyrir bæjarráð Kópavogs hinn 14. júlí, en þetta voru ekki allar íbúðirnar á svæðinu. Önn- ur úthlutun er væntanleg og verður hún auglýst sérstaklega. Marta sagðist ekki vita hvenær úthlutun yrði en þó yrði það líklega í ágúst.Morgunblaðið/Jim Smart Biðraðir eftir lóðum á Vatnsenda ELDUR kom upp í eldhúsi í íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi við Rauðarárstíg um níu- leytið í gærkvöldi. Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var komið á vettvang skömmu síðar og fóru tveir reykkafarar inn í íbúðina en húsið var rýmt. Eldur logaði í eldhúsi íbúðarinnar en sam- kvæmt upplýsingum slökkviliðsins gekk greiðlega að ráða niðurlögum hans. Engin meiðsl urðu á fólki en hins vegar urðu tölu- verðar skemmdir á íbúðinni vegna elds og reyks. Um tíuleytið höfðu slökkviliðsmenn gengið úr skugga um að frekari eldur leynd- ist ekki í íbúðinni og losað um eldhúsinnrétt- ingu en ekki var vitað um eldsupptök. Morgunblaðið/ÞÖK Eldur í íbúð ÞAU fyrirtæki sem staðið hafa í viðræðum um kaup á bresku verslanakeðjunni Somerfield ásamt Baugi hafa farið fram á að Baugur dragi sig út úr viðræðunum út af kærum á hendur forystumönnum fyrirtækisins, að því er fram kom á fréttavef Financial Times í gærkvöldi. Segir þar að fyrirtækin hafi tilkynnt Baugi að dragi fyrirtækið sig ekki úr viðræðunum muni þau gera það. Fjármálafyrirtækin Barclays Capital og Apax ásamt athafnamanninum Robert Tchenguiz hafa að undanförnu verið í sam- starfi við Baug um hugsanleg kaup á Somer- field. Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi ekki kannast við að þessi krafa hefði verið sett fram. „Ég hef verið að funda með þessum aðil- um í dag [í gær] og ég get fullyrt að þetta er mjög ónákvæm frétt,“ sagði Hreinn og bætti við að hann hefði gert samstarfsaðilum Baugs grein fyrir því að Baugur héldi óhikað áfram sinni starfsemi. Fulltrúar fyrirtækjanna vildu hins vegar fá skýringar á málinu og sagðist Hreinn hafa lagt áherslu á að Baugur væri ekki sakborningur í málinu. Aðspurður hvort samstarfsaðilar Baugs væru enn heilshugar í samstarfinu sagðist Hreinn ekki ætla að fullyrða neitt annað en að þeir vildu vita um hvað málið snerist. Þessir fjórir aðilar hefðu skrifað undir samstarfs- samning og Baugur myndi ekki gefa neitt eftir í því efni. „Það er algerlega ljóst, þeim er það líka ljóst,“ sagði Hreinn. Baugi settir kostir segir FT Hreinn Loftsson segir samstarfið enn í fullum gangi ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.