Morgunblaðið - 08.07.2005, Side 1
„Gildismat okkar mun sigra“
Sprengingarnar urðu allar á innan
við klukkustund, ein varð í stræt-
isvagni en hinar þrjár í jarðlestum.
„Þetta var skelfilegt. Strætis-
vagninn sprakk í tætlur. Allur aftur-
hlutinn hvarf og ég sá lík hanga út úr
brakinu og mörg á götunni. Ég get
ekki ímyndað mér að nokkur hafi lif-
að þetta af,“ sagði Ayobami Bello,
öryggisvörður í skóla skammt frá.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði að þeir sem bæru
ábyrgð á ódæðunum yrðu eltir uppi
og látnir svara til saka. „Við munum
sýna með hugprýði okkar og virðu-
leika og rólegum en raunverulegum
styrk sem breska þjóðin býr yfir að
gildismat okkar mun sigra þeirra.
Markmið hryðjuverka er einmitt að
hræða fólk en við munum ekki láta
hræða okkur,“ sagði Blair.
Leiðtogar múslíma í Bretlandi
fordæmdu árásirnar og hvöttu
breskan almenning til að hefna sín
ekki á þarlendum múslímum. „Þessi
illvirki gera okkur öll að fórnarlömb-
um,“ sagði í yfirlýsingu múslímaráðs
Bretlands.
Blaðamaður Morgunblaðsins fór
um Liverpool Street í gærkvöldi en
þar var lögregla búin að loka leiðinni
niður í jarðlestina, staðurinn var
„vettvangur glæps“ og því ekki hægt
að skoða verksummerki eða taka þar
myndir. Ekki voru margir á ferli,
leigubílstjórinn hafði orð á því að
hann hefði aldrei verið jafn fljótur að
aka þessa leið. En allir voru rólegir,
hvergi neinn æsingur. Bílstjórinn
sagði borgarbúa enn muna eftir
hryðjuverkum IRA fyrir um áratug,
þeir væru vanari að takast á við slík
illvirki en New York-búar. Margir
hefðu auk þess gert ráð fyrir að á
eftir Madríd kæmi röðin að Lund-
únum.
Tugir manna láta lífið og mörg hundruð særast í sprengjutilræðum í London
Blair segir að Bretar
muni ekki láta hræða sig
Líklegt að hryðjuverkasamtökin al-Qaeda hafi staðið á bak við árásirnar
Reuters
Vegfarendur aðstoða særða menn eftir að tveggja hæða strætisvagn sprakk í loft upp við Tavistock-torg. Vagninn
var fullur af fólki, enda var áður búið að loka jarðlestarstöðvunum vegna sprenginganna þar.
Múslímaráð Bretlands segir alla landsmenn vera fórnarlömb illvirkjanna
Tugir manna í valnum
Leifar sprengiefnis fundust | 16
Fólk öskraði og grét
Lýsingar sjónarvotta og farþega | 18
Hafa lengi óttast árás
Ítrekað varað við hryðjuverkum | 20
Bretum vottuð samúð
Íslenskir forystumenn senda bresku
þjóðinni kveðjur á örlagastund | 6
Íslendingar í London
Öllum mjög brugðið | 28–30
Við látum ekki hræða okkur
Forystugrein | miðopna
Hryðjuverk í London
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands
LJÓST er að minnst 38 eru látnir og um 700 særðir eftir sprengju-
tilræðin í Lundúnum í gær. Árásirnar báru að sögn sérfræðinga öll ein-
kenni aðgerða af hálfu hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda sem Osama
bin Laden fer fyrir. Gripið hefur verið til stóraukinnar gæslu og viðbún-
aðar í helstu borgum austan hafs og vestan vegna hryðjuverkanna í
gær, ekki síst í Frakklandi og á Spáni. Mikil truflun varð á samgöngum í
London en þær voru smám saman að komast í lag í gærkvöldi.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson í London
david@mbl.is
TVEIR Íslendingar voru í neð-
anjarðarlestakerfinu þegar
sprengjur sprungu, annar í lest og
hinn á lestarpalli.
Karl Berndsen var í neðanjarð-
arlest á milli Russel Square og
King’s Cross á Piccadilly-línunni.
Hann var á leið suður og lestin með
sprengjunni var á norðurleið og
mætast lestirnar á King’s Cross-
stöðinni. Hann segir það mikla mildi
að sprengjan hafi ekki sprungið þeg-
ar lestirnar hafi verið hlið við hlið,
aðeins um mínúta hafi liðið frá því.
„Lestin stoppar á Warren Street
þar sem ég var að fara út og þar var
allt rafmagnslaust. Maður eiginlega
fattar ekki neitt nema að það er
eitthvað mikið að,“ sagði Karl en
fleiri hundruð manns voru í lest-
inni.
Það heyrðust öskur og læti
Ágúst Jakobsson var kominn nið-
ur á lestarpallinn á Russel Square
og beið eftir lestinni þegar það kom
hvellur. „Ég finn hann og fæ högg
fyrir brjóstið. Síðan kemur mikill
reykur og sót út úr lestargöngunum
og loks fer rafmagnið og ljósin
slokkna. Þá greip mig smá skelf-
ing,“ sagði Ágúst.
„Pallurinn var fullur af fólki því
það var háannatími. Það heyrðust
öskur og læti en það var niðamyrk-
ur, alveg svart.“
Mikill troðningur var og læti
enda allir í geðshræringu. „Ég datt
í gólfið og skreið á fjórum fótum í
smá stund. Svo skreið ég meðfram
veggjum. Síðan komst ég upp í af-
greiðsluna og út á götu.“ | 28
AP
Liðsmaður björgunarsveita í London við flak strætisvagns sem sprakk við
Tavistock-torg. Þrjár sprengingar urðu í jarðlestum og ein í strætisvagni.
„Það var niðamyrkur“
STOFNAÐ 1913 182. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is