Morgunblaðið - 08.07.2005, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, og Dorrit Moussaieff
forsetafrú voru stödd í Lundúnum
í gær þegar hryðjuverkaárásirnar
áttu sér stað. Þegar Morgunblaðið
hafði samband við Ólaf í gær sagði
hann að þeim hefði ekki verið nein
hætta búin en ein af árásunum
hefði hins vegar átt sér stað í ná-
grenni við þau.
„Þessir hryllilegu atburðir hafa
haft víðtæk áhrif og lamað nánast
alla miðborgina. Ekki aðeins að
lestir hafi verið stöðvaðar og allir
strætisvagnar heldur hefur um-
ferðin meira og minna horfið af
götunum og hundruð ef ekki þús-
undir atburða vítt og breitt farið
úr skorðum,“ segir Ólafur en fund-
um og atburðum sem hann og Dorrit áttu að
taka þátt í hefur þegar verið aflýst.
Æðruleysi Breta
Ólafur segir það hafa verið áhrifaríkt að
verða vitni að því æðruleysi sem einkenndi
Breta þrátt fyrir atburði gær-
dagsins þegar hann sá fólkið
koma upp úr neðanjarðarlest-
unum.
„Sumt af því var brennt, sært,
sótugt og skítugt og þurfti að
ganga langa leið frá sprengdum
lestum til þess að komast upp úr
göngunum. Engu að síður var
það rólegt, yfirvegað og æðru-
laust. Margir hafa nefnt það að
Bretar hafi á undanförnum ára-
tugum orðið að þola hryðjuverka-
árásir vegna átakanna á Írlandi
og sem sumar hverjar hafa kost-
að fólk lífið í miðri Lundúnaborg.
Þá voru á styrjaldarárunum
gerðar miklar árásir á borgina en
engu að síður voru Bretar æðru-
lausir og sýndu mikla samstöðu á þeim tímum.
Kannski eru í því æðruleysi fólgin sterkustu
skilaboðin til þeirra sem hafa skipulagt þessi
miklu og hræðilegu hryðjuverk.“
Mikil fagnaðarlæti brutust út í Lundúnum í
fyrradag þegar tilkynnt var að Ólympíu-
leikarnir yrðu haldnir þar árið 2012. Ólafur seg-
ir andstæðuna skýra og sterka. „Sú breyting er
mjög sláandi því borgin var í miklu sigurskapi í
gær og fagnaði draumi sem fæstir trúðu að
yrðu að veruleika – að fá Ólympíuleikana 2012 í
sínar hendur [...],“ segir Ólafur.
Árás á hið alþjóðlega samfélag
„Auðvitað er það markmið hryðjuverkaafl-
anna að reyna með þessum hætti að setja hið
opna og lýðræðislega samfélag úr skorðum og
þá er mikilvægt að við sýnum öll á þessum
stundum samstöðu og staðfastan vilja okkar til
þess að koma í veg fyrir að slíkt ætlunarverk
takist. Það er kannski enginn staður í veröld-
inni sem er á júlímorgni jafniðandi vettvangur
hins alþjóðlega mannlífs og Lundúnaborg.
Hér eru hundruð þúsunda fólks víða að úr
veröldinni, fólks af öllum trúarbrögðum, kyn-
þáttum, þjóðum og þjóðabrotum, þannig að
þessi árás er ekki aðeins árás á Breta og Lund-
únir heldur er hún árás á hið alþjóðlega sam-
félag,“ segir Ólafur að lokum en hann hefur
ekki tekið ákvörðun um það að flýta heimkomu
sinni í kjölfar hryðjuverkaárásanna.
Æðruleysi sterkustu skilaboðin
Ólafur Ragnar
Grímsson
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
sendi í gær Elísabetu Bretadrottningu og
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, eft-
irfarandi samúðarkveðjur:
„Ég votta yður og bresku þjóðinni djúpa
samúð mína, konu minnar og Íslendinga
allra vegna hinna hræðilegu hryðjuverka-
árása í London. Hugur okkar er hjá hinum
særðu og fjölskyldum hinna látnu og slös-
uðu.
Um veröld víða sameinast fólk nú í varð-
stöðu um hið frjálsa og opna samfélag, stað-
ráðið í að láta hryðjaverkaöflunum ekki tak-
ast að skaða lýðræði okkar eða draga úr
hollustu okkar við réttarríkið og almenn
mannréttindi. Atlaga gegn friðsömum borg-
urum má aldrei verða neinum málstað til
framdráttar.
Það er brýnt að sýna á þessari stundu víð-
tæka samstöðu allra þjóða og Íslendingar
heita Bretum einlægum stuðningi á erfiðum
tímum.“
Samúðar-
kveðjur til
Breta
„ÞAÐ eru hryllilegir
atburðir sem þarna
hafa gerst,“ segir Dav-
íð Oddsson utanrík-
isráðherra um hryðju-
verkaárásirnar í
Lundúnum í gær-
morgun og bætir því
við að ýmsir hafi hald-
ið því fram að
einhvers konar árás af
þessu tagi væri
óumflýjanleg í Bret-
landi fyrr eða síðar.
„Engu að síður
kemur hún óhugn-
anlega á óvart og er
að mati Breta versta
hryðjuverkaárás sem
þeir hafa orðið fyrir en þeir hafa
samt marga fjöruna sopið í þessum
efnum.“ Davíð for-
dæmir árásirnar og
segir að slíkt hið sama
geri allir heiðarlegir
menn og heiðarlegar
þjóðir.
„Samúð okkar er
auðvitað með gamalli
og góðri vinaþjóð og
jafnvel þótt hún væri
það ekki ætti fólkið
sem fyrir þessu verður
alla okkar samúð,“
segir Davíð.
Að mati Davíðs leik-
ur enginn vafi á því að
hryðjuverkasamtökin
al-Qaeda standa á bak
við árásirnar í Lund-
únum þrátt fyrir að það hafi ekki
endanlega verið staðfest.
„Samúð okkar
er með Bretum“
Davíð
Oddsson
HALLDÓR Ásgríms-
son forsætisráðherra
fordæmir hryðju-
verkaárásirnar í
Lundúnum í gær-
morgun og segir þær
mikil grimmdarverk
gagnvart saklausum
borgurum.
„Enn á ný sýna
þessi öfl sitt hugarfar.
Þeirra ætlan er að
skapa sem mestan
glundroða og ráðast
að gildum þeirra sem
vilja lifa við lýðræð-
islega stjórnarhætti.
Þetta er ekki aðeins
árás á bresku þjóðina heldur lýð-
ræðisleg og þjóðfélagsleg gildi okk-
ar allra. Hugur okkar er
með bresku þjóðinni og
það er okkar skylda að
standa með þeim eins og
einn maður og treysta
böndin í baráttunni
gegn þessari ógn,“ segir
Halldór.
Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra sendi í
gær, fyrir hönd rík-
isstjórnarinnar, Tony
Blair, forsætisráðherra
Bretlands, samúðar-
skeyti vegna hryðju-
verkanna í Lundúnum í
morgun. Þá ákvað rík-
isstjórnin jafnframt að
flaggað yrði í hálfa stöng við op-
inberar stofnanir í gær.
„Hugur okkar
er með bresku
þjóðinni“
Halldór Ásgrímsson
SÍMAVAKT var í utanríkisráðu-
neytinu í gærkvöldi vegna hryðju-
verkanna í Lundúnum. Var vaktin
sett af stað svo fólk gæti hringt til
þess að láta vita af eða spyrjast fyr-
ir um Íslendinga í borginni. Um
miðnættið átti að meta hvort vakt-
inni yrði haldið áfram fram eftir
nóttu. Um kvöldmatarleytið hafði
ekki náðst í 8 Íslendinga sem talið
er að séu í Lundúnum, samkvæmt
upplýsingum Heiðrúnar Pálsdóttur
fulltrúa ráðuneytisins. Unnið var að
því í gærkvöldi að reyna á kerf-
isbundinn hátt að afla upplýsinga
um fólkið. Á myndinni er Heiðrún
ásamt Illuga Gunnarssyni, aðstoð-
armanni utanríkisráðherra.
Morgunblaðið/Sverrir
Símavakt vegna hryðjuverkanna
„ÉG EINS og allir
aðrir frjálshuga menn
harma að ofbeldisfullir
hryðjuverkamenn láti
til skarar skríða gagn-
vart friðsömum borg-
urum á þennan hátt,“
segir Björn Bjarna-
son, dóms- og kirkju-
málaráðherra, að-
spurður um viðbrögð
sín við hryðjuverka-
árásunum í Lund-
únum í gærmorgun.
Björn segir að lengi
hafi verið um það rætt
að Lundúnir væru
skotmark hryðju-
verkamanna og þar hafi verið
gerðar víðtækar ráðstafanir til að
verjast slíku ódæði.
„Hafa bresk stjórnvöld sætt
gagnrýni ýmissa sem telja þau
hafa gengið á svig við
mannréttindi með
þeirri varúð sem þau
hafa sýnt. Þessar ráð-
stafanir dugðu því
miður ekki til að
halda aftur af illvirkj-
unum en viðbrögðin
eftir ódæðið eru
markviss og fumlaus
og vonandi tekst að
hafa hendur í hári
þeirra sem þarna réð-
ust gegn samborg-
urum sínum.“
Styrkja öryggis-
gæslu hérlendis
Margvíslegar ráðstafanir hafa
verið gerðar hér á landi undanfarin
misseri til að styrkja öryggisgæslu
að sögn Björns.
„Skipulagi lögreglu hefur verið
breytt með eflingu sérsveitar og
lögð hefur verið meiri áhersla en
nokkru sinni fyrr á eftirlit með út-
lendingum. Gæsla á Keflavík-
urflugvelli er með því besta sem
þekkist og verið er að efla Land-
helgisgæslu Íslands til að hún
verði betur í stakk búin til að
sinna öryggisgæslu á höfunum.
Lögð hafa verið á ráðin um við-
brögð gegn hættu af árás með
sýkla-, efna- og geislavopnum.
Unnið er að smíði nýrrar löggjafar
um almannavarnir,“ segir Björn.
Hann bætir því við að haldið
verði áfram á þessari braut og
einnig unnið að því að tryggja
þeim sem er falið að gæta öryggis
borgaranna nauðsynlegar laga-
heimildir til að geta gert það á
sem öflugastan hátt, án þess að
ganga of nærri friðhelgi borg-
aranna.
Víðtækar ráðstafanir dugðu ekki til
Björn Bjarnason
FORSETI Alþingis, Halldór
Blöndal, sendi samúðarkveðjur
fyrir hönd Alþingis, til Michaels
Martin, forseta neðri deildar
breska þingsins. í gær Halldór
sagði Íslendinga slegna yfir
hryðjuverkunum í London.
Sigurður Sigurðarson, vígslu-
biskup í Skálholti, vottaði sendi-
ráði Breta á Íslandi samúð fyrir
hönd þjóðkirkjunnar. Þá var
haldin fyrirbænastund fyrir
fórnalömb atburðanna í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í gær-
kvöldi.
„Biðjum einnig fyrir lækningu
hugarfars þeirra sem slík voða-
verk vinna svo og lífi og heilsu
saklausra borgara sé hvergi
stefnt í þá hættu sem nú blasir
víða við,“ segir í bréfi vígslu-
biskups.
Sendu samúðarkveðjur