Morgunblaðið - 08.07.2005, Page 8

Morgunblaðið - 08.07.2005, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tryggingastofnunríkisins greiddi alls69,7 milljarða út í bætur, lífeyri og aðrar greiðslur á árinu 2004 og jukust heildargreiðslur um 7,1 milljarð milli ára, eða 11,3%, að því er fram kem- ur í ársreikningi stofnunar- innar. Hér er augljóslega um mikla fjármuni að ræða, enda sér TR um greiðslur í ýmsum málaflokkum, s.s. vegna fæðingarorlofs, fé- lagslegrar aðstoðar og líf- eyristrygginga, svo eitt- hvað sé nefnt. Á vef TR er til samanburðar bent á að heildar- greiðslur stofnunarinnar nemi um fjórðungi af áætluðum útgjöldum ríkisins. Greiðslur vegna lífeyristrygg- inga eru stór hluti af heildar- greiðslum TR. Alls voru 29,5 millj- arðar króna greiddir út í fyrra, sem er aukning upp á 3,2 milljarða frá því árið 2003, eða 12,2%. Karl Steinar Guðnason, forstjóri TR, bendir þó á að inni í lífeyris- greiðslum fyrir árið 2004 sé talinn með um milljarður króna sem stofnunin greiddi í fyrra vegna van- goldinna bóta frá því á árinu 2003. Einnig vegur 1,4 milljarða aukn- ing á greiðslu örorkulífeyris þungt, en TR greiddi út tæpa 4,2 milljarða í fyrra miðað við 2,8 milljarða fyrir tveimur árum og er það 50% aukn- ing milli ára. Útgjaldaaukningin er í tengslum við þá miklu fjölgun öryrkja sem orðið hefur að undanförnu. Alls voru 13.800 öryrkjar hér á landi í fyrra en þar af voru um 1.000 metn- ir til lægra stigs örorku. Á lægra stigi örorku eru þeir sem metnir hafa verið með 50–74% örorku og eiga þeir rétt á svonefndum örorku- styrk. Þeir sem eru með yfir 75% örorku teljast vera á hærra stigi ör- orku og eiga rétt á örorkulífeyri sem er mun hærri en örorkustyrk- ur, þó báðar upphæðirnar séu breytilegar eftir tekjum, aldri og fleiri þáttum. Kerfislægur vandi Pétur Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, segir fjölgun ör- yrkja stafa af kerfislægum vanda og bendir á að ákveðinn hvati sé fyrir hendi til að komast upp í 75% örorku og halda sér þar. Þetta sýni sig meðal annars í því að endurhæf- ing öryrkja sé lítil hér á landi. Tryggvi Þór Herbertsson, for- stöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ, vann ítarlega úttekt á fjölgun öryrkja fyrr á árinu. Hann segir að þessi aukning á greiðslum örorku- lífeyris komi sér ekki á óvart, enda hafi öryrkjum fjölgað, bætur hækk- að og í kjölfar Öryrkjadómsins hafi tekjutenging við maka verið minnk- uð. Hlutfallslega varð mest aukning á greiðslum vegna sjúklingatrygg- ingar sem þrefölduðust milli ára. Sjúklingatryggingar taka til þeirra sem verða fyrir tjóni við meðferð heilbrigðisstarfsfólks. Þar er þó um lágar upphæðir að ræða miðað við heildina, en TR greiddi út 37,6 millj- ónir í sjúklingatryggingar í fyrra miðað við 12,6 milljónir árið 2003. Heiða Björg Pálmadóttir, lögfræð- ingur á sjúkratryggingasviði hjá Tryggingastofnun, segir ástæðu aukningarinnar vera að sérstök lög um sjúklingatryggingu, sem tóku gildi árið 2001, séu nú farin að hafa aukin áhrif. Lögin höfðu þær breyt- ingar í för með sér fleiri eiga rétt á bótum og hver bótaþegi á rétt á hærri bótum. Heiða segir að hvert mál taki töluverðan tíma í meðferð og því sé þessi kostnaðaraukning að koma fram smám saman. Athygli vekur að bætur vegna fé- lagslegrar aðstoðar lækka milli ára. Sú lækkun kemur þó ekki til vegna niðurskurðar eða minni aðstoðar á því sviði, heldur tilfærslu gjalda vegna breytinga á fjárlögum. Þann- ig voru um 1100 milljónir færðar undir öldrunarstofnanir vegna dval- arrýma sem voru áður undir fé- lagslegri aðstoð og um 600 milljónir færðust frá lífeyrisgreiðslum og fóru undir öldrunarstofnanir, sam- kvæmt upplýsingum frá Trygg- ingastofnun ríkisins. Reiknar með svipaðri þróun Eins og áður sagði jukust greiðslur TR um 11,3% milli ára. Karl Steinar segir að hærri greiðslur stafi af hækkun bóta, öldr- un og fjölgun öryrkja. Aðspurður hvort hann telji að heildargreiðslur muni aukast jafnhratt næstu árin og þær gerðu í fyrra segir Karl erf- itt að segja til um það en segist reikna með að þróunin verði svipuð. Þess má geta að aukist útgjöld TR í sama hlutfalli og þau gerðu í fyrra munu heildargreiðslur stofn- unarinnar í ár nema um 77,6 millj- örðum króna. Fréttaskýring | Tryggingastofnun greiddi út um 70 milljarða í fyrra Örorkugreiðslur jukust um 50% Heildarútgjöld TR jukust um 7,1 milljarð, eða 11,3%, milli ára Miklir fjármunir fara í gegnum TR árlega. Rekstur TR kostar rúman milljarð króna á ári  Í ársreikningi Trygg- ingastofnunar ríkisins kemur fram að kostnaður við rekstur hafi numið 1056 milljónum árið 2004 og jókst hann um 50 millj- ónir frá árinu 2003, þegar hann var 1006 milljónir. Alls eru 183 stöðugildi hjá TR, sem sér um greiðslur lífeyris-, sjúkra- og slysatryggingar auk greiðslna vegna fæðingarorlofs og greiðslna vegna öldrunar- og endurhæfingarstofnana. Árni Helgason arnihelgason@mbl.is         ! "  #$%% &'  %% % &($  &)(  *$   ! + , -. ,-. -/ - /.-0 - -0 - 0- . ,0- 0- ,-/ - /1-0 ,- /- -/ / - 12  ÁLFTAHJÓN á Vatnaleið á Snæfellsnesi komu upp fjór- um ungum nú í sumar og fóru með stolti um óðal sitt þegar Guðlaug Albertsson ljósmyndara bar að garði skömmu fyrir þjóðhátíðardaginn. Innan óðalsins eru tvær smátjarnir sem duga til sundæfinga og þar líður fjölskyldunni vel eins og vera ber. Ljósmyndari heimsótti álftahjónin þann 30. maí þegar ungarnir voru ekki skriðnir úr ekki og komst hann furðu nálægt hreiðrinu án þess að foreldrarnir byrstu sig að ráði. Þeir létu vissulega í sér heyra en gengu ekki svo langt að breiða út vængina og gera sig líklega til að steinrota hinn óboðna gest. Sama var uppi á teningnum þegar gesturinn kom til að vitja um heimilið þegar fjölg- að hafði í því. Steggurinn kvakaði í átt til hans, svona eins og til að segja: „Hingað og ekki lengra, góði.“ Álftir eru firnasterkar og engin lömb að leika við þeg- ar vernda þarf ungviðið svo rétt er að taka fram að þær skal umgangast með mikilli varúð. Álftavarp gekk vel á láglendi en lakar upp til heiða Að sögn Ólafs Einarssonar, fuglafræðings hjá Fugla- verndinni, hefur álftavarp gengið ágætlega í sumar á láglendi þótt aðra sögu sé að segja af varpi til heiða norðanlands og austan. Þar hafði kuldakastið í maí sitt að segja en síðari hluta júlímánaðar verður farið af stað með fuglatalningu til að kanna með ítarlegri hætti hvernig til tókst með varpið. „Hingað og ekki lengra, góði“ Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsso VEGAGERÐIN hefur sent fram- kvæmdastjóra leigubílastöðvarinnar BSR bréf þar sem óskað er skýringa á uppsögn leigubílstjórans Jóns Stefánssonar sem sagt var upp um síðustu mánaðamót. Í bréfinu segir m.a. að hugleiða megi hvort skyldur bifreiðastöðva gagnvart leyfishöfum séu í samræmi við skyldur leigubif- reiðastjóra. Í lögum um leigubíla séu ákvæði um að allar leigubifreiðar á takmörkunarsvæði skv. 8. gr. skuli hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöð sem fengið hefur starfsleyfi Vega- gerðarinnar. Skv. þessari kvöð séu bifreiðastöðvar í einokunarstöðu gagnvart leigubílstjórum. Jón segist sjálfur mjög undrandi á uppsögn sinni og hefur ritað sam- gönguráðuneytinu bréf og krafist þess að ráðuneytið dæmi hann inn á bifreiðastöð sem fyrst sem er sam- bærileg stöð og BSR eða Hreyfill. „Hef ekkert brotið af mér“ „Ég hef ekki fengið uppgefna ástæðu þess að mér var sagt upp. Ég hef ekkert brotið af mér og skulda engin stöðvargjöld,“ segir Jón. „Ég skil heldur ekki tilganginn með þessu því að BSR vantar bíla. Ég er með einn af þremur leigubílum sem geta flutt hjólastóla og þessa bíla vantar tilfinnanlega á allar stöðvar.“ Jón segist ekki eiga að gjalda fyrir að vera trúnaðarmaður fyrir Vegagerð- ina en leigubílarekstur heyrir undir hana. Hann segist halda að málið snúist um hin svokölluðu skúffuleyfi, þ.e. leigubílaleyfi sem leyfishafar leggja inn og nýta ekki á meðan þeir vinna aðra vinnu. „Þeir hyggjast e.t.v. leggja leyfið inn í tvo til þrjá mánuði sem verða síðan þrjú til fjög- ur ár. Framkvæmdastjóri BSR hef- ur verið að nýta þessi leyfi og óvíst hvort það hefur verið gert í samráði við leyfishafann. Ef svo er ekki þá er um að ræða brot á lögum um leigu- bíla, því það er óheimilt að endur- leigja leyfin. Það er skylt að leggja inn leyfið ef maður hefur ekki stund- að leigubílaakstur í tvo mánuði.“ Vill endurúthlutun leyfanna Jón segist hafa verið að taka á þessum málum í því skyni að unnt sé að endurúthluta „skúffu“leyfunum til þeirra sem ætla sér að stunda leigubílaakstur en segir að svo virð- ist sem framkvæmdastjórinn hafi meira upp úr þeim heldur en venju- legum leyfum. „Ég velti því líka fyrir mér hvernig þessi leyfi eru gerð upp. Þau eru á ákveðinni kennitölu og reksturinn á að vera á kennitölu leyf- ishafans en ég hef séð að það er mik- ill brestur á þessu.“ Jón hefur sótt um vinnu hjá Hreyfli en segir í bréfi til samgöngu- ráðuneytisins að framkvæmdastjóri Hreyfils hafi ekki mælt með honum á stöðina. Segir Jón að ekki sé annað að sjá en leigubílastöðvarnar hafi tekið sig saman um að taka hann ekki í afgreiðslu. Uppsögn vegna kvartana Guðmundur Börkur Thorarensen, framkvæmdastjóri BSR, segir Jóni hafa verið sagt upp vegna þess að það þjónaði ekki viðskiptalegum hagsmunum stöðvarinnar að hafa hann áfram á stöðinni. Nánar að- spurður segist Guðmundur Börkur hafa sagt Jóni upp vegna kvartana frá viðskiptavinum. Þessar ástæður hafi ekki verið tilgreindar í uppsagn- arbréfinu, heldur verið ræddar við Jón áður. Guðmundur Börkur segir uppsögnina ekki tengjast á nokkurn hátt trúnaðarmannastörfum Jóns og staðhæfir að hann hafi ekki verið trúnaðarmaður Vegagerðarinnar heldur Átaks og þar hafi hann hætt sem slíkur fyrr í vetur. Guðmundur Börkur segist þá ekki hafa verið að nýta hin svokölluðu skúffuleyfi og tekur fram að slík leyfi séu ekki til. „Menn hafa lagt inn leyf- in sín og ég hef séð Jón forvitnast um það hjá Vegagerðinni hvernig þau eru skráð í gagnagrunninn. Þá hefur komið í ljós að leyfishafar hafa lagt inn leyfi án þess að láta mig vita,“ segir hann. Í vikunni var haldinn stjórnar- fundur hjá Hreyfli og ákveðið að engir bílar yrðu teknir inn. Var Jóni tilkynnt þessi niðurstaða og telur hann hana skondna í ljósi þess að stöðina vanti bíla. Sæmundur Kr. Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri Hreyfils, segir að engar nýjar um- sóknir hafi verið samþykktar á fund- inum en upplýsir ekki hversu marg- ar þær hafi verið. Hann svarar því neitandi að stöðina vanti bíla. Stöðin stýri því á hverjum tíma hverjir séu teknir inn í þjónustu miðað við ytra starfsumhverfi. Vegagerð óskar skýringa á uppsögn leigubílstjóra Morgunblaðið/Jim Smart Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.