Morgunblaðið - 08.07.2005, Síða 9

Morgunblaðið - 08.07.2005, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 9 FRÉTTIR Útsala Sparikjólar - buxnadragtir Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Fáðu fe rðatilhögun, nánari upplý singar um gististað ina og reikna ðu út ferðakostnað inn á netinu! www.urvalutsyn.is ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S U R V 2 89 22 0 7/ 20 05 Salan er hafin! Verðlækk un Vinsælustu gististaðirnir á Kanarí undanfarin ár. Nýleg og endurbætt íbúðahótel sem sameina gæði og góða staðsetningu. Tryggðu þér frábær kjör og bókaðu strax á þínum gististað. Úrvalsfólk Úrvalsfólk - Lengri ferðir: 25. okt . 21 nótt (Brottför frá Akureyri) 31. okt. 29 nætur 16. nóv. 21 nótt 4. og 11. jan. 21 eða 28 nætur 8. og 15. mars 21 eða 28 nætur Jóla- og áramótaferðirnar! Vikulegt flug í janúar, febrúar, mars og apríl 17. 19. 20. 21. og 29. desember 5.000 kr. afsláttur í ferðir 4. og 11. janúar og 8. og 15. mars, ef gist er á Las Camelias eða Teneguia. Montemar Glæsilegt og vel staðsett íbúðahótel á Ensku ströndinni. Endurnýjað að miklu leyti 2004. Las Camelias Allar íbúðir endurnýjaðar Allra vinsælasta Íslendingahótelið undanfarin ár. Ennþá betra en áður. Teneguia Vel staðsett og stendur alltaf fyrir sínu. Barbacan Sol Stórglæsilegt og frábærlega staðsett á Ensku ströndinni. Santa Barbara Sívinsælt og vinalegt. Vista Flor - Nýjung Vel staðsett smáhýsi með frábærri aðstöðu í útjaðri Maspalomas ogí göngufæri við Ensku ströndina. Cay Beach Princess Fallegu smáhýsin í Maspalomas. Cay Beach Meloneras Nýleg og notaleg smáhýsi í Meloneras. Marina Suites - Nýtt Stórglæsilegt íbúðahótel í Puerto Rico. Frábær staðsetning við smábátahöfnina. Smekklegar íbúðir og frábært útsýni. Gloria Palace Amadores - Nýjung Glæsilegt útsýnishótel í Puerto Rico. Frábær heilsuræktar og spa aðstaða. Bókaðu strax. Vinsælir gististaðir að seljast upp! Laugavegi 28 ● sími 562 6062 Útsalan er hafin KJARTAN Halldórsson hefur rek- ið vinsæla fiskbúð á þriðja ár í gamalli verbúð á Geirsgötu við Reykjavíkurhöfn, en hefur nú einn- ig opnað þar veitingastað undir sama nafni. Húsnæðið er ekki stórt en það er nafn staðarins hins vegar og segist Kjartan hafa einkaleyfi á því. Hann hlær þó þegar hann er sjálfur kallaður nafninu en það er reisn yfir því; Sægreifinn. Hann heilsar með bros á vör og segir að hér sé „verið að meika’ða“. Kjartan rekur staðinn ásamt Herði Guðmundssyni, fyrrverandi bónda, og bjóða þeir upp á alls kyns girnilegt fiskmeti, svo sem skötusel, þingvallableikju, þorsk og rauðmaga. „Nefndu það bara, hér eru margar tegundir. Það er ein- göngu boðið upp á fisk“. Hann seg- ir jafnframt að uppáhaldsmaturinn sinn sé allt sem úr sjónum komi. Verðið er í lágmarki og segir Kjartan að allir geti borðað þarna án þess að fara á hausinn. „Fiskurinn hérna vekur heims- athygli“, segir hann og áhersla er greinilega lögð á að hráefnið sé fyrsta flokks. Humarsúpan er lík- lega best geymda leyndarmál stað- arins en einnig er boðið upp á ým- iss konar grillspjót með til dæmis skötusel, þorsk eða ísaldarurriða og grænmeti. Blaðamaður og ljós- myndari Morgunblaðsins fengu að kynnast gestrisni greifans og smökkuðu lostætið. Áhugamaður um álaveiði Kjartan getur tekið á móti 50 gestum í einu. Utandyra eru tré- bekkir og borð sem hægt er að draga út skýli yfir. Þaðan er útsýni beint yfir smábátahöfnina og utan á vegg verbúðarinnar hanga ljós- mynd og málverk af sjó og skipum. Úti grillar Kjartan síðan spjótin fyrir gestina. Inni er hægt að setj- ast á sessulagðar tunnur og virða fyrir sér skreytingar á veggjum og í lofti sem flestar tengjast sjó og sjósókn. Gulur sjóhattur og tveggja þumla vettlingar hanga uppi, ásamt myndum og miðum með áletrunum eins og „Harðfiskur frá Hannesi ríka“ eða „Heimsfrægur salt- fiskur“. Í loftinu hanga meðal ann- ars álagildra og brauðkringlur á bandi. Aðspurður um kringlurnar segir hann að Svíar sem heimsóttu hann hafi sagt boða gæfu að láta þær hanga uppi. Í kari á gólfinu syndir áll sem Hörður veiddi, en Kjartan er mikill áhugamaður um álaveiði og mat- reiðir þá ýmist á pönnu eða í reyk- ofninum á staðnum. Kjartan tekur fram að állinn hafi veiðst á Álfta- nesi. „Mig vantaði Dorrit en þetta er sennilega Ólafur,“ segir hann hlæjandi. „Ég flutti inn 200 ála- gildrur frá Kína og dreifði þeim til bænda um allt land. Þeir veiða fyr- ir mig og svo sæki ég aflann til þeirra“. Kjartan segir álinn ónýtta auðlind hér á landi, en að veiði þeirra sé ágætis aukabúgrein fyrir bændurna sem lepji dauðann úr skel. „Mitt aðaláhugamál er vinnsla og reyking á áli. Það kemur ýmislegt í gildrurnar; silungur, lax og minkar, en þeir drepast strax því þeir fá sjokk þegar þeir uppgötva að þeir eru fastir í gildrunni“. Urriðinn kallast Össur Kjartan kann frá mörgu að segja og hann segir skemmtilega frá. Meðal þess sem er á boðstólum í búðinni er urriði úr Þingvallavatni og segist Kjartan kalla hann Össur Skarphéðinsson þar sem Össur sé baráttumaður fyrir þess konar veiði. Kjartan var lengi sjómaður og aðspurður um hvort hann hafi lengi dreymt um að fara út í svona rekstur segist hann hafa verið í miklum rekstri áður. „Ég var húsa- viðgerðarmaður og var með fjölda fólks í vinnu. Svo var ég kokkur, svo ég kann að elda“. Kjartan segir að aðsóknin hafi aukist stöðugt síðan hann opnaði og að fólk komi gjarnan í hádeginu. Hann á til kampavín á litlum flösk- um til að gæða sér á með matnum. „Ég hef ekki leyfi til að selja það, en ég hef leyfi til að gefa það“, seg- ir Kjartan, en hann er á staðnum frá um kl. sex á morgnana til um níu á kvöldin. „Ég sleppi að- fangadagskvöldi en annars er ég alltaf hérna“. Sægreifinn opnar veitingastað við Reykjavíkurhöfn Allt sem úr sjónum kemur í uppáhaldi Morgunblaðið/RAX Gestir geta borðað utandyra með skemmtilegt útsýni yfir smábátahöfnina. Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is TAFIR verða á flutningi Ísafold- arprentsmiðju ehf. í nýtt húsnæði í Suðurhrauni í Garðabæ eftir að prentturn, eða viðbót við prentvél- ina, sem verið var að flytja frá höfn til viðtakanda í Garðabæ, valt af flutningavagni fyrir framan hús- næði prentsmiðjunnar við Suður- hraun. Ísafoldarprentsmiðja sér m.a. um prentun á Fréttablaðinu og DV. Að sögn Kristþórs Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Ísafoldarprent- smiðju hefur þegar verið lögð inn pöntun á nýjum turni. Verðmæti prentturnsins hleypur á tugum milljóna króna, en Kristþór segir að einungis hlutar hans hafi skemmst. Verið sé að athuga með viðgerð á honum. „Þetta gerir ekki annað en að tefja aðeins flutning hjá okkur í nýtt húsnæði.“ Ísafoldarprentsmiðja er til húsa í Suðurhrauni 3 en áætlar að flytja alla starfsemi sína í stærra húsnæði við Suðurhraun 1. Að sögn Krist- þórs hefur prentsmiðjan nokkrum sinnum verið stækkuð á síðustu ár- um samhliða auknum umsvifum Fréttablaðsins, sem er stærsta ein- staka prentverk prentsmiðjunnar. Að sögn Kristþórs var velta prentsmiðjunnar á síðasta ári tæpar 670 milljónir og hafði aukist um 44% frá árinu á undan. Tafir á flutningi Ísa- foldarprentsmiðju Prentturn fyrir tugi milljóna króna valt af flutningavagni TÍU verktakafyrirtæki buðu í gerð Hálsvegar við Kárahnjúkavirkjun. Vegurinn á að liggja frá Sandfelli að Litlu-Sandá og verður hann alls 18 kílómetra langur. Héraðsverk ehf. á Egilsstöðum átti lægsta til- boð, 105,8 milljónir króna, en kostnaðaráætlun ráðgjafa Lands- virkjunar var upp á 230 milljónir króna. Tilboð Héraðsverks er því að- eins 45% af áætluðum kostnaði. Næstu tilboð komu frá Jarðvél- um, 114 milljónir, og Arnarfelli, 118 milljónir. Háfell átti langhæsta tilboðið, upp á 316,4 milljónir, en aðrir bjóðendur voru Ístak, Suð- urverk, Ingileifur Jónsson, KNH, Ræktunarsamband Flóa og Skeiða og Íslenskir aðalverktakar. Vegurinn mun liggja inn með væntanlegri austurströnd Háls- lóns, miðlunarlóns Kárahnjúka- virkjunar, frá gatnamótum á Kára- hnjúkavegi sunnan Sandfells að Litlu-Sandá inni undir Brúarjökli. Tíu buðu í Hálsveg við Kárahnjúka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.