Morgunblaðið - 08.07.2005, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
RANNSÓKNIN Á BAUGI GROUP
SIGFÚS R. Sigfússon, fyrrum
forstjóri Heklu, kveðst aldrei hafa
átt hlut í Fjárfari ehf. og þó að
hann hafi verið stjórnarformaður
frá stofnun félagsins í nóvember
1998 fram í desember 1999 hafi
hann hvorki setið stjórnarfundi né
tekið ákvarðanir fyrir félagið, að
því undanskildu að hann skrifaði
undir lánasamning við Íslands-
banka. Þá hafi hann komist að því
við skýrslutöku hjá ríkislögreglu-
stjóra að hann hafði verið skráður
sem stjórnarmaður í Vöruveltunni
hf. og í öðru hlutafélagi, án þess að
hann hafi nokkurn tímann gefið
leyfi sitt til þess.
Í Morgunblaðinu í gær kom
fram að Gylfi Arnbjörnsson, sem
var framkvæmdastjóri Eignar-
haldsfélags Alþýðubankans
(EFA), telur að eignarhald á
meirihluta hlutafjár í Vöruvelt-
unni hf., rekstrarfélags 10-11
verslananna, hafi verið leppað
þegar EFA ásamt öðrum keypti
35% hlut í félaginu í lok árs 1998.
Baugur hafi í raun átt félagið með
einum eða öðrum hætti, en þeirri
eign hafi verið haldið leyndri.
Þetta hafi þó aldrei verið staðfest
með formlegum hætti. Að sögn
Gylfa fékk hann þær upplýsingar
frá Íslandsbanka, sem hafi haft
milligöngu um viðskiptin, að aðrir
eigendur Vöruveltunnar væru
Fjárfar ehf. í eigu Árna Sam-
úelssonar, Sigfúsar R. Sigfússon-
ar í Heklu, Sævars Jónssonar
kaupmanns og Tryggingamið-
stöðvarinnar hf. Þá ætti Helga
Gísladóttir, annar stofnandi 10-11
verslananna, 25% hlut.
Gunnar Felixson, sem var for-
stjóri Tryggingamiðstöðvarinnar
hf. þegar EFA keypti hlut í Vöru-
veltunni hf., rekstrarfélagi 10-11
verslananna, segir að fyrirtækið
hafi aldrei átt hlut í Fjárfari eða
Vöruveltunni. Hann kannist þar af
leiðandi alls ekkert við málið.
Tók aldrei ákvarðanir
Að sögn Sigfúsar má rekja til-
drög þess að hann tók að sér
stjórnarformennsku í Fjárfari til
þess að Tryggvi Jónsson, sem þá
var aðstoðarforstjóri hjá Baugi,
bað hann að gerast stjórnarfor-
maður í Fjárfari. Tryggvi hafi á
árum áður verið endurskoðandi
Heklu þannig að Sigfús og hann
hafi þekkst vel og féllst Sigfús á að
taka að sér formennskuna. Þetta
hafi verið vinargreiði. Aðspurður
sagðist hann ekki geta sagt til um
það með vissu hver hafi verið
raunverulegur eigandi Fjárfars.
Nokkru eftir að hann tók að sér
stjórnarformennskuna hafi hann
verið beðinn um að skrifa upp á
lánasamning við Íslandsbanka
sem hann hafi gert í miklum flýti
og án þess að kynna sér hann
nokkuð. Þegar umrætt lán hafi
svo komist í vanskil, í mars eða
febrúar 1999, hafi hann ákveðið að
óska eftir því að losna úr stjórn
Fjárfars.
Á þessum mánuðum sem liðnir
voru höfðu aldrei verið haldnir
stjórnarfundir, að sögn Sigfúsar.
Hann hafi beðið Tryggva um að
sjá um að tilkynna afsögn sína úr
stjórninni og hafi Tryggvi lofað að
taka það að sér. Það hafi Tryggvi
hins vegar ekki gert. „Ég hefði
auðvitað sjálfur átt að senda inn
afsögn mína til Fyrirtækjaskrár
en ég gerði ráð fyrir að Tryggvi
myndi sjá um það,“ sagði Sigfús.
Hann kveðst aldrei hafa lagt fram
peninga í félagið og aldrei hafi
verið haldnir stjórnarfundir í því.
„Það voru aldrei haldnir fundir í
þessu félagi en samt var félagið að
kaupa hluti í ýmsum fyrirtækjum
án þess að ég hefði hugmynd um
það,“ sagði Sigfús. Hann hafi loks
formlega verið leystur undan
stjórnarformennsku í desember
1999.
Kallaður til yfirheyrslna
Að sögn Sigfúsar varð stjórn-
arformennska hans í Fjárfari til
þess að hann var kallaður til yf-
irheyrslu hjá Skattrannsóknar-
stjóra ríkisins í fyrra, grunaður
um óheiðarlega viðskiptahætti.
Við yfirheyrsluna hafi hann greint
frá, samkvæmt bestu vitund, sinni
hlið á málinu. Fyrir um hálfu ári
hafi hann síðan verið kallaður til
yfirheyrslu hjá ríkislögreglu-
stjóra og þá sem vitni. Á því stigi
málsins var farið yfir sömu hluti
sem allir tengdust Fjárfari.
Fyrir stuttu var Sigfús enn á ný
kallaður til ríkislögreglustjóra
sem vitni og kveðst hann hafa
fengið upplýsingar um að hann
hafi verið í stjórnum fleiri fyrir-
tækja, s.s. Vöruveltunnar og
Klukkubúðanna. Þessar upplýs-
ingar komu honum í opna skjöldu
og kveðst Sigfús ekki geta útskýrt
hvernig hans nafn komi þar við
sögu. „Ég hef aldrei setið í stjórn-
um þessara fyrirtækja, ég hef
aldrei setið neina fundi á þeirra
vegum og þessi málatilbúnaður
allur er fyrir ofan minn skilning.
Eins og alþjóð veit er þetta mál
allt til rannsóknar í höndum rétt-
bærra aðila og síðan verður það í
höndum dómstólanna að dæma í
því. Ég trúi nú alltaf að sannleik-
urinn og réttlætið sigri,“ sagði
Sigfús.
Þegar umrædd viðskipti fóru
fram var Bjarni Ármannsson, nú-
verandi forstjóri Íslandsbanka,
enn forstjóri Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins og kom því ekki að
viðskiptunum. Bankarnir samein-
uðust síðan árið 2000. Í samtali við
Morgunblaðið sagðist Bjarni því
lítið geta sagt um málið annað en
það að hann hefði ekki ástæðu til
að ætla annað en að starfsmenn
Íslandsbanka hefðu gefið EFA
réttar upplýsingar. Valur Valsson,
sem var bankastjóri Íslandsbanka
á þessum tíma, kvaðst ekki geta
tjáð sig um málið þegar blaðið
ræddi við hann í gær.
Ekki náðist í Jón Ásgeir
Jóhannesson vegna málsins í gær
og lögmaður hans, Gestur Jóns-
son hrl., vildi ekki tjá sig. Ekki
náðist í Sævar Jónsson, Árna
Samúelsson, Helgu Gísladóttur
eða Eirík Sigurðsson, stofnendur
10-11.
Sigfús R. Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Heklu hf.
Átti aldrei hlut í Fjárfari
eða sat þar stjórnarfundi
Sá við yfirheyrslur gögn um að hann væri sagður stjórnarmaður
í tveimur félögum, án þess að hafa verið spurður leyfis
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Sigfús R. Sigfússon
BRESKA dagblaðið Guardian full-
yrðir í frétt sinni í gær að Baugur
muni draga sig út úr tilboðsgerð í
Somerfield verslanakeðjuna og þá
mögulega gegn einhverri greiðslu,
m.a. fyrir vinnu við tilboðsgerðina.
Blaðið segir samstarfsaðila Baugs í
tilboðinu hafa aukið þrýsting sinn á
að Íslendingarnir hætti við, þátt-
taka þeirra hafi ákveðna áhættu í
för með sér og geti skaðað orðspor
hinna væntanlegu nýju eigenda
Somerfield. Að auki er nærvera
Jóns Ásgeirs sögð gera hópnum
erfiðara fyrir að fá meira fjármagn
til að fara með tilboðið yfir 1,1
milljarð sterlingspunda, eða fyrir
um 125 milljarða króna. Er Barcla-
ys-bankinn í umfjöllun The Indep-
endent sagður fara fremstur í því
að fá Baug út úr hópnum.
Í frétt The Guardian í gær segir
að ef Baugur fari frá tilboðsgerð-
inni verði það mikið áfall fyrir hið
metnaðargjarna íslenska fyrirtæki,
sem eigi orðið mörg þekktustu fyr-
irtæki og verslanir Bretlandseyja.
Haft er eftir forstjóra Somerfield,
Steve Back, að það sé alls ekki
tryggt að gengið verði að tilboði í
verslanakeðjuna, sem er meðal
þeirra stærstu í rekstri stórmark-
aða.
The Independent hefur eftir
Gesti Jónssyni, lögmanni Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar, að ákærurnar
verði jafnvel birtar í þessari viku.
Segir Gestur það vera skjólstæð-
ingum sínum í hag að gera ákær-
urnar opinberar og afhjúpa þá
leynd sem aukið hafi misskilning
um helstu málsatvik.
Daily Telegraph birtir í gær svip-
aða frétt og var í öðrum breskum
blöðum á miðvikudag, varðandi
meintan fjárdrátt Jóns Ásgeirs við
sölu á bréfum í Arcadia, og segir
stöðugt fleiri ákæruatriði á hendur
Jóni Ásgeiri vera að koma í ljós.
„Okkar Hrói höttur“
Bresku fjölmiðlarnir hafa verið
að senda fleiri fulltrúa sína til
landsins til að fjalla um málið og
fanga andrúmsloftið og umræðuna
hér á landi. Einnig hafa fjölmargar
fyrirspurnir borist frá Bretlandi til
íslenskra fjölmiðla. Lýsingar
bresku blaðamannanna eru margar
hverjar dramatískar, eins og fyr-
irsögnin hjá The Guardian: ,,Stoltir
Íslendingar blása á samsæriskenn-
ingar um leið og þeir styðja sinn
Hróa hött“. Þar lýsir blaðamaður
ferð sinni í miðbæ Reykjavíkur þar
sem hann hittir fyrir unga móður,
Hörpu, sem er að leik með syni sín-
um. Harpa þessi segir Jón Ásgeir
vera stórt nafn á Íslandi, allir viti
að hann sé frægur og ríkur. ,,Við
berum virðingu fyrir honum,“ segir
hún við blaðamanninn breska.
Í fréttinni er saga Baugsveldisins
og Bónus-feðganna Jóns Ásgeirs og
Jóhannesar Jónssonar rifjuð upp.
Þeir hafi boðið almenningi lægra
matarverð, breytt viðskiptum við
heildsala og eignast óvini á þeirri
leið. Haft er eftir ónafngreindum
Íslendingi: ,,Þeir eru okkar Hrói
höttur.“
Breska blaðið The Guardian fullyrðir að Baugur dragi sig út úr tilboðsgerð í Somerfield
Telur líklegt að
Baugur fái greitt fyrir
að hætta við þátttöku
Morgunblaðið/Kristinn
HREINN Loftsson, stjórnarformaður Baugs
Group, segir að viðræðurnar við fjárfestahóp-
inn vegna tilboðs í Somerfield fari fram í
mestu vinsemd og fregnir breskra fjölmiðla af
málinu síðustu daga hafi verið nokkuð ýktar.
Hann segir fjárfestana hafa sýnt Baugi sam-
úð, enda sé félagið brotaþoli í málinu. Hvort
fregnir fjölmiðla í Bretlandi séu réttar um að
Baugur dragi sig út úr viðræðunum vill
Hreinn ekkert tjá sig um. Fjárfestar í hópnum
hafi verið að skoða stöðu hvers um sig, með til-
liti til aðstæðna Baugs. ,,Þeir hafa ákveðinn
skilning á okkar stöðu,“ segir Hreinn.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
hafa komið upp efasemdir innan samstarfs-
aðila Baugs um hvort rétt sé að hafa félagið
áfram inni sem tilboðsgjafa. Minnstu líkur á
sakfellingu geti haft áhrif á jafn stóra fjárfest-
ingu og kaupin á Somerfield eru. Í breskum
blöðum hefur verið talað um að hópurinn muni
bjóða 1,1 milljarð sterlingspunda í versl-
anakeðjuna, eða fyrir um 125 milljarða króna.
Viðræður í
mestu vinsemd
ALLIR fjárfestar sem stefna að tilboði í versl-
unarkeðjuna Somerfield ásamt Baugi, vita ná-
kvæmlega hverjar hinar fjörutíu ákærur emb-
ættis Ríkislögreglustjóra á hendur
forsvarsmönnum fyrirtækisins eru, sam-
kvæmt fréttavef breska dagblaðsins Times.
Þar er haft eftir lögfræðingum Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, forstjóra Baugs, að ákær-
urnar verði gerðar opinberar í þessari viku.
Í frétt Times kemur fram að helstu ákær-
urnar snúist um fjárdrátt upp á 307 milljónir
íslenskra króna í viðskiptum Baugs um hluta-
bréf í Arcadia og frekari fjárdrátt vegna kaupa
fyrirtækisins á 10–11 verslunarkeðjunni hér á
landi.
Samkvæmt frétt Times mun tilboðshóp-
urinn gera tilboð í Somerfield í fyrsta lagi eftir
þrjár vikur, með eða án Baugs. Í hópnum eru
auk Baugs fjármálafyrirtækin Apax og Barcla-
ys og athafnamaðurinn Robert Tchenguiz.
Times segir ákærur á hendur
Baugi meðal annars snúast um
307 milljóna króna fjárdrátt
vegna Arcadia
Fjárfestarnir
þekkja allar
ákærur
♦♦♦