Morgunblaðið - 08.07.2005, Side 11

Morgunblaðið - 08.07.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 11 FRÉTTIR MÁR Ásgeirsson borgarstarfsmaður andaðist að heimili sínu, Ljósheimum 6 í Reykjavík, miðviku- daginn 6. júlí sl., 63 ára að aldri. Már var fæddur 3. september árið 1941 í Ási í Ásahreppi í Rangárvallasýslu. Hann hóf störf hjá Reykjavíkurborg sem unglingur og þar starfaði hann til dauðadags. Már var mörgum vel kunnur enda sást víða til hans, þar sem hann vann sleitulaust við að halda borginni hreinni. Már var mikill safn- ari og átti m.a. orðið afar veglegt bókasafn, en hann fékk mikinn áhuga á bókum ungur að árum. Hann var auk þess mikill áhugamað- ur um knattspyrnu og fylgdist vel með því sem var að gerast hér- lendis og á Englandi. Þegar hlutabréfa- markaði óx fiskur um hrygg hér á landi varð Már fljótt virkur á þeim vettvangi. Keypti hann bréf í mörgum íslenskum fyrirtækjum og sótti aðalfundi þeirra reglulega. Már var ókvæntur og barnlaus. Andlát MÁR ÁSGEIRSSON „SA ítreka að markaðsvæðing íbúðalána er eðlileg staðreynd sem ber að viðurkenna og að Íbúðalána- sjóður á einkum að gegna félagslegu hlutverki,“ segir á vef samtakanna. Áréttað er að mikilvægt sé að brugðist verði við þeirri alvarlegu stöðu sem Íbúðalánasjóður sé kom- inn í. ÆTLA má að tap Íbúðalánasjóðs vegna uppgreiðslna eldri lána nemi allt að 15 milljörðum króna frá því fyrirkomulag húsnæðislána sjóðsins var breytt um mitt síðasta ár, eða ríflega tveimur milljörðum meira en allt eigið fé sjóðsins var í árslok 2004, að því er fram kemur á heima- síðu Samtaka atvinnulífsins. SA áætla að uppgreiðslur eldri lána Íbúðalánasjóðs hafi síðasta árið ver- ið um 140 milljarðar en uppgreiðsla á útlánum sjóðsins valdi því að mun- ur á vöxtum fjármögnunar og útlána hjá sjóðnum minnki og verði að öll- um líkindum neikvæður. Bent er á að til að bregðast við að- steðjandi vanda hafi Íbúðalánasjóð- ur m.a. lánað fjármálafyrirtækjum yfir 80 milljarða króna með ríkis- ábyrgð. Lánastarfsemin samræmist hins vegar að mati SA tæpast starfs- heimildum sjóðsins og nær öruggt sé að hann muni tapa á henni. Í tilkynningu frá SA segir enn fremur að helstu atriði sem skipti máli við mat á líklegu tapi Íbúða- lánasjóðs vegna uppgreiðslna á eldri lánum séu áætluð heildarfjárhæð uppgreiðslu og áhrif breytinganna á vaxtamun á lántökum og útlánum sjóðsins. Samkvæmt ársreikningi Íbúðalánasjóðs 2004 hafi upp- greiðslur eldri lána numið 9 millj- örðum króna á fyrri hluta ársins en 74 milljörðum á þeim síðari, eftir að nýtt kerfi var komið til fram- kvæmda. Í fréttum frá sjóðnum á þessu ári hafi í almennum orðum verið tekið fram að dregið hafi úr uppgreiðslum en engar upplýsingar veittar um fjárhæðina. Á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga megi þó áætla að uppgreiðslur fyrstu sjö mánuði þessa árs gætu numið 65 milljörðum og í heild nemi upp- greiðslur á tímabilinu júlí 2004–júlí 2005 um 140 milljörðum. Önnur lánastarfsemi tæpast innan starfsheimilda Þá er auk annars vikið að lánum með ríkisábyrgð til sparisjóða og banka og bent á að sjóðurinn hafi það afmarkaða hlutverk að veita húsnæðislán til íbúðakaupenda og húsbyggjenda. Önnur lánastarfsemi, s.s. lánveitingar til annarra fjár- málafyrirtækja, rúmist tæpast inn- an starfsheimilda sjóðsins. Samtök atvinnulífsins segja Íbúðalánasjóð í alvarlegri stöðu Segja sjóðinn hafa tapað allt að 15 milljörðum Morgunblaðið/Sverrir Eftir Kristján Geir Pétursson kristjan@mbl.is GUÐMUNDUR Bjarnason, for- stjóri Íbúðalánasjóðs, segir ekkert hæft í fullyrðingum Samtaka at- vinnulífsins um að tap sjóðsins vegna uppgreiðslu eldri lána nemi meiru en öllu eigin fé sjóðsins í árs- lok 2004. „Þetta eru fullyrðingar sem ekki eiga við rök að styðjast. Vissulega hafa þessar uppgreiðslur þýtt að sjóðurinn hefur orðið að glíma við ný viðfangsefni varðandi fjár- stýringu og áhættustýringu og það er einmitt það sem við höf- um verið að gera á undanförnum vikum og mán- uðum,“ segir Guðmundur. „Við höfum talið það skyldu okk- ar, og það er, bæði samkvæmt lögum og reglugerðum um fjárhag og áhættustýringu, skylda sjóðsins að tryggja að staða hans verði áfram sterk. Að hann hafi eigið fé sem sé ásættanlegt samkvæmt kröfum Fjármálaeftirlitsins.“ Guðmundur segir að staða Íbúðalánasjóðs sé sterk og ekkert í stöðunni sem bendi til að á einhverju stigi kunni að reyna á ríkisábyrgð. „Það þurfa menn ekki að óttast.“ Brugðist við breyttum að- stæðum á íbúðalánamarkaði Guðmundur segir að þessa dagana sé unnið að því að fara rækilega yfir stöðu sjóðsins í samvinnu við félags- og fjármálaráðuneyti, Fjármálaeft- irlitið o.fl. „Auðvitað eru ákveðnir erfiðleikar sem hafa orðið af þessum upp- greiðslum en þegar menn reikna svona út þá gefa menn sér bara að menn sitji með peningana undir koddanum, en það er ekki þannig. Við erum auðvitað að reyna eins og okkur ber að tryggja og treysta stöðu sjóðsins og ávaxta féð á þeim bestu kjörum sem hægt er og það held ég að okkur hafi tekist bæri- lega.“ Guðmundur segir að meginþátt- urinn í starfsemi sjóðsins sé sem fyrr að veita íbúðakaupendum og -byggjendum lán til að kaupa íbúðir á viðráðanlegum kjörum. Sjóðurinn hafi hins vegar orðið að bregðast við breyttum aðstæðum á íbúða- lánamarkaði með samningum við fjármálastofnanir. Með því sé verið að tryggja fjárhag sjóðsins og stöðu til lengri tíma og að fé það sem kom- ið hefur inn í uppgreiðslur sé í „bær- anlega ásættanlegri ávöxtun“ fyrir sjóðinn, að sögn Guðmundar. Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs Ekkert hæft í fullyrðing- um SA Guðmundur Bjarnason ÞÓRÐUR Pálsson, forstöðumað- ur greiningardeildar KB banka, segir einkennilegt að Íbúðalána- sjóður skuli endurlána fé til fjár- málastofnana sem aflað er með ríkisábyrgð vegna fasteignaveð- lána. Hann segir umhugsunarefni ef sjóðurinn setji sjálfum sér reglur um áhættustýringu í þess- um efnum en ekki fulltrúar þeirra sem veita ríkisábyrgðina. Tap- áhætta sjóðsins vegna lána til fjármálastofnana sé að öllum líkindum meiri en vegna fasteignalána sem eru til- gangur sjóðsins og hann er sér- hæfður í. „Við höfum bent á að sjóðurinn er með fjármögnun á föstum vöxt- um til langs tíma, á meðan útlán sjóðsins eru hins vegar uppgreið- anleg. Við vaxtalækkun myndast tap vegna misvægis á milli innlána og útlána ef lántakendur greiða upp lán sín. Ef sjóði, sem er með ríkisábyrgð, eru ekki settar þröngar skorður er hætt við að hann freistist til að mæta tapi með því að lána út í áhættusamari verkefni, slíkt höfum við dæmi um frá inn- stæðutryggingu bandarísku sparisjóðanna,“ segir Þórður. KB banki hefur ekki fengið lán Haft var eftir Hreiðari Má Sigurðssyni, forstjóra KB banka, í kvöldfréttum Sjónvarps í fyrra- kvöld að bankinn hefði engin slík lán fengið frá sjóðnum. Þórður bendir á að lán sjóðsins til fjármálafyrirtækja geti verið mun áhættusamari en lán gegn veði í fasteignum. „Ég tel óeðlilegt að rík- isábyrgð, sem er veitt til að veita fasteignalán, geti verið nýtt til að lána bönkum og sparisjóðum. Sérstaklega í ljósi þess að Íbúðalánasjóður er undanþeg- inn ríkisábyrgðagjaldi,“ segir hann. Undrast að Íbúðalánasjóður endurláni fé til fjármálastofnana Tapáhættan að öllum líkindum meiri Þórður Pálsson ÁRNI Magnússon félagsmálaráð- herra segir að Íbúðalánasjóði beri skylda til að ávaxta fé sitt með sem hagkvæmustum hætti. Með end- urlánum á ríkistryggðu fé til bank- anna sé sjóðurinn einfaldlega að koma þeim peningum sem hann hafi fengið vegna uppgreiðslu á eldri lán- um í sem best verð. „Þarna er auðvitað um minnihlut- ann að ræða af þeim peningum sem bankarnir hafa verið að lána til þess- ara húsnæðislána, eða um 80 millj- arðar af sennilega um 260 millj- örðum. Stjórn og starfslið sjóðsins ber skylda til að gera þetta með þeim hætti að sjóðurinn beri ekki skaða af. Þetta er sú aðferð sem þeir hafa val- ið og ég geri ekki athugasemdir við þær,“ segir ráðherra. Staða sjóðsins könnuð Spurður hvort hlutverk Íbúða- lánasjóðs sé að afla fjár með rík- isábyrgð og endurlána bönkum og sparisjóðum segir Árni að Íbúða- lánasjóður láni í raun bönkunum peninga með veði í lánum sem þeir hafi þegar veitt. Bankarnir end- urláni ekki peninga frá sjóðnum, heldur taki sjóð- urinn veð í skuldabréfasöfn- um bankanna sem aftur eru með veð í hús- eignum lands- manna. Það séu tryggustu veð sem hægt sé að fá. „Þetta eru þau veð sem sjóðurinn þekkir best líka, þeir eru að tryggja sína stöðu með þeim hætti sem þeir telja örugg- astan.“ Að sögn Árna er ljóst að miklar uppgreiðslur Íbúðalánasjóðs voru ekki fyrirséðar á sínum tíma. Verið er að fara yfir stöðu sjóðsins í sam- vinnu við fjármálaráðuneytið og fleiri aðila. Hann útilokar ekki að endurskoða þurfi lög um sjóðinn en undirstrikar að Íbúðalánasjóð- ur starfi algerlega innan þess ramma sem honum sé settur með lögum. „Við erum hins vegar að fara yfir hvort það sé hægt að finna ein- hverjar leiðir sem eru þá jafn trygg- ar fyrir sjóðinn og eru hugsanlega heppilegri,“ segir hann. Árni Magnússon félagsmálaráðherra Árni Magnússon Ekki gerðar athuga- semdir við aðferðir UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur að verulegir annmarkar hafi verið á málsmeðferð ríkissaksóknara við meðferð kærumáls einstaklings. Umboðsmaður telur m.a. að túlkun ríkissaksóknara á ákvæði stjórn- sýslulaga samrýmist hvorki texta þess né lögskýringargögnum að baki því og feli þar að auki í sér undantekningu frá meginreglum stjórnsýsluréttar um að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki rétt- aráhrifum hinnar kærðu ákvörðun- ar. Maður kvartaði til umboðsmanns yfir meðferð ríkissaksóknara á kærumáli vegna ákvörðunar lög- reglustjórans í Reykjavík um að hætta rannsókn í tilefni af kæru mannsins á hendur tveimur öðrum aðilum vegna ætlaðrar refsiverðrar háttsemi. Beindist kvörtun manns- ins m.a. að því að ríkissaksóknari hefði ekki brugðist við beiðni lög- manns síns um aðgang að gögnum málsins og frest til þess að setja fram nánari rökstuðning fyrir kær- unni áður en ríkissaksóknari stað- festi ákvörðun lögreglustjórans. Umboðsmaður vísar til þess að í lögum um meðferð opinberra mála sé þeim sem á hagsmuna að gæta fenginn lögmæltur réttur til að bera ákvörðun lögreglu, um að byrja ekki rannsókn eða hætta rannsókn sem var hafin, undir rík- issaksóknara. Í áliti sínu víkur umboðsmaður að þeirri afstöðu ríkissaksóknara, sem fram kom í skýringarbréfi hans, að réttur brotaþola til að kynna sér gögn máls á grundvelli stjórnsýslulaga verði ekki virkur fyrr en að máli sé endanlega lokið. Bendir umboðsmaður á að slíkan áskilnað sé ekki að finna í texta stjórnsýslulaga. Umboðsmaður telur jafnframt að túlkun ríkissaksóknara á ákvæði stjórnsýslulaganna samrýmist hvorki texta þess né lögskýring- argögnum að baki því og feli þar að auki í sér undantekningu frá meg- inreglum stjórnsýsluréttar um að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar. Telur umboðsmaður að slík túlk- un myndi draga verulega úr gildi upplýsingaréttar brotaþola, a.m.k. hvað varðaði möguleika hans til að hafa áhrif á lyktir máls með því að nýta kærurétt laganna. Annmarkar taldir á málsmeðferð saksóknara

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.