Morgunblaðið - 08.07.2005, Side 21

Morgunblaðið - 08.07.2005, Side 21
Reuters MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 21 ÁRÁS hryðjuverkamanna í Lund- únum í gær minnir um margt á fjöldamorðið í Madríd 11. mars í fyrra þegar 191 maður lét lífið í þaulskipulagðri aðgerð íslamskra öfgamanna. Árásin í Madríd í fyrra var gerð þremur dögum fyrir þingkosn- ingar á Spáni. Ódæðið var því framið „í pólitísku samhengi“ ef svo má að orði komast og raunar héldu sumir því fram að hryðju- verkamönnunum hefði tekist ætl- unarverk sitt því stjórn José María Aznar féll óvænt og til valda komust sósíalistar. Eitt fyrsta verk ríkisstjórnar þeirra var að kalla heim spænska herlið- ið í Írak en Aznar hafði stutt George W. Bush Bandaríkja- forseta dyggilega í því efni. Um áhrif árásarinnar á kosn- ingarnar er enn deilt á Spáni. Þingnefnd komst nýverið að þeirri niðurstöðu að Aznar og und- irsátar hans hefðu reynt að nýta sér illvirkið í pólitískum tilgangi með því að halda því fram að basknesku hryðjuverkasamtökin ETA hefðu staðið fyrir því. Flokk- ur Aznars, Þjóðarflokkurinn, hef- ur neitað að fallast á þessa nið- urstöðu þingnefndarinnar. Enginn vafi er á hinn bóginn á því að við- brögð Aznars og manna hans við illvirkinu höfðu mikil áhrif á kjós- endur á Spáni. Margir töldu for- sætisráðherrann vísvitandi hafa reynt að blekkja þjóðina. Tengist meiri háttar stjórnmálaviðburði Nú líkt og í Madríd í fyrra tengist árásin í Lundúnum meiri háttar atburði á stjórnmálasvið- inu. Þar ræðir um leiðtogafund átta helstu iðnríkja heims (G-8) sem nú fer fram í Skotlandi. Fundur þessi er án nokkurs vafa einn stærsti viðburður ársins á sviði alþjóðastjórnmála. Tímasetn- ing árásarinnar í Lundúnum hefur því sýnilega verið ákveðin með til- liti til G-8-fundarins með sama hætti og blóðbaðið í Madríd var skipulagt með tilliti til þingkosn- inganna 14. mars. Sjálf framkvæmd árásarinnar í Lundúnum minnir einnig mjög á hryðjuverkið í Madríd. Þá líkt og nú var ráðist á óbreytta borgara sem voru á ferð í lestarkerfinu á háannatíma. Sprengingarnar voru samhæfðar að því marki að skammur tími leið á milli þeirra. Hið sama gerðist í Lundúnum í gærmorgun. „Sella“ hryðjuverkamanna Íslamskir öfgamenn tengdir al- Qaeda-hryðjuverkanetinu báru ábyrgð á blóðbaðinu í Madríd. Eftir því sem næst verður komist hafði „sella“ hryðjuverkamanna undirbúið tilræðið lengi og látið lítið fyrir sér fara. Nokkrir þeirra, flestir Marokkómenn, voru handteknir en fimm menn, sem taldir voru hafa myndað „kjarna“ hópsins frömdu sjálfsmorð í sprengingu þegar lögregla hugð- ist handtaka þá þar sem þeir héldu til í íbúð í Leganes, útborg Madrídar. Á meðal þeirra fimm sem sprengdu sig í loft upp í Leganes var Sarhane Ben Ab- delmajid Fakhet, 35 ára Tún- ismaður, sem grunaður var um að hafa skipulagt hryðjuverkin í Madríd. Hópur, sem kallar sig Leynilegu samtökin – al-Qaeda í Evrópu, birti í gærmorgun yfirlýsingu á íslamskri vefsíðu og kvaðst bera ábyrgð á sprengjuárásunum í Lundúnum. Ógerlegt er að leggja mat á þessa yfirlýsingu en grunur hlýtur að vakna um að „sella“ hryðjuverkamanna hafi lengi unn- ið að skipulagi ódæðisins líkt og kom á daginn í Madríd í fyrra. Minnir á fjölda- morðið í Madríd  Framkvæmd árásarinnar og tíma- setning minnir um margt á blóðbaðið í Madríd í fyrra þegar 191 týndi lífi Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is ÖFLUG sprengja sprengdi tveggja hæða strætisvagn við Tavistock Square í loft upp. Á mynd sem vegfar- andi tók rétt eftir sprenginguna má sjá særða liggja innan um brak af völdum hennar. Vegfarendur aðstoð- uðu sjúkralið og lögreglu við að hlúa að hinum særðu. Staðfest er að þrír létust af völdum sprengingarinnar í vagninum en sjónarvottar telja að þeir hafi verið fleiri. Að auki slasaðist fjöldi fólks og sagðist sjónarvottur hafa séð fimm manns stökkva ofan af efri hæð vagnsins eftir sprenginguna. Slys og eyðilegging eftir sprengingu í strætisvagni TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, for- dæmdi hryðjuverkin í Lundúnum fyrir hönd allra fundarmanna á fundi leiðtoga átta helstu iðnríkja heims, G8-ríkjanna svokölluðu, í Gleneagles í Skotlandi í yfirlýsingu rétt fyrir hádegi í gær. Blair sagði árásirnar „villi- mannslegar“ og sagði hug allra hjá þeim sem ættu um sárt að binda vegna árásanna. Blair ræddi tvívegis við fréttamenn í Gle- neagles áður en hann flaug til London um há- degisbilið til að vera nær vettvangi hryðju- verkaárásanna. Hann sagðist gera ráð fyrir því að koma aftur til Gleneagles undir kvöld til að snæða kvöldverð með leiðtogum G8 en þeir sátu þar á fundi um málefni fátækustu ríkja heimsins og umhverfismál þegar fréttist um hryðjuverkin í höfuðborginni. „Lönd okkar allra hafa mátt þola afleið- ingar hryðjuverka,“ sagði Blair er hann las upp sameiginlega yfirlýsingu G8. „Þeir sem ábyrgir eru bera enga virðingu fyrir manns- lífinu. Við stöndum saman og erum staðráðnir í að uppræta þessi hryðjuverk, sem eru ekki árás á eina þjóð heldur allar þjóðir heimsins og á siðað fólk hvarvetna.“ Blair þótti bera þess merki að fréttir um árásirnar hefðu verið honum þungbærar. Hann sagði það „sérstaklega villimannslegt“ að hryðjuverkamenn skyldu láta til skarar skríða á sama tíma og leiðtogar helstu iðn- ríkja heims væru að ræða hvernig bregðast mætti við fátækt í Afríku og langtímavanda- málum er tengjast vaxandi gróðurhúsaáhrif- um. „Við munum ekki leyfa ofbeldi að breyta samfélögum okkar eða gildum okkar, né mun- um við leyfa því að hafa áhrif á störf þessa fundar. Við munum halda áfram að ræða hvernig bæta má heiminn,“ sagði Blair er hann las sameiginlega yfirlýsingu G8. „Hryðjuverkamennirnir munu ekki hafa sitt fram,“ sagði hann ennfremur. „Við munum sigra, ekki þeir.“ „Þetta er fjöldamorð“ Ken Livingstone, borgarstjóri í London, fordæmdi einnig árásirnar en hann var stadd- ur í Singapúr til að vera viðstaddur ákvörðun Alþjóða ólympíunefndarinnar um hvar halda skuli ólympíuleikana 2012. Livingstone hafði fengið þau gleðitíðindi í fyrrakvöld, að Lond- on hefði orðið fyrir valinu, en í gær var hann á hraðferð heim á leið vegna hryðjuverka- árásanna. „Ég vil leggja áherslu á eitt: þetta var ekki hryðjuverkaárás er beindist gegn hinum vold- ugu og ríku, þetta beindist ekki gegn for- setum eða forsætisráðherrum, þetta beindist gegn venjulegum, vinnandi Lundúnabúum,“ sagði Livingstone. „Það felst engin hug- myndafræði í slíku, þetta eru ekki einhver öf- ugsnúin trúarbrögð, þetta er fjöldamorð,“ bætti hann. „Svartir og hvítir, múslímar og kristnir menn, hindúar og gyðingar, ungir og gamlir,“ sagði Livingstone og bætti því við að um væri að ræða árás þar sem menn létu sig engu skipta hver yrði fyrir henni. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Bretlandi lýstu yfir fullum stuðningi við stjórnvöld og báru lof á framgöngu björgunarmanna og lögregluliðs. Michael Howard, leiðtogi Íhalds- flokksins, sagði þetta „skelfilegan dag“ og kvað samstöðu bresku þjóðarinnar algjöra. Bretar væru ákveðnir í að sigrast á hryðju- verkaógninni. Charles Kennedy, leiðtogi Frjálsynda demókrataflokksins, sagði viður- styggilegt grimmdarverk hafa verið framið. Órofa þverpólitísk samstaða ríkti um að í engu mætti gefa eftir gagnvart hryðjuverka- mönnum. „Árás á sjálfa siðmenninguna“  Tony Blair segir Breta aldrei gefa eftir gagnvart hryðjuverkamönnum Reuters Tony Blair ávarpar fréttamenn á leiðtogafundi G8-ríkjanna í Skotlandi í gær. Leiðtogar G8- ríkjanna sýndu Blair samstöðu á fréttamannafundinum og fordæmdu hryðjuverkin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.