Morgunblaðið - 08.07.2005, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
LESTARSAMGÖNGUR komust aftur á í London síðdegis í gær eftir að
hafa verið stöðvaðar um morguninn vegna hryðjuverkaárásanna. Borg-
arbúar hópuðust inn í neðanjarðarlestarstöðvar um leið og þær opnuðu á
ný, þar á meðal það margmenni sem hér sést við Liverpool Street-stöðina.
AP
Í lok dags
FTSE 100-hlutabréfavísitalan í
kauphöllinni í London lækkaði veru-
lega í gær í kjölfar hryðjuverkaárás-
anna. Við opnun markaðarins í gær
var vísitalan 5.220,2 stig en um
klukkan 10.30 að enskum tíma hafði
hún lækkað niður í um 5.070 stig. Um
klukkustund síðar hafði vísitalan
fallið niður í 5.022,1 stig sem var
lægsta gildi dagsins. Var þar um
3,8% lækkun að ræða. Þegar leið á
daginn tók vísitalan þó að hækka.
Um klukkan 15.10 hafði hún náð
um 5.154 stigum og við lokun mark-
aðarins var gildi vísitölunnar 5.158,3
og hafði því lækkað um tæp 1,36%
Aðrar evrópskar vísitölur lækkuðu
einnig, DAX-vísitalan í Frankfurt
lækkaði um 1,85% og CAC 40-vísital-
an í París lækkaði um 1,39%.
Hækkun vestra
Vestra hækkuðu hlutabréf á
mörkuðum í Bandaríkjunum þrátt
fyrir árásirnar í London. Dow Jones
hækkaði um 0,3% og var 10.302 stig,
Nasdaq hækkaði einnig um 0,3% og
var 2.076 stig og Standard & Poor-
vísitalan hækkaði um 0,25% og var
1.197,87 stig við lokun markaða í
Bandaríkjunum.
Gengi breska pundsins gagnvart
öðrum gjaldmiðlum féll í kjölfar
hryðjuverkanna. Við lokun gjaldeyr-
ismarkaðar hér var gengi pundsins
114,77 krónur og hafði það þá lækkað
um 0,37% en lægst fór það í 114 krón-
ur, sem samsvarar 1,04% lækkun.
Hlutabréf erlendis
lækkuðu í verði
$##
$$#
$##
$!$#
$!##
$ $#
$ ##
$#$#
$###
%$#
%##
A:&9 ##
+
+.00/+!##$
F CF >>F >@F >
F ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands lækkaði við opnun markaðar-
ins í gær þegar fréttir bárust af
hryðjuverkunum í London. Voru það
sérstaklega fyrirtæki sem eiga hags-
muna að gæta í Bretlandi sem lækk-
uðu í verði.
Fyrst ber þar að nefna Mosaic
sem á og rekur breskar tískuvöru-
verslanir. Skömmu eftir upphaf við-
skipta féll gengi félagsins úr 13,7 í
13,25, en það var lækkun um 3,3%,
Þegar líða tók á daginn hækkaði
gengið þó lítillega og við lok við-
skipta var gengi Mosaic 13,5 og
lækkaði það þar með um 1,5% í gær.
Þess ber þó að geta að á tímabili fór
það aftur upp í 13,7 kr./hlut.
Fyrirtæki með erlenda
hagsmuni lækkuðu í verði
Meðal annarra fyrirtækja sem
lækkuðu í verði voru Actavis, Bakka-
vör Group, Burðarás, FL Group,
Icelandic Group, Íslandsbanki,
Kaupthing banki banki, Landsbanki,
SÍF og Össur en öll þessi fyrirtæki
eiga hagsmuna að gæta á erlendum
mörkuðum.
Úrvalsvísitalan lækkaði verulega í
byrjun dags, eins og sjá má á með-
fylgjandi skýringarmynd. Rétt fyrir
hádegi náði hún lágmarki í 4.102
stigum sem er lækkun um tæp 2,1%.
Þegar leið á daginn hækkaði hún lít-
illega og við lok viðskipta stóð hún í
4.154,18 stigum sem er lækkun um
0,81% frá því í gær.
Gengi Mosaic lækk-
aði um 1,5% í gær
##
$#
##
!$#
!##
$#
##
#$#
###
%$#
%##
7B9C $
+
+6 (
+/+!##$
> F >F >?F >7F „EF maður hefði ekki heyrt um
sprengingarnar í morgun, hefði
manni ekki dottið í hug að neitt al-
varlegt hefði
gerst. Hér geng-
ur allt sinn vana-
gang. Það er helst
að maður taki eft-
ir óvenjumiklum
fjölda gangandi
vegfarenda,“
sagði Ármann
Þorvaldsson,
framkvæmda-
stjóri fyrirtækjaráðgjafar Kaup-
þings banka í London, er rætt var
við hann í gær.
Hann segist hafa verið kominn til
vinnu er sprengingarnar urðu í mið-
borg London í gærmorgun og því
ekki orðið mikið var við þær.
Segir hann flest starfsfólk bank-
ans hafa komist tímanlega til vinnu
en margir hafi þurft að fara snemma
heim, því sumir hafi átt langa göngu
fyrir höndum.
Helstu áhrifin af völdum spreng-
inganna á starfsemi fyrirtækisins
segir Ármann vera þau að símkerfið
hafi ekki virkað sem skyldi og því
hafi dagurinn verið rólegur. Einnig
hafi umferð verið með minnsta móti.
Ármann segir Lundúnabúa taka
ástandinu frekar rólega. „Hér ríkir
ekki skelfingarástand, nema kannski
í miðborginni. Lundúnabúar taka
þessu í raun með nokkurri ró, enda
hafa Bretar þurft að glíma við
sprengjuárásir írska lýðveldishers-
ins (IRA) í áratugi. Þeir eru nokkuð
vanir þessu.“ Margt hefur bent til
þess að Lundúnir gætu orðið skot-
mark hryðjuverka, en sama hversu
vel menn eru undirbúnir fyrir slíka
árás er áfallið mikið.
„Hér ríkir ekki
skelfingarástand“
Hryðjuverk í London
HREINN Loftsson, stjórn-
arformaður Baugs Group, var
staddur á skrifstofum fyrirtækisins
við New Bond Street í London í
gærmorgun þegar sprengjurnar
sprungu. Hann segist ekki hafa
heyrt sprengingarnar sjálfar en
orðið var við mikil læti á götum úti
fljótlega á eftir.
„Umferðin um göturnar er mjög
lítil og margir eru hér gangandi,“
sagði Hreinn við Morgunblaðið um
miðjan dag í gær er hann var á
gangi um Mayfair-hverfið. Í bak-
grunni heyrðist oft í sírenum
sjúkra- og lögreglubíla er fóru hjá.
Hann hefði fyrr
um daginn geng-
ið framhjá
bandaríska
sendiráðinu í
London og þar
hefði örygg-
isgæsla greini-
lega verið stór-
aukin.
Hreinn hefur síðustu daga verið í
London vegna viðræðna um kaup á
Somerfield verslanakeðjunni. Hann
sagði einn viðskiptafélaga sinn hafa
komið til fundar í gærmorgun á
hjóli og farið bara inn á salerni og
haft fataskipti, komið út uppá-
klæddur í jakkafötum eins og ekk-
ert hefði í skorist. „Menn eru
greinilega viðbúnir ýmsu hér.“
Greinilega
viðbúnir ýmsu
„MENN eru slegnir hérna, annar
hver maður búinn að vera að reyna
að hringja í farsíma. Bílaumferð
liggur niðri, það
er búið að rýma
stóran hluta
bygginga í City
og lögregla er á
hverju strái,“
segir Haukur
Þór Haraldsson,
framkvæmda-
stjóri rekstr-
arsviðs hjá Landsbankanum, sem
var staddur í City í Lundúnum í
viðskiptaerindum.
Hann segist hafa verið á leið á
fund með leigubíl í Beaufort House
þegar sprengingarnar urðu. „Ég
komst ekki þangað en er núna
staddur hjá Howdens-trygginga-
fyrirtækinu þar sem ég þekki
menn og fékk að koma inn til að
komast í síma til að láta vita af
mér,“ sagði hann í samtali í gær-
morgun.
„Ég komst hingað inn en má
ekki fara út, öllum hefur verið
bannað að fara út úr húsinu,“ segir
hann og bætir við að hjá fyrirtæk-
inu hafi verið ákveðið að allir fái að
fara heim um leið og yfirvöld leyfa
fólki að fara út á götur. „Það er
hins vegar óljóst hvernig fólki mun
ganga að komast heim því það
liggja allar lestir og strætisvagnar
niðri.“
Aðspurður hvernig fólk taki
þessu segir hann að menn séu að
sjálfsögðu slegnir en taki þessu þó
með æðruleysi að hætti Breta.
Allir óhultir
Í tilkynningu frá Landsbankanum
kemur fram að allir starfsmenn
Landsbankans í Lundúnum séu
óhultir. Þar segir að um leið og
fregnir bárust af hryðjuverkaárás-
unum í gærmorgun hafi verið haft
samband við starfsmenn Lands-
bankans í borginni og verktaka á
vegum bankans. Búið var að fá
upplýsingar um þá alla fyrir klukk-
an 11 að íslenskum tíma.
Farið var eftir hefðbundnum
áætlunum sem fylgt er í bankanum
við aðstæður sem þessar og kapp
lagt á að komast í samband við alla
starfsmenn bankans í borginni,
segir í tilkynningunni. Á fimmta
tug Íslendinga eru í Lundúnum á
vegum Landsbankans. Annars veg-
ar eru það starfsmenn bankans en
einnig stór hópur iðnaðarmanna
sem vinnur að endurbótum á hús-
næði bankans í Beauford House.
Þar eru einnig höfuðstöðvar verð-
bréfafyrirtækis Landsbankans í
Lundúnum, Teather & Greenwood.
Ein sprengingin í gærmorgun var
við East Aldgate neðanjarðarlest-
arstöðina sem er í næsta nágrenni
við Beauford House. Sprengingin
fannst vel í byggingunni. Segir í
tilkynningunni að búið sé að fá
upplýsingar um alla sem starfa fyr-
ir bankann í Lundúnum og starfs-
menn dótturfélaga Landsbankans,
Teather & Greenwood og Her-
itable Bank. Þeir séu allir óhultir.
Starfsmenn bankans í Lund-
únum og starfsmenn Teather &
Greenwood áttu að fá að fara heim
eins fljótt og mögulegt væri í gær.
Þá var unnið að því að koma þeim
starfsmönnum bankans sem bú-
settir eru á Íslandi aftur heim en
truflanir á samgöngum innan borg-
arinnar kunna að valda einhverjum
töfum á því.
Ljóst er að hryðjuverkaárás-
irnar í Lundúnum munu valda
truflunum á starfsemi í starfs-
stöðvum Landsbankans í Lund-
únum sem og annarri starfsemi þar
í borg, segir í tilkynningu bankans.
„Fékk að komast í
síma hjá trygginga-
fyrirtæki“
PÉTUR Einarsson, forstöðumaður
Íslandsbanka í Lundúnum, segir að
starfsmenn bankans í borginni, sem
eru 15 talsins, séu
allir óhultir eftir
hryðjuverkaárás-
ir sem gerðar
voru í borginni í
gær. Aðsetur Ís-
landsbanka í
Lundúnum er í
City-hverfinu,
nokkur hundruð
metrum frá lestarstöðinni Liverpool
Street Station.
„Þegar þessir atburðir áttu sér
stað voru flestir á leiðinni til vinnu.
Þeir urðu að yfirgefa lestirnar og
skipta um lestir og reyna að komast
til vinnu. Margir gengu lengri vega-
lengdir til þess að komast í vinnuna í
morgun,“ segir Pétur.
„Allir eru heilir á húfi og allt í lagi
með alla,“ segir Pétur. Hann segir
að þegar fólk hafi komið til vinnu
hafi menn fylgst með fréttum af at-
burðunum í sjónvarpi. „Um tvöleytið
að breskum tíma ákváðum við að yf-
irgefa skrifstofuna og byrja að koma
okkur heimleiðis. Flestir ætluðu að
reyna að ganga heim,“ segir Pétur.
„Það er auðvitað hræðilegt að
horfa upp á þetta og lenda í þessu en
við ætlum að mæta aftur til vinnu á
morgun og takast á við verkefnin og
reyna að koma hlutunum í eðlilegt
horf,“ segir Pétur.
Starfsmenn Íslands-
banka í Lundúnum
heilir á húfi
„ÞETTA var staðfesting á versta
ótta þeirra sem hér búa og starfa og
það var hörmulegt að fylgjast með
þessu,“ segir
Halldór Lár-
usson, fjölmiðla-
fulltrúi Baugs í
Lundúnum, eftir
hryðjuverkin í
gærmorgun.
Halldór vinnur
á 40 manna skrif-
stofu fyrirtæk-
isins Gavin Anderson sem er við
Charing Cross-neðanjarðarlest-
arstöðina. „Skrifstofunni var lokað
um miðjan dag og öllum sagt að fara í
burtu.“ Sjálfur var Halldór í Mayfa-
ir-hverfinu í Lundúnum mestan
hluta gærdagsins og þar gætti áhrifa
hryðjuverkanna lítið.
„Það voru fáir bílar á ferð en
margt fólk á ferli eins og á venjuleg-
um degi. Mér finnst fólk vera til-
tölulega rólegt yfir þessu þótt hér
hafi versta martröð þess dunið yfir.
Allir hafa óttast það árum saman að
hér yrðu sprengingar og í rauninni
var augljóst að neðanjarðarlestirnar
yrðu einhvern tíma skotmark. Það
var eitthvað sem fólk vildi kannski
ekki horfast í augu við en bjó samt
með því undir niðri. Mér finnst á fólki
sem hefur búið lengi í London að
svona hlutir gætu gerst.“
Halldór segir um 9 manns starfa
hjá skrifstofum Baugs á New Bond-
stræti í Lundúnum og eftir því sem
hann viti best voru allir við vinnu í
gær. Þar eru um helmingur Íslend-
ingar og allir eru heilir á húfi. Hann
segir engan hafa raunverulega heild-
aryfirsýn yfir atburðina eða fjölda
slasaðra og látinna. Hann segir lög-
reglu og sjúkralið í borginni hafa haft
langan tíma til að búa sig undir at-
burð af þessu tagi og að allir hafi vit-
að að slík hryðjuverk myndu verða
fyrr eða síðar.
„Viðbrögðin virðast hafa verið
mjög góð og tekist mjög vel að veita
fólki hjálp og koma því í burtu. Talað
er um að fundist hafi ummerki um
sprengjur á tveimur stöðum og lík-
legt að taki langan tíma að finna út
hver hafi staðið á bak við hryðjuverk-
in. Ekki er t.d. ekki vitað hvort þetta
voru sjálfsmorðsárásir eða ekki.
„Staðfesting á
versta ótta fólks“