Morgunblaðið - 08.07.2005, Síða 33

Morgunblaðið - 08.07.2005, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 33 UMRÆÐAN UM ÞESSAR mundir eru Bjarki Birgisson og Guðbrandur Einarsson komnir vel áleiðis á göngu sinni kringum landið undir kjöroðinu „Haltur leiðir blindan“. Nafnið er þannig tilkomið að Bjarki er hreyfihaml- aður og Guðbrandur nær blindur. Tómas Birgir Magnússon íþróttakennari er að- stoðarmaður þeirra fé- laga og frú Dorrit Mo- ussaieff er verndari göngunnar. Áætlað er að göngunni ljúki 4. ágúst á Ingólfstorgi í Reykjavík. Aðdragandi og und- irbúningur göngunnar hefur staðið frá síðustu áramótum. Guð- brandur, Bjarki og Tómas höfðu þá sam- band við Sjónarhól – ráðgjafarmiðstöð ses. og buðu til samstarfs um Íslandsgöngu til kynningar á starfsemi Sjónarhóls. Auk Sjón- arhóls – ráðgjaf- armiðstöðvar ses. komu Íþrótta- og ólympíu- samband Íslands og Íþróttasamband fatlaðra einnig að skipulagningu ferð- arinnar. Tilgangur göngunnar er að:  Vekja athygli á málefnum barna með sérþarfir, s.s. tækifærum til náms, menningarþátttöku og starfs; aðgengi að stöðum og afþrey- ingu; búsetu bæði í landfræðilegu til- liti og félagslegu og frelsi til að njóta lífsins á eigin forsendum.  Að sýna að hægt sé að yfirvinna hindranir með viðeigandi hjálp- artækjum, þjálfun og stuðningi.  Að stuðla að heimi án aðgrein- ingar. Á viðkomustöðum þeirra félaga er leitast við að vekja athygli á mál- efnum barna og fullorðinna með sér- þarfir frá ýmsum hliðum. Leiðin ligg- ur um staði þar sem börn með sér- þarfir dvelja í lengri eða skemmri tíma. Athygli er vakin á aðgengi og öryggi á ferðamannastöðum. Hugað er að tækifærum til náms, starfs og afþreyingar bæði á almennum vinnu- stöðum og vernduðum vinnustöðum. Loks er sjónum beint að vali á bú- setu, bæði hvað varðar búsetuform og staðsetningu. Leitað hefur verið samstarfs við sveit- arstjórnir, félagsmála- yfirvöld og íþrótta- og ungmennafélög á stöð- um sem Guðbrandur og Bjarki ganga um. Skemmtilegast er að þeir fái fylgd og hvatn- ingu sem víðast. Á heimasíðunni www.gangan.is er hægt að fylgjast með því sem á daga þeirra drífur á leiðinni í skini og skúr- um. Inni á heimasíðunni geta þeir sem vilja styðja félagana á göng- unn heitið á þá. Einnig er hægt að bjóða í hárið á Bjarka því hann lét ekki klippa sig áður en lagt var af stað eins og félagar hans en lýsti sig tilbúinn að gera það fyr- ir gott verð. Þó að gang- an snúist um kynningu en ekki fjáröflun kemur allur stuðn- ingur þeim félögum vel. Hugsanlegur afgangur rennur til Sjónarhóls – ráð- gjafarmiðstöðvar ses. Sjónarhóll er ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir og er ráðgjöfin endurgjaldslaus. Áætlað hefur verið að á Íslandi séu hátt í 5.000 fjölskyldur barna með sérþarf- ir. Með sérþörfum er átt við lang- vinna sjúkdóma, þroskahömlun, hreyfihömlun, athyglisbrest með eða án ofvirkni, aðrar hegðunar- og þroskaraskanir, kvíða, þunglyndi og önnur geðræn einkenni. Greining frá sérfræðingum, tilvísun eða beiðni þarf ekki að liggja fyrir þegar leitað er til Sjónarhóls – ráðgjafarmið- stöðvar ses. Foreldrar barna með sérþarfir geta milliliðalaust leitað til Sjón- arhóls – ráðgjafarmiðstöðvar ses. þegar þeir hafa áhyggjur af velferð barnanna, þeim finnst þeir ekki fá áheyrn í kerfinu, þeir fá ekki lög- boðna þjónustu, eru ósáttir við þjón- ustu sem þeim býðst, þurfa uppörvun og stuðning til að halda áfram að berjast fyrir börnin sín eða þegar þeir vilja ígrunda stöðu fjölskyld- unnar og framtíðarmöguleika. Ráð- gjafar Sjónarhóls veita foreldrunum áheyrn, reyna að setja sig í spor þeirra og greina aðstæður þeirra og réttindi, finna hvaða möguleikar eru í stöðunni, hvaða markmið eru raun- hæf og hvað þurfi að gera til að ná þeim. Auk þess eru ráðgjafar Sjón- arhóls tilbúnir, í samkomulagi við foreldrana, að veita frekari stuðning t.d. með því að fylgja þeim á fundi í skóla eða til sérfræðinga, hringja til að kanna möguleg úrræði og reka á eftir að viðeigandi þjónusta sé veitt. Sjónarhóll – ráðgjafarmiðstöð ses. er hugsuð sem bráðavakt fyrir for- eldra barna með sérþarfir. Vonast er til að ráðgjöfin sem þar býðst auki vellíðan fjölskyldna sem þiggja hana með því að draga úr streitu og upp- lausn sem rekja má til erfiðra að- stæðna. Aukin samvinna foreldra og fagfólks er líkleg til að ala af sér ár- angursríkt umhverfi fyrir þróun, ný- sköpun og rannsóknir sem kemur öll- um barnafjölskyldum til góða. Betri lausnir eru líklegar til að stuðla að virkari þátttöku foreldra barna með sérþarfir í atvinnu- og félagslífi og draga úr kostnaði samfélagsins vegna ómarkvissra vinnubragða. Framlag Bjarka og Guðbrands til að vekja athygli á aðstæðum fjöl- skyldna barna með sérþarfir á Ís- landi er í senn lofsvert framtak og þrekvirki. Það ber jafnframt vott um skopskyn þeirra og gleði yfir að vera þátttakendur í að leggja sitt af mörk- um fyrir sérstök börn til betra lífs. Aðstandendur Sjónarhóls – ráðgjaf- armiðstöðvar eru stoltir af að eiga þá að. Haltur leiðir blindan fyrir börn með sérþarfir Þorgerður Ragnarsdóttir fjallar um göngu umhverfis landið ’Sjónarhóll –ráðgjafarmið- stöð er hugsuð sem bráðavakt fyrir foreldra barna með sér- þarfir.‘ Þorgerður Ragnarsdóttir Höfundur er forstöðumaður Sjónar- hóls – ráðgjafarmiðstöðvar ses. ALLAN veturinn 2001–2002 vor- um við í Leiðsöguskóla Íslands uppfrædd um hvernig bæri að fara um landið með erlenda ferðamenn. Við ræddum um hraunreipi, gróð- urþekju, þúfur, flekaskil, þykkt Vatnajökuls, virkjanir, fjölda búfjár, fugls- gumpa, sjávarþorp, atvinnutekjur, sam- anburð við önnur lönd, hlutfall útivinn- andi mæðra, lífslíkur, hjátrú, myndlist, tón- list, strandlengjuna, Gerðuberg, Ósvör, Drangey, Öxl, Teig- arhorn og Fjaðr- árgljúfur (ekki misrit- un), notkun áttavita, goretex, öngvit og margt fleira. Við æfð- um öndun, hjartahnoð og frásagnartækni. Við vorum áhugasöm upp til hópa og við lærðum helling, glöggvuðum okkur á öðru og fengum í sum- um tilfellum nýtt sjón- arhorn á það sem við þó þekktum fyrir. Við vorum 14 klukkutíma á viku í skólanum og fórum að auki í vettvangsferðir. Við þurftum að læra heima. Við tókum skrifleg próf í tímum um jarðfræði, atvinnu- vegi, búsetu, fugla og fánu, listir og skyndihjálp, héldum undirbúna fyrirlestra í stofu á kjör- málinu, æfðum okkur með hljóð- nema í vettvangsferðum í og út frá Reykjavík og í vetrarlok lauk nám- inu með sex daga hringferð um landið þar sem við spreyttum okkur á að miðla hvert til annars því sem við höfðum lagt stund á allan vet- urinn. Um jól og vor tókum við efn- isleg próf þar sem reyndi líka á tungumálið sem við höfðum valið sem kjörmál. Með mér í leiðsöguskólanum voru m.a. efnafræðingur, hjúkr- unarfræðingur, fiskmatsmaður, flugmaður, þýðandi, stjórn- málamenn, rafveitustjóri, rútubíl- stjórar, félagsfræðingur, kennarar, hótelrekstrarfræðingur, ferðamála- fræðingur, bókmenntafræðingur, viðskiptafræðingur, nuddari, lista- menn – fólk með reynslu af að starfa fyrir íþróttafélög, við far- arstjórn erlendis, í pólitík og með skátum og hjálparsveitum. Margir höfðu dvalið lengi erlendis við nám og störf. Það var ekki fyrr en langt var liðið á veturinn sem formaður Fé- lags leiðsögumanna kom á fund okkar til að kynna félagið. Og það var ekki fyrr en þá sem einhverjum hugkvæmdist að spyrja um kjörin. Ég lýg því ekki að ég held að ég hafi varla nokkru sinni orðið eins hissa eins og á svarinu sem við fengum. Leiðsögumönnum er raðað í fjóra flokka eftir punktastöðu, og punkta vinnur maður sér inn bara með vinnu í faginu. Engu máli skiptir hvað annað maður hefur gert til að afla sér menntunar og reynslu, aðeins unnar stundir við leiðsögn gefa punkta. Hinn 1. júní 2002 fékk nýútskrifaður leið- sögumaður 949 krónur í dagvinnu og í þeim taxta var innifalinn und- irbúningstími, enn fremur bóka- og fatakostnaður sem þörf er á að stofna til starfsins vegna, sem og orlof, orlofsuppbót og desem- beruppbót. Allir eru lausráðnir og ef menn þurfa að fara til tann- læknis eða í jarðarför verða þeir einfaldlega að taka sér launalaust frí. Dæmigerður 10 klukkustunda Gullfosshringur þýddi því 8 x 949 + 2 x 1.195,74 = 9.983,48 í það heila, þannig u.þ.b. 5.790 krónur útborg- að. Fyrir 8 stunda vinnudag voru greiddar 4.403 með sömu útreikn- ingum. Í lok apríl 2005 gerði launanefnd Félags leið- sögumanna samning við SA/SAF sem var kynntur leiðsögumönn- um í byrjun maí. Í kjölfarið voru sendir út atkvæðaseðlar og samningarnir voru samþykktir með 75 já- um gegn 12 nei-um og 8 auðum/ógildum. Fé- lagsmenn eru nú vel á sjötta hundraðið. Nú er ég komin með það mikla reynslu að ég fæ greitt eftir efsta flokki, þ.e. 4. flokki. Það þýðir að fyrir 10 stunda Gullfosshring á virkum degi fæ ég 8 x 1.277,45 + 2 x 1.715,12 = 13.649,8, eftir skatt 7.917 krónur. Þetta er enn taxti með öllu, þ.e. orlofi, undirbúnings- tíma, bóka- og fata- gjaldi. Ég var búin að ráða mig allmarga daga í sumar áður en samn- ingar náðust. Þeir ollu mér ómældum von- brigðum þar sem við höfðum verið samn- ingslaus í hálft ár. Ég fór því til eiganda þeirrar ferðaskrifstofu sem ég vinn mest fyrir og vildi semja við hann um hærra kaup. Hann sagðist því miður ekki geta borgað mér meira og eftir nokkurra mín- útna spjall fór ég út af skrifstofunni hans með þá skýru hugsun að hann hefði ekki efni á mér. Ég fór heim og valdi daga til að segja upp. Enn á ég eftir að vinna um 20 daga í sumar við leiðsögn – aðlögunartíma sjálfrar mín – en eftirleiðis verð ég að svara ferðaskrifstofum ef þær slysast áfram til að hringja: Því miður held ég að þú hafir bara ekki efni á mér. Ég gæti líka talað um uppsagn- arákvæðin, atvinnuóöryggið, þjór- féð, skuldbindinguna sem ferða- skrifstofur fara fram á, aðbúnaðinn, sníkjulífið sem leiðsögumönnum er gert að lifa á matmálstímum, nauð- synlega endurmenntun, kjör bif- reiðastjóra, önnur störf sem leið- sögumenn sinna og verktöku en læt það ógert. Ég hef áhyggjur af því að þegar fram líða stundir hafi fleiri leiðsögumenn en ég ekki efni á að vinna við leiðsögn og kannski höfum við að lokum ekki efni á að halda úti þessum gjaldeyrisskap- andi atvinnuvegi. Ég skil að vandinn snýst um framlegð atvinnurekenda en hvet samt leiðsögumenn til að hafa í huga að samningarnir okkar eru bara lágmarkstaxtar til viðmiðunar. Þarf líka að borga leiðsögu- mönnum kaup? Berglind Steinsdóttir fjallar um kjör leiðsögumanna Berglind Steinsdóttir ’Ég skil aðvandinn snýst um framlegð at- vinnurekenda en hvet samt leiðsögumenn til að hafa í huga að samningarnir okkar eru bara lágmarkstaxtar til viðmiðunar.‘ Höfundur er formaður Félags leiðsögumanna. FIMMTUDAGINN 30. júní sl. átt- um við hjónin erindi norður í land. Við lögðum af stað akandi síðdegis frá Reykjavík. Segir ekki af ferðinni eftir þjóðvegi 1 fyrr en komið var í Borg- arfjörð. Á sex til sjö kíló- metra kafla inn að vega- mótum þar sem mætast þjóðvegur 1 og afleggj- arinn niður að sum- arhúsum BSRB í Mun- aðarnesi var Vegagerð ríkisins að leggja nýjan, upphækkaðan veg. Bráðabirgðaslóði hafði verið útbúinn fyrir veg- farendur á meðan. Um það bil helmingur af þeirri bráðabirgðaleið; efri hlutinn; var eftir vegi með grófgerðu slit- lagi; sennilega gamli þjóð- vegurinn; og ekkert að honum að finna annað en auðvitað það, að umferð gekk þar hægar en annars staðar á þjóðveginum. Fremri helmingur leið- arinnar var hins vegar um slóða, sem Vegagerðin hafði búið til eftir leir- kenndum moldarjarðvegi. Sú leið var vægast sagt ill- fær fyrir fólksbíla, miklar holur með mjóum höftum á milli. Á þessari næstmestu ferða- helgi sumarsins mátti sjá slíka bíla með tjaldvagna, fellihýsi og jafnvel hjólhýsi í eftirdragi klöngrast riðandi og skjálfandi eftir moldarslóðanum líkt og illa á sig komnir unglingar á þriðja degi þjóðhátíðar. Í leðjuslag Leið okkar hjónanna lá aftur suður eftir sama vegi síðdegis laugardaginn 2. júlí. Þá var rigning; rigndi mikið. Þegar komið var að vegarslóðanum í Borgarfirði mættu okk- ur sömu, gömlu kunn- ingjarnir, holurnar á moldarslóðanum. Ekk- ert hafði verið að þeim hugað, svo á þessum tveimur sólarhringum, sem liðið höfðu frá því við hittumst síðast, hafði þeim auðnast að fjölga sér nokkuð. Jafnvel tek- ist að dýpka líka. En ekki var ein báran stök. Vegna ofankomunnar var slóðinn auk þess orð- inn eitt það mesta leðju- bað, sem ég hef átt leið um. Eftir þennan u.þ.b. þriggja kílómetra akstur um hjáleið Vegagerðar ríkisins voru bílar og önnur farartæki þaktir slíkri leðjubrynju að ekki var hægt að stíga út úr þeim nema með mestu aðgætni ættu ökumenn og farþegar ekki það sama á hættu og öku- tækin. Sum sé leðjusmit á hæsta stigi. Ég hef aldrei lifað annað eins; ekki einu sinni á sveitavegum niðri í Malaví á rign- ingartíð. Þegar til Borgarness kom og numið var staðar til þess að þvo leðjuna af bílrúðum svo sjá mætti út orðaði ég það við mann, sem ég mætti, að ekki væri nú Vegagerð rík- isins að eyða fjármunum í að viðhalda slóðanum. Viðmælandinn hafði það eftir vegagerðarmönnum að það þýddi nú ekkert. Umferðin væri svo mikil að vegurinn yrði strax jafn slæmur aftur! Sturla, stoppaðu þetta Ekki gagnrýni ég að endurbætur eigi sér stað á þjóðvegakerfi landsins. Hins vegar á Vegagerð ríkisins að sjá sóma inn í því að þurfi að beina um- ferðinni um bráðabirgðaleið vegna umbóta á vegakerfi þá sé sú bráða- birgðaleið þannig úr garði gerð að vegfarendum sé bjóðandi. Mold- arslóðinn í Borgarfirðinum á þjóðvegi 1 er það ekki. Síst um mesta umferð- artíma ársins. Enn síður þegar ekki verður annað séð en að end- urbótaframkvæmdirnar muni taka umtalsverðan tíma eins og virðist vera í þessu tilviki. Samgöngu- ráðherra er af sumum legið á hálsi fyrir að áhugi hans fyrir vegagerð- arverkefnum sé meiri í eigin kjör- dæmi en annara. Ekki verður það af þessari framkvæmd séð. Ef ráð- herrann gæfi nú gaum að þessari framkvæmd í Borgarfirðinum og beitti sér fyrir umbótum þar á myndi hann a.m.k. hljóta þakkir gamals Vestfirðings – og nú íbúa höfuðstað- arins. Ég ítreka. Að standa svona að framkvæmdum á aðalþjóðvegakerfi landsins er engum manni bjóðandi. Sturla, stoppaðu þetta. Í leðjuslag í Borgarfirði Sighvatur Björgvinsson gagn- rýnir framkvæmdir við vega- gerð í Borgarfirði ’Að standasvona að fram- kvæmdum á aðalþjóð- vegakerfi landsins er engum manni bjóðandi.‘ Sighvatur Björgvinsson Höfundur er framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. mbl.is smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.