Morgunblaðið - 08.07.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.07.2005, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ HrafnhildurGísladóttir fæddist á Selnesi á Breiðdalsvík 23. febrúar 1922. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu á Höfn 3. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Ingi- björg Guðmunds- dóttir, f. 1894, d. 1987, og Gísli Guðnason, f. 1903, d. 1982. Systkini Hrafnhildar eru Margrét Helga, f. 1924, Haukur, f. 1925, d. 2003, Guðbjörg, f. 1927, og Heimir Þór, f. 1931. Hrafnhildur ólst upp á Breið- dalsvík og stundaði síðan nám við Alþýðuskólann á Eiðum. Á að- fangadag 1943 giftist hún Arn- grími Gíslasyni vélstjóra frá Grímsstöðum á Höfn, f. 1919, d. 1997. Þau bjuggu alla sína bú- skapartíð á Höfn, lengst af á Sólhól í nánu sambýli við Margréti systur Hrafnhildar og fjöl- skyldu hennar. Hrafnhildur og Arn- grímur eignuðust tvo syni: 1) Stefán Guðmund, f. 18.9. 1944, kvæntur Sig- rúnu Hermanns- dóttur, þau eiga þrjú börn, Arn- björgu, Hermann og Kötlu, og 2) Borg- þór, f. 12.4. 1950, kvæntur Vil- borgu Þórunni Hauksdóttur, þau eiga Arngrím. Hrafnhildur vann alla sína starfsævi hjá Pósti og síma á Höfn, lengst af sem talsímavörð- ur. Útför Hrafnhildar verður gerð frá Hafnarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Fallegur sumardagur í ágúst 1965. Blágrár bíll rennur í hlað á bæn- um mínum í sveitinni. Rólega og festulega var bílnum lagt og út stigu hjón. Hávaxinn maður, ljós á hár og hlýr, og mjög dökkhærð, lagleg og fallega klædd kona, lágvaxin, frekar þétt, en með fallega fætur og sérlega nettar hendur. Hún tók greinilega vel eftir öllu, kurteis, erfitt að átta sig á svip henn- ar, en þó auðséð að þar fór kona föst fyrir, gerði ekkert með hangandi hendi og vissi hvað hún vildi. Þarna voru komin í heimsókn til- vonandi tengdaforeldrar mínir að hitta mig í fyrsta sinn. Margri móður hefði ekki þótt þetta góður kostur fyrir eldri son sinn, ólétt stelpa, ný- byrjuð í námi og Stefán nýbúinn í sínu. Nú hlaut allt að breytast. Hún vissi líka að þeir sem hann elskaði gengu fyrir hans hagsmunum, þann- ig var það hjá Hrafnhildi og Arn- grími. Ég var bara lítil stelpa, sem þekkti heiminn lítið, með bæði barn og stór- an hnút í maganum af kvíða yfir því að hitta foreldra Stefáns. En hnút- urinn hvarf og Hrafnhildur lét mig strax finna að ég var komin í þessa fjölskyldu. Kom þá í ljós hæfileiki hennar til að sýna hlýju og um- hyggju á sinn hátt án þess að vera með mörg orð um það. Það var eins og amma á Sólhól væri alltaf heima, samt vann hún á Símanum. Eldhúsið á Sólhól var minnsti samkomusalur í fermetrum talið en stækkaði og tognaði á alla kanta þegar margt var um manninn. Frændur og vinir á Höfn ráku inn nefið og fengu kaffibolla. Hvað voru bátarnir að fiska? var það góður fisk- ur? fóru þeir langt? nýr háseti á Hvanney? hver er það? þar fengu þeir góðan mann. Úr Reykjavík?, er eitthvað gagn í honum? Allt snerist um bátana. Hrafnhildur vissi hve- nær þeir fóru á sjóinn, þekkti bátana á vélahljóðunum eða möstrunum. Á þessum árum slípuðust rauðu sess- urnar vel á eldhússtólunum, sem Borgþór gerði svo skemmtilega ódauðlega fyrir ári síðan. Svona var lífið á Hólnum. Það eru forréttindi fyrir börnin að hafa átt Hrafnhildi fyrir ömmu, hún var alltaf til staðar fyrir þau þegar þurfti. Pabbi þeirra úti á sjó og vinn- an mín gat verið á öllum tímum. Mig minnir að stundum hafi ég verið komin til Reykjavíkur í sjúkraflugi þegar ég gat hringt í Hrafnhildi, en oftast voru þau komin út á Sólhól, enda man ég ekki eftir að hafa haft áhyggjur af börnum mínum, miklu frekar af þeim sem þurftu að komast á sjúkrahús. Hún Hrafnhildur átti stærsta frænd- og vinahóp sem ég hef kynnst. Hún ræktaði sambandið við allt þetta fólk, þótt hún væri orðin nánast blind undir það síðasta, því hún þekkti takkaborðið á símanum. Elsku Hrafnhildur, þakka þér fyr- ir allt. Þín tengdadóttir, Sigrún Hermannsdóttir. Aðfaranótt sunnudags missti ég góðan vin, ömmu á Sólhól. Við amma höfum verið vinir frá því að ég man eftir mér. Hún gat allt- af talað við mig eins og jafningja og það var sama hvað ég tók mér fyrir hendur, alltaf hafði amma áhuga, fylgdist með mér og hvatti mig í því sem ég var að gera. Amma á Sólhól var líka alveg ekta amma, bakaði pönnukökur, jólaköku og svoleiðis. Hve oft skyldi ég hafa setið í eldhús- inu hjá henni og hámað í mig sæta- brauð á meðan við töluðum saman um daginn og veginn? Og hversu margar ferðirnar skyldi afi hafa komið heim í Hlíðartún með bakkelsi frá ömmu (oftast kanilsnúða og vín- arbrauð)? Oft kom ég á Hólinn og við amma tókum í spil. Hún hafði gaman af því að spila. Ég hafði líka gaman af því að spila, ekki síst við ömmu, þar sem hún hafði einstakt lag á því að mér gengi vel. Amma á Sólhól þurfti ekki að hitta mann til að spyrja frétta, hún hringdi líka. Hún notaði símann raunar giska mikið. Eða jafnvel mjög mikið. Enda vann hún á Sím- stöðinni alla tíð. Það eru ekki margir dagar sl. 20 ár sem við töluðum ekki saman, ef ekki yfir kaffibolla þá í síma. Þegar fólk var á ferðinni fylgdist hún með framgangi með því að hringja á þá bæi sem ekið var hjá, eða í sjoppuna í Vík – ef fólk skyldi hafa stoppað þar til að kaupa pyls- una. Eftir að farsímar komu til sög- unnar varð þetta auðveldara og ekki man ég eftir því að hafa farið á milli Hafnar og Reykjavíkur án þess að amma hringdi a.m.k. einu sinni. Ef ömmu fannst ferðin ganga of vel sagði hún jafnan: ,,Ja, einhvers stað- ar hefur verið ekið!“ Þegar maður var á ferðinni, ,,seint og snemma – út og suður“, eins og amma sagði, var Sólhóll iðulega síðasti viðkomustað- ur fyrir brottför og fyrsti viðkomu- staður við heimkomu. Oftar en ekki var steikt læri við heimkomuna. Amma ferðaðist ekki mikið sjálf, en alltaf var hún með mér, hvert sem ég fór. Amma fylgdist vel með lang- ömmubörnunum og þau nutu þess að heimsækja ömmu á Sólhól. Hrafn Logi, sonur minn, sagði við mig í gær að ef hann ætti eina ósk þá myndi hann óska þess að langamma væri komin aftur út á Sólhól. Amma var engum lík, hún þekkti allt og alla og varla var hægt að nefna þann mann sem ekki hafði drukkið kaffi hjá henni, flestir oftar en einu sinni. Já, það voru ófáir kaffi- bollarnir drukknir í eldhúsinu á Sól- hól, niðri. Borgþór sonur hennar hef- ur reiknað það út að varlega megi ætla að hátt í 200 þúsund bollar hafi verið drukknir í téðu eldhúsi. Síðustu árin dvaldi amma á Skjól- garði þar sem hún naut einstakrar umhyggju starfsfólksins. Þar reyndi á umburðarlyndi herbergisfélaga hennar, en býsna mikill erill var í kringum ömmu, bæði gestagangur og sími. Það er erfitt að sjá á eftir ömmu á Sólhól, hún hefur alla tíð verið svo fastur punktur í lífi mínu. En minn- ingin um góðan vin og yndislega ömmu lifir. Hermann Stefánsson. Amma á Sólhól er dáin. Hver hringir nú og fylgist með ferðum okkar og daglegu lífi? Amma var öðruvísi en ömmur flestra vina minna, hún vann úti. En þrátt fyrir það var alltaf tími til að hræra í pönnukökur og taka á móti okkur barnabörnunum. Afi var send- ill hjá henni og kom oft færandi hendi heim í Hlíðartún með bakkelsi. Og ekki lét hún fjarlægðina standa í vegi fyrir sér þegar við vorum farin suður í skóla. Þá komu reglulega sendingar með ýmsu matarkyns. Ég man sérstaklega eftir einni sendingu þegar við Hemmi bróðir höfðum af- þakkað rækjusalat og hún sendi okk- ur allt hráefnið í staðinn alla leið frá Hornafirði. Ef líf mitt væri leikrit hefði amma á Sólhól farið með aðalhlutverkið í því. Hún var alltaf til staðar og ef hún var ekki heima eða svaraði ekki símanum fór maður að óttast um hana. Eftir að ég flutti aftur heim voru þeir fáir dagarnir sem ekki var komið við á Sólhól í kaffi á leiðinni heim og var þá margt spjallað og oft glatt á hjalla. Við töluðum líka sam- an í síma oft á dag og það er skrítið að svara í símann núna og engin amma á hinum endanum. Langömmubörnin voru henni allt- af ofarlega í huga og fannst þeim afa við foreldrarnir ýmist allt of strangir eða allt of linir. Og það var ekki verið að skafa af hlutunum þegar hún sagði okkur sína skoðun á uppeldinu. Amma var kona sem hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og lá ekki á þeim. Oft höfum við hlegið að því hvernig hún tók til orða þegar henni ofbauð eitthvað og þá sérstak- lega ferðalög okkar Hemma. Amma ólst upp á símstöð og vann á símstöð allan sinn starfsferil enda þekki ég engan sem notaði síma jafn mikið og hún. Það voru ekki bara við afkomendurnir sem hún lét sér annt um. Hún var í símasambandi við fólk um allt land og hafa margir drukkið kaffi á Sólhól í gegnum tíðina. Eftir að afi dó varð hún ósköp ein- mana eins og gefur að skilja og þurfti þá meira á okkur að halda og er ég þakklát fyrir að hafa verið bú- sett hér og getað varið tíma mínum með henni. Þó að ég hefði fengið mörg ár í viðbót hefði mér aldrei tek- ist að jafna út allt sem hún gerði fyr- ir mig. Síðustu vikurnar var amma farin að bíða eftir að fá hvíldina og það veit ég að afi hefur tekið vel á móti henni við hliðið. Elsku amma, takk fyrir allt. Arnbjörg. Enn hefur dauðinn hoggið skarð í barnahóp þeirra Ingibjargar og Gísla frá Selnesi. Hrafnhildur, elsta barnið í hópnum, liggur nú á líkbör- unum þegar þessi fátæklegu orð eru sett á blað. Hadda, eins og hún var oftast kölluð, ólst upp á Selnesi, einu fárra húsa sem þá voru á Breiðdals- vík. Það varð fljótt hlutskipti hennar að gæta okkar yngri systkinanna. Nú er farið að fyrnast yfir flest smá- atriði frá svo löngu liðnum árum. Einna helst man ég líklega eftir því þegar hún var að siða mig til, óvit- ann. Ekki síst ef hún fór með mig á aðra bæi. Ég tók afar nærri mér ef ég taldi að ég hefði orðið mér til skammar á einhvern hátt. Einhvern veginn hefur hún líklega komið því inn hjá mér að það væri ekki mitt einkamál hvernig ég hegðaði mér, ekki síst á öðrum bæjum. Það var t.d. argasti dónaskapur ef boðið var upp á veitingar á nágrannabæjum, að taka sér aftur og aftur af sömu sortinni en snerta ekki við öðru. Þó keyrði alveg um þverbak þegar lítill drengur ætlaði að bæta fyrir brotið með því að skila til baka hálfétinni pönnuköku. Hvers vegna man ég þetta frekar en hin og þessi óhöpp frá þessum tíma? Á því er einföld skýring: Í vörslu Höddu systur minnar henti mig vart nokkur óhöpp. Hún sá til þess að ég væri ekki í fjörunni þegar brimalda svarraði þar, hún dreif mig inn í bæ þegar hún uppgötvaði ókunnugt naut með kúnum við fjósið og hún var fljót að afvopna mig ef ég óvitinn náði í hníf eða eldspýtur. Þetta var minn „forskóli“. En líklegt tel ég að það sé einnig eldri systk- inum góður skóli að sinna svona hlut- verki. Fljótlega tóku svo yngri syst- urnar við pössuninni. Hadda var ekki orðin gömul þegar hún var orð- in of dýrmætur vinnukraftur til að vera að snúast með litla pjakkinn. Á bóndabæ við sjávarsíðu var alltaf nóg að sýsla árið um kring: Sauð- burður, selveiði, rýingar, móvinna, heyskapur, berjatínsla, sláturtíð, ræstingar, eldhússtörf, sendiferðir, mjaltir, fiskaðgerð þegar pabbi kom úr róðri o.s.frv. Við þessi venjulegu störf á alþýðu- heimili bættist það svo við að heima var pósthús og símstöð. Hvoru- tveggja var inni á heimilinu auk bók- sölu. Hadda systir vandist fljótt við að sinna afgreiðslu á símstöðinni. Segja má að það hafi svo orðið ævi- starf hennar að afgreiða á símstöð. Við það vann hún á Höfn í Hornafirði í meira en 4 áratugi. Þegat ég flutti með fjölskyldu mína til Hafnar upp úr 1970 vorum við tíðir gestir á Sólhól hjá þeim systrum Hrafnhildi og Margréti. Eftir að Margrét fluttist frá Sólhól fyrir allmörgum árum má segja að Hadda hafi yfirtekið allan gesta- ganginn á þeim bæ. Og kannski gott betur. Ef til er eitthvað sem heitir „gestaaðdráttarafl“ þá var Hadda systir haldin því í ríkum mæli. Þegar ég nú kveð mína kæru syst- ur með þessum fátæklegu orðum verður mér hugsað til allra liðnu ár- anna sem ég og síðar öll fjölskylda mín nutu gestrisni hennar og hjálp- semi. Tvo vetur fyrir 1950 var ég hjá Höddu og Arngrími manni hennar í húsnæði og fæði að hluta til, endur- gjaldslaust sem nemandi á Höfn. Kona mín beið barnsburðar og ól son í skjóli systra minna á Sólhól haustið 1954. Margsinnis dvaldi fjölskylda mín eða hluti hennar hjá þeim í lengri eða skemmri tíma. Fyrir allt þetta og mikið meira vil ég þakka. Sonum Hrafnhildar, öðru skyld- fólki hennar og vinum sendi ég hug- heilar samúðarkveðjur. Heimir Þór Gíslason. Mín fyrsta bernskuminning er úr stofunni á Grímsstöðum á aðfanga- dagskvöld 1943, en þá gengu þau í hjónaband Hrafnhildur og Arngrím- ur bróðir minn ásamt Borghildi syst- ur okkar og Jóni Kristjánssyni. Það voru engir viðstaddir nema heimilis- fólkið og presturinn, en þetta var há- tíðleg stund sem greyptist í barns- minninu. Alla mína bernsku voru Hadda og Aggi á næstu grösum, tún- in í Brekkugerði og Grímsstöðum lágu saman, og það var oft hlaupið á milli húsa og ef aðstoðar var þörf var hún fúslega veitt á báðum stöðum. Hrafnhildur kom til Hafnar til að vera vinnukona hjá Knúti lækni í Garði og vann jafnframt á símanum, en símstöðin var þá til húsa þar í kjallaranum og var opin nokkra tíma á dag. Hadda sagði mér stundum skemmtilegar sögur frá þessum fyrstu árum, það þótti ekkert óeðli- legt að það tæki nokkra klukkutíma að ná sambandi við fólk. En mikil umbylting var þetta fyrir fámenn byggðarlög og Hrafnhildi fannst það vera forréttindi að fá að vinna við símann á þessum frumbýlisárum hans. Hrafnhildur var ein af tiltölu- lega fáum konum af hennar kynslóð sem vann úti, eftir að hún stofnaði heimili og það var alla tíð síminn sem naut starfskrafta hennar, henni var alltaf annt um það fyrirtæki og ég hugsa að hún hafi haldið sambandi við alla sem störfuðu með henni. Hún beið ekki eftir því að aðrir hefðu samband við hana, hún var yfirleitt fyrri til. Hún lét vita af sér og leitaði eftir helstu fréttum af sínu fólki og öllum sem henni voru kærir og þeir voru margir. Hún lét sér svo annt um fólk að slíks eru held ég fá dæmi og ef hún gat komið einhvers staðar til aðstoðar eða huggunar gerði hún það. Þau eru ómæld áhrifin sem hennar góðu hugsanir til samferða- fólksins hafa skilið eftir. Á heimili hennar var óvenju gest- kvæmt, hún sá til þess að öllum fannst þeir velkomnir og gætu varla farið framhjá án þess að heilsa upp á hana og þiggja góðgerðir. Ófá börn nutu aðhlynningar hjá henni, eink- um meðan synir hennar tveir voru á barnsaldri. Á búskaparárunum í Brekkugerði var lasburða föðursyst- ir mín Pálína Björnsdóttir í heimili hjá þeim og flutti með þeim á Sólhól ásamt sonum þeirra tveimur, íbúðin var lítil en henni var líka ætlaður staður þar. Ég heimsótti hana oft á Hjúkr- unarheimilið síðustu árin og ég hafði örugglega ekki minna út úr þeim samverustundum en hún, það var hvíld í því að sitja hjá henni. Hún hafði alltaf eitthvað að segja manni, einstakt minni, sem alla tíð var til staðar og það fór ekki mikill tími í sjúkdómslýsingar. Þau hjónin söfnuðu ekki miklu af veraldlegum gæðum, en ég held að þeim hafi báðum fundist þau vera rík, þau lifðu fyrir kæra fjölskyldu og samferðafólkið á Hornafirði og gáfu bæði svo miklu meira en þau tóku. Þau komast nær því en flestir aðrir sem ég þekki að uppfylla boð- orð Krists: Elska skaltu náunga þinn eins og sjálfan þig. Blessuð sé minning þeirra beggja. Kristín Gísladóttir. Heima er hugur minn ætíð í Hornafirði, þar er hjarta mitt. Þangað mun ég þrá að fara og þar að lifa, við ljósið þitt. Ég ann þér vinur þú átt mitt hjarta, þér aldrei gleymi, ég unni þér. Heima skal hugur minn dvelja því horfnar stundir nú ylja mér. (Aðalsteinn Aðalsteinsson.) Elsku Hadda mín, ég er svo þakk- lát fyrir allar yndislegu stundirnar sem við höfum átt saman. Þegar ég hugsa til Hafnar hugsa ég til þín, þú tókst alltaf svo vel á móti mér þegar ég kom til þín og varst svo glöð að fá mig til þín. Þú varst alltaf jafn ynd- isleg við mig eins og þú varst nú við alla. Mér hefur alltaf fundist ég vera svo heppin að eiga tvær ömmur á Höfn. Það verður mjög skrítið að koma austur og þú ekki þar. Nú ertu komin til hans Agga sem er eflaust búinn að vera að bíða eftir þér og ég veit að þú ert ánægð með að vera komin til hans. Það verður skrítið að heyra ekki í þér á hverjum degi eins og ég er vön. Ég er svo ánægð með að hafa heyrt í þér á fimmtudaginn, það gaf mér mjög mikið. Takk fyrir allt elsku Hadda mín, þín verður sárt saknað. Þín Hrafnhildur Arna. Nú þegar Hadda frænka á Sólhól hefur yfirgefið það svið sem við mennirnir göngum um stund eftir, þá hvarflar hugurinn ósjálfrátt til baka. Hadda og Aggi og Sólhóll virtist mér órjúfanleg heild þegar ég fyrst man eftir mér. Til þeirra kom ég oft og þar var gott að koma. Sem barn og unglingur varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast allvel Höddu móðursystur minni á Sólhóli. Hadda var sífellt með opið hús tilbúin að taka á móti gestum og gangandi sem leið áttu um. Þar var aldrei neinum í kot vísað og uppbyggilegar umræð- ur um hin ýmsu mál ásamt einlægum áhuga húsráðenda á gestum sínum gerði heimsóknirnar eftirminnileg- ar. Fór þaðan margur mettur á munni og sál því jákvæðnin og vel- vildin eru smitandi og gott veganesti hvort sem leiðin er stutt eða löng. Hadda og Aggi voru samhent hjón sem lögðu mikið af mörkum til að bæta mannlífið hvort á sinn hátt en ávallt í hljóði og án þess að vakin væri athygli á því. Þeir sem hljótt fara eru oft þeir sem mestu skila og víst er að í hugum okkar mun Höddu frænku, sem nú hefur lagt upp í langferðina miklu, ætíð verða minnst með hlýhug og þakklæti. Þröstur, Guðrún og dætur. HRAFNHILDUR GÍSLADÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.