Morgunblaðið - 08.07.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 41
HJÓNAMINNING
Þeir ljúka nú lífsgöngunni einn af
öðrum samferðamennirnir. Við sem
eftir lifum stöldrum við og lítum til
baka áður en við höldum göngunni
áfram enn um sinn. Það eru komin
leiðarlok hjá Ingu og Davíð. Þau
hafa kvatt þetta jarðneska líf með
stuttu millibili, skilað sínu ævistarfi,
sem einkenndist af miklum dugnaði,
fágætri bjartsýni og ótrúlegum lífs-
vilja. Hin síðari ár voru þeim oft erfið
sökum veikinda, en viljinn var óbug-
aður til hins síðasta, viljinn til að gef-
ast ekki upp og njóta þess sem lífið
hafði upp á að bjóða eins lengi og
unnt var.
Enginn stöðvar tímans þunga nið,
segir í kvæðinu. Tíminn, augnablik-
ið, eilífðin. Heimspekingurinn Mark-
us Arelíus sagði á sínum tíma: „Það
DAVÍÐ
GUÐMUNDSSON
INGIBJÖRG
FRIÐFINNSDÓTTIR
✝ Davíð Guð-mundsson
fæddist á Ísafirði
7. júní 1919. Hann
andaðist á LSH í
Fossvogi 19. jan-
úar síðastliðinn
og var jarðsung-
inn frá Bústaða-
kirkju 27. janúar.
Ingibjörg Frið-
finnsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 8.
júlí 1924. Hún
andaðist á
krabbameins-
lækningadeild 11E á Landspítala
við Hringbraut föstudaginn 13.
maí síðastliðinn og var jarðsungin
í kyrrþey frá Lágafellskirkju.
eina sem við eigum er augnablikið
sem við lifum í, fortíðin er liðin og
framtíðin óviss.“ Davíð og Inga
kunnu að njóta augnabliksins og
gleðjast með glöðum, þau voru starf-
söm og slepptu sjaldan verki úr
hendi, þau vildu nýta tímann sem
best bæði til vinnu og leiks. Hver lið-
in stund kemur jú aldrei til baka.
Um árabil áttum við samleið, bæði
í ferðum utanlands og innan. Hljóm-
leikakvöldin þegar setið var heima í
stofu, en samt ferðast til hljómleika-
sala út um heim, þökk sé videotækni
nútímans. Það hefur verið svo mikið
skrifað að undanförnu um þau hjón
bæði, að ég hef þar litlu við að bæta.
Þetta eru því aðeins nokkur kveðju-
orð að skilnaði frá ferðafélaga í
gegnum árin. Nú hafið þið enn á ný
lagt af stað í ferðalag. Og að gömlum
og góðum íslenskum sið segi ég:
Góða ferð.
Aðstandendum votta ég samúð.
Guðrún K. Jóhannsdóttir.
MINNINGAR
Hún fæddist inn í há-
bjartan sumardaginn,
hinn 15. júlí 1920, og
kvaddi svo snögglega þessa jarðvist
þegar dagur er hvað lengstur og sum-
arið skartar sínu fegursta.
Mikil kona með stórt hjarta er fall-
in frá.
Í dag þegar við kveðjum kæra
frænku okkar, Ástu Laufeyju Har-
aldsdóttur, koma fram í hugann
margar minningar henni tengdar,
góðar og bjartar eru þær allar og
skilja eftir mikla hlýju í hjarta.
Hún var falleg og ekki síst bráð-
skemmtileg eljukona, sem einhvern
veginn var alltaf yngri en árin sögðu
til um. Hún hafði þægilegt viðmót, var
fyrst og fremst góður félagi og mikil
félagsvera sem hreif mann svo sann-
arlega með sér í skemmtilegri frá-
sögn og með dillandi hlátrinum. Hún
var smekkmanneskja og fagurkeri
mikill, ávallt fallega klædd og vel til-
höfð svo eftir var tekið. Á heimili
hennar var öllu komið fyrir af smekk-
vísi og natni, hún var mikil húsmóðir,
matráðskona hin besta og listamann-
eskja í höndum.
Það eru forréttindi að hafa fengið
að hafa hana í sinni nánustu fjöl-
skyldu frá barnæsku og fram á full-
orðinsárin.
Innilegar samúðarkveðjur sendum
við fjölskyldu og ástvinum um leið og
ÁSTA LAUFEY
HARALDSDÓTTIR
✝ Ásta Laufey Har-aldsdóttir fædd-
ist á Reyni í Innri-
Akraneshreppi 15.
júlí 1920. Hún andað-
ist á Sjúkrahúsi
Akraness laugardag-
inn 25. júní síðastlið-
inn og var útför
hennar gerð frá
Akraneskirkju 5. júlí.
við kveðjum kæra
frænku með virðingu og
þökk.
Jensína Ragna
Ingimarsdóttir,
Guðrún Björg
Ingimarsdóttir
og fjölskyldur.
Á sinn hátt varð sum-
arið litlausara og hrá-
slagalegra við fráfall
föðursystur minnar,
Ástu Laufeyjar Har-
aldsdóttur. Ásta var glæsileg kona,
alltaf fylgdi henni hressileiki og glað-
værð. Hispurslaus og hreinskiptin.
Hún tilheyrði kynslóð sem ólst upp
eftir að efni þjóðarinnar fóru að
batna. Ólst upp í samvistum við fólk
sem hægast hefði getað unnið störf
við hlið fólks fyrir 1000 árum. Reyn-
isheimilið var á allan máta samnefn-
ari fyrir sveitaheimili þess tíma. Þar
lifðu og störfuðu þrjár, fjórar kyn-
slóðir. Baðstofulíf, eldra fólk í skjóli
afkomenda. Fæðing og dauði var eðli-
legur gangur lífsins. Lífsbaráttan
snerist um að allir kæmust þokkalega
af. Á æskuárum Ástu er byggður
bær, flutt úr torfhúsi. Þegar þetta allt
er sett í samhengi þá kemur manni í
hug á hve ógnar stuttum tíma allt
breyttist í okkar landi. Ekki einasta
húsnæði og vinnubrögð, heldur við-
horf, hugsunarháttur og lífsgildi.
Systkinahópurinn á Reyni á þessum
tíma voru fimm bræður og Ásta eina
systirin, sem náði fullorðinsaldri. Sem
eina systirin var hún bræðrum sínum
oft traust stoð. Aðstæður foreldra
þeirra voru samt um margt sérstæð-
ar. Heimilið var mannmargt. En slíkt
kom ekki í veg fyrir að kærleikar og
gott uppeldi skiluðu þar hinu vænsta
fólki. Ásta elst upp við hefðbundin bú-
störf og annríki. Hún fór vafalaust að
taka til hendinni, sem aðstæður og
geta leyfðu. Vinnusemi og dugnaður
voru alla tíð hennar helstu mannkost-
ir. Sagt er að gömlu Reyniskerlurnar,
frænka og Elísabet amma þeirra, hafi
verið afar þrifnar og snyrtimennska
þeirra orðlögð. Og hafi Ásta flutt úr
föðurhúsum eitthvert veganesti fram-
ar öðru var það einmitt sá kostur.
Smekkvísi hennar í klæðaburði var
mikil og af heimili fór hún ekki nema
tilhöfð. Í sambýli við huldufólk og
sagnir því tengdar ólst hún upp. Ásta
hélt mörgum af þeim sögnum til haga
og miðlaði síðan áfram, okkur hinum
til fróðleiks, og ekki síst sem framlag
inn í menningu þjóðarinnar sem teng-
ist slíkum sögnum.
Ásta stofnaði heimili á Akranesi og
vann þar almenn störf og helgaði
heimili og börnum starf sitt. Seinna
flutti hún til Reykjavíkur og bjó þar í
allmörg ár. Föðursystir mín skipaði
ávallt ákveðinn sess í lífinu. Ekki ein-
asta var hún aldrei nefnd annað en
Ásta systir. Skemmtileg vegna þess
hvernig hún leit lífið á sinn hátt. Ekki
reyni ég samt að halda því fram að
ekki hafi hún á stundum þurft að taka
á. Slíkt kemur fyrir í lífi okkra allra.
Samskipti okkar hafa á síðustu árum
hafa verið mér mjög dýrmæt og
þakka ég væntumþykju hennar og
tryggð. Seinustu árin hefur Ásta átt
heimili í skjóli Guðmundar sonar síns
og tengdadóttur. Fyrir það eiga þau
heiður skilinn. Eðlilega jókst sam-
gangur eftir að hún flutti á nýjan leik
á Akranes. Ekki eru heldur margir
dagar síðan hún kom hingað á Reyn í
heimsókn. Þótt þessi vistaskipti séu
alltaf þungbær er ekki annað en að
þakka fyrir góðar minningar sem eft-
ir lifa. Þakka ég Ástu fyrir ræktina
sem hún sýndi okkur krökkunum sem
seinna ólumst upp á Reyni og ekki
síst þeim sem nú leika sér við Huldu-
konuklett og Kastala, líkt og hún
gerði fyrir réttum 80 árum. Börnum
Ástu og fjölskyldum þeirra eru send-
ar innilegar samúðarkveðjur.
Haraldur Benediktsson.
Atvinnuauglýsingar
Áhugavert og
lærdómsríkt starf
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík
óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa á heimili
fyrir fólk með einhverfu, Jöklaseli 2, Reykjavík.
Um er að ræða mjög áhugavert og lærdómsríkt
starf í vaktavinnu. Heil staða eða hlutastarf
kemur til greina. Á heimilinu er veitt einstakl-
ingsmiðuð þjónusta og unnið er eftir TEACCH
samskiptakerfinu. Við leitum eftir áreiðanlegu
fólki með jákvæð viðhorf og hæfni í mannleg-
um samskiptum. Táknmálskunnátta er æskileg
en ekki nauðsynleg. Skipulögð aðlögun er fyrir
nýbyrjað starfsfólk undir handleiðslu fagfólks.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Steiney,
(margretg@ssr.is) í síma 561 1180. Einnig
veita Stefanía Muller, (stefania@ssr.is) í síma
533 1388 og Guðný Anna Arnþórsdóttir,
(gudnya@ssr.is) í síma 533 1388 upplýsingar.
Laun eru í samræmi við samninga ríkisins
og SFR
Með umsóknir er farið sem trúnaðarmál.
Aldurstakmark umsækjenda er 20 ár.
Umsóknarfrestur er til 22. júlí 2005.
SSR starfar í samræmi við lög um málefni fatlaðra. Við ráðningar
í störf hjá SSR er tekið mið af nýsamþykktri jafnréttisáætlun.
Starfsstöðvar Svæðisskrifstofu eru reyklausar.
Raðauglýsingar 569 1100
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum:
Sorpstöð
Rangárvallasýslu bs.
kynnir drög að tillögu að matsáætlun
Á vegum Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. er
nú hafið matsferli vegna fyrirhugaðrar stækkun-
ar á urðunarstað að Strönd í Rangárþingi ytra.
Sorpstöðin er framkvæmdaraðili verksins en
mat á umhverfisáhrifum verður unnið af Hönn-
un hf. verkfræðistofu. Á vefsíðu Hönnunar
(http://www.honnun.is) eru nú til kynningar
drög að tillögu að matsáætlun framkvæmdar-
innar. Kynningin stendur yfir til mánudagsins
29. júlí 2005. Framkvæmdaraðili vill hvetja al-
menning og aðra til að koma ábendingum og
athugasemdum á framfæri til Hauks Einarsson-
ar hjá Hönnun hf., Grensásvegi 1, 108 Reykjavík,
haukur@honnun.is. Í endanlegri tillögu að
matsáætlun verður gerð grein fyrir þeim ábend-
ingum og athugasemdum sem kunna að
berast.
Stjórn Sorpstöðvar
Rangárvallasýslu bs.
Uppboð
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Austurvegi 6,
Hvolsvelli, miðvikudaginn 13. júlí 2005 kl. 10.30 á eftirfarandi
eignum:
Brúnalda 3, Rangárþingi ytra, fnr. 225-8445, þingl. eig. Ásmundur
Þór Kristinsson, gerðarbeiðendur Sparisjóður Hafnarfjarðar og
sýslumaðurinn á Seyðisfirði.
Hlíðarvegur 5, Rangárþingi eystra, fnr. 219-4800, þingl. eig. Kiðja-
berg ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Rangárþing eystra.
Hlíðarvegur 7, Rangárþingi eystra, fnr. 219-4802, þingl. eig. Kiðja-
berg ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Rangárþing eystra.
Hlíðarvegur 9, Rangárþingi eystra, fnr. 219-4803, þingl. eig. Kiðja-
berg ehf, gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Rangárþing eystra.
Hlíðarvegur 11, Rangárþingi eystra, fnr. 224-2224, þingl. eig. Kiðja-
berg ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Rangárþing eystra.
Hólmur, Rangárþingi eystra, lnr. 163871, þingl. eig. Garðar Guð-
mundsson, gerðarbeiðandi Kaupfélag Árnesinga.
Hraunalda 6, Rangárþingi ytra, fnr. 198566, þingl. eig. Eikarás ehf.,
gerðarbeiðendur Rangárþing ytra og Útihurðir og gluggar ehf.
Jaðar 2, Rangárþingi ytra, lnr. 197414, þingl. eig. Jens Gíslason,
gerðarbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins.
Ketilhúshagi, lóð 3, ehl. gþ., Rangárþingi ytra, fnr. 219-5947, þingl.
eig. Hildur Ólafsdóttir, gerðarbeiðandi Kaupþing Búnaðarbanki
hf.
Kross 1a, lóð 186679, Rangárþingi eystra, fnr. 224-2683, þingl. eig.
Ingimundur Bjarnason, gerðarbeiðandi Rangárþing eystra.
Lunansholt, lóð 175636, Rangárþingi ytra, lnr. 175636, þingl. eig.
Dælur eignarhaldsfélag ehf., gerðarbeiðandi Öflun ehf.
Lyngás 1b, Rangárþingi ytra, fnr. 165114, þingl. eig. Bára Guðnadótt-
ir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Tryggingamiðstöðin hf.
Mið-Mörk, Rangárþingi eystra, ehl. gerðaþola, lnr. 163780, þingl.
eig. Gísli Sveinbjörnsson, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitar-
félaga.
Núpakot,Rangárþingi eystra, lnr. 163705, ehl. gþ., þingl. eig. Núpa-
kot ehf., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn á
Hvolsvelli.
Núpur 2, Rangárþingi eystra, lnr. 164055, þingl. eig. Sigrún Kristj-
ánsdóttir, gerðarbeiðendur Hekla hf., Kaupþing Búnaðarbanki hf.
og sýslumaðurinn á Hvolsvelli.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
6. júlí 2005,
Þórhallur H. Þorvaldsson, ftr.
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100