Morgunblaðið - 08.07.2005, Side 43

Morgunblaðið - 08.07.2005, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 43 ALDARAFMÆLI KARÓLÍNA Margrét Sveinsdóttir fæddist í Reykjavík 8. júlí 1905. Hún var dóttir hjón- anna Helgu Sveins- dóttur og Sveins Jóns- sonar. Sveinn var ættaður frá Tröð í Nes- hreppi, og var hann sjómaður. Helga var Meðallendingur, ein af þrettán börnum Sveins Ingimundarsonar og Karítasar Þorsteins- dóttur á Efri-Ey í Með- allandi, og var Jóhann- es Sveinsson Kjarval bróðir hennar. Helga dó í spönsku veikinni 1918 og var Karólína Mar- grét, þá fjórtán ára gömul, send til Kanada til þess að búa hjá móður- systur sinni sem var bóndakona í Kandahar í Saskatchewan-fylki. Karólína Margrét eða Margaret, eins og hún var kölluð eftir að hún kom til Kanada, sagði oft þá sögu að henni fannst hún vera komin í mikið ríkidæmi þegar hún kom til Kandah- ar til móðursystur sinnar því að á því heimili var til bæði píanó og bíll. Taldi hún að dvölin yrði varla lengri en fimm ár eða svo, og að henni lok- inni gæti hún snúið til heimahag- anna, þá orðin „a real lady“. Hún áttaði sig samt fljótt á því að hún hafði verið send til Kanada til að hjálpa til við verkin á stóru og barn- mörgu, en jafnframt fátæku heimili. Margrét reyndist dugleg bæði til verks og náms og fékk þegar á fyrsta námsári verðlaun fyrir náms- árangur í ensku. Lagði hún alla ævi metnað sinn í að tala enskuna hreim- laust. Í Kandahar kynntist Margrét eig- inmanni sínum Jim Morrison. Þau stofnuðu fyrst bú í Dafoe í Saskatc- hewan og ráku þar járnvöruverslun í nokkur ár eða þar til þau töpuðu öllu í kreppunni miklu á þriðja áratugn- um. Þá fluttu þau hjónin til Banff í Alberta þar sem þau ráku járnvöru- verslun og seinna sportvöruverslun. Einnig leigðu þau út skíðakofa, the Morrisons cabins. Þau hjónin voru samt þekktari fyrir framlag sitt til skíðaiðkunar í Kletta- fjöllunum. Áttu þau meðal annars mikinn þátt í því að setja upp fyrstu skíðalyftuna í Banff. Á stríðsárunum sáu þau um rekstur Norquay-skíðastaðar- ins fyrir utan Banff, en þangað voru sendir bæði breskir og kanad- ískir hermenn í heilsu- bótarleyfi. Margrét stundaði skíðaíþróttina af miklu kappi og þótti frábær skíðakona. Eru til margar myndir af henni við þá iðkun og einnig var hún oft og tíðum fyrirsæta fyrir evr- ópska skíðafataframleiðendur. Á fimmta áratugnum urðu þau hjónin umboðsmenn fyrir hið þekkta golf- fyrirtæki Titlest. Þetta fyrirtæki ráku þau hjónin af miklum krafti, fluttu það til Vancouver, og létu þar af störfum 1960. Margrét eignaðist þrjú börn, Dor- othy, Joyce og Gordon, en hann var þekktur skíðamaður og keppti fyrir Kanada á vetrarólympíuleikunum 1952. Gordon lagði stund á námu- verkfræði í Colorado og lauk þaðan doktorsprófi. Hann fórst í flugslysi 1972 er hann var að kanna námu- svæði þar. Joyce var vel þekktur kennari í Calgary, en Dorothy og eiginmaður hennar tóku við rekstri fyrirtækis þeirra Margrétar og Jim Morrison. Margrét á fjölda afkom- enda í Kanada og Bandaríkjunum, á meðal þeirra má telja James Gosl- ing, sem er höfundur Java. Síðustu 15 árin hefur Margrét bú- ið í Calgary og hefur verið við góða heilsu bæði andlega og líkamlega. Hún fékk þó lungnabólgu þegar hún var 96 ára og hefur heldur hrakað upp úr því. Hinn 8. júlí mun Margrét hverfa aftur um stund til Klettafjallanna, er hún og barnabörnin ásamt stórfjöl- skyldunni munu halda upp á 100 ára afmælið á Rimrock-hótelinu í Banff, Alberta. Hallgrímur Benediktsson, ræðismaður Íslands, Calgary. KARÓLÍNA MARGRÉT SVEINSDÓTTIR MORRISON FRÉTTIR IÐNSKÓLINN í Reykjavík útskrif- aði í vor tíu nemendur úr sérnámi fatlaðra, en slíkt nám hefur verið í boði við skólann frá árinu 1986. Nemendurnir luku fjögurra ára starfstengdu námi, fimm úr saumum og fimm úr starfsnámi málmiðna. Hópurinn fór ásamt fimm kenn- urum í vikuferð til Svíþjóðar. Meg- intilgangur ferðarinnar var að heim- sækja Wenströmska framhalds- skólann í Västerås en einnig var dvalið í Stokkhólmi. Síðari hluta vikunnar var dvalið í Stokkhólmi. Fjármagn til ferð- arinnar fékkst frá Leonardó da Vinci-starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins, Nordplus Junior-verkefni Norðurlandaráðs og úr skólasjóði Iðnskólans í Reykjavík. Hópurinn við Hotell Aabrin í Västerås: Brynjar, Alfreð, Kjartan, Árni, Magnús, Sólveig, Birna, Hrefna, Konný, Hallmar, Matthildur, Fríða, Sigurður og Aníta. Á myndina vantar Fjölni en hann stóð á bak við myndavélina. Útskrifuðust úr sérnámi fatlaðra KB banki hefur afhent minning- arsjóði Þorbjörns Árnasonar – Í hjartastað eina milljón króna. Fénu verður varið til kaupa á gervihjarta fyrir hjartaskurðdeild Landspítala – háskólasjúkrahúss. Gervihjartað hefur valdið bylt- ingu í hjartaskurðlækningum og er stórt skref í vörnum gegn ótímabærum dauðsföllum af völd- um hjartaáfalla. Gervihjartað sér um að dæla blóði úr biluðum vinstri slegli hjartans yfir í ósæð- ina og þannig út um líkamann, segir í fréttatilkynningu. Myndin er frá afhendingu styrksins. F.v. Birna Sigurð- ardóttir, eftirlifandi eiginkona Þorbjörns, Friðrik S. Hall- dórsson, framkvæmdastjóri við- skiptabankasviðs KB banka, Anna Stefánsdóttir, starfandi forstjóri LSH, og séra Hjálmar Jónsson, formaður sjóðsstjórnar Í hjarta- stað. KB banki styrkir minningar- sjóðinn Í hjartastað ÞRÍR kappar ætla sér að fara á reið- hjólum yfir hálendið en þeir leggja af stað frá Ingólfstorgi í dag klukkan tólf og áætla að koma til Akureyrar rúmum þrjátíu klukkustundum síð- ar. Tilgangur fararinnar er sá að styrkja för tveggja ára stúlku, Kol- brúnar Rósar Erlendsdóttur, en hún er með krabbamein og mun gangast undir beinmergsskipti í Svíþjóð í ágúst. Arnaldur Birgir Konráðsson, einn hjólreiðakappanna, segir að þeir muni hjóla 410 kílómetra og muni allir leggja sitt af mörkum en hinir tveir heita Evert Víglundsson og Ró- bert Traustason. „Við hjólum allir og þetta verður gert án hvíldar en við erum allir í toppformi og höfum æft stíft,“ segir Arnaldur en þeir félagar eru starf- andi einkaþjálfarar. Arnaldur segir að það muni gefa þeim aukakraft að hjóla í þágu þessa verðuga málstaðar. „Kolbrún er búin að vera mjög dugleg og þar sem maður er heill finnst manni sjálfsagt að leggja lið en yfirskrift verkefnisins er „Kraftar í þágu kraftaverks“.“ Þeir sem vilja styrkja verkefnið geta lagt inn á eftirfarandi reikning: 0315-13-300882. Ætla sér að hjóla yfir hálendið á rúmum þrjátíu tímum „Kraftar í þágu kraftaverks“ FERÐAMÁLASKÓLI Mennta- skólans í Kópavogi lauk sínu 18. starfsári nýverið með því að út- skrifa 28 nemendur. Í þetta sinn útskrifuðust nemendur af tveimur námsbrautum. Fimmtán nemend- ur luku einnar annar flugþjón- ustunámi en markmið námsins er að undirbúa verðandi flugfreyjur og flugþjóna undir störf um borð í flugvélum. Þrettán nemendur luku starfstengdu ferðafræða- námi sem samanstendur af tveggja anna bóklegu námi auk 3ja mánaða starfsþjálfunar í ferðaþjónustufyrirtæki. Tveir nemendur fengu viður- kenningu fyrir góðan námsárang- ur. Ásta Karen Ágústsdóttir fyrir flugþjónustunámið og Kristrún Klara Andrésdóttir fyrir starfs- tengda ferðafræðinámið. Útskrift úr ferðamála- skólanum í Kópavogi LOUIS Bardollet, sendiherra Frakka á Íslandi árin 2000 til 2004, var sæmdur stórriddarakrossi með stjörnu, hinn 16. júní sl. Tómas Ingi Olrich, sendiherra Íslands í París, afhenti Bardollet orðuna í móttöku sem haldin var af þessu tilefni í bú- stað sendiherra. Í starfi sínu sem sendiherra Frakka á Íslandi var Bardollet at- kvæðamikill og stuðlaði að fjöl- breyttum samskiptum Frakka og Íslendinga. Sem dæmi má nefna fjölbreytt samstarf á sviði vísinda, en rannsóknarsjóður á því sviði, kenndur við Jules Verne, var stofn- aður árið 2003. Hann kom einnig að hinni umfangsmiklu Íslandskynn- ingu sem haldin var í París árið 2004. Í ávarpi sínu til Bardollet minnt- ist Tómas Ingi Olrich sendiherra þeirra starfa sem Bardollet hefur unnið í þágu samskipta milli Ís- lands og Frakklands, og þakkaði framlag hans til þeirra. Bardollet þakkaði sömuleiðis fyrir þau ár sem hann átti á Íslandi og lýsti ánægju sinni með að ljúka þar starfsferli sínum sem sendiherra. Louis Bardollet sæmdur stórriddarakrossi NÚ ÞEGAR hafa fimm Íslendingar skráð sig til leiks í alþjóðlegum æsku- lýðsbúðum sem fram fara í Nablus dagana 20. júlí til 5. ágúst nk. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Félaginu Ísland-Palestína, en félagið sér um að vekja athygli á búðunum og sjá um þátttökuskráningu. Það eru Palestínsku læknishjálpar- samtökin (UPRMC), sem standa fyrir æskulýðsbúðunum, en samtökin hafa lengi verið einn helsti samstarfsaðili Félagsins Ísland-Palestína á palest- ínsku herteknu svæðunum. Í búðun- um mun ungt fólk og námsmenn á aldrinum 20 til 35 ára taka þátt í sjálf- boðastarfi í gömlu borginni, flótta- mannabúðum og þorpum í kringum Nablus. Auk þess verður farið í vett- vangsferðir, palestínsk menning kynnt og ýmislegt til gamans gert á kvöldvökum. Þátttakendur greiða sjálfir fargjaldið til Palestínu, en UPRMC sjá um húsnæði og veita 100 evrur í styrk á mann, fyrir mat og öðru tilfallandi. Allar nánari upplýsingar veita Sveinn Rúnar í síma 895 1349 eða net- fanginu srh@heima.is og Borgþór í síma 898 0359 eða netfangi borg- tor@mmedia.is. Enn er tekið við skráningum. Alþjóðlegar æskulýðs- búðir í Nablus FYRSTA brautskráning nýstúd- enta frá Menntaskólanum Hrað- braut fer fram í Bústaðakirkju laugardaginn 9. júlí kl. 11. Alls munu útskrifast 36 nemendur frá skólanum. Menntaskólinn Hraðbraut er nýr valkostur fyrir nemendur sem býð- ur nám til stúdentsprófs á aðeins tveimur árum. Að hausti 2005 hefja 140 nemendur nám í Mennta- skólanum Hraðbraut. Hraðbraut út- skrifar fyrstu stúdentana

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.