Morgunblaðið - 08.07.2005, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 47
DAGBÓK
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó alla föstu-
daga kl. 14 í sumar, aukaumferðir
eftir kaffihlé. Vinnu- og baðstofa,
allir velkomnir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Pútt-
völlur kl. 10–16.30. Bingó fellur niður
í og júlí.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, fótaaðgerð,
frjálst að spila í sal. Ferðalag 14. júlí.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl.
11.15–12.15 matur, kl. 14.30–15.30
kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist verður spiluð í kvöld kl.
20.30 í Gjábakka.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Landmannalaugar 14. júlí, dagsferð.
Ekið um Þjórsárdal og Sigöldu til
Landmannalauga. Í bakaleið er
Dómadalsleið ekin með viðkomu í
Landmannahelli, síðan um Landveg
til Selfoss og Reykjavíkur. Kaffi og
meðlæti í Hestheimum Leiðsögn:
Þórunn Lárusdóttir. Laus sæti. Upp-
lýsingar og skráning í síma
588 2111.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall og
dagblöðin. Kl. 9 baðþjónusta, fóta-
aðgerð. Kl. 9 hárgreiðsla. Kl. 10
pútt. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 13
bókabíll. Kl. 15 kaffi. Kl. 14 bingó 2.
og 4. föstudag í mánuði.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl.
9. Brids kl. 13. Pútt á Hrafnistuvelli
kl. 14–16.
Hvassaleiti 56–58 | Böðun virka
daga fyrir hádegi. Hádegisverður.
Fótaaðgerðir 588 2320. Hársnyrt-
ing 517 3005. Dagblöðin liggja
frammi til aflestrar.
Hæðargarður 31 | Listasmiðja og
Betri stofa opin 9–16. Púttvöllurinn
alltaf opinn. Gönguhópurinn Gönu-
hlaup kl. 9.30. Bridge kl. 13.30.
Fótaaðgerðarstofa sími 897 9801.
Dagblöðin liggja frammi. Hádeg-
ismatur. Síðdegiskaffi. Skráningu á
haustnámskeiðin lýkur 1. ágúst.
Kíktu við eða hringdu í síma
568 3132. Allir alltaf velkomnir.
Norðurbrún 1, | Hárgreiðslustofan
verður lokuð frá 12. júlí til 8. ágúst.
Fótaaðgerðastofan lokuð frá 27. júlí
til 8.ágúst. Vinnustofur lokaðar í júlí
–15. ágúst.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14.30
handavinna. Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 13.30–14.30 sungið v/
flygilinn. Kl. 14.30–14.45 kaffiveit-
ingar. Kl. 14.30–16 dansað í aðalsal.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Leikfimi
kl. 10. Hárgreiðslu– og fótaaðgerð-
arstofur opnar. Bingó kl. 14. Allir
velkomnir.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 d6 6. g3 a6 7. Bg2 Bd7 8.
0-0 Rc6 9. a4 Be7 10. h3 h5 11. b3
Rxd4 12. Dxd4 Dc8 13. Dd3 Dc7 14.
Rd1 0-0 15. Re3 Bc6 16. Ba3 Hfd8
17. c4 Rd7 18. De2 Rc5 19. Bxc5 dxc5
20. Dxh5 Hd3 21. Hab1 Db6
Staðan kom upp á Evrópumeist-
aramóti einstaklinga sem lauk fyrir
skömmu í Varsjá. Stefán Krist-
jánsson (2.461) hafði hvítt gegn Cy-
ril Marzolo (2.388). 22. Rd5! exd5?
22. … Dd8 var skárra þar eð nú fær
hvítur létt unnið tafl. 23. exd5 Be8
24. De2 Hxb3 25. Hxb3 Dxb3 26.
Dxe7 Db6 27. d6 Hd8 28. He1 f6 og
svartur gafst upp um leið þar eð eft-
ir t.d. 29. Bd5+ Kh7 30. He4 er fátt
sem gleður augað í stöðu hans.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
EM á Tenerife.
Norður
♠ÁD976543
♥KD852
♦–
♣–
Mikil skiptingarspil hafa hvetj-
andi áhrif á spilara og breyta þeim
flestum úr kyrrsetumönnum í
stangarstökkvara. Átta-fimm-núll-
núll-skipting er mjög örvandi.
Nú er að sjá hvernig lesandinn
bregst við með spil norðurs. Aust-
ur er gjafari og NS á hættu. Þegar
kemur að norðri hafa sagnir farið
furðu rólega af stað:
Vestur Norður Austur Suður
– – 1 lauf Pass
1 hjarta ?
Hver er sögnin?
Jafnvel rólyndustu menn gætu
ekki stillt sig um að segja minna
en fjóra spaða. Og satt að segja er
það mjög eðlileg sögn, þótt hún sé
ekki sérlega frumleg. En það er
aldrei of varlega farið. Spilið er frá
blönduðu sveitakeppninni á Kan-
aríeyjum og leit þannig út í heild
sinni:
Norður
♠ÁD976543
♥KD852
♦
♣
Vestur Austur
♠G ♠K1082
♥G9643 ♥Á10
♦Á942 ♦K105
♣K94 ♣Á532
Suður
br ♠–
♥7
♦DG8763
♣DG10876
Sagnir voru víða á þessum nót-
um:
Vestur Norður Austur Suður
– – 1 lauf Pass
1 hjarta 4 spaðar Dobl 5 tíglar
Dobl 5 spaðar Dobl Allir pass
Fjórir niður og 1100 í AV. Ekki
beint það sem norður hafði í huga.
Eitt NS-par náði þó tölunni, en
þar voru að verki Birman-hjónin
frá Ísrael. David Birman var í
norður og hann ákvað að bíða
átekta einn hring:
Vestur Norður Austur Suður
– – 1 lauf Pass
1 hjarta Pass ! 1 spaði Pass
1 grand 2 spaðar Allir pass
Vörnin var úti á túni og David
vann tvo spaða eftir hjartaásinn út.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
MYNDLISTARMAÐURINN
Hlynur Hallsson opnar sýninguna
„vegamyndir – roadmovies“ í Gall-
eríi ash í Varmahlíð á morgun
klukkan 14. „Á sýningunni eru
átta textaðar ljósmyndir sem
henta sérstaklega vel fyrir ferða-
menn sem eiga leið um þjóðveg
númer 1 því þær eru á íslensku,
þýsku og ensku,“ segir í kynningu
um sýninguna. Verkin eru öll frá
þessu ári og hafa verið sýnd hjá
Galleri 21 í Malmö og Galerie Ro-
bert Drees, en hér er um Íslands-
frumsýningu að ræða.
Hlynur Hallsson fæddist á Ak-
ureyri 1968. Hann nam myndlist
við Myndlistaskólann á Akureyri,
Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands og við listaháskólana í Düs-
seldorf, Hamborg og Hannover
þar sem hann lauk mastersnámi
1997. Hlynur hefur haldið yfir 30
einkasýningar á síðustu árum og
tekið þátt í um 50 samsýningum.
Nú standa einnig yfir sýningar á
verkum hans hjá Büro Otto Koch í
Dessau og í Deutzer Brücke í
Köln. Hlynur er bæjarlistamaður
Akureyrar 2005. Hann hefur
kennt myndlist við Listaháskóla
Íslands og Myndlistarskólann á
Akureyri, skrifað um myndlist og
rekið sýningarstaðina Villa Mi-
nimo og Kunstraum Wohnraum í
Hannover og á Akureyri og verið
einn fjögurra myndlistarmanna
sem reka sýningarstaðina Garður-
Udhus-Küche + (GUK+).
Vegamyndir Hlyns
Hallssonar í Varmahlíð
Nánari upplýsingar um Hlyn
og verk hans er að finna á
www.hallsson.de.
HÚSGAGNASMIÐURINN og lista-
maðurinn Árni Björn Guðjónsson
hefur opnað málverkasýningu á
veitingastaðnum Galíleó, Hafn-
arstræti 1.
Árni Björn Guðjónsson stundaði
nám í Myndlistarskólanum í Reykja-
vik á árunum 1957 til 1962. Hann sat
þá námskeið hjá til dæmis Ásmundi
Sveinssyni, Veturliða Gunnarssyni,
Hring Jóhannessyni, Hafsteini Aust-
mann, Ragnari Kjartanssyni og fleir-
um. Á þeim tíma var hann duglegur
að fara á sýningar og lifði og hrærðist
í myndlistarlífinu. Veturliði Gunn-
arsson var hans aðalkennari og læri-
meistari þá.
Árni hefur ekkert málað síðan en
nú á þessu ári hóf hann að mála á ný.
Hann er með meistarabréf í hús-
gagnasmíði og rak innréttingaverk-
stæði um árabil og húsgagnaverslun.
Aðspurður hvort hann hafi ekki sakn-
að myndlistarinnar öll þessi ár svarar
hann að víst hafi hann oft hugsað til
hennar. „Ég fékk ákveðna útrás fyrir
listræna sköpun í starfi mínu sem tré-
smiður þar sem ég teiknaði oft upp
innréttingar og fleira.“
Myndlistin hefur fengið stórt hlut-
verk í lífi hans á ný og hann er fullviss
um að ekki verði aftur snúið. Draum-
urinn er að fá betra vinnusvæði því
afköstin eru mikil hjá Árna og allt að
fyllast af myndum og því sem þeim
fylgir.
Myndirnar, sem til sýnis eru í gall-
eríinu Galíleó, eru af íslensku lands-
lagi en hann hefur einnig málað
myndir á Spáni og af landslaginu þar.
„Ég reyni að grípa litina úr nátt-
úrunni og finnst sólarlagið alltaf ein-
stakt myndefni,“ segir Árni að lokum.
Sýningin stendur til 27. júlí og er opin
frá kl. 11.00 til 23.00 alla daga.
Málar að nýju eftir langt hlé
Morgunblaðið/Eyþór
Árni Björn Guðjónsson trésmiður hefur tekið pensilinn fram eftir langt hlé og sýnir á veitingastaðnum Galíleó.
TÍMARITIÐ Reykjavík Grapevine
og Gallerí Humar eða frægð! opna, í
samstarfi við Gisp! hópinn og JPV
bókaútgáfuna, listsýninguna
„Myndasögur í sprengjubyrgi“ í
Galleríi Humar eða frægð! að
Laugavegi 59 (Kjörgarði, Bónus) í
dag kl. 18.
Sýningin stendur yfir í tvo mánuði
og verða sýnd verk eftir m.a. Ólaf J.
Engilbertsson, Bjarna Hinriksson,
Jóhann L.Torfason, Halldór Bald-
ursson, Þórarin Leifsson, Braga
Halldórsson og fleiri sem kenndir
eru við GISP! hópinn.
Auk þessa verða sýnd verk eftir
Erró, Hallgrím Helgason, Gunnar
Karlsson, Gunnar Hjálmarsson,
Lauru Valentino, Úlf Kolka og Hug-
leik Dagsson ásamt völdum teikn-
uðum myndum upp úr nýjasta tölu-
blaði Grapevine.
Sýningarskráin er myndasögubók
þar sem Grapevine kynnir fyrstu
þjóðlegu íslensku ofurhetjuna,
Lundamanninn. Í myndasögubók-
inni verða einnig myndasögur eftir
Hugleik ásamt upplýsingum um til-
urð og sögu GISP! hópsins.
Í tilefni af opnuninni mun hljóm-
sveitin Kimono leika lög af plötu
sinni Arctic Death Ship en útgáfa
hennar er ráðgerð á næstu dögum.
Sama dag kemur síðan út níunda
tölublað þessa árs af tímaritinu The
Reykjavík Grapevine. Til að tóna
blaðið og sýninguna saman, þá munu
að þessu sinni allar myndir í blaðinu
verða teiknaðar en það er, eftir því
sem útgefendur Grapevine komast
næst, í fyrsta skipti sem slíkt er gert
hérlendis.
Myndasögur, teiknað
tímarit og lifandi tónlist