Morgunblaðið - 11.07.2005, Side 2
2 F MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Efnisyfirlit
Akkurat ................................ 24–25
Ás .................................................. 47
Ásbyrgi ........................................... 6
Bifröst ............................................. 7
Borgir ................................... 36–37
DP fasteignir .............................. 39
Eignaborg .................................... 41
Eignamiðlunin .................... 28–29
Eignaval ........................................ 15
Fasteign.is ........................... 32–33
Fasteignamarkaðurinn .......... 4–5
Fasteignamiðstöðin ................. 44
Fasteignasala Íslands .............. 23
Fasteignasala Mosfellsbæjar . 22
Fasteignastofan .......................... 19
Fjárfesting .................................. 43
Fold .................................................. 9
Foss ............................................... 27
Garðatorg ...................................... 8
Garður .......................................... 42
Gimli ...................................... 26–27
Heimili .......................................... 55
Híbýli ............................................ 56
Hof .................................................. 10
Hóll .................................................. 3
Hraunhamar ......................... 20–21
Húsakaup ............................. 40–41
Húsalind ...................................... 48
Húsavík ........................................ 53
Húsin í bænum ............................. 31
Höfði ..................................... 46–47
Klettur ......................................... 45
Lundur .......................................... 52
Lyngvík ........................................ 52
Miðborg .................................. 12–13
Skeifan ......................................... 49
Valhöll .................................. 16–170
F
yrrum ábúendur Stafholts-
eyjar í Bæjarsveit í Borg-
arfirði, hjónin Sigurður
Sigfússon og Sigríður Páls-
dóttir Blöndal, hafa hreiðrað um sig í
ellinni í nýinnfluttu einbýlishúsi úr
timbureiningum frá Svíþjóð og látið
sonum sínum eftir gamla bæinn og
jörðina. Húsið var reist í lok janúar
fyrir réttum tveimur árum í 13 stiga
frosti milli lægða og tók uppsetningin
tvo daga við erfiðar aðstæður með
tveimur smiðum og kranabílstjóra.
THE ráðgjöf ehf., sem Þorgeir Örn
Elíasson stýrir, flutti húsið inn frá
Svenska Träelement ab. í Enköping í
Svíþjóð og hefur verið að kynna það
fyrir markaðnum hér á Íslandi síðan
enda verðlagningin á því hagstæð og
smíðin mjög sterkleg og vönduð.
Húsið sem er 80 fermetrar kom í
stórum einingum, gaflarnir heilir en
hliðarnar í tveimur einingum eða
fleirum ef húsið væri stærra. Eining-
arnar koma einangraðar með ísettum
gluggum með þreföldu gleri og
grunnmálaðar að utan.
Hver kaupandi getur fengið húsið
hannað að eigin óskum frá arkitekt-
um framleiðandans þar sem húsin
eru meira og minna óstöðluð.
Að sögn Þorgeirs þarf kaupandinn
að láta ganga frá grunninum sjálfur í
samræmi við húsið en síðan er upp-
setningin framkvæmd af tveimur
smiðum og kranabílstjóra eins og
fyrr segir.
„Við góðar aðstæður er uppsetn-
ingin dagsverk á þessari stærð húsa,
en tveir dagar þegar hússtærð fer
mikið yfir hundrað fermetrana," segir
Þorgeir. „Öll nákvæmni er mikilvæg í
undirbúningnum þannig að skekkja
má ekki vera meiri en 3 mm. í útlínum
heildarramma hússins og burðarein-
ingar þaksins eru síðan hlutar af
milliveggjum. Takist skiplag und-
irbúningsvinnunnar vel tekur milli 15
– 20 mínútur að setja niður hverja
einingu og tengja saman við sam-
liggjandi einingar og skýrir þetta ná-
kvæmniskröfurnar sem framleiðand-
inn leggur mikið upp úr.“
Húsið í Stafholtsey sem gengur
nafninu “Siggishus" í Svíþjóð er ein-
angrað með 195 mm. þykkri steinull í
útveggjum og 330 mm. í þakeining-
unum sem er langt umfram íslenskar
byggingarkröfur. Vegna þessarar
miklu einangrunar sáu þau hjón sér
leik á borði og nota heitavatnsaffallið
frá gamla býlinu sem leitt er um hús-
ið undir gólfunum og er hitanýtingin
rómuð, enda slík gólfhitun að ryðja
sér æ meir til rúms með þessum
hætti.
Húsbændur í Stafholtsey fullyrða
að kaupin hafi verið sérlega hagstæð
og þetta veglega hús kostað á sínum
tíma fast að 8 milljónum króna eða
um 100 þúsund krónur fermeterinn á
sama tíma sem sambærileghús hafi
verið um 140-150 þúsund krónur
tilbúin undir tréverk, en í þessum
kaupum fylgdi vönduð eldhúsinnrétt-
ing með tækjum, allar úti- og inni-
hurðir, veltigluggar ásamt öðrum
gluggum, panill í loftum, parket á
gólfum ásamt vöskum og salerni.
Vegna þess hversu auðveld uppsetn-
Sænskt timb-
ureiningahús
vekur athygli
Uppsetningin tók aðeins tvo daga, en
þá var búið að loka húsinu.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Þau Sigurður og Sigríður sitja hér í rúmgóðri stofunni.
Stafholtsey í Borgarfirði. Þetta er einbýlishús, 80 ferm. að stærð, innflutt frá
Svíþjóð.
Á húsinu eru þrír veltigluggar.
Frá vinstri: Sigurður Sigfússon, bóndi í Stafholtsey og Sigríður Pálsdóttir Blöndal,
kona hans, Þorgeir Örn Elíasson, umboðsmaður framleiðanda og Örn Egilsson.
ingin er og gengur fljótt fyrir sig,
reynist þessi smíðamáti vel til af-
skekktra sveita ekki síður en í þétt-
býli.
Svenska Träelement ab. hefur sér-
hæft sig í smíði timbureiningahúsa til
margra ára og framleiðir ásamt ein-
býlishúsum, raðhús, fjölbýlishús,
skóla, sjúkrahús, flugturna auk sum-
arbúðstaða í öllum stærðum og gerð-
um og allar þær byggingar eftir ósk-
um viðskiptavinanna.
„Húsið er mjög vandað og hefur
reynst frábærlega í verstu veðrum, “
segir Þorgeir og bætir við að lokum
að hann hafi verið að kynna þessi hús
undanfarna mánuði og er áhugi þegar
vakinn.