Morgunblaðið - 11.07.2005, Síða 18
18 F MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Það tekur ár ef ekki aldir aðbreyta hugsunarhættiþjóða. Það er ekki einusinni heil öld síðan Íslend-
ingar bjuggu flestir í mjög lélegu
húsnæði. Til sveita var það gamli
torfbærinn og í þorpum sem síðar
urðu að bæjum var ekki hátt risið á
húsum yfirleitt. Það var ekki fyrr en
eftir heimsstyrjöldina síðari, eftir
hersetu Breta og Bandaríkjamanna,
að farið var að byggja varanlegt hús-
næði hérlendis í stórum stíl, allavega
í stórum stíl á þessa lands mæli-
kvarða.
Einn versti óvinur í hverju koti var
kuldinn, þessi skolli sem smaug um
hverja sprungu, um hverja rauf frá
hausti til vors. Þá var fátt talið verra
en gólfkuldi og dragsúgur, magnað
orð dragsúgur og kemur víða fyrir í
rituðu máli og jafnvel hægt að finna
kuldahrollinn um leið og það er lesið
eða mælt. Það er því engin furða þó
það hafi verið barátta hvers og eins,
jafnt tómthúsmannsins sem hins
tigna, að vinna bug á kuldanum, að fá
yl var fyrir öllu.
Þetta hefur verið baráttan fram
eftir síðustu öld sem er nýgengin fyr-
ir ætternisstapa. Vissulega vannst
sigur í þeirri baráttu og þar réð úr-
slitum lega landsins; að það skuli
vera á Atlantshafssprungunni og
ungt að árum, enn að myndast og
stutt í eimyrjuna.
Og nú streymir jarðvarminn inn í
hvers manns rann og veitir ótæm-
andi yl, ódýran yl.
En þegar kuldaboli hefur verið
endanlega lagður að velli kemur upp
furðulegt vandamál öllum að óvör-
um, enginn gat séð það fyrir.
Of mikill hiti
Vandamálið er of mikill hiti.
Hvernig má það vera að á þessu
kalda landi, því það er það svo sann-
arlega, sé of mikill hiti vandamál?
Þetta er afleiðing
af framförum og
breyttum at-
vinnuháttum.
Hús eru byggð á
allt annan hátt en
áður og úr öðrum
efnum. Þó að
margt megi finna
að byggingariðn-
aði hér á landi,
eins og víðast
hvar á Vest-
urlöndum, þá er ekki vafi á því að
húsin eru vandaðri að flestu leyti en
áður, þau eru þéttari og heitari þar
sem hitagjafinn er öruggari og ódýr-
ari, auk þess sem ætla má að stýri-
tæki séu nákvæmari þó það sé um-
deilanlegt. Ekki síst hefur gler í
gluggum mikið að segja, tvöfalt gler
nútímans og einangrun utan á húss-
krokknum vinna saman að því að
halda hitanum inni.
En enginn getur verið án súrefnis
og þess vegna verður að endurnýja
loftið innanhúss og þar vantar tals-
vert á að við gætum að okkur. Þó við
búum á norrænum breiddargráðum
gefur sólin umtalsverðan hita þegar
hún hækkar á lofti og ekki má
gleyma öllum ókeypis varmagjöf-
unum sem nú eru inni á gafli og þar
eru tölvurnar ónískar.
Það er einmitt í skrifstofuhúsnæði
fyrst og fremst, líklega einnig í skól-
um, þar sem yfirhitun húsnæðis er
orðin verulegt vandamál hérlendis
yfir sumartímann sérstaklega, en
vandamálið skýtur upp kollinum árið
um kring. Margar leiðir hafa verið
farnar til að vinna gegn of miklum
hita innanhúss og stundum hefur
verið farið inn á algjörar villigötur.
Þar má nefna plastfilmu sem límd er
innan á gler í gluggum og endurkast-
ar sólarorkunni. Því miður endar það
yfirleitt með þeim ósköpum að rúð-
urnar springa vegna misþenslu.
Í sumum húsum eru loftræsikerfi
sem á að vera hægt að beita til hit-
unar, til loftskipta og einnig til kæl-
ingar. Kæliraftar eru að verða al-
gengir en hér er ekki rými til að
skýra hvers konar tæki það eru, má
þó nefna að þeir kæla en loftræsa
ekki.
Það sem verður að gera í framtíð-
inni er að þetta verður að leysa strax
á teikniborðinu, þegar lagnakerfin
eru hönnuð. Það er ótrúlegt en satt
að stórar og glæsilegar húsbygg-
ingar, sem hafa verið reistar á allra
síðustu árum, eru með þessum ágöll-
um að vera allt of heitar yfir sólrík-
asta tíma ársins, þetta er mikið
vandamál sem verður að leysa.
Það er lífseigt í genum þessarar
þjóðar að hugsa eingöngu um að fá
nægan hita, en gera sér ekki enn
ljóst að það getur orðið of mikið af
því góða.
Er allt fengið með nægum hita?
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is
Það er ekki nægilegt að tryggja nægilegan varma í nútímabyggingum, það verður einnig að tryggja að varminn verði ekki
of mikill og óviðráðanlegur.
Sigurður Grétar
Guðmundsson