Morgunblaðið - 11.07.2005, Side 30
30 F MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
H
vergi á öllu höfuðborgar-
svæðinu verður útsýnið
meira en í Kórahverfi í
Kópavogi. Landið stend-
ur þarna hátt og því hallar til vesturs
og suðurs. Mikið útsýni er því að Blá-
fjöllum og að Elliðavatni og annars
staðar er frábært útsýni yfir Faxa-
flóa og allt að Snæfellsjökli.
Byggðin rís að mestu leyti í suð-
urhlíð Vatnsendahvarfs andspænis
Rjúpnahæð. Þetta verður blönduð
byggð með tæplega 3.000 íbúum, en
auk fjölbýlishúsa er gert ráð fyrir
talsverðum fjölda einbýlishúsa og
rað- og parhúsa í Kórahverfi.
Þó að byggðin verði í yfir 100
metra hæð, er þarna talsvert skjól
fyrir norðanátt. Gróður ætti því að
dafna allvel, einkum þegar húsin eru
farin að rísa og skapa enn meira skjól
fyrir umhverfið. Landhallinn hefur
líka áhrif á staðsetningu húsa og legu
gatna, en aðkoma að hverfinu er frá
Vatnsendavegi og Arnarnesvegi.
Hverfið rís fyrir austan Salahverfi
í beinu framhaldi af því. Kórahverfi
telst því miklu frekar framhald
byggðarinnar í Salahverfi en Vatns-
endabyggðar. Þannig verður byggð-
in í Kórahverfi háreistari en í Vatns-
enda og yfirbragð hennar líkt og í
Salahverfi.
Öll gatnaheiti í hverfinu enda á
kór. Safngata hverfisins nefnist
Kóravegur og göturnar út frá henni
enda á kór. Þetta er gert á sama hátt
og í Salahverfi, en aðalgatan þar
heitir Salavegur og götur út frá hon-
um hafa heitið salir að seinni lið.
Það er líflegt um að litast þessa
dagana, þegar ekið er um Kóra-
hverfi. Hvarvetna blasir við mikil
uppbygging. Alls staðar má sjá
krana og önnur stórvirk tæki að
verki. Þessu hverfi er ætlað mikið
hlutverk í framtíðinni. Auk tveggja
leikskóla verður þar heildstæður
grunnskóli með góðri tengingu við
íþróttasvæði og íþróttahús. Einnig
verður þar verslunar- og þjónustu-
miðstöð.
Ef að líkum lætur verður upp-
byggingin í Kórahverfi mikil og hröð
líkt og átt hefur sér stað bæði í Sala-
hverfi og Lindahverfi og gera má ráð
fyrir, að hverfið verði orðið virkt
þegar á næsta ári og þá verði komnar
götur, leiksvæði og þjónustukjarnar.
Ásókn í lóðir í þessu hverfi hefur
verið mikil og öllum lóðum þar er fyr-
ir löngu úthlutað. Ástæðan er eflaust
sú, að skipulag hverfisins hefur fallið
fólki vel í geð, húsategundir eru fjöl-
breyttar og í samræmi við óskir
markaðarins. Jafnframt hefur það
tíðkast í Kópavogi að ganga hratt og
vel frá bygggingarsvæðum og þeirri
hverfisþjónustu, sem fylgir upp-
byggingu nýrra hverfa.
Fjórtán hæðir auk kjallara
Við Hörðukór 1 er byggingafyrir-
tækið ÞG Verktakar að reisa fjórtán
hæða fjölbýlishús auk kjallara. Hús-
ið stendur á miklum útsýnisstað í
hlíðinni og það hátt, að það verður
örugglega eitt hæsta fjölbýlishús
landsins fyrr og síðar. Húsið verður
með 57 íbúðum, ýmist 3ja eða 4ra
herbergja og frá 97,4 ferm. og upp í
129,1 ferm. að stærð, en efst er þakí-
búð, 4ra–5 herbergja, sem verður
195,3 ferm.
Mikið er í þetta hús lagt, en það er
steinsteypt á hefðbundinn hátt, ein-
angrað að utan og klætt með litaðri
álklæðningu, sem tryggir lágmarks-
viðhald hússins. Gluggar eru úr furu,
álklæddir að utan. Þak hússins er
flatt og klætt með heillegum pvs-dúk
og þaki er lyft yfir stofurýmum í
íbúðum á efstu hæð. Bílageymsla
með aðkomu af aðalgötu er í kjallara
og einnig séreignageymslur og
tæknirými. Tvær lyftur verða í hús-
inu og er gengt úr bílageymslu að
lyftum í kjallara.
Að innan skilast íbúðirnar fullbún-
ar en án gólfefna. Innihurðir verða
yfirfelldar og sjónvarps- og síma-
tengi verða í öllum herbergjum.
Pípulagnakerfi hússins er að mestu
leyti rör í rör-kerfi, sem tryggir betri
hljóðvist og betri endingu lagna-
kerfa. Jafnframt fylgir sjónvarps-
sími öllum íbúðum.
Innréttingar verða af vandaðri
gerð frá danska fyrirtækinu HTH og
er hægt að gera breytingar á innrétt-
ingum, ef þær berast tímanlega, og
velja úr viðartegundum. Annars hef-
ur verið valinn ljós eikarspónn á inn-
réttingarnar til þess að gefa þeim
léttan lit og nútímalegt en um leið
klassískt yfirbragð. Baðherbergin
eru rúmgóð og glæsileg og salerni
upphengd.
Þriggja herb. íbúðirnar kosta frá
19,9 millj. kr. upp í 24,8 millj. kr. og
fjögurra herb. íbúðirnar frá 25,9
millj. kr. og upp í 33,9 millj. kr. þak-
íbúðin.
Björn Ólafs, arkitekt í París, hefur
hannað húsið og fer þar svolítið
Einstakt útsýni frá einu
hæsta fjölbýlishúsi landsins
Á miklum útsýnisstað í
Kórahverfi í Kópavogi er
að rísa fjórtán hæða fjöl-
býlishús auk kjallara.
Magnús Sigurðsson
kynnti sér íbúðirnar, sem
eru með stórum gler-
flötum í útsýnisáttum.
Gríðarlegt útsýni verður frá efri hæðum hússins. Elliðavatn og fjallasalurinn blasa við.
.
Á byggingarstað. Frá vinstri: Björn Ólafs arkitekt, hönnuður byggingarinnar, Gunnar Bjarki Rúnarsson, verkstjóri hjá ÞG,
Davíð Már Sigurðsson, markaðsstjóri hjá ÞG, Þorleifur Guðmundsson hjá Eignamiðluninni og Magnús Geir Pálsson hjá
Borgum, en íbúðirnar eru til sölu hjá þessum tveimur fasteignasölum.
Tölvugerð útlitsteikning af fjölbýlishúsinu. Það verður fjórtán hæðir auk kjallara. Í því verða 57 íbúðir, ýmist 3ja eða 4ra
herbergja og frá 97,4 ferm. og upp í 129,1 ferm. að stærð. Efst er þakíbúð, 4ra til 5 herbergja, sem verður 195,3 ferm. All-
ar íbúðirnar verða með yfirbyggðum en opnanlegum svölum og njóta allar útsýnis og sólar.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Á EFSTU hæð hússins verður ein-
stök þakíbúð, sem skartar geysi-
legu útsýni. Íbúðin er 195,3 ferm og
að auki er tvöfaldur um 35 ferm.
sérstæður bílskúr, sem fylgir þess-
ari íbúð. Átta ferm. svalir eru út af
hjónaherbergi og einnig út af stofu.
Frá forstofu íbúðarinnar liggur
hringstigi að einka-þaksvölum, sem
eru 74 ferm. að stærð. Óhætt er að
segja, að vart verði hægt að finna
jafn stórkostlegt útsýni frá nokk-
urri íbúð á höfuðborgarsvæðinu.
Þaksvalirnar eru viðarklæddar og
þeim fylgir útigeymsla og heitur
nuddpottur.
Íbúðin sjálf skartar tæplega 70
ferm. stofu, glæsilegu baðherbergi,
gestasalerni, þremur stórum her-
bergjum, fataherbergi og fallegum
innréttingum, tækjum og búnaði.
Ásett verð er 33,9 millj. kr.
Þakíbúð
á 14. hæð