Morgunblaðið - 11.07.2005, Page 40
40 F MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIL SALA - VANTAR ALLAR STÆRÐIR EIGNA Á SKRÁ
Einbýlishús
HOLTSGATA - STÓR EIGNARLÓÐUm er
að ræða allt húsið við Holtsgötu 7 í Reykjavík.
Húsið sem er afar reisulegt og fallegt, skiptist í
kjallara, tvær hæðir og ris. Húsið er 346 fm ásamt
76 fm byggingu/bílskúr við hlið hússins. Um-
hverfis húsið er mjög stór lóð þar sem hugsan-
lega liggja frekari byggingatækifæri. Húsið
stendur innarlega á lóðinni og er því ekki beint
við Holtsgötuna. Á undanförnum árum hefur ver-
ið rekið dagheimili í húsinu og er það því innrétt-
að fyrir slíka starfsemi. Það er því ljóst að tal-
verðu þarf að bæta við og breyta til að húsið nýt-
ist sem hefðbundið íbúðarhúsnæði. Hér er á
ferðinni mjög gott tækifæri fyrir framkvæmda-
sama aðila sem vilja koma að endurbyggingu
hússins sem og frekari uppbyggingu lóðarinnar.
Verð 125 milljónir.
ÁLFASKEIÐ - HAFNARFIRÐI Fallegt og
sérstaklega vel staðsett 190 fm einbýlishús á 2
hæðum á þessum frábæra stað í Hafnarfirðinum.
Húsið er staðsett í rólegri götu með góðum og
vel hirtum garði. Að innan er húsið einkar vel
skipulagt þar sem öll rými hússins nýtast sérlega
vel. Fjögur svefnherbergi, tvær stofur og tvö
baðherbergi eru í húsinu. Húsið er í góðu við-
haldi, en baðherbergi á neðri og efri hæð hafa
verið endurnýjuð. Sérlega gott hús á einum vin-
sælasta í Hafnarfirði. Verð 39,8 milljónir.
RAÐHÚS
FAGRIHJALLI - KÓPAVOGUR Mjög gott
184,8 fm raðhús á þessum eftirsótta stað í suður-
hlíðum Kópavogs. Húið er á tveimur hæðum en
yfir því er risloft að hluta. Sérlega vönduð lóð
þar sem blandað er saman pöllum, beðum og
grasi. Frábært útsýni er af efri hæð hússins.
Þetta hús er sérstaklega skemmtilega staðsett
að því leyti að ekkert hús er á móti heldur opið
leiksvæði/garður og útsýnið því mun betra. Ró-
legt og barnvænt hverfi þar sem stutt er í alla
þjónustu. Verð 35,5 milljónir.
VIÐARÁS Mjög glæsilegt 208 fm endaraðhús
á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og
góðu útsýni. Húsið er staðsett á góðum stað í Ár-
bæjarhverfinu þar sem stutt er í alla þjónustu,
skóla og útivistarsvæði. Allar innréttingar og
gólfefni í húsinu eru mjög vönduð. Húsið er mjög
vel skipulagt með tveimur stórum og björtum
stofum, þremur góðum svefnherbergjum, tveimur
rúmgóðum baðherbergjum og eldhúsaðstöðu á
báðum hæðum. Verð 37,9 milljónir.
HÆÐARGARÐUR
FJÓLUHVAMMUR - HAFNARFIRÐI - EINBÝLI/TVÍBÝLI
4RA - 5 HERBERGJA
HÁALEITISBRAUT Björt og skemmtileg 4-5
herbergja 126,5 fm íbúð á 2. hæð ásamt 24,5 fm
bílskúr. Íbúðin nýtist sérlega vel með stofu og
borðstofu ásamt þremur góðum herbergjum. Nú
standa yfir utanhúsviðgerðir á húsinu og mun
seljandi bera allan kostnað vegna þeirra. Íbúðin
er til afhendingar strax. Verð 22,9 milljónir.
DALSEL Falleg, björt og mjög rúmgóð 4-5 her-
bergja 111 fm íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýlishúsi
í Seljahverfi. 4 svefnherbergi (þ.a. eitt sem stúk-
að er úr mjög stórri stofu). Íbúðin er vel staðsett í
rólegu og barnvænu hverfi þar sem stutt er í
skóla, leikskóla, íþróttir og alla þjónustu. Sameig-
inlegur garður með leiktækjum er fyrir framan
húsið. Verð 17,9 milljónir.
ÁLFASKEIÐ HFJ Björt og falleg 125 fm fimm
herbergja endaíbúð á á annarri hæð í góðu fjöl-
býli. Fallegur garður og góð staðsetning. Verð
18,9 millj.
HVERFISGATA Falleg og rúmgóð 94 fm 4ra
herbergja íbúð á efstu hæð. Íbúð er mikið upp-
gerð, m.a. nýjar hurðir, baðherbergi uppgert og
stækkað. Verð 18,7 milljónir.
LINDARGATA - ÞAKÍBÚÐ Í nýju stór-
glæsilegu húsi er til sölu mjög falleg 4ja her-
bergja penthousíbúð á tveimur hæðum. Húsið er
byggt í gömlum stíl sem hæfir umhvefi þess en
innri hönnun og skipulag uppfyllir allar nútíma-
kröfur. Staðsetningin er frábær, stutt í miðbæinn
og Laugavegurinn í aðeins 2 mínútna göngufæri,
en húsið hins vegar laust við skarkala miðbæjar-
ins um kvöld og nætur. Íbúð fylgir sér hellulagt
bílastæði á lóð. Verð 29,9 milljónir.
3JA HERBERGJA
BARÐASTAÐIR Björt, vel skipulögð og falleg
3ja herbergja 100 fm íbúð með sérinngangi á
efstu hæð í 3ja hæða fjölbýli á þessum vinsæla
stað í Grafarvogi. Húsið er nýmálað og lítur vel
út. Snyrtileg lóð með stórri grasflöt og leiktækj-
um fyrir börnin. Um 2ja mín. gangur í bæði leik-
skóla og nýjan grunnskóla. Stutt í fjöru og golfið.
Mjög fallegt útsýni til Esjunnar og yfir Flóann.
Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega.
Verð 19,8 milljónir.
AUSTURBERG Mjög góð 3ja herbergja 90 fm
endaíbúð á 3ju og efstu hæð í góðu litlu fjölbýli.
Mjög vel staðsett húseign þaðan sem stutt er í
alla þjónustu, s.s. verslanir, skóla, sundlaug o.fl.
Húseignin viðist við einfalda skoðun vera í mjög
góðu ástandi og er búið að klæða báða gafla
hússins og stigahús. Íbúðin hefur sérinngang af
svölum og við hlið hennar er sérgeymsla. Þvotta-
aðstað er einnig inn í íbúð. Verð 15,9 milljónir.
HVAMMABRAUT HFJ Sérlega falleg, björt
og vel skipulögð 3ja herb. 101 fm íbúð á 1. hæð í
góðu húsi í Firðinum. Fallegt útsýni yfir sjóinn og
höfnina. Íbúðinni fylgir góð geymsla og hjóla-
geymsla. Gott þvottahús með þvottavél og þurr-
kara er á hæðinni sem tilheyrir öllu húsinu.
Snyrtileg lóð með stórri grasflöt og leiktækjum
fyrir börnin. Rólegt og barnvænt hverfi. Stutt í
skóla, leikskóla, íþróttir og alla þjónustu. Verð
17,9 milljónir.
2JA HERBERGJA
FÁLKAGATA Mikið uppgerð tveggja her-
bergja íbúð rétt við Háskólann. Íbúðin hefur
bakinngang og er á fyrstu hæð, gengið upp
hálfa hæð. Góður og vistvænn bakgarður með
sameiginlegum sólpalli. Húsið er í góðu ástandi.
Verð 12,9 milljónir.
LANGHOLTSVEGUR Fallegt íbúðarhúsnæði
tilbúið til innflutnings. Allar innréttingar, hús-
gögn, þvottavél, ísskápur, eldavél fylgja. Grunni
bílskúrs hefur verið breytt í hús, húsið er ósam-
þykkt. Verð 7,5 milljónir.
FISKISLÓÐ Mjög gott endbili í vel staðsettu
húsi við Fiskislóð. Húsið er byggt úr stálgreind og
klætt með innbrendri klæðningu. Grunnflatarmál
er 180 fermetrar og 128,7 fm milliloft. Húsnæðið
er allt mjög snyrtilegt, nýlega málað í hólf og gólf
og með mjög góðri lýsingu. Lóð hússins er mal-
bikuð og öll aðkoma og útirými mjög gott. Hár
vélknúnar innkeyrsludyr og 2 gönguhurðir, m.a.
sér fyrir efri hæð sem jafnvel má nýta sem íbúð-
arrými. Fyrir utan atvinnustarfsemi hverskonar er
þetta frábært húsnæði fyrir t.d. listamann eða frí-
tímatækin. Verð 24,9 millj.
DUGGUVOGUR - ATVINNUHÚSNÆÐI
Um er að ræða tvær einingar í atvinnu- og iðnað-
arhúsnæði, sem byggt er úr stálgrind. Húsið var
upphaflega byggt árið 1960 en hefur verið endur-
byggt og/eða endurbætt að stórum hluta eftir
bruna. Húsnæðið er á jarðhæð og er grunnflötur
þess annars vegar 180 fm og hins vegar 165,1
fermeter (fyrir utan hlutdeild í stigahúsum). Verð
33,0 milljónir.
KELDULAND 19 - OPIÐ HÚS
Sérlega falleg, björt og vel skipulögð 3ja - 4ra
herbergja 86 fm íbúð á 2. hæð í vel viðhöldnu
fjölbýli. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð
m.a. hefur verið skipt um eldhúsinnréttingu,
hurðir og gólfefni. Fallegt útsýni yfir Foss-
vogsdalinn. Gott þvottahús og þurrkherbergi
er í kjallara. Snyrtileg lóð með stórri grasflöt.
Rólegt og barnvænt hverfi. Stutt í skóla, leik-
skóla, íþróttir og alla þjónustu. Í heild er hér
um að ræða mjög góða eign í vinsælu hverfi.
Verð 20,9 milljónir.
Eignin verður til sýnis þriðjudaginn 12. júlí, á milli kl. 19:00 - 20:00
GRÆNIHJALLI - FRÁBÆR EIGN
Stórglæsilegt og mjög mikið endurnýjað 255
fm raðhús á 2 hæðum, m. innb. 48 fm bílsk.
Allt tréverk nýlegt, flísar og parket á gólfum.
Nýtt bað og eldhús. Arinn. 4 svefnherb. Ný-
standsettur glæsilegur garður, steypt plön
framan við húsið og stórir sólpallar og skjól-
veggir á suðurlóð. Í heild frábært hús með
miklu útsýni. Verð 45,8 milljónir.
BOÐAGRANDI
Stórglæsileg 3ja herbergja íbúð á einum eftir-
sóttasta staðnum í Reykjavík með suður svöl-
um. Íbúðin var uppgerð fyrir 2/3 árum síðan
með nýrri eldhúsinnrétttingu og gólfefnum.
Verð: 18,9 milljónir.
SAFAMÝRI
Góð 2ja herbergja íbúð í Safamýrinni með sér-
inngangi á norðurenda hússins. Íbúðin er vel
staðsett í rólegu og barnvænu hverfi þar sem
stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir og alla þjón-
ustu. Verð 12,9 milljónir.
TUNGUBAKKI - RAÐHÚS
Fallegt 190 fm pallaraðhús í Bakkahverfinu.
Skipulag húss er þannig að á stofa með suð-
vestursvölum auk herbergis eru á efsta pallin-
um. Á næsta palli er hol og eldhús og síðan
koma þrjú herbergi og baðherbergi, og loks er
síðan sjónvarpsherbergi, þvottahús og her-
bergi. Auk þess er innbyggður bílskúr, sem er
20 fm Verð 34,5 millj.
RAUÐAGERÐI
Góð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sér
inngangi á þessum vinsæla stað. Húsið var
málað sumarið 2003 einnig er nýlegt rafmagn
og rafmagnstafla ásamt ofnalögnum. Snyrti-
leg og björt íbúð á góðum stað miðsvæðis í
borginni. Verð 17,3 milljónir.
HEIÐARHJALLI
Stórglæsileg og einstaklega vönduð sérhæð á
1.hæð í fjórbýlishúsi ásamt 41 fm innbyggðum
bílskúr og er innangengt úr honum gegnum
sameign í íbúðina. Húsið stendur á mjög fal-
legum útsýnisstað og virðist við einfalda
skoðun vera mjög vandað í alla staði. Allar
innréttingar, gólfefni og frágangur baðher-
bergja er í hæsta gæðaflokki og einsaklega
vandað og smekklega valið. Út af stofunni eru
síðan u.þ.b. 30 fm flísalagðar svalir sem snúa í
suðvestur. Íbúðin er á 2 pöllum og 3 tröppur
þar á milli. Garður er frágengin og er ekkert
gras eða annað sem krefst mikillar umhirðu.
Bílskúrinn rúmar 2 bíla hvern inn af öðrum. Lofthæð er mikil í bílskúrnum og sjálfvirkur opnari á
hurð. Verð 34,9 milljónir.
KLEIFARVEGUR - EINSTAKT TÆKIFÆRI
SÆLUREITUR VIÐ LÆKINN !