Morgunblaðið - 11.07.2005, Qupperneq 48
48 F MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hamraborg 20a • 200 Kópavogur • www.husalind.is
Sími 554 4000 • Fax 554 4018 • Tölvup.: husalind@husalind.is
Óskum eftir öllum gerðum eigna á skrá
Sveinbjörg B. Sveinbjörnsd., löggiltur fasteignasali og hdl., Guðbjörg G. Sveinbjörnsd., sölufulltrúi.
OPIÐ HÚS Í KVÖLD KL.
21.00 - 22.00 - LAUS
STRAX
Einstaklega falleg og björt 91,1 fm íbúð
á 2. hæð ásamt stæði í bílskýli í nýju
fjölbýlishúsi með lyftu. Sérinngangur af
svölum. Íbúðin er nýmáluð. Sjónvarps-
tengi og símatengi er í öllum herbergj-
um. Stórar flísalagðar suðursvalir með
miklu útsýni. Baðherbergi flísalagt og baðkar með sturtuaðstöðu. Þvotta-
hús inn af íbúð. Eldhús með eldavél, ofn og viftu, tengi fyrir uppþvottavél.
Hlynsparket á gólfum. Frábær staðsetning og mikið útsýni. Falleg eign í
alla staði. Stutt í verslanir og þjónustu. Ásett verð kr. 21 millj.
Lómasalir 14-lyftuhús- stæði í bílageymslu
Falleg og rúmgóð 121,1 fm íbúð ásamt 46 fm sólpalli á þessum eftirsótta
stað í Lindunum. Eldhúsinnréttingin er sérsmíðuð, gaseldavél, vifta og viftu-
ofn. Gegnheilt olíuborði maghonyparket. Baðherbergið er flísalagt í hólf og
gólf, baðkar og sturta, gluggi á baðherbergi. Inn í öllum svefnherbergjunum
eru skápar sem ná alveg upp í loft. Þvottahús og geymsla inn af íbúðinni.
Þvottahúsið er mjög rúmgott og mikið vinnurými. Fallegt útsýni er úr íbúð-
inni og gott rými á sólarpallinum. Ásett verð kr. 28,6 millj.
Laugalind- 4ra herbergja- sólpallur NÝTT
Mjög falleg og björt 104,3 fm íbúð þar
af 6,6 fm geymsla í sameign á barn-
vænum stað í Grafarvoginum. Sér inn-
gangur er inn í íbúðina. Falleg eldhús
með vandaðri innréttingu. Baðher-
bergi er með innréttingu og opnanleg-
um glugga. Gott skápapláss er í íbúð-
inni. Svefnherbergi sérstaklega rúm-
góð. Þvottahús inn af eldhúsi. Parket
er á öllu gólfum nema eldhúsi, baðher-
bergi og þvottahúsi. Mikið útsýni er úr íbúðinni og stutt í alla þjónustu, skóla
og íþróttir. Ásett verð kr. 20,2 millj.
Laufrimi 26 - Sérinngangur - 3ja herbergja
Einstaklega falleg og björt 102,8 fm
íbúð á 4. hæð (efstu) ásamt stæði í bíl-
skýli í nýju fjölbýlishúsi með lyftu. Allar
innréttingar úr ljósum við, yfirfelldar
hurðir úr hlyn frá Agli Árnasyni, parket
úr hlyn. Sjónvarpstengi og símatengi
er í öllum herbergjum. Stórar suður-
svalir með panorama útsýni. Baðher-
bergi flísalagt, sturta og baðkar.
Þvottahús inn af íbúð. Eldhús með
Whirlpool tækjum, eldavél, ofn og vifta ásamt uppþvottavél sem er inn-
byggð í innréttinguna. Frábær staðsetning. Falleg eign í alla staði. Ásett
verð kr. 25,2 millj.
Hlynsalir-lyftuhús- stæði í bílageymslu
Góð 3j-4ra herbergja íbúð á 3ju hæð
(efstu) á góðum stað í Seljahverfinu.
Rúmgóðar suðursvalir, rúmgóð svefn-
herbergi. Búið er að stúka af þriðja
herbergið sem er nýtt sem tölu-/vinnu-
aðstaða. Íbúðin getur verið laus fljót-
lega. Ásett verð kr. 16,5 millj.
Strandasel - 3ja- 4ra herbergja
Falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á
3ju hæð með sérinngangi. Fallegt út-
sýni. Svefnherbergin eru rúmgóð og
með góðu skápaplássi. Eldhús er með
fallegri hvítri innréttingu og tengi fyrir
uppþvottavél. Stofan er björt og rúm-
góð og er opin við eldhús og borð-
stofu. Úr stofu er útgengt út á stórar
suður svalir. Þvottahús er inn af íbúð-
inni með góðu hilluplássi. Geymsla í
sameign. Stutt er í alla þjónustu, verslanir og skóla. Ásett verð kr. 16,9 millj.
Gullengi -Sérinngangur
Stór og glæsileg 92,33 fm sumarhús á
leigulóð á góðum stað í Biskupstung-
um. Húsin skilast full frágengin að ut-
an, einangruð og innþétt að innan með
35 fm verönd. Heitt og kalt vatn og raf-
magn. Tengdur heitur pottur fylgir
hverju húsi. Viðhaldsfríir gluggar.
Stöðluð álklæðning á þaki, val á milli
svartrar/rauðrar. Kúft vatnsklæðning
að utan. Arkitekt Kristinn Ragnarsson.
Ásett verð kr. 12,5 millj.
Sumarhús - Brekkuskógur í Biskupstungum
Vel staðsett 226 fm einbýlishús á grónum stað í rólegri götu í
suðurhlíðum Kópavogs. Í húsinu er 3ja herbergja aukaíbúð
með möguleika á góðum leigutekjum. Tvöfaldur bílskúr. Fal-
legur og gróinn garður. Áhugasamir hafi samband við Guð-
björgu í síma 554 4000/899 5949.
Einbýlishús í suðurhlíðum Kópavogs
- 2 íbúðir - tvöfaldur bílskúr
OPIÐ HÚS Í KVÖLD KL. 20.00-22.00
Rúmgóð og mikið endurnýjuð 85,3 fm
sérhæð með sérinngangi ásamt 35,2
fm frístandandi bílskúr á þessum eftir-
sótta stað. Nýuppgert baðherbergi
með flísum í hólf og gólf. Eldhúsið er
nýlegt, falleg viðarinnrétting og góð
AEG eldhústæki. Húsið var allt málað
að utan fyrir nokkrum árum, sumar
2003 var farið yfir allar drenlagnir og
einnig var farið yfir þakið. Snjó-
bræðslulögn í stéttum utan við húsið
og á plani. Upplýstur garður og bíla-
stæði. Falleg eign sem er í góðu
ástandi. Ásett verð kr. 23,4 millj.
Skipasund-sérhæð- bílskúr
NÝ
TT
NÝ
TT
SELT
SELT
KÍNVERSKA ríkisstjórnin hefur
lagt sérstaka skatta og höft á fast-
eignaviðskipti og virðist þetta vera
áhrifamesta tilraun stjórnvalda til
þessa til að koma í veg fyrir að svo-
kallaðar „fasteignabólur“ nái að
festa rætur í stærstu borgum í Kína.
Að því er fram kemur í viðskipta-
blaði International Herald Tribune
nýlega var birt tilskipun þar að lút-
andi á sama tíma og kínversk stjórn-
völd lýstu yfir vaxandi áhyggjum af
því að hækkandi fasteignaverð kynni
að auka þenslu í ört vaxandi hagkerfi
Kína, sem hugsanlega gæti síðan
leitt til ólgu í þjóðfélaginu.
Hækkandi fasteignaverð helst í
hendur við umfangsmikinn uppgang
í byggingariðnaði á landsvísu, sem
aftur hefur stuðlað að vaxandi al-
þjóðaviðskiptum í landinu, sem með
róttækum hætti hafa umbreytt útliti
og andrúmslofti í kínverskum stór-
borgum og reyndar einnig í meðal-
stórum borgum.
Þrátt fyrir ört vaxandi þéttbýlis-
myndun og nútímavæðingu í Kína
hafa stjórnvöld þar í landi áhyggjur
af því að verð á húsnæði sé hægt og
sígandi að verða of hátt fyrir hinn al-
menna borgara, einkum á blómleg-
um markaðssvæðum svo sem í
Shanghæ, þar sem verð á húsnæði
hefur rokið upp um nær 70% á
tveimur árum.
Stjórnvöld í Peking hafa ennfrem-
ur áhyggjur af því að efnahagsvöxt-
urinn í landinu kunni að freista fjöl-
margra spákaupmanna og braskara
og verði þeim hvatning til að láta til
sín taka á húsnæðismarkaðinum, en
hér er um að ræða aðila, sem ýmist
braska með eignir til að ná skjót-
fengnum gróða eða leggja mikið
undir í trausti þess að á næstu árum
muni Kína breyta gengi gjaldmiðils
síns, sem myndi skila þeim umtals-
verðum hagnaði.
Í þeim tilgangi að hamla gegn
slíku braski á húsnæðismarkaði
ákvað kínverska ríkisstjórnin að
leggja sérstakan skatt á allar eignir
sem seldar verða innan tveggja ára
frá kaupum eða yfirtöku á þeim.
Kínversk stjórnvöld hafa ennfremur
lýst því yfir að settur verði sérstakur
skattur á lóðir, sem ekki eru nýttar
innan árs frá áunnum yfirráðarétti,
og að réttur til nýtingar landsvæðis
verði afturkallaður ef ekkert er
byggt á svæðinu í meira en tvö ár frá
því slíkur yfirráðaréttur var veittur.
Reuters
Nýbyggingar í Shanghæ í baksýn.
Hvergi er meira byggt í Kína en þar.
Vilja koma í
veg fyrir fast-
eignabólu
Kína
Reykjavík - Hjá fasteignasölunni Húsakaupum
er nú til sölu einbýlishúsið Kleifarvegur 15.
„Þetta er mjög sérstakt og fallegt einbýlishús á
tveimur hæðum, 212,5 fermetrar að stærð og
með sérstæðum 26 fermetra bílskúr,“ segir
Halldór Andrésson hjá Húsakaupum.
Húsið stendur á eftirsóttum stað. Lóðin er
740 fermetrar og húsið stendur mjög frítt í um-
hverfi sínu og nýtur þar með gríðarlega fallegs
útsýnis yfir Laugardalinn og út á flóann.
Húsið er byggt í svokölluðum „funkis-stíl“
með mjög hreinum línum og formi. Það býður
upp á mjög fjölbreytta og skemmtilega stækk-
unar- og breytingarmöguleika og liggja fyrir
hugmyndir að nokkrum slíkum. Húsið er í góðu
ástandi, þ.e. gler og gluggar, lagnir, þak og
steypa en að innan þarfnast húsið hins vegar
töluverðrar endurnýjunar.
Aðalinngangur er á neðri hæð en þar er einn-
ig bakinngangur við þvottahús. Gengið er inn í
litla forstofu og þaðan inn í miðjuhol en úr því er
gengið inn í allar vistarverur neðri hæðar auk
þess sem þar er stigi upp á efri hæð.
Neðri hæðin er 130 fermetrar. Stofur eru
mjög rúmgóðar og bjartar og snúa til suðurs en
hafa glugga til þriggja átta auk þess sem hægt
er að opna stóra vængjahurð út á mjög skjól-
sæla suðurverönd en þaðan er gengið áfram út í
mjög góðan suðurgarð.
Eldhúsið er rúmgott með ágætri L-laga inn-
réttingu og snýr það til austurs. Við hlið eld-
hússins er rúmgott þvottahús með bakinngangi
og inn af því er eitt herbergi. Á hæðinni er eitt
gott svefnherbergi og lítil gestasnyrting.
Steyptur stigi er á milli hæða og er komið upp
í miðjurými milli fjögurra mjög góðra svefnher-
bergja og baðherbergis sem er frekar lítið og
þarf að breyta skipulagi þar ef vel á að vera. Úr
þessu rými er einnig gengið út á þak stofurýmis
og þar eru u.þ.b. 670 fermetra þaksvalir sem
gefa mikla möguleika á t.d. garðskála, þakgarði
og heitum potti. Útsýni er frábært frá þessum
stað.
Gólfefni eru parket á stofum en flísar á
þvottahúsi og dúkur á öðrum gólfum.
„Þetta er afar áhugaverð eign fyrir vandláta
kaupendur,“ sagði Halldór Andrésson að lok-
um. „Staðsetningin gerist ekki betri og stíll
hússins er glæsilegur. Möguleikar hússins eru
óþrjótandi.“ Óskað er eftir tilboðum.
Kleifarvegur 15
Þetta er steinhús á tveimur hæðum, 212,5
ferm. að stærð og með 26 ferm. sérstæðum bíl-
skúr. Óskað er eftir tilboðum, en húsið er til sölu
hjá Húsakaupum.