Morgunblaðið - 11.07.2005, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2005 F 55
Anney
Bæringsdóttir
lögg. fasteignasali
Einar
Guðmundsson
lögg. fasteignasali
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Skipholti 29a
105 Reykjavík
sími 530 6500
fax 530 6505
heimili@heimili. is
Bogi
Pétursson
lögg. fasteignasali
Hafdís
Björnsdóttir
Opið mánud. til föstud. 9-17
Félag fasteignasala
www.heimili.is sími 530 6500
Heimili fasteignasala - þinn hagur er okkar metnaður www. heimili. is
BREKKUGERÐI - Tvær íbúðir.
Fallegt 330 fm hús teiknað af Kjartani
Sveinssyni og byggt 1964. Húsið er á
tveimur hæðum og innbyggður bílskúr.
Minni íbúð er á neðri hæð, um 55 fm. Húsið
er rúmgott og bjart, skáli á neðri hæð og
blómaskáli á þaki ásamt 160 fm afgirtum
þaksvölum. Óskað er eftir tilboðum í eign-
ina
HVANNARIMI. Vandað fullbúið 180
fm miðjuraðhús á tveimur hæðum með inn-
byggðum 24 fm bílskúr. Hellulagt bílaplan,
afgirt timburverönd og bakgarður í góðri
rækt. Möguleiki á fjórða svefnherberginu
og einu vinnuherbergi. V. 39,9 m.
MOSARIMI. Vandað 190 fm endarað-
hús með innbyggðum 27 fm bílskúr og 30
fm sólstofu og 130 fm afgirtri verönd með
heitum potti. Hellulagt stórt bílaplan með
hitalögn og afgirtur garður. Vandaðar sér-
smíðaðar innréttingar í öllu húsinu og góð
gólfefni. V. 43,0 m.
VÆTTABORGIR. Falleg og vel
skipulögð 165 fm parhús á tveimur hæðum
á góðum útsýnisstað. Í húsunum er inn-
byggður 26 fm bílskúr. Húsin afhendast full-
búin að innan með hellulögðu bílastæði og
tyrfðri lóð. Mikið útsýni til norðurs yfir
Geldinganes og Esjuna. V. 50,0 m.
KÓRSALIR - PENTHOUSE.
Stórglæsileg um 265 fm íbúð á efstu hæð í
sérlega vönduðu lyftuhúsi. Stæði í bíla-
geymslu fylgir. Aðeins tvær íbúðir eru á
efstu hæðinni. Allar innréttingar og skápar
eru sérsmíðaðar. Lofthæð í stofunni er um 7
metrar! Þrjú stór herbergi og þrjár stofur.
Glæsilegt opið sjónvarpsherbergi, um 70
fm, er á efri hæð. Tvö glæsileg baðher-
bergi, hornbaðkar og nuddklefi með gufu.
Fernar svalir eru á íbúðinni og útsýnið verð-
ur ekki betra á höfuðborgarsvæðinu. Þessi
eign er algjör gullmoli.
hæðir
rað- og parhús
einbýli
GOÐHEIMAR - efri hæð
ásamt bílskúr. Glæsileg og vel skipu-
lögð um 130 fm efri hæð ásamt 30 fm bíl-
skúr í fallegu húsi. Íbúðin skiptist í þrjú her-
bergi og tvær stofur ásamt rúmgóðu holi.
Parket á gólfum. Svalir í suður. Mjög góð
staðsetning í grónu hverfi.
ESKIVELLIR - sérinngangur
lyfta - stæði í bílskýli. 4ra her-
bergja 105 fm endaíbúð á 4. hæð í lyftuhúsi
með sérinngangi af svölum og stæði í bíl-
skýli. Íbúðin afhendist fullbúin, vandlega
innréttuð með innréttingum frá Húsasmiðj-
unni og húsið fullbúið að utan með frá-
genginni lóð og bílastæðum. Afhending í
des. 2005. V. 22,5 m. Nánari upplýsingar
á skrifstofu
LJÓSHEIMAR - Lyftuhús. Góð
og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á
2. hæð í lyftuhúsi með sérinngangi af svöl-
um. Sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús
og stór sameiginlegur garður. Húsið er ný-
lega endurbætt að utan og er í góðu
ástandi. Stutt í skóla, verslun og þjónustu.
Húsvörður hefur umsjón með umhirðu og
minna viðhaldi. Laus fljótlega.
ÞÓRÐARSVEIGUR - lyfta - bíl-
skýli Ný og fullbúin 111 fm íbúð á 2. hæð
í lyftuhúsi með stæði í bílskýli. Íbúðin af-
hendist fullbúin með innréttingum frá GKS,
flísalögðu baðherbergi og þvottahúsi og
eikarparketi frá Parki. V. 25,0 m.
SKAFTAHLÍÐ - rishæð. Falleg ca
82 fm (gólfflötur stærri) 3ja herbergja íbúð í
risi í reisulegu húsi á þessum vinsæla stað í
Hlíðunum. Björt og góð stofa og tvö góð
svefnherbergi. Íbúðin getur verið laus fljót-
lega. Verð 17,9 m.
LAUGAVEGUR - falleg 3ja
herb. risíbúð. Glæsileg risíbúð í sér-
lega fallegu húsi í hjarta miðbæjarins. Íbúð-
in er mikið opin og lofthæð góð. Margir
kvistar setja skemmtilegan blæ á íbúðina.
Suðursvalir út af eldhúsi. Góð íbúð í glæsi-
legu húsi.
3ja herbergja
LEIFSGATA. Góð og mikið endurbætt
71 fm íbúð í kjallara í miðbænum. Sérinn-
gangur baka til, stór sameiginlegur garður.
Nýlegir gluggar og gler ásamt raflögnum.
Verð 13,5 millj.
NESHAGI - Falleg 3ja herb á
1. hæð ásamt aukherbergi í
risi. Sérlega björt og góð 3ja herb. íbúð á
1. hæð og að auki stórt og bjart aukaher-
bergi í risi með aðgengi að eldhúsi og baði.
Húsið er nýlga steinað upp á nýtt og þak
yfirfarið og málað. Verð 20,8 millj.
ESKIHLÍÐ - Björt og rúmgóð
3ja herbergja íbúð. Aukaher-
bergi fylgir. Vel skipulögð og sérlega
rúmgóð um 103 fm íbúð með miklu útsýni.
Tvö góð herbergi og stofa. Parket á gólfum
og svalir í suðvestur. Í risi er aukaherbergi
með aðgangi að snyrtingu. Hús og þak er
nýlega viðgert. Góð íbúð á vinsælum stað.
Verð 18,5 millj.
ENGJASEL - Stæði í bíla-
geymslu Björt og falleg ca 90 fm íbúð á
2. hæð auk stæðis í bílageymslu. Tvö stór
svefnherbergi og björt og góð stofa. Einnig
hefur verið stúkað af herbergisrými í holi
sem í dag er nýtt sem barnaherbergi. Stæði
í bílageymslu fylgir. Íbúðin er laus fljót-
lega. Verð 16,9 millj.
ÞÓRÐARSVEIGUR - Með bíl-
skýli. Glæsileg um 105 fm endaíbúð á
1. hæð með suðursvölum. Baðherbergi
flísalagt í hólf og gólf og þvottahús innan
íbúðar. Glæsilegt eldhús og vandað parket
á gólfum. Afhending möguleg í júli.
Verð 21,5 millj.
LINDASMÁRI - Sérgarður.
Vönduð íbúð á jarðhæð með afgirtum 35
fm sérgarði í suðri. Sérþvottahús og
geymsla innan íbúðar. Húsið er nýmálað að
utan og sameign í góðu ástandi. V. 14,9 m.
LEIRUBAKKI. Gullfalleg um 73 fm
íbúð á 2. hæð í viðhaldsfríu húsi. Íbúðin er
sérlega björt og og rúmgóð. Stofa með út-
gangi út á svalir í suður. Mjög stórt hjóna-
herbergi. Eldhús með uppgerðri fallegri
innréttingu. Góð staðsetning.
2ja herbergja
Nýkomin í sölu sérlega góð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð. Þrjú
rúmgóð herbergi og stór stofa/borðstofa. Gegnheilt parket á öllum
gólfum. Glæsilegt eldhús og baðherbergi. Úr stofu er gengið út á
stóran sérsólpall í suður. Glæsileg eign. Verð 25,9 millj.
heimili@heimili.is
Galtalind - stórglæsileg 4ra herb. á jarðhæð
með stórum palli.
Nýkomim í sölu góð íbúð í nýviðgerðu fjölbýli. Björt parketlögð stofa
og flísalagt baðherbergi. Þrjú rúmgóð herbergi. Vestursvalir með
fallegu útsýni. Hús nýlega yfirfarið og málað. Snyrtileg sameign. Stutt
í alla þjónustu og leikskóla. Verð 17,5 millj.
Bólstaðarhlíð - góð 3ja-4ra herbergja
Góð 60 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli. Björt og falleg parketlögð
stofa með vestursvölum. Gott eldhús og rúmgott herbergi. Róleg
staðsetning, stutt leik- og barnaskóla, verslun og þjónustu.
Jöklafold - falleg 2ja herb. á 2. hæð
Skilmannahreppur – Hjá Fasteigna-
miðlun Vesturlands er nú til sölu hús-
eignin Ós II í Skilmannahreppi. Þetta
er einbýlishús ásamt bílskúr og stendur
í um 5 mín. akstursfjarlægð frá Akra-
nesi. Húsið er steinhús, einingahús frá
Loftorku og 176,8 ferm. að stærð auk
56,9 ferm. bílskúrs.
Komið er inn í forstofu með flísum og
hvítum fataskápum. Þá er stórt for-
stofuherbergi með teppi. Þvottaher-
bergi er með sér inngangi, máluðu gólfi
og hitaveitugrind með varmaskipti.
Gestasnyrting er með sturtu og inn-
réttingu. Einnig er stofa, borðstofa og
sjónvarpshol með teppi, en stofu og
sjónvarpholi er skipt með skilrúmi og
hurð er út á hellulagða verönd úr borð-
stofu.
Eldhúsið er stórt með hvítri innrétt-
ingu, en flísar á milli skápa. Einnig er
AEG veggofn, helluborð og vifta en
korkdúkur á gólfi. Búr er með skápum
og hillum en korkdúkur á gólfi. Hurðir
eru ljósar og viðarklæddar.
Hægt er að loka svefnherbergisálmu
með hurð, en í henni eru þrjú herbergi,
skápur í hjónaherbergi, teppi á tveimur
herbergjum og dúkur á einu herbergi. Í
baðherbergi er dúkur á veggjum og
gólfi, tvær litlar innréttingar og bað-
kar.
Lóðin er stór, 6.665 ferm. og með lít-
illi útigeymslu. Steypt plan og flísar eru
fyrir framan útidyrahurð á húsinu.
„Frá húsinu er fallegt úsýni yfir
Blautós og Snæfellsjökul,“ segir Nikol-
ína Th. Snorradóttir hjá Fasteigna-
miðlun Vesturlands. Ásett verð er 30
millj. kr.
Ós II
Þetta er steinhús, 176,8 ferm. að stærð auk 56,9 ferm. bílskúrs. Lóðin er 6.665 ferm. Ásett verð er 30 millj. kr., en
húsið er til sölu hjá Fasteignamiðlun Vesturlands.