Morgunblaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 9 FRÉTTIR M.A. í mannauðs- stjórnun í 5.–7. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna til borgarstjórnar- kosninga 4. og 5. nóvember Sif Sigfúsdóttir „Við eigum að gera bóklegt nám, verklegt nám og hvers kyns listnám aðgengilegra og meira spennandi fyrir unga fólkið“ Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Renndar jakkapeysur Jóhann Páll Símonarson Baráttusjómaður í baráttusæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík Netfang: stakkhamrarv@simnet.is - sími 863 2094 TEPPI Á STIGAHÚS - gott verð - komum og gerum verðtilboð STEINN KÁRASON í 5.-6. sæti www.steinn.is www.diza.is Opið 11-18 virka daga, 12-16 laugardaga Ingólfsstræti 6 • Sími 561 4000 Velkomin í eins árs afmælið okkar! 15% afmælisafsláttur 2. - 5. nóvember Bútasaumsefni, prjónagarn, náttfatnaður ofl. ofl. Hlíðasmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460 • fax 517 6565 Bolir og peysur HÉRAÐSDÓMUR Reykja- víkur hefur dæmt 28 ára karl- mann í 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn þá 19 ára stúlku í júlí 2004. Atvikið varð í samkvæmi í heimahúsi í Reykjavík og var ákærði fundinn sekur um að hafa þröngvað konunni með ofbeldi til samræðis eða annarra kyn- ferðismaka með því að setja fingur inn í leggöng hennar. Framburður stúlkunnar var að mati dómsins trúverðugur en fjölmörg vitni voru í íbúð- inni sem sögðu hana hafa ver- ið í algeru losti þegar hún kom þangað inn eftir árásina úti á stigapalli. Framburður ákærða var með ósenni- leikablæ að mati dómsins. Í ljósi þess andlega áfalls sem stúlkan hlaut var hæfileg refs- ing ákærða talin 18 mánaða fangelsi. Auk þess var hann dæmdur til að greiða henni 700 þúsund krónur í skaða- bætur auk 360 þúsund króna sakarkostnaðar. Málið dæmdu héraðsdómar- arnir Símon Sigvaldason sem dómsformaður, Allan V. Magnússon og Sigrún Guð- mundsdóttir. Verjandi var Hilmar Ingimundarson hrl. og sækjandi Ragnheiður Harðar- dóttir vararíkissaksóknari. 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot SAMTÖK sveitarfélaga á Norður- landi vestra og Svæðisráð Svæð- isvinnumiðlunar Norðurlands vestra standa fyrir málþingi um atvinnumál á svæðinu nk. föstu- dag, 4. nóvember. Er yfirskrift málþingsins Norðurland vestra 2020 og verður reynt að draga fram í dagsljósið hvernig atvinnu- líf svæðisins hefur þróast á und- anförnum árum, staðan í dag skoðuð og reynt að skyggnast inn í framtíðina. Valgerður Sverr- isdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, hefur framsögu á mál- þinginu en þennan dag mun ráðherra einnig tilnefna starfshóp til undirbúnings að vaxtarsamn- ingi fyrir Norðurland vestra. Segir Ómar Hauksson, atvinnu- ráðgjafi á Siglufirði, menn hafa áhyggjur af þróun og stöðu at- vinnumála á þessu svæði og þess vegna hafi hugmyndin að mál- þinginu kviknað. Að málþinginu loknu verða birt- ar niðurstöður könnunar sem gerð hefur verið meðal atvinnu- rekenda, stjórnmálamanna og verkalýðsforystu á svæðinu um hver framtíðarsýn þeirra sé á at- vinnumálum svæðisins og þróun næstu árin. Þá munu verða settir saman umræðuhópar að fyrir- lestrum loknum sem ætlað er að ræða nánar það sem fram kemur á málþinginu og verða niður- stöður þeirra einnig birtar í lok málþingsins. Málþingið verður haldið í Verinu, húsnæði Háskólans á Hól- um á Sauðárkróki og stendur frá kl. 10:30 til 17. Skráning er á ssnv@ssnv.is eða í síma 455 6040. Málþing um atvinnumál á Norð- urlandi vestra Morgunblaðið/Einar Falur UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur að sjávarútvegsráðuneytið hafi ekki byggt úrskurði í málum tveggja smá- bátasjómanna á réttum lagagrund- velli og merking hugtaksins endur- nýjun í reglugerð, sem ráðuneytið byggði á, eigi sér ekki lagastoð. Sjómennirnir fóru fram á aukna aflahlutdeild vegna breytinga og lag- færinga á sóknardagabátum þeirra er sóknardagakerfið var lagt niður og bátar sem verið höfðu í því kerfi fluttir yfir í krókaaflamarkskerfið. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði var heimilt að úthluta allt að 20 lestum í þorski aukalega á hvern bát vegna endurnýjunar sem ekki hefði skilað sér í aukinni aflareynslu. Ráðuneytið túlkaði endurnýju í þessu samhengi þannig að einungis gæti verið um að ræða flutning aflaheimilda yfir á nýj- an bát. Umboðsmaður segir að tilgangur bráðabirgðaákvæðisins væri að taka sérstakt tillit til stöðu og hagsmuna eigenda þeirra sóknardagabáta sem nýlega hefðu lagt í kostnað við að endurnýja báta sína til að bæta af- kasta- og sóknargetu þeirra en hefðu ekki náð að auka aflareynslu í sam- ræmi við það. Með orðalag og þenn- an tilgang ákvæðisins í huga væri ekki „haldbært að túlka hugtakið „endurnýjun“ með þeim þrönga hætti sem sjávarútvegsráðuneytið hefði gert og staðfest væri í 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 485/2004 og úti- loka þar með þau tilvik þegar af- kasta- og sóknargeta báta hefði verið aukin með breytingum og lagfæring- um á þeim.“ Þá bendir umboðsmaður á að þessi niðurstaða hans fái einnig stuðning af jafnræðissjónarmiðum og því sem mætti ráða af umræðum á Alþingi. Verði endurskoðað Beinir umboðsmaður þeim tilmæl- um til sjávarútvegsráðuneytisins að það taki mál sjómannanna til endur- skoðunar komi fram ósk um það frá þeim. Þá beinir umboðsmaður jafn- framt þeim tilmælum til sjávarút- vegsráðuneytisins að það endur- skoðaði ákvæði umræddrar reglu- gerðar ljósi þeirra sjónarmiða sem rakin eru í áliti hans. Úrskurður um smábátasjómenn átti sér ekki lagastoð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.