Morgunblaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Himintunglin hafa jákvæð áhrif á alls
kyns viðskipti, sem hrúturinn á, hvort
sem þau eru í eigin þágu eða annarra.
Til þess að selja, þarf maður að svara
þörfum viðskiptavinarins. Fólk vill ekki
eldspýtur, heldur logann.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Væri ekki gaman að eyða deginum í
póker á netinu? En, spennandi (og dýr)
afþreying af því tagi bliknar í sam-
anburði við skrefið sem þú átt að taka í
átt að framtíðarmarkmiði þínu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þótt þú tapir áttum, er nóg af leiðtog-
um í kringum þig. Dæmi: Einhver í
vinahópnum á skyndilega auknum vin-
sældum að fagna á einhvern dularfullan
hátt. Kannski ættir þú að spyrja við-
komandi, hvernig þú getir leikið hið
sama eftir.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Bros krabbans er innilegt. Deildu því
rausnarlega með náunganum í dag. Það
er sama hversu andstreymið er mikið,
þú finnur leið til þess að komast í gegn-
um hindranir með þokka.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið þarf að eiga samskipti við fast-
heldinn einstakling, ekki gleyma að
vera kurteis og þakka fyrir þig. Skap-
andi lausnir eru það sem þarf í
vinnunni. Umkringdu keppinautana.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ástalífið einkennist ekki beinlínis af
samlyndi þessa dagana, en meyjan er
að reyna að gera sitt besta. Hugsaðu
eitthvað jákvætt um morgundaginn. Þú
færð óvænta innsýn í hugarheim ein-
hvers sem þú taldir þig þekkja.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Pirrandi einstaklingar virðast alls stað-
ar í kringum þig. Líttu á það sem tæki-
færi til þess að sýna samúð. Þráin eftir
að ná sambandi við aðra er sterk, en
hugsast getur að samskiptahæfileik-
arnir láti á sér standa.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er ósvífnin uppmáluð
þessa dagana. Hugsanlega gengur
hann svo langt að heimta hluti sem
hann vantar ekki. Það má vel vera að þú
fáir vilja þínum framgengt með því að
neita að semja.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Furður heimsins fanga huga þinn. Það
sem þig þyrstir að vita er ekki innan
seilingar, en að ráða gátuna smátt og
smátt hefur ofan af fyrir þér. Leitaðu
eftir félagsskap þeirra sem eru álíka
forvitnir og þú.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ert þú fær um að fyrirgefa einhverjum
án þess að þú eða viðkomandi setjir of-
an fyrir vikið. Það er ekki auðvelt, en ef
einhver getur það, ert það þú. Yfirmáta
óeigingirni er vel séð.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn trúir því besta upp á aðra,
en á að hugsa sig vel um í dag. Því
meira sjarmerandi sem ótilgreind
manneskja er, því líklegra er að hún
hafi einhverju að leyna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn eyðir meira púðri í sjálfan
sig en vinnuna eða ótilgreint verkefni.
Sjálfsskoðun ber ávöxt með ófyrir-
séðum hætti. Jafnvægi gerir þér líka
kleift að tala nánast við hvern sem er og
þannig verða tækifærin til.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Spennuafstaða milli Sat-
úrnusar og sólar leiðir
hugann að réttri tímasetn-
ingu. Ef hlutirnir ganga ekki sem skyldi
má spyrja hvort við séum á réttri leið, eða
hvort það sé merki um að við þurfum að
leggja harðar að okkur. Sérhverjar að-
stæður hafa sín einkenni, sem hafa þarf í
huga. Ein stærð passar ekki öllum.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 svil úr fiski, 4
fást við, 7 viðureign, 8
hamagangur, 9 virði, 11
sigaði, 13 band, 14 tappi,
15 þarmur, 17 verkfæri,
20 tíndi, 22 lagði á flótta,
23 hindrun, 24 týna, 25
barefla.
Lóðrétt | 1 rotnunarskán,
2 ósvipað, 3 varningur, 4
stúlka, 5 borða, 6 flýt-
irinn, 10 ráfa, 12 greinir,
13 op, 15 eðalborin, 16
slíta, 18 vottar fyrir, 19
missa marks, 20 mjúka,
21 rændi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 silakepps, 8 falið, 9 lútan, 10 gái, 11 runna, 13
neita, 15 stegg, 18 skróp, 21 ryk, 22 launa, 23 refir, 24
lundarfar.
Lóðrétt: 2 iglan, 3 auðga, 4 eplin, 5 putti, 6 æfir, 7 unna,
12 nóg, 14 eik, 15 sæll, 16 efuðu, 17 grand, 18 skrár, 19
rifja, 20 pára.
Tónlist
Gaukur á Stöng | Pan, Sign og The Tele-
pathetics spila rokk. Húsið opnað kl. 21 og
kostar 500 kr. inn.
Norræna húsið | Á háskólatónleikum í dag
flytja Ármann Helgason og Miklós Dalmay
tónlist fyrir klarínettu og píanó eftir Darius
Milhaud, Camille Saint-Saëns og André
Messager. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30.
Aðgangseyrir er 1.000, kr. 500 fyrir aldr-
aða og öryrkja en ókeypis fyrir nemendur
Háskóla Íslands.
Bækur
Áttun | Og Atlantis reis úr sæ er bók eftir
Kristin Sigtryggsson sem vekur meiri
spurningar en hún svarar. Kynning í bóka-
búðinni Iðu 5. og 6. nóvember, kl. 15–17.
Myndlist
Artótek Grófarhúsi | Bryndís Brynj-
arsdóttir til 6. nóv.
BANANANANAS | Sýning Þorsteins Otta
og hins danska ITSO. „ISOLATED“.
Café Karólína | Margrét M. Norðdahl „The
tuktuk (a journey)“ til 4. nóv.
Gallerí 100° | Einar Marinó Magnússon.
Bryndís Jónsdóttir.
Gallerí 101 | Haraldur Jónsson sýnir til 26.
nóv. Opið fim.–lau. 14–17.
Gallerí + Akureyri | Finnur Arnar Arn-
arsson til 6. nóv. Opið um helgar kl. 14–17
og aðra daga eftir samkomulagi.
Gallerí I8 | Þór Vigfússon sýnir til 23. des.
Gallerí Sævars Karls | Guðrún Nielsen
sýnir skúlptúra „Tehús og teikningar“. Til
3. nóv.
Gallery Turpentine | Arngunnur Ýr og Am-
anda Hughen.
GUK+ | Hartmut Stockter til 16. janúar.
Háskólinn á Akureyri | Hlynur Hallsson –
„Litir – Farben – Colors“ á Bókasafni Há-
skólans á Akureyri til 2. nóv. Sjá:
www.hallsson.de.
Hrafnista Hafnarfirði | Guðfinna Eugenía
Magnúsdóttir sýnir málverk í Menning-
arsalnum, 1. hæð, til 6. des.
Jónas Viðar Gallerí | Sigríður Ágústs-
dóttir til 13. nóv.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna „Týnda fiðrildið“ til loka apríl 2006.
sjá: www.oligjohannsson.com.
Ketilhúsið Listagili | Hrafnhildur Inga Sig-
urðardóttir sýnir olíumálverk. Til 6. nóv.
Listasafn ASÍ | Þorbjörg Þorvaldsdóttir og
Karen Ósk Sigurðardóttir. Til. 6. nóv.
Listasafnið á Akureyri | Helgi Þorgils Frið-
jónsson til 23. des.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Tími
Romanov-ættarinnar. Til 4. des.
Listasafn Reykjanesbæjar | Húbert Nói, til
4. des.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning. Til 2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Bernd Koberling til 22. janúar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Guð-
rún Vera Hjartardóttir til 30. des. Erró til
23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá
fæðingu málarans. Til 19. mars.
Listasmiðjan Þórsmörk, Neskaupstað | 10
listakonur frá Neskaupstað sýna á Egils-
staðaflugvelli.
Listhús Ófeigs | Gunnar S. Magnússon til
3. nóv.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Lars Tun-
björk til 20. nóv.
Nýlistasafnið | Grasrót sýnir í sjötta sinn.
Til 6. nóv.
Næsti Bar | Sýning um Gamla bíó. Hug-
myndir listamanna. Til miðs nóvember.
Safn | Safn sýnir verk Harðar Ágústssonar
(1922–2005). Verkin á sýningunni er öll úr
eigu Safns.
Safn | Hörður Ágústsson til 10. nóv.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða
Frægð | Þorsteinn Otti Jónsson, sýnir
„Börn Palestínu“. Myndirnar á sýningunni
voru teknar á ferðalagi hans til herteknu
svæðanna í Palestínu árið 2004.
Svartfugl og Hvítspói | Björg Eiríksdóttir
–Inni – til 13. nóv. Opið alla daga kl. 13–17.
Þjóðmenningarhúsið | Í veitingastofu sýnir
Hjörtur Hjartarson málverk.
Þjóðminjasafn Íslands | Tvær ljós-
myndasýningar. Konungsheimsóknin 1907
og Mannlíf á Eskifirði 1941–1961. Til 27. nóv.
Þrastalundur, Grímsnesi | Reynir Þor-
grímsson.
Leiklist
AGÓGES-salurinn | Stærsta leikhúss-
portkeppni á Íslandi, verður haldin 11. nóv. á
vegum Unglistar. Húsið opnað kl. 19.30.
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Sýnt er íslenskt
bókband gert með gamla laginu, jafnframt
nútímabókband og nokkur verk frá nýaf-
staðinni alþjóðlegri bókbandskeppni. Sýn-
ingin er afar glæsileg og ber stöðu hand-
verksins fagurt vitni. Félagsskapur
bókbindara sem kallar sig JAM-hópinn
setti sýninguna upp. Handritin – saga
handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja-
safnið – svona var það, Fyrirheitna landið,
íslenskt bókband, vinningstillaga að tón-
listarhúsi.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni
Íslands eru fjölbreyttar og vandaðar sýn-
ingar auk safnbúðar og kaffihúss. Opið alla
daga vikunnar nema mánudaga kl. 11–17.
Skemmtanir
Keðjan, Nemendafélag Kvennaskólans í
Reykjavík | Eplavikan er haldin árlega og
henni fylgir „Eplaball“ sem í ár verður
Tilkynningar um aðventu- og jóla-
tónleika sem birtast eiga í Jólablaði
Morgunblaðsins, sem kemur út 27.
nóvember, þurfa að berast á net-
fangið menning@mbl.is, merktar:
Jólatónleikar, fyrir vikulok.
Upplýsingar um stað, stund, flytj-
endur og helstu verkefni þurfa að
fylgja.
1. e4 c5 2. c3 Rf6 3. e5 Rd5 4. d4 cxd4 5.
Rf3 Rc6 6. cxd4 e6 7. a3 d6 8. Bd3 dxe5
9. dxe5 Be7 10. O-O O-O 11. De2 Dc7 12.
He1 He8 13. Rg5 g6 14. Rf3 Bf8 15. Bg5
Rce7 16. h4 Bd7 17. h5 Bc6 18. hxg6
hxg6 19. Rbd2 Rb6 20. Re4 Bxe4 21.
Dxe4 Hed8 22. Dh4 Hxd3 23. Bf6 Bg7
24. Rg5 Rf5 25. Dh7+ Kf8 26. Bxg7+
Rxg7 27. Dh8+ Ke7 28. Dxg7 Hf8
Staðan kom upp í fyrri hluta Íslands-
móts skákfélaga sem lauk fyrir
skömmu í Menntaskólanum í Hamra-
hlíð. Dagur Arngrímsson (2289) hafði
hvítt gegn Vigfúsi Ó. Vigfússyni
(1850). 29. Rxe6! Kxe6 30. Dxf8 Dd7
31. Dh8 De7 32. Had1 og svartur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.