Morgunblaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 33 UMRÆÐAN Harpa Sjöfn heitir nú Flügger litir Endurbættar verslanir • Gott vöruval • Tilboð • Skemmtileg getraun Málning og málarameistari! Þú getur unnið málningu og meistara til að mála fyrir þig að upphæð 200.000 krónur. 10 3 5 5 5 4 3 /0 5 Reykjavík: Stórhöfða 44 Sími 567 4400 Reykjavík: Skeifunni 4 Sími 568 7878 Reykjavík: Snorrabraut 56 Sími 561 6132 Kópavogur: Bæjarlind 6 Sími 544 4411 Hafnarfjörður: Dalshrauni 13 Sími 544 4414 Borgarnes: Sólbakka 8 Sími 430 5620 Akureyri: Austursíðu 2 Sími 461 3100 Hvolsvöllur: Hlíðarvegi 2-4 Sími 487 8413 Selfossi: Austurvegi 69 Sími 482 3767 Keflavík: Hafnargötu 90 Sími 421 4790 www.flugger.is Í DAG eru 70 ár liðin frá því að verkstjórar í málmiðnaði á höf- uðborgarsvæðinu stofnuðu með sér félag iðnlærðra verkstjóra. Það voru nokkrir vaskir verkstjórar í smiðjum borgarinnar sem tóku sig saman. Það brann á þeim hversu erfið staða stjórnenda var þegar horft var til réttindamála þeirra sjálfra. Þeim þótti brýn þörf á eigin stéttarfélagi sem gæti varið réttindi þeirra og samið fyrir þeirra hönd. Félagið var stofnað og nefnt Verk- stjórafélagið Þór. Í upphafi var mótuð sú stefna, að einungis iðn- lærðir stjórnendur gætu orðið fé- lagsmenn. Enn í dag eru allir fé- lagsmenn iðnlærðir stjórnendur. Flestir eiga þeir sem fyrr rætur sínar í málmiðnaði, vélsmíði og skipasmíði. Starf félagsins hefur verið blóm- legt nær öll þessi sjötíu ár og sam- heldni félagsmanna mikil. Félagið er aðili að Verkstjórasambandi Ís- lands sem sér um daglega þjónustu við félagsmenn þessa félags eins og annarra verkstjórafélaga. Innan Verkstjórasambands Íslands eru 13 verkstjórafélög og er heildarfjöldi félagsmanna ríflega tvö þúsund og þrjú hundruð. Innan hinna verk- stjórafélaganna eru menn með fjöl- breytta og ólíka menntun og reynslu, m.a. iðnmenntun. Þórs- menn hafa kosið að viðhalda stefnu frumkvöðlanna og halda félagi sínu sem hreinu iðnaðarmannafélagi. Þar er þéttur hópur sem þekkist innbyrðis og heldur vel saman. Þróun og eftirspurn Á þeim tíma sem liðinn er frá stofnun félagsins hafa orðið miklar breytingar í rekstrarumhverfi í málmiðnaðargreinum og skipasmíði. Þá er ekki einungis vísað til tækni- legra breytinga sem sannarlega hafa orðið miklar. Rekstar- umhverfið hefur verið ákaflega óstöðugt síðustu áratugi. Á fyrstu árum félagsins var vél- væðing að hefjast með nokkrum þunga hérlendis. Atvinna var stöð- ug og vaxandi en árstíðabundin. Vegna takmörkunar á innflutningi varð þetta mjög sterk atvinnugrein. Síðan tóku stríðsárin við með geysi- legri þenslu. Varahlutir voru ófáan- legir og varð því að smíða þá. Mikil eftirspurn hersins eftir iðnlærðum mönnum olli því að erfitt reyndist að sinna öllum verkefnum sem bár- ust. Eftir stríðið dró úr þessu gríð- arlega álagi í greininni en eft- irspurn var samt ennþá mikil. Síðan minnkaði efturspurnin nokkuð. Síð- ustu þrír áratugir hafa verið grein- inni erfiðir oft á tíðum, þó ein- hverjar sveiflur hafi verið á því. Á þessum áratugum hafa mörg af þeim fyrirtækjum, sem töldust hvað öflugust í þessari grein á fyrri hluta síðustu aldar, verið lögð niður. Þau fyrirtæki sem lifðu af stóðu í erfiðri baráttu með storminn í fangið. Ís- lenskir járniðnarmenn með stjórn- endur sína í fararbroddi hafa þróað tækni sína og færni. Það er ljóst að þeir gefa starfsfélögum sínum er- lendis ekkert eftir. Hörð og óvægin samkeppni Á síðustu árum hefur verið nokk- ur umræða um erlent vinnuafl og áhrif þess á samkeppnisstöðu ís- lenskra fyrirtækja og iðngreina. Þessi umræða varð almenn þegar vinna hófst við Kárahnjúkavirkjun og síðar uppbygging á álverinu við Reyðarfjörð. Sú mikla samkeppni, sem þarna var flestum sýnileg, leiddi til nokkurs upp- náms innan verkalýðs- hreyfingarinnar. Hún afhjúpaði aðstæður sem málmiðnaðurinn hefur búið við síðustu áratugi. Verkstjórar í málmiðnaði amast ekki við samkeppni né heldur erlendu vinnu- afli. Hvort tveggja er af hinu góða ef allir aðilar sitja við sama borð og starfa eftir sömu reglum. Það hefur hins vegar vant- að verulega á að svo sé. Það er óskandi að nú, þegar öllum er ljóst þetta óréttlæti sem skortur á reglum skap- ar, láti stjórnvöld verða af því að setja sam- ræmdar reglur svo að allir verði jafnsettir í samkeppninni. Sömuleiðis þurfa hin sömu stjórvöld að taka alla liði inn í dæmið þegar metin eru tilboð í stórverkefni. Þrátt fyrir nokkurt mótlæti síð- ustu ár munu félagsmenn Þórs og gestir fagna 70 ára afmæli félagsins á veglegri samkomu föstudaginn 4. október. Við lítum einnig öll vongóð til stjórnvalda um breyttar leik- reglur um leið og við óskum Verk- stjórafélaginu Þór allra heilla. Verkstjórar í málm- og skipasmíðaiðnaði fagna 70 árum Kristín Sigurðardóttir skrifar í tilefni af 70 ára afmæli Verkstjórafélagsins Þórs ’Starf félagsins hefurverið blómlegt nær öll þessi sjötíu ár og samheldni félags- manna mikil.‘ Kristín Sigurðardóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Verkstjórasambands Íslands.                       AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.