Morgunblaðið - 02.11.2005, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 02.11.2005, Qupperneq 18
Vík í Mýrdal | Íbúum Víkur var boðið í sund og kaffi í tilefni af því að ár er liðið frá því sund- laugin var tekin í notkun. Laugin hefur verið mikið notuð, liðlega 15 þúsund gestir hafa komið í sund og hún hefur haft jákvæð áhrif á samfélagið. Krakkarnir fengu að spreyta sig á tækjunum í íþróttasalnum í tilefni dagsins og Erna Karen Ólafsdóttir fór heljastökk á trampólíni. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Erna Karen í heljarstökki Íþróttir Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Niðurrif skerma | Nú þegar 25 ára sögu jarðstöðvarinnar Skyggnis, austan við Úlf- arsfell, er lokið og hann rifinn niður er spurt hvað verður um varajarðstöðina fyrir hann sem blasir við vegfarendum sem keyra til og frá Höfn, nánar tiltekið í landi Hafnarness. Samkvæmt upplýsingum frá Evu Magnúsdóttur, upplýsingafulltrúa Símans, hefur engin ákvörðun verið tekin um framtíð varajarðstöðvarinnar í Hafn- arneslandi en sá búnaður hefur ekki verið í notkun í nokkra mánuði. Frá þessu er sagt á vefnum hornafjordur.is og varpar vefrit- ari fram þeirri hugmynd að upplagt væri að setja jólaseríur á Hafnarnessskerminn og lýsa hann fallega upp í skammdeginu. héraðs, sem yfirleitt set- ur sín verk upp í Vala- skjálf á Egilsstöðum, bregður sér nú um 15 mínútna akstur út í sveit og hefur breytt Iðavöll- um í skemmtilegt leikhús þar sem Sex í sveit er í Sex í sveit eftir MarcCamoletti, í ís-lenskri þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar, er haustverkefni Leik- félags Fljótsdalshéraðs. Verkið verður frumsýnt í félagsheimilinu Iðavöll- um föstudaginn 4. nóv- ember kl. 20. Leikstjóri Sex í sveit er Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er öllum hnútum kunnugur á Héraði og hefur meðal annars leik- stýrt My Fair Lady, Þreki og tárum og Gauks- hreiðrinu. Með hlutverk sexmenninganna fara Friðjón Magnússon, Jódís Skúladóttir, Garðar Val- ur Hallfreðsson, Anna Björk Hjaltadóttir, Sig- urlaug Gunnarsdóttir og Jón Gunnar Axelsson. Sex í sveit er farsi með meinlegum misskilningi, undanlegum orðaleikjum, hasar og hamagangi. Leikfélag Fljótsdals- ákaflega viðeigandi um- hverfi. Fyrirfram ákveðnar sýningar á Iða- völlum eru auk frumsýn- ingarinnar á föstudaginn 5., 11., 12., 18. og 19. nóv- ember. Þær hefjast allar kl. 20. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Svik og prettir Garðar Valur Hallfreðsson og Friðjón Magnússon í hlutverkum sínum í Sex í sveit. Sex í sveit á Iðavöllum Rúnar Kristjánssonorti Goðavísur ísumar á fæðing- ardegi Sveinbjörns Bein- teinssonar, bréfavinar síns og bragkunningja. Hringhendurnar eru með samverkandi miðríms- orðum, þó aldrei þeim sömu: Sveinbjörn goði sígilt kvað, sónarstoðir treysti. Orkuboðum ýtti af stað, allt úr doða leysti. Engu moði vék af vör, vildi ei froðu neina. Kunni að skoða ýr og ör utan hroðameina. Bragar voðir færði í fang, fús að troða slóðir. Aldrei hnoði greiddi gang, granaloðinn bróðir. Davíð Hjálmar Haralds- son yrkir um vandræði Bush vegna leka í fjöl- miðla: Hugnast mér hafragrautur. Haustblíða yndi vekur. Nú er hann Búskur blautur, bölvaður kofinn lekur. Goðavísur um Sveinbjörn pebl@mbl.is Borgarnes | Stjórn Verkalýðsfélags Borg- arness skorar á atvinnurekendur og stjórnvöld að beita sér fyrir nauðsynlegum úrbótum og lagfæringum til þess að ekki komi til uppsagnar kjarasamninga á al- mennum vinnumarkaði. Fram kemur í ályktun stjórnar félagsins að forsendur samninganna séu brostnar og því reyni nú á endurskoðunarákvæði þeirra. Hvetur stjórnin til þess að næstu dagar verði notaðir vel til að endurnýja og treysta grundvöll og markmið kjarasamn- inganna og að atvinnurekendur og stjórn- völd axli ábyrgð sína á stöðu mála. „Und- anbragðalaust verður að endurnýja tiltrú þjóðarinnar á stöðugleika og jafnvægi í efnahagsmálum. Og bæta verður launa- fólki þann skaða sem það hefur orðið fyrir síðustu misserin.“ Bæta þarf launafólki skaðann Reykjavík | Kirkjusókn í Reykjavík- urprófastsdæmum var 28% meiri fyrstu vikuna í október í ár en í sömu viku á síð- asta ári. Undanfarin þrjú ár hefur verið gerð könnun á kirkjusókn í Reykjavíkurpró- fastsdæmum fyrstu vikuna í október. Talið hefur verið hve margir mæta í helgihald og athafnir, barna- og ung- lingastarf, tónlistarstarf, fullorðins- fræðslu og hve margir ferðamenn koma. Nú liggja tölur fyrir með samanburði við síðastliðin tvö ár, og eru upplýsingar um Reykjavíkurprófastsdæmi vestra að- gengilegar á vefnum www.kirkjan.is/ vestra. Síðar koma þar inn tölur úr Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Aukning varð um 28% á fyrstu viku október í ár miðað við sömu viku í fyrra í báðum prófastsdæmum. Heildarfjöldi kirkjugesta í Reykjavík, án ferðamanna, var 25.013. Ferðamenn voru 4541 og þar af langflestir í Hallgrímskirkju, eða 4300. Fjöldinn í vestra var 12.772 en í eystra 12.241. Kennaraverkfallið í fyrra hafði greini- leg áhrif á slakari mætingu, samkvæmt upplýsingum frá prófastsdæmunum, sér- staklega í barnastarfi kirknanna. Þrátt fyrir það er mæting í ár betri en bæði ár- in 2004 og 2003. Kirkjusókn jókst um 28% milli ára ♦♦♦ Ég óskaði eftir að þessi grein yrði birt í Morgunblaðinu. Ekki varð mér að þeirri ósk, en greininni vísað í vefútgáfuna og þakka ég það. Mér finnst hins vegar málið brýnt og eiga erindi til fleiri en þeirra sem lesa innsendar greinar á vefútgáfunni mbl.is. Þess vegna ákvað undirritaður að birta greinina í auglýsingaformi og greiða sjálfur fyrir birtingu hennar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson - farsæll borgarstjóri Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er líklega einhver allra reyndasti sveitar- stjórnarmaður á Íslandi, bæði vegna starfa hans í borgarstjórn, en ekki síður sem formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga í fimmtán ár, nærfellt þrjú kjörtímabil. Það eru ekki margir sem geta axlað þá ábyrgð og unnið þau erfiðu störf, sem fylgja formanns-embættinu hjá samtökum sveitarfélaga. Eðli málsins samkvæmt toga hagsmunir í ólíkar áttir, enda viðhorf sveitarstjórna oft á tíðum gjörólík. Vilhjálm- ur hefur sýnt og sannað að eiga auðvelt með að leiða þessi margslungnu og flóknu samtök. Þar hafa góðir eðliseigin- leikar hans nýst til hins ýtrasta; stefnufesta og góð dóm- greind í bland við samningslipurð og hæfileika til að setja sig vel inn í þau mál sem þarfnast úrlausnar. Sú stað- reynd, að Vilhjálmur hefur verið óumdeildur leiðtogi samtaka sveitar- stjórna á Íslandi, segir meira um hann en mörg orð. Reynsla hans og þekking hefur nýst á þessum vettvangi út í æsar. Hann hefur ítrekað sýnt og sannað að hann er traustins verður. Það traust, sem til hans er borið, nær langt út fyrir raðir flokkssystkina - Vilhjálmur nýtur trausts og viðurkenningar í öllum flokkum og landshornum. Ég hef fylgst náið með störfum Vilhjálms síðastliðin tuttugu ár, sat enda sjálfur í bæjarstjórn og embætti bæjarstjóra á Höfn í Hornafirði stóran hluta þess tímabils. Miklar breytingar urðu á verkefnum og upp- byggingu sveitarfélaga landsins á þessum tíma undir öruggri forystu Vilhjálms. Ég get því heilshugar fullyrt að Vilhjálmur er sá leiðtogi, er hefur reynslu, þekkingu og aðra mannlega kosti, sem best nýtast í vanda- sömu starfi borgarstjóra Reykjavíkur. Málið er brýnt vegna þess að með Vilhjálm í fyrsta sæti eru allar líkur á kosningasigri og að hann gegni embætti borgarstjóra næsta kjörtímabil. Ég vil því hvetja alla til að taka þátt í prófkjörinu þann 4. til 5. nóv- ember nk. og fylkja sér um Vilhjálm í fyrsta sætið. Höfundur er verkfræðingur og var forseti bæjarstjórnar/bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði 1986-1999. Sturlaugur Þorsteinsson Auglýsing Fjallkóngurinn kominn með fé | Steinar Halldórsson, fjallkóngur í Auðsholti í Hrunamannahreppi, hefur tekið fé á nýjan leik en hann þurfti að skera niður fjárstofn- inn fyrir nokkrum árum vegna riðu. Var fjallkóngurinn því fjárlaus um tíma. Frá því er sagt í Pésanum, fréttabréfi Hrunamannahrepps, að Steinar hafi fengið hluta af lömbunum frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Jafnframt er þess getið að orðið hafi vart við þá hræðslu að VG-veiran fylgdi lömbunum og smitaði einhverja íbúa hreppsins. Er þar vísað til þess að Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, er af Gunnarsstaðastofni.    Vefur fyrir nemendamót | Vefurinn nemendur.net hefur starfað í rúmlega tvö ár en hann gengur út á að fyrrum skóla- félagar geti haldið sambandi og endurnýjað kynni ásamt því að skipuleggja mót. Vef- urinn er fyrir alla sem hafa útskrifast úr ís- lenskum skóla og ná árgangar allt til ársins 1960. Hugmyndin kviknaði eftir 25 ára stúd- entaafmæli að því er fram kemur í frétta- tilkynningu. Það reyndist heilmikið mál að finna alla og þegar það var búið kom sér vel að hafa póstlista þar sem allir gátu skipst á skoð- unum. Vefurinn auðveldar alla vinnu fyrir nemendamót. Það kostar ekkert að skrá sig á nemend- ur.net og hafa mörg þúsund manns þegar gert það. Hver árgangur hefur eigin vefsíðu en þær eru nú orðnar um 35 þúsund þar sem koma má fyrir myndum og öðrum fróð- leik. Einnig er á vefnum spjallborð og fréttakerfi sem nota má til þess að koma upplýsingum á framfæri.   

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.