Morgunblaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
LANDIÐ
Skagafjörður | ,,Það er búið að
kosta margar milljónir að koma
þessu í gang því allar vélar í
kringum þetta eru dýrar. Það er
fyrst og fremst áhuginn fyrir að
koma upp einhverri atvinnu-
starfsemi hér sem rekur mann
áfram í þessu,“ sagði Viggó Ein-
arsson, útgerðarmaður á Hofs-
ósi.
Harðfiskur framleiddur á
Hofsósi er að koma á markaðinn.
Fyrirtækið Sjóskip ehf. stendur
að framleiðslunni en Viggó og
fjölskylda hans eiga fyrirtækið.
,,Ég er búinn að vera að und-
irbúa þetta í tvö ár, að finna
rétta búnaðinn og sanka að mér
tækjum og tólum víða að úr
heiminum. Þannig að nú er allt
tilbúið til að hefja framleiðslu.
Ég er mjög ánægður með þær
prufur sem komnar eru og vona
að varan komi í verslanir upp úr
mánaðamótunum,“ sagði Viggó
Einarsson aðspurður um þetta
framtak á dögunum.
Framleiðslan verður í gamla
fiskvinnsluhúsinu á Hofsósi sem
Sjóskip hefur tekið á leigu.Viggó
sagðist vera með mjög afkasta-
mikinn þurrkbúnað en hann seg-
ir þurrkunina það vandasamasta
við framleiðsluna og raunar
standi allt og falli með að hún
takist vel. Hann segist geta unn-
ið úr 30–40 tonnum af fiski á
viku. Harðfiskurinn verður bæði
settur á markað sem bitafiskur
eða flök, ýmist með eða án
roðsins. Umbúðirnar um
harðfiskinn eru smekklegar með
fallegri litmynd af Hofsósi fram-
an á og slagorðinu ,,hollt og gott
frá Hofsósi“, þannig að enginn
sem handleikur umbúðirnar
verður í vafa um hvaðan inni-
haldið er.
Útgerðarmaður á Hofsósi hefur framleiðslu á harðfiski
Áhugi á að koma
upp starfsemi
Eftir Örn Þórarinsson
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Framleiðsla Viggó Einarsson
með sýnishorn af harðfiskinum
sem hann er að setja á markað.
HROSSARÆKTARSAMTÖK
Eyfirðinga og Þingeyinga
hafa keypt liðlega þriðjungs-
hlutafé (33,35%) í Gígjari ehf.
Gígjar ehf. er hlutafélag sem
stofnað var á síðasta ári um
stóðhestinn Gígjar frá Auðs-
holtshjáleigu og var það áður
alfarið í eigu Þórdísar Gunn-
arsdóttur. Kaupverð hlut-
arins er kr. 7.063.937. Á hlut-
hafafundi félagsins nú nýlega
var kjörin ný stjórn í félag-
inu. Hana skipa Þórdís
Gunnarsdóttir, Kristbjörg
Eyvindsdóttir og Vignir
Sigurðsson. Á myndinni und-
irrita þau kaupsamninginn,
Þórdís og
Baldvin Kr. Baldvinsson,
formaður HEÞ, en það var
gert á haustfundi HEÞ sem
haldinn var í Funaborg á Mel-
gerðismelum nú í liðinni viku.
Kaupa þriðjung í Gígjari ehf.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Samningur Baldvin Kr. Baldvinsson og Þórdís Gunnarsdóttir handsala
samning um kaup á þriðjungshlut í stóðhestinum Gígjari.
Eyjafjarðarsveit | Skipulag á því svæði,
sem nefnt hefur verið 2. áfangi Reyk-
árhverfis í Eyjafjarðarsveit gerir ráð fyrir
26 einbýlishúsum og 8 íbúðum í fjölbýlis-
húsum. Öllum einbýlishúsalóðunum var út-
hlutað en einn lóðarhafi hafnaði úthlutun
og er sú lóð nú laus. Fjölbýlishúsalóðunum
hefur ekki verið úthlutað en umsókn er
fyrirliggjandi segir á vef sveitarfélagsins.
Auk þess hafa staðið yfir óformlegar við-
ræður við byggingarfélag, sem hefur sýnt
því áhuga að byggja á umræddum lóðum
að uppfylltum ákveðnum skilyrðum hvað
varðar húsagerð. Ef um semst eru líkur á
að sami aðili óski eftir byggingarleyfi fyrir
ákveðinn fjölda íbúða á ári næstu þrjú ár-
in. Gera má ráð fyrir að fjöldi íbúa í um-
ræddum hluta Reykárhverfis verði um eitt
hundrað þegar hverfið er fullbyggt miðað
við þekktar meðaltölur um fjölda íbúa í
íbúð.
Reykárhverfi
í Eyjafjarðarsveit
Íbúar verða
um 100 talsins
Áhyggjur vegna læknamála |
Bæjarráð Dalvíkurbyggðar tek-
ur undir áhyggjur hagsmuna-
samtakanna Áfram hvað varðar
þá stöðu sem komin er upp í
heilsugæslulæknamálum í Dal-
víkurbyggð. Á stofnfundi sam-
takanna á dögnum var þess
krafist að gerðar yrðu úrbætur í
þessum efnum og strax ráðið í
þá stöðu heilsugæslulæknis sem
laus er. Skorað var á heilbrigð-
isráðherra að vinna strax að var-
anlegum úrbótum í heilsugæslu-
læknamálum á landsbyggðinni.
Ekki væri hægt að bjóða íbúum
Dalvíkurbyggðar né lækninum
sem þar starfar upp á þessar að-
stæður en ekki hefur tekist að
ráða í lausa stöðu.
SAMFYLKINGIN efnir til próf-
kjörs laugardaginn 5. nóvember,
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar
á Akureyri næsta vor. Kosið verð-
ur um fjögur efstu sætin á lista
flokksins, sem skipa skulu tvær
konur og tveir karlar. Tólf ein-
staklingar hafa gefið kost á sér í
prófkjörinu, 5 konur og 7 karlar.
Aðeins tveir í þessum hópi sækjast
eftir fyrsta sæti listans, þeir Her-
mann Jón Tómasson, áfangastjóri
í VMA, og Hermann Óskarsson,
dósent við HA. Samfylkingin er
með einn bæjarfulltrúa í bæjar-
stjórn Akureyrar.
Líklegt er að Vinstri grænir efni
einnig til prófkjörs við val á lista
flokksins. Dýrleif Skjóldal for-
ystukona flokksins á Akureyri
sagði að boðað yrði til fé-
lagsfundar um miðjan nóvember,
þar sem stjórnin myndi leggja það
til að farið yrði í prófkjör við val í
efstu sætin og þá með svipuðu fyr-
irkomulagi og var í Reykjavík.
„Framhaldið ræðst svo af vilja fé-
lagsmanna.“ Vinstri grænir buðu í
fyrsta sinn fram í síðustu sveit-
arstjórnarkosningum og þá var
farin sú leið að velja á lista flokks-
ins. Vinstri grænir eiga einn full-
trúa í bæjarstjórn Akureyrar.
Líklegt að L-listinn bjóði fram
Oddur Helgi Halldórsson odd-
viti L-lista fólksins, sagði að ekki
hefði verið tekin endanleg ákvörð-
un um framboð næsta vor en það
myndi skýrast fyrir áramót. „Ég
hallast þó frekar að því að við
munum bjóða fram aftur, nema að
hin framboðin bjóði fram þvílíkt
úrval af fólki að við sjáum fram á
að þurfa ekki að vera með. Mér
sýnist þó á öllu að rödd okkar
þurfi að heyrast áfram,“ sagði
Oddur. L-listinn hefur boðið fram í
síðustu tvennum bæjarstjórn-
arkosningum, fékk einn mann árið
1998 og tvo menn fjórum árum síð-
ar. Oddur sagði það einsdæmi á
landsvísu að svona sérframboð
bætti við sig manni á milli kosn-
inga.
Enn óvíst um leiðir hjá meiri-
hlutaflokkunum í bæjarstjórn
Ekki liggur fyrir hvernig mál-
um verður háttað hjá flokkunum
tveimur sem mynda núverandi
meirihluta í bæjarstjórn Akureyr-
ar, Sjálfstæðisflokki og Fram-
sóknarflokki. Björn Magnússon
formaður fulltrúaráðs Sjálfstæð-
isflokksins sagði að tveir mögu-
leikar væru í stöðunni, uppstilling
á lista flokksins eða prófkjör. „Við
erum að halda fyrsta fund í vik-
unni, þar sem menn fara að velta
fyrir sér hvaða leið verður farin.“
Björn sagði að kjörnefnd myndi
leggja fram sína tillögu um hvora
leiðina ætti að fara og í kjölfarið
yrðu greidd atkvæði um málið á
fundi í fulltrúaráðinu. Hann sagði
skoðanir mjög skiptar. Sjálfstæð-
isflokkurinn var síðast með próf-
kjör fyrir kosningarnar 1994 og
sagði Björn að þar sem nokkuð
langt væri um liðið væru ýmsir
flokksmenn á því að kominn væri
tími á prófkjör á ný. Sjálfstæðis-
flokkurinn á fjóra bæjarfulltrúa í
bæjarstjórn Akureyrar.
Hákon Hákonarson formaður
fulltrúaráðs Framsóknarflokksins
sagði að þar á bæ væru menn rétt
að byrja að ræða þessi mál. „Aðal-
fundur fulltrúaráðsins verður
haldinn í þessum mánuði, þar sem
þetta mál verður til umfjöllunar.
Eftir þann fund verður hægt að
gefa eitthvað út varðandi málið,“
sagði Hákon. Framsóknarflokk-
urinn á þrjá bæjarfulltrúa í bæj-
arstjórn Akureyrar.
Prófkjör Samfylkingarinnar á Akureyri fer fram á laugardag
Prófkjör einnig líklegt
hjá Vinstri grænum
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
!"#$$
%
&
'
(%)
*
)
+
,%
)
-
.-
+ '
')
&
)
'
)
&&*
'
)
!
%
+)&
/
)
0
)
)&
')
1 %
'&
)
-
.
''
*
2 %
$*
#
*
'
#3
'
00*
.
.
%
'
1
&
-
4
' 4
5
'
%
+
#600
'
#3
'
00
'
7 ) ' '
*
2 %
$*
!
(
'
%
.
)
.
00
8
)
+
HIÐ stafræna útsendingarsvæði 365 ljós-
vakamiðla, Digital Ísland, er að stækka til
muna og mun áður en langt um líður ná til
80% heimila í landinu. Digital Ísland hefur
hafið útsendingar á Selfossi. Í kjölfarið
fylgja önnur útsendingarsvæði á Suður-
landi og fyrir lok nóvember nk. hefjast
stafrænar útsendingar á Akureyri.
Til þess að ná stafrænum útsendingum
Digital Íslands þarf að verða sér úti um
stafrænan myndlykil, sem fáanlegur er án
endurgjalds á afgreiðslustöðum Digital Ís-
lands á umræddum útsendingarsvæðum.
Einnig þarf að vera fyrir hendi örbylgju-
loftnet, en þó ekki þar sem eru UHF-
sendingar eins og á Akureyri. Digital Ís-
land sendir nú út í Reykjavík og á Suður-
landi 64 sjónvarpsstöðvar, 12 íslenskar
stöðvar og 52 erlendar stöðvar í stafræn-
um hágæðum. Íslensku stöðvarnar eru
Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Bíó, Sýn, Sýn+, Sýn
Extra, Sirkus og PoppTV. Hinum erlendu
fer sífellt fjölgandi og sú nýjasta bættist
við nú um mánaðamótin en það er körfu-
knattleiksstöðin NBA TV, sem alfarið er
helguð umfjöllun og leikjum frá bestu
körfuknattleiksdeild í heimi, bandarísku
NBA-deildinni, að því er segir í frétta-
tilkynningu.
Digital Ísland
til Akureyrar
WWW.NOWFOODS.COM
Góð heilsa gulli betri
♦♦♦