Morgunblaðið - 02.11.2005, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 23
DAGLEGT LÍF
Fjórir Íslendingar taka þátt íhönnunardögunum FutureDesign Days í Stokkhólmi 14.
og 15. nóvember nk. Þetta eru þau
Ásgeir Hjartarson hárgreiðslumeist-
ari, Bergþóra Þórsdóttir förð-
unarfræðingur og hárgreiðslumeist-
ari, Harpa Einarsdóttir fatahönnuður
og Hendrik Hermannsson þjónn og
eigandi veitingahússins Skólabrúar.
Ásgeir og Bergþóra reka hár-
greiðslustofuna Supernova Hair &
Airbrush Studio og í samstarfi við
Hörpu munu þau sýna hvernig hár,
förðun og föt tengjast saman í heild-
arútlit á sýningunni í Stokkhólmi.
Farðað verður með airbrush-
tækninni en Bergþóra er einn af upp-
hafsmönnum hennar hér á landi og
fötin hannar Harpa sem útskrifaðist
frá Listaháskóla Íslands sl. vor.
Blómavír og rafmagnsbarkar
Ásgeir segir alls ekki um dæmi-
gerða tískusýningu að ræða, heldur
listaverk þar sem öllum þáttum er
gert jafnhátt undir höfði. Blómavír og
barkar utan um rafmagnssnúrur eru
ekki hefðbundinn efniviður hár-
greiðslumeistara en þetta notar Ás-
geir m.a. í listsköpuninni. „Við nálg-
umst hárgreiðslu og förðun sem
listgreinar,“ segir hann. Auk þess að
koma fram á hönnunardögunum
verður hópurinn með bás þar sem
vinna hans verður kynnt, þ.e. fatalína
Hörpu og airbrush-tæknin. Og yf-
irþjónninn Hendrik Hermannsson
mun reiða fram sérhannaða íslenska
smárétti. Í myndbandi sem gert hef-
ur verið til að sýna í básnum er Ísland
kynnt. „Við ætlum að sýna íslenska
náttúru og andstæður í landslagi.
Eldur og ís fá að njóta sín og við vilj-
um sýna fólki hvaðan við erum og
hvaðan við fáum kraftinn og innblást-
urinn,“ segir Ásgeir.
Þátttaka hópsins á sýningunni
kemur til í gegnum vin Ásgeirs, Ant-
onio Vinciguerra, sem búsettur er í
London og er umboðsmaður fyrir
ýmsa listamenn í tónlistar- og tísku-
geiranum. Futurelab, sem stendur
fyrir hönnunardögunum, bað um
hugmyndir frá Vinciguerra, sem
benti á Ásgeir og félaga.
Futurelab er sænsk ráðgjafarstofa
á sviði markaðssamskipta, stefnu-
mótunar og hönnunar. Frá árinu
2001 hefur stofan staðið fyrir framtíð-
arhönnunardögunum, Future Design
Days, þar sem fjölbreyttur hópur
fólks og fyrirtækja kemur saman og
skiptist á skoðunum um hönnun á
breiðum grundvelli. Skoðanaskiptin
fara m.a. fram með listviðburðum,
fyrirlestrum, málstofum og sýn-
ingum.
Fjórir
Íslending-
ar þátt-
takendur
SVÍÞJÓÐ | Framtíðar-
hönnun í Stokkhólmi
steingerdur@mbl.is
OPIÐ skrifstofurými á vinnu-
stað virðist ekki hafa góð áhrif
á heilsu starfsmanna. Kliður
getur skapast og valdið þreytu
og pirringi, að því er m.a. kem-
ur fram á vef Aftenposten.
Alþjóðleg rannsókn leiddi í
ljós að adrenalínframleiðsla
þátttakenda jókst þegar líkt var
eftir klið sem getur skapast í
opnu vinnurými þar sem enginn
getur lokað að sér.
Þátttakendum var gert að
leysa púsluspil sem sum voru
óleysanleg. Þeir sem voru látnir
vera í klið gáfust fyrr upp, en
hóparnir upplifðu þó ekki mis-
munandi streitu. Norska vinnu-
málastofnunin bendir á að
spurningalistar geti því ekki
náð að mæla streituna sem mis-
munandi vinnuumhverfi getur
skapað.
Rannsóknin leiddi einnig í
ljós að kliðurinn í opnu vinnu-
rými gerir það að verkum að
starfsfólk nýtir síður stilling-
armöguleika á skrifstofu-
húsgögnum. Aðrar rannsóknir
benda m.a. til þess að kliður í
opnu rými dragi úr framleiðni
þegar fólk þarf að leysa krefj-
andi verkefni af hendi. Morgunblaðið/Ásdís
RANNSÓKN
Opið skrif-
stofurými
þreytandi
Fréttir á SMS
WWW.JULIUSVIFILL.IS