Morgunblaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 29
VILHJÁLMUR Bjarnason, hluthafi í FL
Group og aðjúnkt við viðskipta- og hag-
fræðideild HÍ, óskaði eftir því á hlut-
hafafundi félagsins í gær að endurskoð-
endur FL Group upplýstu hvort rétt
væri að þrír milljarðar króna hefðu ver-
ið fluttir af reikningum félagsins í þágu
annarra en félagsins, líkt og þrálátur
orðrómur hafi verið um.
„Forstjóri félagsins segir að svo hafi
ekki verið og raunar bætti við: Það er
bara þvæla. Nú vil ég sem hluthafi, þar
sem hér eru kjörnir endurskoðendur til
starfa, fá staðfestingu þeirra á því hvort
hafi einhverjar greiðslur farið af reikn-
ingum FL Group, sem ekki voru í þágu
FL Group, í sumar. Stjórnarmenn sem
sögðu af sér hafa gefið ýmislegt í skyn
en þeir hafa ekki sagt neitt sem hönd er
á festandi,“ sagði Vilhjálmur.
Engar athugasemdir voru gerðar
í sex mánaða uppgjöri
Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórn-
arformaður FL Group, svaraði og sagði:
„Þetta er sagt samkvæmt þessum þrá-
láta orðrómi hafa átt sér stað í júní. Alla
vega miðað við það sem ég heyrði fyrr í
dag. Það liggur fyrir kannað sex mán-
aða uppgjör félagsins, sem hefur verið
birt. Í því kemur ekki fram neitt um at-
hugasemdir endurskoðenda félagsins við
þessu eða neinu öðru sem átti sér stað á
þessu sex mánaða tímabili. Það er þann-
ig að endurskoðun vegna þessa reikn-
ingsárs fer af stað á næstu dögum og
munu endurskoðendur félagsins að sjálf-
sögðu fara yfir þessi mál eins og öll önn-
ur í starfsemi félagsins. Og niðurstaða
úr því mun liggja fyrir á aðalfundi fé-
lagsins í upphafi næsta árs. Þetta er eðli-
legur háttur að hafa á þessu. Það er fjöl-
margt í starfsemi félagsins sem er
eðlilegt að endurskoðendur skoði og
þetta er eitt af því,“ sagði Skarphéðinn
Berg.
Fyrirspurn á hluthafafundi
FL Group um meinta til-
færslu þriggja milljarða af
reikningum félagsins
Eðlilegt að
endur-
skoðendur
skoði þetta
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 29
NÚ NÆRRI fjórum vikum eftir
að gríðarmikill jarðskjálfti varð í
Suðaustur-Asíu, heldur tala látinna,
heimilislausra og slas-
aðra áfram að hækka.
Neyðin er jafn brýn og
hún er alvarleg. Nú er
talið að 58 þúsund hafi
látist en sú tala gæti
tvöfaldast ef framlög
berast ekki og neyð-
araðstoð kemst ekki
fljótt til skila. Fimb-
ulvetur Himalajafjalla
er skammt undan og
því er nú keppt við
tímann til að bjarga
tugum þúsunda
mannslífa í Pakistan.
Við verðum í samein-
ingu að taka höndum
saman og gera allt
sem í okkar valdi
stendur til þess að
tapa ekki þessu kapp-
hlaupi.
Ef ekki verður
brugðist skjótt við á
næstu þremur vikum
og aukin neyðaraðstoð
berst hið skjótasta má
búast við annarri
dauðahrinu þegar fólk
deyr úr sjúkdómum og
kulda.
Eftir því sem best
er vitað í dag misstu
þrjár milljónir manna
heimili sín í jarð-
skjálftanum í hrjóstr-
ugu hálendi. Allt að
tvær milljónir manna
þarfnast brýnnar aðstoðar. Meir en
79 þúsund manns eru slösuð. Sam-
göngumannvirki á 28 þúsund fer-
kílómetra svæði eru í rúst. Enn hafa
30% fórnarlambanna ekki fengið
neina aðstoð.
Tvennt hefur staðið alþjóðlegum
björgunaraðgerðum fyrir þrifum:
fjárskortur og erfiðleikar við að ná
til allra eftirlifenda skjálftans.
Skipulagsvandinn sem hjálpar-
starfsmenn í Pakistan hafa glímt við
hefur verið martröð líkastur og mun
erfiðari en var við að glíma þegar
flóðaldan reið yfir Indlandshaf.
Hjálparstofnanir hafa aldrei glímt
við annan eins vanda við að koma að-
stoð til skila og kemur margt til: hve
hátt landsvæðin liggja og hve fjöllótt
þau eru; gjöreyðing samgöngu-
mannvirkja á stórum svæðum,
áframhaldandi skjálftavirkni og tíð-
ar aurskriður auk þess sem vetur
konungur ber að dyrum. Þetta tröll-
aukna verkefni krefst góðrar sam-
vinnu sem aldrei fyrr og sem bestrar
nýtingar þess litla sem hjálp-
arstarfsmenn hafa úr að spila.
Í öðru lagi og þar liggur stærsti
vandinn, skortir verulega fé til að
standa straum af neyðaraðstoð.
Hver dagur sem líður án þess að
ráðin sé bót á fjárhagsvandanum,
getur þýtt dauðadóm yfir þúsundum
slasaðra, hungraðra og heim-
ilislausra, einkum
ungra barna sem eru
berskjölduð gegn sjúk-
dómum og kulda.
Sameinuðu þjóðirnar
hafa tvöfaldað áætlaða
þörf fyrir neyðaraðstoð
og telja nú að það þurfi
550 milljónir Banda-
ríkjadala til að mæta
því skelfilega ástandi
sem við blasir. Ég hvet
öll Evrópuríki, einka-
geirann og almenna
borgara um allan heim
að opna hjarta sitt og
seðlaveski og bregðast
við af sömu rausn og
raun bar vitni þegar
flóðaaldan herjaði á
löndin við Indlandshaf.
Tíu dögum eftir að
flóðaldan reið yfir höfðu
Sameinuðu þjóðirnar
fengið greiddar 80%
þeirra fjárhæða sem
lofað hafði verið. Nú,
mánuði eftir atburðina í
Pakistan, hafa Samein-
uðu þjóðirnar aðeins
fengið 22% þess fjár
sem lofað hefur verið.
Heimurinn hefur aldrei
verið ríkari og fleiri
auðug lönd eru í Evr-
ópu, Asíu og Suður-
Ameríku en nokkru
sinni fyrr. Það er engin
afsökun fyrir því að
bregðast ekki við.
Við hvetjum alla gefendur, op-
inbera aðila jafnt sem einkaaðila, til
þess að hlíta kalli Sameinuðu þjóð-
anna um mannúðaraðstoð og láta
reiðufé koma í stað loforða. Beiðni
Sameinuðu þjóðanna um aðstoð fyr-
ir fórnarlömb jarðskjálftans er
heildstæð og hægt verður að gera
grein fyrir hvert féð rennur.
Gagnsæi verður tryggt og op-
inberlega vakin athygli á hverju
framlagi á heimasíðu Sameinuðu
þjóðanna en þar eru rakin framlög
til neyðaraðstoðar samtakanna.
Við höfum enga afsökun fyrir því
að sitja með hendur í skauti. Við vit-
um öll hvað gerist ef við beitum okk-
ur ekki af alefli og með öllu því sem
tiltækt er: tugir þúsunda manna
munu deyja innan skamms í Pak-
istan og margir aðrir þjást að
óþörfu. Heimurinn býr bæði yfir fé
og tækjum til að bjarga þessu fólki.
Spurning er: höfum við viljann?
Fórnarlömb jarð-
skjálftanna þurfa
tafarlausa aðstoð
Eftir Jan Egeland
Jan Egeland
’Ef ekki verðurbrugðist skjótt
við á næstu
þremur vikum
og aukin neyð-
araðstoð berst
hið skjótasta
má búast við
annarri dauða-
hrinu þegar
fólk deyr úr
sjúkdómum og
kulda.‘
Höfundur er aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna á sviði mannúðar-
og neyðaraðstoðar.
Reuters
Móðir eldar mat í heimagerðu tjaldi í Muzaffarabad.
ngur eða fjórðungur af kaup-
ng – eftir því hvernig á það væri
greiddur með hlutabréfum. „Af
iðir FL Group ekki allt kaup-
hlutabréfum?“ Jafet tók fram
þótt eðlilegt að seljendur tækju
því að þessi rekstur gengi end-
. Þeir geri það aðeins að hluta.
einnig á að forstjóri FL hefði
ð hlutafjárútboðinu væri félagið
p um margar deildir. „Þeir vita
fa iðkað þá íþrótt [knattspyrnu]
ptir máli að hafa góða vörn og
sýnist á þessu að menn séu að
ið í sóknina. Ég segi á móti:
Passið þið vörnina líka.“ Jafet sagði fjöl-
miðlaumræðu hafa truflast af því að ein-
hverjir aðilar hefðu grætt á fyrri kaupum á
tilteknu félagi. „Mér finnst það ekki skipta
nokkru máli ef þeir hafa gert góð kaup. Ég
óska þeim bara til hamingju. Ég vona að
við höfum gert enn betri viðskipti.“
Skarphéðinn Berg sagði að þessi blanda,
þ.e. að greitt væri bæði með reiðufé og
hlutafé, hefði verið niðurstaða samninga.
Þeir væru bundnir inni með hlutaféð til
loka mars 2007. „Þannig tryggðum við að
þeir gengju með okkur þessa leið. Það var
niðurstaða hluthafanna að þetta væri hæfi-
legt, að skipta þessu með þessum hætti.“
Morgunblaðið/Sverrir
márason, nýr forstjóri FL Group, gerði hluthöfum grein fyrir breytingum á
Með honum á myndinni er Skarphéðinn Berg Steinarsson stjórnarformaður.
mfangsmiklar breytingar sem verið er að gera á félaginu
við fyrirhugaða einkavæðingu
orkufyrirtækja. Sagði hann tillög-
una hafa verið kolfellda og að sjálf-
stæðismenn hefðu ekki farið dult
með áhuga sinn á einkavæðingu
Landsvirkjunar. „Einkavæðing
Orkuveitunnar yrði rökrétt fram-
hald af einkavæðingu Landsvirkj-
unar ef þau öfl sem nú ráða landinu
ná borginni á sitt vald,“ sagði Ólaf-
ur.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í
borgarstjórn sögðu flokkinn ekki
ætla að beita sér fyrir því að Orku-
veitan yrði seld. Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, sagði að engin tillaga
hefði komið frá borgarstjórnar-
flokki Sjálfstæðisflokks um að selja
Orkuveituna. Hann sagði að nánast
allir borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hefðu lýst því yfir að þeir
myndu ekki styðja slíkt.
Um þann hluta tillögu Ólafs að
borgarstjórn lýsti andstöðu við
einkavæðingu raforkufyrirtækja
sagði Steinunn Valdís að það lægi
skýrt fyrir af hálfu borgaryfirvalda
að Orkuveita Reykjavíkur ætti að
vera í sameign borgarbúa. „Alls
staðar þar sem raforkufyrirtæki
hafa verið einkavædd hefur það
komið niður á gæðum þjónustunn-
ar,“ sagði hún.
væru lítið upplýstir um það í hverju
viðræður við ríkisvaldið hefðu verið
fólgnar. „Við höfum ekki séð neinar
skýrslur. Við höfum litlar hug-
myndir um hvaða verð er verið að
tala um, höfum eingöngu heyrt
grófar tölur,“ sagði Vilhjálmur og
benti á að eðlilegt væri að ræða
þessi mál fyrst í borgarráði.
Í greinargerð vegna tillögu Ólafs
kom fram að á árunum 2001-2003
hefði hann fimm sinnum flutt tillög-
ur í borgarstjórn Reykjavíkur sem
beindust gegn þátttöku Reykjavík-
urborgar í Kárahnjúkavirkjun og
ábyrgð Reykvíkinga á lántökum
Landsvirkjunar.
„Ég tel það skyldu mína sem
kjörins fulltrúa Reykvíkinga að
reyna að koma borgarbúum undan
þessum lánaábyrgðum vegna Kára-
hnjúkavirkjunar og annarra fram-
kvæmda Landsvirkjunar,“ sagði
Ólafur á fundinum.
Orkuveitan verði
sameign borgarbúa
Hann rifjaði upp á fundinum að
hann hefði flutt tillögu á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins í október árið
2001 um að tryggja þyrfti að orku-
lindir í eigu almennings á Íslandi
kæmust ekki í hendur einkaaðila
svirkjun var rædd á fundi í borgarstjórn Reykjavíkur í gær
ð ríkið um verðmat
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
óttir borgarstjóri vill fá hærra verð fyrir eign-
dsvirkjun. Framhald málsins er óljóst.