Morgunblaðið - 31.12.2005, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
Selfoss | Hlynur Geir Hjartarson,
kylfingur hjá Golfklúbbi Selfoss, var
útnefndur íþróttamaður Árborgar á
verðlaunahátíð íþrótta- og tóm-
stundaráðs Árborgar á fimmtudags-
kvöld. Hlynur Geir náði mjög góðum
árangri á golfmótum ársins og er í
fremstu röð golfmanna landsins.
Alls voru tíu íþróttamenn tilnefnd-
ir og fengu viðurkenningu bæjar-
stjórnar. Hvatningarverðlaun ráðs-
ins fékk Íþróttafélag
Fjölbrautaskóla Suðurlands en þessi
viðurkenning er veitt því félagi eða
deild sem sýnt hefur gott starf á
árinu.
Þeir sem fengu tilnefningu til
kjörs íþróttamanns Árborgar eru
Ágústa Tryggvadóttir frjálsíþrótta-
kona, Hjalti Rúnar Oddsson sund-
maður, Hulda Sigurjónsdóttir frjáls-
íþrótta- og boccia-kona, Jóhann
Bjarnason knattspyrnumaður,
Linda Ósk Þorvaldsdóttir fimleika-
kona, Ómar Valdimarsson knatt-
spyrnumaður, Ragnar Gylfason
körfuknattleiksmaður, Sigursteinn
Sumarliðason hestamaður, og Örn
Davíðsson frjálsíþróttamaður.
Á hátíðinni voru að venju afhentir
styrkir til ýmissa verkefna félaga og
íþróttadeilda á íþrótta- og tóm-
stundasviði, samtals var úthlutað
700 þúsundum króna en fyrr á árinu
voru styrkir einnig afhentir. Knatt-
spyrnudeild Umf. Selfoss fékk styrk
vegna unglingaþjálfunar, aðalstjórn
Umf. Selfoss vegna heimasíðu, fim-
leikadeild Umf. Selfoss vegna
menntunar þjálfara, Knattspyrnu-
félag Árborgar vegna heimasíðu og
æfingasóknar utan sveitarfélagsins
og frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss
vegna grunnskólamóts og Grýlu-
pottahlaups.
Níu íþróttamenn fengu styrki úr
afreks- og styrktarsjóði ÍTÁ, Ágústa
Tryggvadóttir frjálsíþróttakona,
Bergþóra Kristín Ingvarsdóttir fim-
leikakona, Bjarni Bjarnason körfu-
knattleiksmaður, Daníel Pétursson
skíðamaður, Hlynur Geir Hjartar-
son golfmaður, Katrín Ösp Jónsdótt-
ir fimleikakona, Linda Ósk Þorvalds-
dóttir fimleikakona, Ragnar
Gylfason körfuknattleiksmaður og
Örn Davíðsson frjálsíþróttamaður.
Hlynur Geir íþrótta-
maður Árborgar
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Golf Hlynur Geir Hjartarson kylf-
ingur hefur verið útnefndur
íþróttamaður Árborgar 2005.
Keflavíkurflugvöllur | Bláa Lónið
hf. og Flugstöð Leifs Eiríkssonar
hf. hafa gert með sér samning um
rekstur verslunar með Blue Lagoon
vörur og þjónustu í flugstöðinni.
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa
lónsins, og Höskuldur Ásgeirsson,
forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar, hafa undirritað samning
þess efnis.
Bláa Lónið hefur um skeið rekið
verslun innan svæðis Íslensks
markaðar. Með stækkun og breyt-
ingum á flugstöðinni fær fyrirtækið
til umráða rúmgott svæði undir
verslunina næsta vor. Í frétta-
tilkynningu kemur fram að aukið
framboð Blue Lagoon vara og þjón-
ustu verður í boði í versluninni en
nudd og léttar spa-meðferðir eru
meðal þeirra nýjunga sem munu
standa gestum flugstöðvarinnar til
boða. Erlendis færist það í vöxt að
spa-þjónusta sé í boði í flug-
stöðvum.
Nudd og
spa-þjónusta
í Leifsstöð
Selfoss | Gunnar Egilsson pólfari
var heiðraður sem afreksmaður og
heimsmetshafi á verðlaunahátíð
íþrótta- og tómstundaráðs Árborg-
ar á fimmtudagskvöld. Þorvaldur
Guðmundsson, formaður bæj-
arráðs, afhenti Gunnari viðurkenn-
ingu og lýsti afreki hans sem ein-
stökum viðburði og dæmi um
afburða atorku og styrk.
Þorvaldur sagði að það væri ekki
á hvers manns færi að fara einbíla í
slíka ferð og hafa ekki á neinn að
treysta nema sjálfan sig. Þá væri af-
rek hans ekki síðra þegar litið væri
til þess að Gunnar hefði smíðað og
útfært breytingar á bílnum.
Arngrímur Hermannsson frá
ferðaskrifstofunni Addís og einn
aðalstuðningsmaður Gunnars í
ferðinni lýsti afreki hans og sagði
það á heimsvísu. Það væri í raun
miklu meira afrek en margir gerðu
sér grein fyrir. „Gunnar er kominn
á spjöld sögunnar, hann var fyrstur
til að aka eigin bíl á suðurpólinn,“
sagði Arngrímur. „Það hefur eng-
um mistekist fyrr en hann gefst upp
og Gunnar gefst aldrei upp,“ sagði
Arngrímur en hann og Ólafur
Ólafsson afhentu Gunnari við-
urkenningu frá stuðnings-
mannahópnum.
„Það var heimavinnan sem skipti
öllu máli. Ég er með frábæra starfs-
menn hjá mér á verkstæðinu hér á
Selfossi sem smíðuðu bílinn með
mér. Sem betur fer bilaði ekki neitt
á leiðinni og ég treysti bílnum full-
komlega, þó við hefðum ekki nema
eina klukkustund til að prófa bílinn
þegar við komum þarna suður eft-
ir,“ sagði Gunnar sem lýsti ferðinni
í stuttu máli og því sem fyrir augu
bar á suðurpólnum. Hann afhenti
bæjarstjórninni mynd sem tekin var
af honum á suðurpólnum og verður
hún hengd upp í Ráðhúsi Árborgar.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Viðurkenning Þorvaldur Guðmundsson, formaður bæjarráðs Árborgar,
afhenti Gunnari Egilssyni pólfara viðurkenningu.
Sveitarfélagið Árborg heiðrar Gunnar
Egilsson, pólfara og heimsmethafa
Heimavinnan
skipti öllu máli
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | Bæjarstjórn Árborgar hef-
ur gert samning við Sigrúnu Ólafs-
dóttur listakonu um gerð úti-
listaverks á hringtorgið á Tryggva-
torgi í miðbæ Selfoss. Sigrún sem er
uppalin á Selfossi, er með vinnustofu
í Þýskalandi þar sem hún hefur búið
í 15 ár. Hún mun strax hefja und-
irbúningsvinnu við listaverkið og
gerir ráð fyrir að vinna það næsta
sumar á Selfossi. Gert er ráð fyrir að
hugmyndir Sigrúnar að verkinu
verði kynntar á menningarhátíðinni
Vor í Árborg í maí á næsta ári.
Við undirritun samningsins kom
fram að gera má ráð fyrir að lista-
verkið verði 12 til 14 metrar á hæð,
það verði hreyfanlegt að einhverju
leyti og gert úr stáli.
Samningur
um listaverk á
Tryggvatorg
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Samið Sigrún Ólafsdóttir og Einar Njálsson bæjarstjóri með samninginn.
Keflavíkurflugvöllur | Bandaríkja-
her hefur frestað því um óákveðinn
tíma að láta flugherinn taka við
rekstri varnarstöðvarinnar á Kefla-
víkurflugvelli af Bandaríkjaflota. Yf-
irmaður varnarliðsins, Mark S.
Laughton kafteinn, hefur tilkynnt
starfsfólki þetta og jafnframt sagt að
búast megi við því að fljótlega verði
aftur farið að ráða í þær stöður sem
losnað hafa hjá varnarliðinu.
Ekki hefur verið ráðið í nokkra
tugi starfa hjá varnarliðinu vegna
þeirra breytinga á yfirstjórn sem
fyrirhugaðar voru. Búist er við að
byrjað verði að ráða í þær. Árni Sig-
fússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar,
segist hafa óttast frekari niðurskurð
hjá varnarliðinu og þessi tíðindi
bendi til þess að svo verði ekki. Hann
leggur áherslu á að ekki megi oftúlka
þessi orð kafteinsins. „En þetta gef-
ur okkur betri tíma til að vinna að at-
vinnuuppbyggingu á svæðinu með
öðrum hætti en að vera háð ákvörð-
unum stjórnvalda í Bandaríkjunum
um starfsemi á okkar svæði,“ segir
Árni.
Búist við að starfs-
fólki fjölgi aftur
ÚTFÖR séra Ólafs Odds Jónssonar
var gerð frá Keflavíkurkirkju í gær.
Séra Sigfús B. Ingvason og dr. Ein-
ar Sigurbjörnsson jarðsungu. Jarð-
sett var í Gufuneskirkjugarði. Fjöl-
menni var við útförina og margir úr
prestastétt, ásamt biskupum. Lík-
menn voru Halldór Leví Björnsson,
Elías Guðmundsson, Jón Þorsteins-
son, Baldur Rafn Sigurðsson, Páll
Skúlason, Vilhjálmur Árnason,
Kristján Valur Ingólfsson og Hjalti
Hugason. Kór Keflavíkurkirkju
söng og Bylgja Dís Gunnarsdóttir
söng einsöng.
Útför séra Ólafs Odds Jónssonar