Fréttablaðið - 12.09.2002, Page 11
FIMMTUDAGUR 12. september 2002
HÚSNÆÐISMÁL Ríkissjóður og
sveitarfélög við Djúp hyggjast
kaupa íverustað fyrir Ólínu Þor-
varðardóttur, skólameistara
Menntaskólans á Ísafirði og
fjölskyldu hennar. Ríkið auglýs-
ir nú að sögn Bæjarins Besta,
eftir kaupum á einbýlishúsi á
Ísafirði, sem á að vera um 200
fermetrar að stærð, að meðtöld-
um bílskúr.
Óvenjuskammur frestur er gef-
inn til svars, örfáir dagar, enda
þarf að rýma núverandi leigu-
húsnæði skólameistara á næstu
dögum.
Bæjarstjórn Ísafjarðar hefur
samþykkt að leggja í púkkið
með ríkissjóði og er búist við að
Bolungarvíkurkaupstaður og
Súðavíkurhreppur geri það líka.
Hlutur ríkisins í kaupunum
verður þá 60% en sveitarfélag-
anna þriggja við Djúp 40% sam-
kvæmt samningi sem gerður
var 1991.
Menntaskólinn á Ísafirði:
Kaupa bústað
undir meistara
SVEITARSTJÓRNIR Skuldir vegna vík-
ingaskipsins Íslendings voru 63,3
milljónir króna í júní. Eftir sam-
inga við lánastofnana, kröfuhafa
og flutningsaðila tókst að lækka
þessa tölu niður í 42,8 milljónir
króna, eða um þriðjung. Þetta
kemur fram í svari Árna Sigfús-
sonar, bæjarstjóra í Reykjanes-
bæ, við fyrirspurn í bæjarstjórn.
Inni í heildartölunni voru með-
al annars lán hjá fjármálastofnun-
um, viðskiptakröfur, opinber
gjöld og greiðsla til Gunnars Mar-
els Eggertssonar skipasmiðs auk
kostnaðar vegna vinnu við „frum-
gerð á staðsetningu skipsins og
fyrirhuguðu víkingaþorpi.“
Reykjanesbær mun leggja allt
að 7 milljónir króna til stofnkostn-
aðarins og eiga fimmtung í félagi
um skipið. Með framlögum fyrir-
tækja og ríkis á næstu tveimur
árum verða heildarframlög 43
milljónir.
Árni segir að með samstarfi
við mörg fyrirtæki sé fyrsta
rekstrarár fjármagnað. Það muni
kosta 7 milljónir króna. Tekjur
verði 8 milljónir króna.
Frá 1. september 2003 tekur
Reykjanesbær við greiðslu
rekstrarkostnaðar. Þá segir Árni
að gert sé ráð fyrir að kominn
verði á samningur við áðurnefnt
víkingaþorp um leigu á skipinu.
Árni segir þorpið, sem rísa á við
Fitjar í Njarðvík, eiga að skila
Reykjanesbæ 300 krónum á hvern
gest.
Skuldir víkingaskipsins voru lækkaðar í 43 milljónir:
Íslendingur fékk
þriðjungs afslátt
Thymematernity
Verslun fyrir barnshafandi konur
Hlíðasmára 17 S:575-4500
Sendum í póstkröfu um allt land.
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 11-18
Laugardaga frá kl: 11-16
Thymematernity 1 árs!
Af því tilefni verðum við með ýmis
afmælistilboð dagana 11. til 14. september.
Kynnum nýja línu... Super Fit
Vorum að fá frábærar buxur
fyrir YOGA og leikfimi.
Erum að taka upp nýjar vörur í hverri viku
Starfsfólk Thyme þakkar hlýjar
og góðar móttökur.