Fréttablaðið - 12.09.2002, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 12. september 2002
• Framkoma og líkamsburður
• Innsýn í fyrirsætustörf
• Förðun
• Umhirða húðar og hárs
• Undirbúningur fyrir myndatöku
• Myndataka (16 sv/hv myndir)
• Tískusýningaganga
• Fíkniefnafræðsla frá Götusmiðjunni
• Myndbandsupptökur
• Leikræn tjáning
Sex vikna námskeið hefjast 16. og 18. september.
Kennt verður einu sinni í viku, einn og hálfan tíma í senn.
Umsjónarmaður námskeiðsins er Kolbrún Pálína Helgadóttir,
Ungfrú Island.is 2001, auk frábærra gestakennara.
Námskeiðinu lýkur með stórri tískusýningu í Kringlunni. Stúlkurnar
verða farðaðar af nemendum förðunarskóla NO NAME.
Allir þátttakendur fá Eskimo bol, viðurkenningarskjal, 16 sv/hv
myndir, lyklakippu og kynningarmöppu.
Verð 14.900 kr.
Skráning er hafin í síma 533-4646 og
á vefsíðunni www.eskimo.is.
ELDSVOÐI Eldur, sem kom upp í Walt
Disney-kvikmyndaverinu í
Burbank í Kaliforníu í gær, olli
miklum skemmdum á sviðsmynd
sem hafði verið byggð fyrir nýj-
ustu mynd Jonny Depp, Pirates Of
The Caribbean. Tjónið er talið
nema um 350 þúsund dölum. Eng-
inn slasaðist í eldsvoðanum og
upptök eru enn ókunn. Nærliggj-
andi byggingar voru tæmdar
vegna útbúnaðar í verinu sem er
ætlaður til að framleiða froðu, en
eiturgufur geta myndast í froð-
unni við eldsvoða. Talsmaður
kvikmyndaraversins sagðist ekki
vita hvort framleiðsla myndarinn-
ar tefðist vegna brunans. „Við
höldum okkur við þá áætlun að
myndin verði tilbúin sumarið
2003 þar til annað kemur í ljós,“
sagði hann.
Walt Disney-
kvikmyndaverið:
Sviðsmynd
skemmdist
í eldi
VILLTA VESTRIÐ Í
DISNEY-KVIKMYNDAVERINU
Sviðsmynd væntanlegrar kvikmyndar
Jonny Depp í kvikmyndaverinu eyðilagðist
í eldi í gær.
FJÁRSJÓÐUR Átta segulbandsspólur
með upptökum úr Top of The Pops-
þáttunum á BBC á sjöunda ára-
tugnum, hafa nú komið í leitirnar.
Sjónvarpsstöðin átti aðeins fjórar
upptökur frá þessum árum þar
sem ekki var farið að geyma þætt-
ina á spólum fyrr en árið 1977. Á
spólunum átta eru meðal annars
stjörnur á borð við Slade, Bay City
Rollers, Bryan Ferry og Suzi Qu-
atro. Gæðin á spólunum þykja
ótrúleg þrátt fyrir að upptökur
hafi verið gerðar með „gömlu að-
ferðinni“, þ. e. að stilla segulbands-
tækinu upp fyrir framan sjónvarp-
ið og taka upp. Framleiðandi þátt-
anna, Edwars Russell, er himinlif-
andi. „Það er sannarlega dapurlegt
að ekki skuli vera til fleiri upptök-
ur frá upphafsárum Top of the
Pops, en á þessum tíma var fortíð-
arhyggja óþekkt fyrirbæri og spól-
ur voru þar að auki dýrar. Ég er
samt viss um að fullt af fólki á í
fórum sínum gamlar upptökur úr
þáttunum og hvet það fólk til að
láta í sér heyra.“
Top of the Pops á sjöunda áratugnum:
Gamlar upp-
tökur komnar
í leitirnar
GOTT - EÐA HVAÐ?
Bretar eru hrifnir af bökuðum baunum,
en þær falla ekki endilega flóttamönnum
í geð.
Gjafir til flóttamanna:
Ekki meira
af bökuðum
baunum,
takk!
ENGLAND Biskupsdæmið í
Gloucester í Englandi hefur
bannað sóknarbörnum sínum að
gefa bakaðar baunir á árlega
haustuppskeruhátíð sem haldin
er í héraðinu. Gjafir, sem sókn-
arbörnin gefa á hátíðina, eru
sendar flóttamönnum sem bíða
landvistarleyfis í Bretlandi, en
flóttamönnum þykja bakaðar
baunir vondar og því hrúgast
baunadósirnar upp í stóra stafla,
engum til gagns eða gleði. Bann-
ið var sent 400 kirkjum í bisk-
upsdæminu og fólk vinsamleg-
ast beðið að nota ímyndunaraflið
í ár til að gefa eitthvað sem fell-
ur betur að smekk innflytjend-
anna, eins og til dæmis gulrætur
í dós, baunir og kjöt ásamt hrís-
grjónum og pasta. Undanfarin
átta ár hefur þriðjungar allra
gjafa á hátíðinni verið bakaðar
baunir í dós.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI