Fréttablaðið - 12.09.2002, Side 22
22 12. september 2002 FIMMTUDAGUR
HVAR?
Út að borða á
afmælisdeginum
Lúkas Kostic, knattspyrnuþjálfari, heldur upp á 44 ára afmæli sitt í dag.
Hann stefnir á háskólanám í framtíðinni og þjálfun tveggja sona sinna.
AFMÆLI
Það er nú heldur orðum aukið,“segir Jónas Bragi Jónsson,
glerlistamaður, þegar hann er
spurður hvort það sé rétt að for-
setinn kaupi af honum allar gjafir
handa erlendum gestum. En hann
viðurkennir að Elton John hafi
keypt af honum tvö listaverk. „Já,
hann keypti verðlaunaverkið mitt,
Öldur, handa sjálfum sér og annað
handa vini sínum.“ Jónas segir
vissulega heiður að því að forset-
inn og erlend stórstirni kaupi
verkin hans. „Ég ber þó ekkert
meiri virðingu fyrir Elton John en
Jóni Jónssyni, mér þykir bara
vænt um það þegar menn kunna
að meta það sem ég er að gera.“
Jónas Bragi segist hafa byrjað
að fikta við glerlist ungur að árum
og fyrsta verkið hafi hann gert 13
ára gamall. „Pabbi var listamaður
og bróðir minn, sem lærði vinnslu
í gler, kenndi pabba. Svo um leið
og þeir tóku pásur hljóp ég í
græjurnar.“
Jónas lærði svo í skúlptúrdeild
Myndlista- og handíðaskólans og
hélt þaðan í Listaháskóla Edin-
borgar, þar sem hann einbeitti sér
að glerinu. Það sem heillar Jónas
Braga við glerlistina er hvað
möguleikarnir eru miklir. „Það
eru svo mörg element í glerinu og
ekki hægt að vinna jafn mikið í
neinu öðru efni . Marmari til
dæmis er ekkert nema yfirborðið,
en glerið er heill heimur innaní.“
Jónas segir líf hans og eigin-
konunnar, Catherine, sem er frá
Englandi, snúast um börnin tvö,
fimm og átta ára, og myndlistina.
„Áhugamálin tengjast klassískri
tónlist, arkitektúr og náttúru.“
Hann segist þó ekki beint sækja
efnivið í náttúruna heldur reyna að
fanga andann í náttúrunni. „Gott
veður, blóm, fuglar og börn að leik,
það er fegurð,“ segir hann.
Jónas Bragi Jónsson glerlistamaður
opnar sýningu í Listasafni Kópa-
vogs, Gerðarsafni, á laugardag.
PersónanBer ekkert meiri virðingu fyrir
Elton John en Jóni Jónssyni
FÓLK Í FRÉTTUM
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að álpapp-
írinn sem Jón Sigurðsson var pakkaður inn
í var ekki frá Alcoa.
Leiðrétting
MORGUNGANGA Friður og fegurð hvíldi yfir Seltjarnarnesinu í gærmorgun þegar þessi hjón nutu veðurblíðunnar á morgungöngu.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
Hafnfirðingur, Garðbæingurog Reykvíkingur unnu við að
reisa verslunarmiðstöðina Fjörð í
Hafnarfirði. Í kaffinu settust þeir
alltaf á þakskeggið og borðuðu
nestið sitt. Á hverjum degi kom
það sama upp úr boxunum. Einn
daginn segjast þeir ætla að stökk-
va fram af þakinu ef brauðið
verði einu sinni enn með sama
álegginu.
Daginn eftir opna þeir boxin
og í ljós kemur nákvæmlega
sama nestið. Þeir stukku því allir
fram af og dóu.
Við sameiginlega jarðarför
þeirra tóku konur þeirra tal sam-
an. „Ég hefði breytt um álegg ef
hann hefði bara látið mig vita,“
sagði kona Reykvíkingsins og
kona Garðbæingsins tók undir. Þá
sagði kona Hafnfirðingsins: „Ég
skil ekkert í þessu því hann
smurði alltaf nestið sjálfur.“
Ég er kílói þyngri en þegar éghætti að spila og mér líður
mjög vel líkamlega, enda slapp ég
við alvarleg meiðsli í fótboltan-
um,“ segir Lúkas Kostic, þjálfari
meistaraflokks Víkings í knatt-
spyrnu, sem er 44 ára í dag.
Aðspurður hvernig hann ætli
að halda upp á afmælið segir Lúk-
as að hann ætli að fara út að borða.
„Ég held alltaf upp á afmælið.
Þetta er sérstakur dagur í lífi allra
og það er gaman að eyða deginum
með góðum vinum,“ segir Lúkas.
Lúkas hefur starfað hjá Húsa-
smiðjunni í sumar þar sem nóg
hefur verið að gera. Hann stefnir
að námi í markaðsútflutningi í Há-
skóla Íslands og segist hlakka
mikið til. „Þegar ég var atvinnu-
maður í knattspyrnu var það alltaf
mín heitasta ósk að klára háskól-
ann,“ segir Lúkas, sem lauk námi
við Viðskipta- og tölvuskólann í
fyrra þar sem honum gekk prýði-
lega.
Lúkas var alkominn til Íslands
árið 1991 þegar hann fluttist frá
Júgóslavíu til Akraness með fjöl-
skyldu sína. Þar gerði hann garð-
inn frægan með Skagamönnum til
ársins 1993.
Lúkas segir það vera mjög gef-
andi að þjálfa. Hann viðurkennir
þó að fyrir nokkru síðan hafi hann
verið orðinn frekar þreyttur á
starfinu. „Ég hef þroskast og er
orðinn mun rólegri en áður,“ segir
hann. Lúkas hefur eignast marga
vini á Íslandi í gegnum fótboltann
og það er honum mikils virði. „Það
er alltaf jafngaman að hitta þessa
stráka og ég lít á þá eins og hluta
af fjölskyldunni.“
Lúkas ætlar að leggja áherslu á
þjálfun strákanna sinna tveggja,
þeirra Igors og Alexanders, í
framtíðinni. Fyrst mun hann ein-
beita sér að þjálfun Igors, sem
hefur þegar stigið sín fyrstu spor
sem varamarkvörður hjá Víkingi
undir stjórn föður síns. Því næst
kemur röðin að hinum 10 ára
gamla Alexander sem ku vera
mikill markakóngur. „Igor hefur
gefið mér orku til að halda áfram
að standa mig vel og það er yndis-
legt að hafa hann í kringum mig,“
segir Lúkas.
freyr@frettabladid.is
LÚKAS
Lúkas (til hægri) ásamt góðvini sínum, Ingó, fyrir utan Víkingsheimilið skömmu fyrir æf-
ingu. Lúkas ætlar að gera afmælisdaginn að dekurdegi og vinna jafnvel fram að hádegi
og fara síðan í nudd.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
SAGA DAGSINS
12. SEPTEMBER
TÍMAMÓT
Sjúkrasamlag Reykjavíkur varstofnað að frumkvæði Odfell-
ow-reglunnar árið 1909. Þetta var
fyrsta sjúkrasamlagið.
Tveir Bandaríkjamenn lentuloftbelg sínum í mynni Ísa-
fjarðardjúps árið 1977. Þeir voru
að reyna að komast fyrstir frá
Bandaríkjunum til meginlands
Evrópu á loftbelg, en höfðu hrak-
ist af leið.
Fallhlífarstökkvarar frá Akur-eyri settu Íslandmet í greininni
þegar þeir stukku úr 21.000 feta
hæð árið 1985. Frost var 30 gráður
á celsíus og þeir féllu í tvær mín-
útur á 220 kílómetra hraða áður en
fallhlífarnar voru opnaðar.
Bandaríska geimskipið MarsGlobal Surveyor komst á spor-
braut umhverfis Mars árið 1997.
JARÐARFARIR
13.30 Dagmar S. Dahlmann, Hringbraut 50,
verður jarðsungin frá Fossvog-
skapellu.
13.30 Magnús K. Jónsson, byggingameist-
ari, Ásholti 2, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Áskirkju.
13.30 Sigríður Bjarnadóttir, Hvassaleiti 58,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Grensáskirkju.
AFMÆLI
Fjölmiðlamaðurinn Jón Hákon Magnús-
son er 61 árs.
Luca Lúkas Kostic knattspyrnuþjálfari er 44
ára.
ANDLÁT
Guðmundur H. Þorbjörnsson, húsgagna-
bólstrari, Hlíðarhúsum 3, lést 9. sept-
ember.
Gunnleif Þórunn Bárðardóttir lést 9. sept-
ember.
Ásmundur Jón Pálsson, Laufskálum 5,
Hellu, lést 8. september.
Patricia Ingham, Rossendale, Englandi, lést
8. september.
Gunnar R. Bjarnason, leikmyndateiknari,
lést 7. september.
JÓNAS BRAGI
Segir lífið snúast um fjölskylduna
og listina.
Björn Grétar Sveinsson lét afstarfi formanns í Verka-
mannasambandi Íslands fyrir
tveimur árum í kjölfar harðra
átaka í sambandinu. Björn er
menntaður sem húsasmiður og
starfar nú hjá Verkfræðistofunni
Verkvangi. Hann segist ánægður í
nýja starfinu. Hann sakni þó engu
að síður verkalýðshreyfingarinn-
ar.
„Það var sjálfgefið að ég færi
til annarra starfa miðað við
ósköpin sem gengu á hjá félögum
mínum í verkalýðshreyfingunni.
Ég starfa nú hjá verkfræðistofu
sem hefur sérhæft sig í undirbún-
ingi og eftirliti með viðgerðum á
eldra húsnæði auk viðhaldsvörslu
húsa,“ segir Björn.
Björn saknar hringiðu verka-
lýðsmálanna: „Það verð ég að
segja alveg eins og er. Ég fór nú
langt frá því út úr þessu sáttur og
á örugglega eftir að fara betur
yfir það við tækifæri. Mér finnst
að fólk eigi það inni hjá mér. Það
sluppu ýmsir full frjálslega frá
þessari sögu og hafa jafnvel þegið
krossa fyrir.“
Björn útilokar ekki frekari af-
skipti af verkalýðsmálum: „Það
hefur verið mín skoðun að það
vanti róttækari krafta inni í
hreyfinga. Þörfin er örugglega
ekki minni nú en áður.“
Aðstandendur Kreml.is eru ekkimeðal vinsælustu manna í
Samfylkingunni um þessar mund-
ir. Þreifingar munu hafa átt sér
stað í allt sumar við Ingibjörgu
Sólrúnu borgarstjóra um að koma
til liðs við flokk-
inn í þingkosning-
um í vor. Skoðana-
könnun Kreml-
verja kom hins
vegar bæði borg-
arstjóra og flokks-
forystunni á óvart
og sprengdi málið
fram. Telja menn í flokknum það
alvarlegan fingurbrjót hjá
Kreml.is að láta ekki borgarstjóra
vita af könnuninni svo hún gæti
haft varann á sér og undirbúið
samstarfsflokkana í borgarstjórn.
Þeir urðu fyrir vikið æfir, og hót-
un Steingríms J. Sigfússonar um
að Ingibjörg Sólrún missti borgar-
stjórastólinn ef hún hellti sér í
slaginn í landsmálunum er talin
hafa haft úrslitaáhrif á ákvörðun
hennar.
Hörkuslagur er framundan íprófkjöri Samfylkingarinnar í
suðvesturkjördæminu. Hafnfirð-
ingar eru sigurvissir og telja ein-
sýnt að Guðmund-
ur Árni Stefáns-
son vinni góðan
sigur á Rannveigu
Guðmundsdóttur.
Kannanir benda
til að flokkurinn
geti átt von á fjór-
um mönnum í
kjördæminu. Gaflarar íhuga því
að senda annan mann fram í próf-
kjörið með Guðmundi Árna og ná
fjórða sætinu, þannig að Hafnar-
fjörður eigi tvo þingmenn. Helst
er rætt um Gunnar Svavarsson,
bæjarfulltrúa, sem ásamt Lúðvík
Geirssyni var heilinn á bak við
stórsigur Samfylkingarinnar í
Hafnarfirði. Þá eru ungir jafnað-
armenn í Hafnarfirði komnir í
mikla baráttu fyrir Katrínu Júlíus-
dóttur, kornunga konu út atvinnu-
lífinu, sem talin er njóta eindreg-
ins stuðnings flokksforystunnar
bæði í kjördæminu og á landsvísu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI