Fréttablaðið - 12.09.2002, Blaðsíða 24
Af einskærri tilviljun keypti éghjól í sumar. Þegar ég var búin
að eignast hjólið var auðvitað ekki
annað að gera en að nota það líka,
annars hefði verið um hreina offjár-
festingu að ræða þrátt fyrir að hjól-
ið væri keypt notað og á góðu verði.
Í fyrstu nýtti ég gripinn í sérstakar
hjólreiðaferðir á kvöldin og um
helgar, hjólaði einhvern hring eða
fram og tilbaka á stígnum fína sem
er umhverfis borgina. Þetta var svo
sem ágætt en á sama hátt og mér
hefur alltaf þótt hálfasnalegt að
hlaupa ef ég er ekki að flýta mér
eða að missa af strætó þá þóttu mér
þessar stöðugu hjólreiðaferðir svo-
lítið skrítnar.
ÞAÐ LÁ ÞVÍ BEINT VIÐ að nýta
frekar hjólið til að komast á milli
staða, til dæmis að heiman og í
vinnuna sem líklega er mín algeng-
asta ferð milli staða. Í fyrstu fannst
mér þetta nokkuð djarft þar sem
eru nokkrir kílómetrar milli þessara
staða - ekki þó fjarskalega margir -
og ég hafði varla á hjól komið árum
saman. Í ljós kom að kílómetrarnir
lágu furðufljótt að baki á hjólinu.
Fyrsta daginn var leiðin lengst, ann-
an daginn heldur styttri og þannig
koll af kolli. Núna er ég helst á því
að annað hvort ég eða vinnustaður-
inn verði að flytja þannig að hjóla-
ferðin kvölds og morgna geti orðið
lengri.
Á HJÓLINU er leiðin í og úr vinnu
aldrei eins því það er ástæðulaust
að hjóla alltaf sömu leiðina. Auk
þess er veðrið mismunandi, bæði
milli ferða og jafnvel í sömu ferð.
Um daginn rigndi til dæmis þrisvar
á leiðinni að heiman og í vinnuna.
Svo hittir maður fólk á leiðinni,
stoppar jafnvel smá stund og spjall-
ar. Jákvæðar aukaverkanir eru svo
meiri styrkur, aukið þol og betri
nætursvefn. Er hægt að biðja um
meira?
OFT HEF ÉG REYNT að taka
mig taki og hefja líkamsrækt með
misgóðum árangri og stundum eng-
um. Ég ákvað eiginlega aldrei að
eignast reiðhjólið góða heldur er
eins og forsjónin hafi tekið í tau-
mana og sent mér þennan grip,
hugsanlega vegna þess að ég var
allsendis ófær um að taka meðvit-
aða ákvörðun um að bæta líðan
mína með hreyfingu. Kannski er
þetta meira og minna svona, það
besta sem kemur fyrir mann gerist
óvart.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
Steinunnar Stefánsdóttur
Flott föt á skemmtilegu
verði
1.499kr 2.999kr
2.999kr 3.999kr
2.499kr
1.499kr
Síð hettu-
peysa
ein stærð
Bolur
Stærð S-L
Stretch flauels-
buxur
Stærð 10-16
Heklað-
vesti
ein stærð
Rúllukraga-
bolur
Stærð S-XL
Buxur
Stærð 10-20
Tilboðin gilda 12.-15. sept
eða meðan birgðir endast.
4.999kr
Dömu skór
Stærð 36-41
Dömu skór
Stærð 36-41
3.999kr
Dömu skór
Stærð 36-40
4.499kr
Á fáki fráum -
alveg óvart