Fréttablaðið - 24.09.2002, Page 2
2 24. september 2002 ÞRIÐJUDAGURVIÐSKIPTI
ERLENT
LÖGREGLUFRÉTTIR
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórn-arformaður Baugs, hefur sagt
sig úr bankaráði Íslandsbanka. Til-
kynning þessa efnis barst Kaup-
höll Íslands í gær. Félög tengd Jóni
Ásgeiri eiga ekki lengur hlut í
bankanum.
Vaxtaákvörðun SeðlabankaBandaríkjanna liggur fyrir í
dag. Markaðsaðilar gera ekki ráð
fyrir að breytingar verði á stýri-
vöxtum að þessu sinni. Flestir eru
þó á því að bankinn muni lækka
vexti fyrir áramót.
Þýska hlutabréfavísitalan DAXféll í gær í kjölfar kosningaúr-
slitanna í Þýskalandi um tæp 5%.
Hefðbundið er að vísitala lækki við
sigur vinstriflokka en hækki við
sigur hægriflokka. Talið er að
erfitt verði að ná tökum á efna-
hagslífinu með veikan meirihluta.
MIÐBÆRINN Byggingafélagið Leiguí-
búðir ehf. hefur hafið byggingu á
þriggja hæða íbúðablokk á Njáls-
götunni og stefnir að því að hefja
útleigu á íbúðunum 1. apríl næst-
komandi. Kveður þarna við nýjan
tón á fasteignamarkaðnum en fyr-
irtækið hyggst byggja fleiri slík
hús til útleigu á næstunni.
Byggingarverktakar geta nú
fengið 90-100 prósent lán úr Íbúða-
lánasjóði til bygginga leiguíbúða en
eru á móti skuldbundnir til að
leigja íbúðirnar til frambúðar en
ekki selja nema þá að endurgreiða
lánið. Á Njálsgötunni verða tvegg-
ja, þriggja og fjögurra herbergja
íbúðir og með byggingu þeirra telja
forsvarsmenn Leiguíbúða ehf. sig
vera að svara kröfum markaðarins.
Fyrirhugað leiguverð er 55-75 þús-
und krónur á mánuði og verður þá
allt innifalið; svo sem hiti og raf-
magn. Undir fjölbýlishúsinu verður
bílageymsla fyrir leigjendur. Arki-
tektar hússins eru þeir Pálmi Guð-
mundsson og Sigurður Kolbeins-
son.
HÚSIÐ RÍS
Kröfum markaðarins svarað með byggingu
leiguíbúða við Njálsgötu.
Róið á ný mið á fasteignamarkaðnum:
Byggja leiguíbúðir við Njálsgötu Tvítugur maður var tekinn aflífi í Kína á föstudaginn fyrir
að hafa myrt tvo bekkjarfélaga
sína með rottueitri. Sjö aðrir
nemendur urðu einnig fyrir eitr-
un, en sluppu lifandi.
Júgóslavneski herinn sendir núhluta hermanna heim til sín
um helgar til þess að spara mat.
Mjög hefur gengið á matarforða
hersins. Yfirstjórn hans er hætt
að lítast á blikuna nú þegar vetur
er að ganga í garð.
Norður-Kórea er byrjuð aðgera tilraunir með kapítal-
isma að kínverskri fyrirmynd.
Kínverskur sérfræðingur var
fenginn til verksins og fær að at-
hafna sig á afmörkuðu svæði.
UMFERÐIN Í REYKJAVÍK
Drög að umferðaröryggisáætlun verður
gerð aðgengileg fyrir borgarbúa ásamt
þeim stofnunum og félagasamtökum sem
láta sig umferðarmál varða.
Umferðaröryggisáætlun
2002-2007:
Sérstök
áhersla á ör-
yggi barna
UMFERÐ Börn og ungmenni undir
17 ára aldri eru um 20% þeirra
sem látast í umferðinni hérlendis.
Á Norðurlöndum er hlutfallið
10%. Kjartan Magnússon, for-
maður nefndar um umferðarör-
yggisáætlun næstu fimm ára, seg-
ir að sérstök áhersla verði lögð á
aukið öryggi barna og gripið til
sérstakra aðgerða í því skyni.
Nefndin leggi til að ráðist verði í
sérstakar rannsóknir á orsökum
slysa gagnvart börnum og ung-
mennum.
Kjartan sagði að tekist hefði að
fækka umferðarslysum um 20% á
árum fyrri umferðaröryggisáætl-
unar. Kjartan segir að nú verði
stefnt að því að fækka umtalsvert
alvarlegum slysum og dauðaslys-
um auk minniháttar slysa. Reykja-
víkurborg ætli að verja samtals
um 1.000 milljónum króna á næstu
fimm árum í verkefni sem hafi
aukið umferðaröryggi í för með
sér. Unnið verði að því að draga úr
hraða í íbúðarhverfum, öryggi
gangandi vegfarenda verði aukið,
hönnun göngu- og hjólreiðastíga
bætt, öruggar gönguleiðir barna
skilgreindar og ferðamöguleikar
fatlaðra auknir.
Margar kvartanir bárustHafnarfjarðarlögreglu um
að ungmenni færu um í Garðabæ
með svokallaðar „paintball“-byss-
ur. Skutu þeir málningarkúlum úr
byssunni á hús og bíla. Málið er í
rannsókn og eru allar upplýsing-
ar þegnar.
Ellefu umferðaróhöpp urðu íHafnarfirði um helgina. Þá
var ekið á gangandi vegfaranda
við Flensborgarhöfn á laugar-
dagsmorgun. Reyndist hann ekki
alvarlega slasaður. Fimm öku-
menn voru kærðir vegna gruns
um ölvun við akstur.
Landhelgisgæslunni barst til-kynning um níuleytið í fyrra-
kvöld um litháenskan karlmann
um borð í togara sem fengið
hefði botnlangakast. Togarinn var
þá staddur 250 sjómílur suður af
Grænlandi sem er 160 sjómílum
fyrir utan leitarsvæði Landhelg-
isgæslunnar. Var því gripið til
þess ráðs að gera landhelgis-
gæslu í Halifax í Kanada viðvart.
HAUSTBLÍÐA
Gott veður nokkra daga í viðbót.
Gott veður fram á
fimmtudag:
Haustið
kemur á
föstudaginn
VEÐUR Haustblíðan sem leikið hef-
ur við landsmenn að undanförnu
heldur áfram; allt fram á fimmtu-
dag. Þakka má heitum loftstraum-
um sem ættaðir eru frá Evrópu og
blandast öðrum og jafnvel heitari
sem upptök sín eiga langt suður í
höfum:
„Þó verið hafi hlýtt og gott þá
hefur þetta haustveður ekki sleg-
ið nein met. En það styttist í að
hann fari að snúa sér til norðlægr-
ar áttar og þá kólnar verulega.
Ætli megi ekki segja sem svo að
haustið komi á föstudaginn,“ segir
Sigurður Þ. Ragnarsson veður-
fréttamaður sem lofar tveggja
stafa hitatölum þangað til. „Það
verður 10-15 stiga hiti í nokkra
daga í viðbót,“ segir hann.
Vátryggingafélag Íslands:
Nýr forstjóri
kynntur í dag
VIÐSKIPTI Ekki var tilkynnt um
ráðningu Finns Ingólfssonar í
starf forstjóra Vátryggingafélags
Íslands í gærkvöldi. Búist hafði
verið við því að hann yrði kynntur
sem eftirmaður Axels Gíslasonar
í stóli forstjóra að afloknum fundi
stjórnar VÍS sem fram fór í gær.
Ekkert varð þó af því.
Annar fundur í stjórn VÍS hef-
ur verið boðaður í dag. Við því er
búist að gengið verði endanlega
frá ráðningu nýs forstjóra og gef-
in út tilkynning um annan for-
stjórann í sögu VÍS.
Hundrað grömm af hassi ogeitt hundrað e-töflur fundust
í fórum tveggja manna. Mennirn-
ir höfðu verið stöðvaðir af Hafn-
arfjarðarlögreglu við almennt
eftirlit. Í framhaldi af því vakn-
aði upp grunur um fíkniefnamis-
ferli. Piltarnir, sem eru á tvítugs-
aldri, könnuðust við að eiga efnin
og að þau hafi verið ætluð til
sölu. Þeim var sleppt að lokinni
yfirheyrslu.
ERLENT
LÖGREGLUFRÉTTIR
Einn lést þegar handsprengjasprakk inni í bíl skammt frá
húsi sem tilheyrir bandaríska
sendiráðinu í Jakarta í Indónesíu.
Fjórir menn voru inni í bílnum
þegar sprengjan sprakk. Einn
þeirra var handsamaður af lög-
reglu.
MENNTAMÁL „Ég er mjög sáttur við
þennan samning.,“ segir Lúðvík
Geirsson, bæjarstjóri í Hafnar-
firði, um samkomulag bæjarins
við Íslensku menntasamtökin um
yfirtöku á rekstri Áslandsskóla.
„Það er gripið inn í þetta mál við
aðstæður þar sem bæjaryfirvöld
áttu ekki annarra kosta völ. Það
var ljóst að það yrði ekki gengið
frá þessu nema með samkomulagi
eða með því að fara fyrir dóm-
stóla. Þrátt fyrir ýmsar yfirlýs-
ingar undanfarna daga voru allir
reiðubúnir að ná samkomulagi.“
Hann segist þess fullviss að valin
hafi verið sú leið sem sé best fyr-
ir þau börn sem stunda nám við
skólann.
Samkvæmt samkomulaginu yf-
irtekur Hafnarfjarðarbær starfs-
samninga og búnað sem Íslensku
menntasamtökin hafa keypt eða
verið með á kaupleigu. Þá fá Ís-
lensku menntasamtökin greitt
fyrir stofnframlag við að koma
skólastarfinu af stað. Áslands-
skóli verður hér eftir rekinn með
sama hætti og aðrir grunnskólar í
Hafnarfirði.
ÁSLANDSSKÓLI
Deilum um skólann virðist lokið með samkomulagi um að Hafnarfjarðarbær yfirtaki rekst-
ur hans.
Hafnarfjarðarbær yfirtekur rekstur Áslandsskóla:
Besta leiðin fyrir börnin í skólanum
SKIPULAGSMÁL Fulltrúar Sjálfstæð-
isflokks í skipulags- og bygging-
arnefnd Reykjavíkur vilja fá álit
borgarlögmanns á þeirri lagalegu
stöðu sem upp sé komin vegna
þess að umdeilt fjölbýlishús við
Suðurhlíð 38 verði 1,7 metrum
hærra en íbúum í hverfinu var
sýnt á skýringarmynd.
Skipulagsnefndin hefur sam-
þykkt tillögu sjálfstæðismanna
þessa efnis. „Í því áliti þyrfti að
huga sérstaklega að því hver sé
ábyrgð eftirlitsaðila, hver sé rétt-
ur íbúa og hvaða skylda hvíli á
borgaryfirvöldum gagnvart ná-
grönnum hússins,“ segir í tillög-
unni.
„Við hörmum auðvitað mjög að
þetta hafi gerst og erum ekki á
nokkurn hátt að reyna að afsaka
það,“ segir Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir, formaður skipulags- og
byggingarnefndar. „Þetta eru ein-
faldlega mistök sem geta gerst og
það bera allir einhverja sök. Aðal-
atriðið er að átta sig á því hvort
þetta muni breyta miklu fyrir
næstu nágranna eða ekki,“ bætir
hún við.
Guðlaugur Þór Þórðarson, sem
á sæti í skipulagsnefndinni fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, segir að brot-
ið hafi verið gróflega á íbúum
hverfisins. „Þeir eru að vakna upp
við það núna að byggingin stendur
nærri tveimur metrum hærra en
kynnt var fyrir þeim,“ segir hann.
Fulltrúar R-listans í skipulags-
nefndinni leggja áherslu á að sam-
kvæmt deiliskipulagi megi húsið
vera 12 metrar á hæð. Reyndin sé
sú að húsið verði 12,08 metrar.
Húsið sé á allan hátt stillt þannig
af að það falli sem best að landi.
Sjálfstæðismenn í nefndinni
segja það aðalatriði málsins að
húsið hækki um tæpa 2 metra í
landi frá því sem íbúum var
kynnt: „Sú staðreynd krefst sér-
stakrar skoðunar, enda óásættan-
legt að íbúar geti ekki treyst þeim
gögnum sem skipulagsyfirvöld
leggja fram.“
Í minnisblaði skipulags- og
byggingarsviðs vegna þessa máls
segir að höfundar deiliskipulags-
ins hafi gert mistök sem embættið
hafi ekki tekið eftir. „Þetta er auð-
vitað mjög slæmt og hefur gefið
þeim sem kynntu sér tillöguna á
kynningartíma hennar sem og
embættinu ranga mynda af hæð
hússins,“ segir í minnisblaðinu.
gar@frettabladid.is
SUÐURHLÍÐ 38
Hér rís umdeilt fjölbýlishús við Fossvoginn. Það stendur 1,70 metrum hærra í landinu en
íbúum á svæðinu var upphaflega kynnt. Í húsinu verða 46 íbúðir sem meðal annars hafa
vakið athygli fyrir hátt verð. Aftan við húsið sést í íbúabyggðina í Suðurhlíðum.
Nágrönnum sýnd
falsmynd af blokk
Fjölbýlishús við Suðurhlíð verður tæpum tveimur metrum hærra í
landinu en nágrönnum var kynnt. Borgarlögmaður kannar lagahliðar
málsins að tillögu sjálfstæðismanna. Þeir segja óásættanlegt að gögnum
skipulagsyfirvalda sé ekki treystandi. R-listinn harmar mistökin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T