Fréttablaðið - 24.09.2002, Blaðsíða 22
22 24. september 2002 ÞRIÐJUDAGUR
HRÓSIÐ
... fá KR-ingar fyrir að hafa
landað Íslandsmeistaratitlinum.
Liðið forðaði sér frá falli fyrir ári
síðan. Nú er öldin önnur. Mikil
barátta er í liðinu og stemmningin
og hefðin hafa komið þeim á topp-
inn. Hópurinn sem skipar liðið er
ekki jafn hlaðinn stórstjörnum og
áður. Enn og aftur sannast það að
sterk liðsheild og góður þjálfari
gera meira en eitt og eitt stór-
stirni. KR-ingar hafa líka hefðina
á bak við sig. Þótt félagið hafi
mátt þola mögur ár milli stórveld-
istíma hafa þeir haft þolinmæðina
og þrautseigan stuðningsmanna-
hóp. Það skilaði liðinu aftur á
toppinn á sínum tíma og heldur
þeim þar þetta sumarið. Til ham-
ingju KR-ingar!
AFMÆLI
Þorfinnur Ómarsson er kominná fulla ferð í starfi sínu sem
framkvæmdastjóri Kvikmynda-
sjóðs. Hann er staddur á kvik-
myndahátíðinni í San Sebastian á
Spáni, ásamt Baltasar Kormáki og
fleiri aðstandendum Hafsins.
Myndin er fyrsta íslenska kvik-
myndin sem boðið hefur verið að
taka þátt í aðalkeppni hátíðarinn-
ar og Þorfinnur var viðstaddur
frumsýningu myndarinnar í gær.
„Þetta gengur mjög vel. Það var
troðfullt á sýningunni og Baltasar
er búinn að vera í viðtölum í allan
dag, bæði hjá dagblöðum og sjón-
varpsstöðvum, þannig að myndin
er að fá góða kynningu.“
Þorfinnur tók að sér að fylgja
Hafinu og Fálkum eftir á kvik-
myndahátíðinni í Toronto fyrir
skemmstu. „Ég var þá enn í þessu
limbói og framleiðslufyrirtækin
fengu mig til að taka þetta að mér
líkt og ég hef gert áður.“
Þorfinnur hefur komið sér upp
góðum samböndum í kvikmynda-
heiminum og segir það vissulega
rétt að hann sé orðinn vel kynntur
á þessum vettvangi. „Það tekur
mörg ár að komast inn í þennan
hring og verða viðurkenndur. Það
liggur mikill tími á bak við það að
koma sér upp þessum persónu-
legu samböndum og þetta er á
vissan hátt mikilvæg fjárfesting.“
Þorfinnur segir það því liggja í
hlutarins eðli að það sé mjög erfitt
að ætla að skipta mönnum inn í
þetta starf með litlum fyrirvara.
„Ég kem tvíefldur til leiks og er
mjög ánægður að komast að aftur
og klára árið. Það þarf að bretta
upp ermarnar þar sem nokkur
stór verkefni liggja fyrir enda eru
miklar breytingar á sjóðnum fyr-
irhugaðar um áramótin. Það er
mikill hugur í mér og ég mun
hella mér í þetta í góðu samstarfi
við menntamálaráðuneytið.“
Þorfinnur Ómarsson er kominn aftur
til starfa hjá Kvikmyndasjóði Íslands.
Hann er staddur á Spáni að kynna Hafið
og mun svo bretta upp ermarnar og
undirbúa breytingar á sjóðnum.
Persónan
Þarf að bretta upp ermarnar
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að engar
breytingar verða á daglegri starfsemi
Seðlabanka Íslands við brotthvarf Finns
Ingólfssonar úr bankastjórninni.
Leiðrétting
Ólafur Kjartan Sigurðarson,barítón, er 34 ára gamall í dag.
Hann syngur hlutverk Fígarós í
Rakaranum í Sevilla sem Íslenska
óperan frumsýndi um helgina.
Hann segir alla aðstandendur sýn-
ingarinnar afar stolta af verkinu
og að fyrstu sýningarnar tvær
hafi gengið eins og í sögu. „Það
var mikil stemmning og sýningin
virðist hafa farið vel í fólk. Við
höfum fengið jákvæða dóma,
enda skila allir mjög góðu verki.
Æfingaferlið hefur verið langt og
strangt en það er valinn maður í
hverju rúmi og eftir stendur öflug
skemmtun.“
Ólafur Kjartan segir aðspurð-
ur um hlutverk sitt að Fígaró sé
mjög skemmtilegur en taki þó á.
„Ég er að syngja þennan Fígaró í
fyrsta skipti í heild á sviði og hann
er afar gefandi. Þetta er þakklátt
hlutverk en það er þó meira en
segja það að syngja hann tvö
kvöld í röð. Ég hef oft sungið Fíg-
aró Mozarts og þeir eru skemmti-
legir, Fígaróarnir, og nú hef ég
átján skipti til að bæta þennan.“
Ólafur Kjartan segir það bæði
mikilvægt og gott fyrir sig að
hafa Fígaró í safninu sínu og
hann vonast til að geta nýtt hann
betur í framtíðinni. „Hann kemur
væntanlega til með að eldast
nokkuð vel í hálsinum og ég ætti
að geta sungið hann í að minnsta
kosti tíu ár til viðbótar.“
Ólafur Kjartan nam við Söng-
skólann í Reykjavík hjá Guð-
mundi Jónssyni, við Royal
Academy of Music í London og
Royal Scottish Academy of
Music and Drama í Glasgow, en
þaðan lauk hann mastersgráðu
sumarið 1998. Hann er fastráðinn
söngvari við Íslensku óperuna
2001- 2003. Hann mun eyða af-
mælisdeginum í Flugleiðavél á
leið til Bretlands og fer í prufu-
söng í Wales á miðvikudag og í
Amsterdam á föstudag. „Maður
er að leggja fjárhag heimilisins í
rúst eina ferðina enn. Það er heil-
mikið happdrætti að standa í
þessu og það kostar haug af pen-
ingum að fara í prufurnar sem
skila stundum góðum hlutverk-
um og stundum engum. Prufurn-
ar eru þar fyrir utan allt annað en
skemmtilegar en maður verður
að leggja í þetta enda fiska þeir
ekki sem róa ekki og maður verð-
ur því að nota öll tækifæri til að
láta heyra í sér.“
thorarinn@frettabladid.is
ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON
Segir óperusöngvara aldrei eiga frí. Starf-
ið snúist um endalausa hringrás æfinga,
sýninga og prufusöngva.
SAGA DAGSINS
24. SEPTEMBER
TÍMAMÓT
Menntaskólinn við Hamrahlíðvar settur í fyrsta sinn árið
1966. Guðmundur Arnlaugsson
var rektor og fastráðnir kennarar
voru sex.
Fyrsta skurðaðgerðin var gerð áBorgarspítalanum í Fossvogi
árið 1968. Aldarfjórðungi síðar
var þess minnst með því að taka í
notkun nýja skurðstofu.
Samtök iðnaðarins voru stofnuðí Reykjavík árið 1993. Þau tóku
við af sex félögum í iðnaði.
Jim Henson, sköpunarmaðurPrúðuleikaranna, leit dagsins
ljós í Mississippi í Bandaríkjunum
árið1936. Þættirnir voru sýndir
við miklar vinsældir á árunum
1976-1981. Henson lést árið 1990.
Jarðarfarir
13.30 Eufemía Georgsdóttir verður jarð-
sungin frá Háteigskirkju í Reykjavík.
13.30 Jóhann Valdimar Guðmundsson,
strætisvagnabílstjóri, frá Fögrubrekku
í Hrútafirði, verður jarðsunginn frá
Fella- og Hólakirkju.
13.30 Steingrímur Þórisson, fyrrverandi
kaupmaður, Kópavogsbraut 1a,
verður jarðsunginn frá Hjallakirkju í
Kópavogi.
13.30 Þórhildur Sigurbjörg Steingrímsdóttir,
fyrrverandi íþróttakennari við
Menntaskólann á Akureyri, verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju.
Afmæli
Skáldkonan Kristín Ómarsdóttir er fertug.
Inga Jóna Þórðardóttir er 49 ára.
Ólafur Kjartan Sigurðarson, óperusöngvari,
er 34 ára.
Nýgifta konan vaknaði aðmorgni afmælisdagsins og
sagði eiginmanninum frá draumi
sínum, að hann hefði gefið henni
risastóra perlufesti. „Hvað ætli
þetta merki,“ spurði hún eigi-
manninn.
„Það kemur í ljós í kvöld,“
svaraði hann leyndardómsfullur.
Um kvöldið kom hann heim
með furðu stóran og þungan
pakka og gaf konunni sinni. Kon-
an opnaði pakkann spennt og í
ljós kom „Stóra draumráðninga-
bókin“.
Sendu brandara á
surmjolk@frettabladid.is
Hlutverk Fígaró tekur á
Ólafur Kjartan Sigurðarson, barítón, kann vel að meta rakarann í Sevilla. Hann flýgur utan
í prufusöng á afmælisdaginn. Prufurnar leiðinlegar og kostnaðarsamar en engu að síður
mikilvægar enda fá söngvarar sem ekkert heyrist í lítið að gera.
ÞORFINNUR ÓMARSSON
„Það er mikill hugur í mér og ég mun
hella mér í þetta í góðu samstarfi við
menntamálaráðuneytið.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI