Fréttablaðið - 24.09.2002, Page 4
4 24. september 2002 ÞRIÐJUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
SVÍÞJÓÐ Minnihlutastjórn Jafnaðar-
manna í Svíþjóð er í nokkru upp-
námi þrátt fyrir kosningasigur
flokksins 15. þessa mánaðar. Um-
hverfisflokkurinn, sem ásamt
Vinstriflokknum hefur stutt minni-
hlutastjórnina, krefst þess nú að fá
ráðherraembætti í nýrri stjórn.
Göran Persson, forsætisráðherra
og leiðtogi Jafnaðarmanna, hafnar
því.
Persson hefur hins vegar boðið
Umhverfisflokknum og Vinstri-
flokknum að fá í staðinn fulltrúa inn
í nokkur ráðuneyti. Ekkert benti til
þess í gær að Umhverfisflokkurinn
myndi sætta sig við þá málamiðlun.
Þvert á móti er Umhverfisflokk-
urinn, sem hvorki hefur viljað telja
sig til hægri né vinstri flokka, byrj-
aður að kanna möguleika á að
mynda stjórn með hægri flokkun-
um. Viðræður eru hafnar við Þjóð-
arflokkinn um hugsanlega stjórnar-
myndun, og þá væntanlega með
Miðflokknum og Kristilegum
demókrötum.
KOSNINGAR „Meirihluti er meiri-
hluti, og þegar við höfum hann, þá
ætlum við að nota hann,“ sagði
Gerhard Schröder, kanslari Þýska-
lands, eftir að úrslit þingkosning-
anna voru loks orðin ljós seint á
sunnudagskvöld. Stjórn jafnaðar-
manna og græningja hlaut samtals
306 þingsæti af 603, sem rétt dug-
ar til þess að stjórnarsamstarfið
getur haldið áfram þrátt fyrir að
jafnaðarmenn hafi tapað 47 þing-
sætum.
Græningjar unnu stærsta sigur
sinn frá upphafi í kosningunum, og
geta væntanlega þakkað gott
gengi sitt utanríkisráðherranum
Joschka Fischer, sem hefur aflað
sér trausts langt út fyrir raðir
flokkssystkina sinna. Líklegt þyk-
ir að græningjar fái vegna þessa
góða gengis fleiri ráðherra á þessu
kjörtímabili. Schröder sagðist í
gær búast við því að stjórnar-
myndunarviðræður gengju fljótt
fyrir sig.
Gerhard Stoiber, kanslaraefni
kristilegu hægri flokkanna CDU
og CSU, segist hins vegar ekki
reikna með því að stjórn jafnaðar-
manna og græningja verði langlíf.
Meirihluti hennar á þingi sé það
naumur. Í ljósi þessa sagðist Stoi-
ber ætla að vera kanslaraefni
Kristilegra áfram.
Þrátt fyrir að kristilegu flokk-
arnir hafi unnið nokkurn sigur í
þessum kosningum og bætt við sig
3,3 prósentum, þá hefur fylgi
þeirra einungis tvisvar áður verið
undir 40 prósentum. Það gerðist
árið 1949 og svo aftur fyrir fjórum
árum þegar Helmut Kohl missti
kanslarastólinn til Gerhards
Schröders. Sjálfur vann Stoiber
reyndar mikinn sigur í Bæjara-
landi, þar sem hann hefur verið
forsætisráðherra frá því 1993.
CSU hlaut 58,6 prósent atkvæða,
sem er þriðja mesta fylgi flokks-
ins frá upphafi. Þetta góða fylgi í
Bæjaralandi dugði til þess að CSU
varð á landsvísu þriðji stærsti
flokkur Þýskalands, næst á eftir
jafnaðarmönnum og CDU.
Herta Däubler-Gmelin, dóms-
málaráðherra í stjórn Schröders,
náði ekki kosningu. Hún sagði af
sér í gær. Ummæli hennar í síð-
ustu viku, þar sem hún líkti að-
ferðum Bush Bandaríkjaforseta
við aðferðir Hitlers, vöktu hörð
viðbrögð.
Adolf Hitler kom einnig við
sögu kosninganna í gær, þegar
Christoph Stölzl, leiðtogi CDU í
Berlín, líkti úrslitunum við kosn-
ingarnar 1931 og 1932 þegar þýsk-
ir nasistar unnu kosningasigur.
Stölzl sagði að í bæði skiptin hefði
„óskynsemin borið sigurorð af
skynseminni“.
Þá sagði Jörgen Möllemann,
varaformaður Frjálsra demó-
krata, af sér í gær. Leiðtogi flokks-
ins, Guido Westerwelle, sagði að
Möllemann hefði skaðað flokkinn
gífurlega með þrálátum deilum
sínum við leiðtoga þýskra gyðinga.
Frjálsir demókratar, sem áratug-
um saman voru „þriðji flokkurinn“
í þýskum stjórnmálum og réðu
iðulega úrslitum um stjórnar-
myndun, hlutu ekki nema 7,4 pró-
sent atkvæða.
Sósíalistaflokkurinn PDS, sem
er arftaki austur-þýska Kommún-
istaflokksins, féll nánast út af
þingi. Flokkurinn náði ekki fimm
prósenta markinu, sem þýðir að
hann fær enga landskjörna þing-
menn. Hins vegar náði hann
tveimur kjördæmakjörnum þing-
mönnum, sem halda sæti sínu óháð
fylginu á landsvísu.
gudsteinn@frettabladid.is
EINKAVÆÐING Rannsókn Ríkisend-
urskoðunar á vinnubrögðum við
einkavæðingu bankanna miðar
vel. Að sögn Sigurðar Þórðarson-
ar ríkisendurskoðanda miðar
rannsókn vel. Forsætisráðuneytið
fór fram á það við stofnunina í
kjölfar úrsagnar Steingríms Ara
Arasonar úr einkavæðingarnefnd
að hún rannsakaði hvort eðlilega
hefði verið staðið að sölu Lands-
bankans.
Steingrímur Ari bar einkavæð-
ingarnefndina þungum sökum.
Meðal þess sem kom fram í bréfi
hans til forsætisráðherra var að á
ellefu ára ferli sínum í einkavæð-
ingarnefnd hefði hann aldrei
kynnst öðrum eins vinnubrögð-
um. Steingrímur Ari hefur neitað
að tjá sig frekar um málið fyrr en
eftir niðurstöðu Ríkisendurskoð-
unar. Sigurður Þórðarson vildi
ekki ræða frekar hvenær niður-
stöðu væri að vænta. Vinnu Ríkis-
endurskoðunar miðar vel og allar
líkur á því að henni ljúki innan
skamms.
Jemen:
104 grunaðir
al-Qaida liðar
í haldi
JEMEN,AP 104 menn eru í haldi í
Jemen grunaðir um að vera með-
limir í al-Qaida, hryðjuverkasam-
tökum Osama bin Ladens. Að sögn
Sultan al-Atwani, þingmanns í
landinu, voru 15 hinna grunuðu
handteknir fyrir árásirnar á
Bandaríkin þann 11. september
vegna gruns um aðild að spreng-
ingu bandaríska herskipsins Cole
árið 2000. 69 Jemenar eru á meðal
þeirra 598 fanga sem haldið er í
fangabúðum Bandaríkjahers í
Guantanamo á Kúbu.
Ökumaður var stöðvaður aflögreglunni í Reykjavík
vegna gruns um ölvun við akstur.
Reyndist hann svo drukkinn að
hann þurfti á stuðningi að halda
til að komast út úr bílnum. Í ljós
kom að búið var að svipta hann
ökuréttindum ævilangt. Alls voru
þrjátíu og sjö ökumenn teknir
fyrir hraðakstur um helgina.
Fjórir voru grunaður um ölvun
við akstur og tveir ökumenn
stöðvaðir fyrir að hafa ekið yfir á
rauðu ljósi. Tuttugu og níu um-
ferðaróhöpp urðu um helgina og
varð eignatjón í öllum tilfellum.
Maður gekk berserksgang að-faranótt sunnudagsins í
Vesturbænum. Náði maðurinn að
skemma tvo bíla áður en hann
náðist. Hann var fluttur á lög-
reglustöð og vistaður.
Lögreglunni í Reykjavík bárustfjölmargar tilkynningar um
meðvitundarlítið fólk um helgina.
Kom í ljós að í öllum tilfellum
var um að ræða dauðadrukkið
fólk en erfitt hafði reynst að
greina á milli hvort um sjúkleika-
ástand var að ræða eða ölvun.
Margir gistu fangageymslur lög-
reglu. Einnig þurfti að flytja
nokkra á slysadeild.
VEGAGERÐIN
Þaðan stal maðurinn fartölvu.
Iðinn innbrotsþjófur:
Handtekinn
sjöttu nóttina
í röð
INNBROT Maður var handtekinn af
lögreglunni í Reykjavík í
fyrrinótt. Í fórum sínum hafði
hann fartölvu sem hann náði eftir
innbrot í Vegagerðina við Borgar-
tún. Þá gerði maðurinn tilraun til
að brjótast inn í Fangelsismála-
stofnun. Er þetta sjötta nóttin í
röð sem hann er handtekinn fyrir
innbrot. Fór hann meðal annars
inn í Biskupsstofu í síðustu viku.
Þá uppgötvaðist í gærmorgun
að brotist hefði verið inn á tveim-
ur stöðum í viðbót. Í Bónusvideó
við Mávahlíð hafði hurð verðið
spennt upp. Þaðan var stolið pen-
ingum úr spilakassa og tóbaki. Þá
var farið inn í fyrirtækið Bílabar-
inn við Hamarshöfða. Höfðu þjóf-
ar á brott með sér verkfæri og
tölvubúnað fyrir um hálfa milljón.
Alls var tilkynnt um átján innbrot
um helgina.
MIÐAR VEL
Ríkisendurskoðun vinnur
að rannsókn á vinnubrögð-
um einkavæðingarnefndar
í söluferli Landsbankans.
Niðurstöðu er að vænta
fljótlega.
Ríkisendurskoðun og einkavæðingin:
Styttist í niðurstöðu
GÖRAN PERSSON
Minnihlutastjórn Jafnaðarmanna er engan
veginn traust í sessi, þrátt fyrir kosninga-
sigur.
Minnihlutastjórn Perssons hangir á bláþræði:
Umhverfisflokkurinn vill ráðherrastóla
ÞINGSTYRKUR SÆNSKU STJÓRNMÁLAFLOKKANNA
Flokkur Fjöldi þingsæta
Jafnaðarflokkurinn (Socialdemokraterna) 144
Íhaldsflokkurinn (Moderaterna) 55
Þjóðarflokkurinn (Folkpartiet) 48
Kristilegir demókratar (Kristdemokraterna) 33
Vinstriflokkurinn (Vänsterpartiet) 30
Miðflokkurinn (Centerpartiet) 22
Umhverfisflokkurinn (Miljöpartiet) 17
ÚRSLIT ÞINGKOSNINGANNA Í ÞÝSKALANDI
2002 1998
Þingsæti (hlutfall atkv.) Þingsæti (hlutfall atkv.)
Jafnaðarmenn (SPD) 251 (38,5 %) 298 (40,9 %)
Kristilegir (CDU/CSU) 248 (38,5 %) 245 (35,2 %)
Græningjar 55 (8,6 %) 47 (6,7 %)
Frjálslyndir (FDP) 47 (7,4 %) 43 (6,2 %)
Sósíalistar (PDS) 2 (4,0 %) 36 (5,1 %)
Aðrir - (3,0 %) - (5,9 %)
AP
M
YN
D
TÖPUÐU NAUMLEGA
Edmund Stoiber, kanslaraefni kristilegu flokkanna, og Angela Merkel, formaður Kristilegra
demókrata. Þótt þeim hafi ekki tekist að steypa stjórn Jafnaðarmanna og Græningja, þá
vann Stoiber stóran sigur í Bæjaralandi, þar sem hann hefur verið forsætisráðherra frá 1993.
SÆTUR SIGUR
Joschka Fischer utanríkisráðherra var heldur betur ánægður með úrslit kosninganna í gær.
Græningjar unnu þar sinn stærsta sigur frá upphafi.
Stjórn Schröders lafir
með naumum meirihluta
Stjórnarmyndunarviðræður ættu að ganga fljótt fyrir sig. Græningjar fá væntanlega fleiri ráð-
herrasæti. Vafasamar tilvísanir í Hitler og deilur við gyðinga settu svip sinn á kosningarnar.
AP
/J
AN
B
AU
ER
AP
/R
O
B
ER
TO
P
FE
IL
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
45,9%
FYLKYR 54,1%
Hverjir verða bikarmeistarar í
knattspyrnu karla?
Spurning dagsins í dag:
Skila umferðaráætlanir ríkis og sveitar-
félaga fækkun umferðarslysa?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
FRAM
FYLKIR SIGUR-
STRANGLEGRI
Heldur fleiri hallast að
því að Fylkismenn fagni
bikarmeistaratitli.
Frammarar eiga þó
ágætis möguleika.