Fréttablaðið - 24.09.2002, Qupperneq 6
6 24. september 2002 ÞRIÐJUDAGURSPURNING DAGSINS
Notar þú Internetið mikið?
Ekkert sérlega en ég fer stundum í leiki ef
ég get.
Magnús Már Guðmundsson. 8 ára. Nemi.
ERLENT
FRAMBOÐ „Það er mikill hugur í
gömlum félögum innan Sjó-
mannafélags Reykjavíkur og fjöl-
mörgum öðrum. Menn eru óhress-
ir með forystu-
menn Félags eldri
borgara og segja
þá varðhunda fyrir
stjórnmálaflokka
sem nú eru við
völd,“ segir Birgir
Björgvinsson hjá
Sjómannafélagi
Reykjavíkur og
sjómaður í 35 ár.
Hann segir menn
hafa mikinn hug á
því að fara í framboðsslaginn fyr-
ir næstu kosningar svo úrbætur
verði á kjörum eldri borgara.
Að frumkvæði eldri félaga í
Sjómannafélaginu hefur verið
samin yfirlýsing þar sem stjórn
Félags eldri borgara er hvött til að
standa við eitthvað af þeim loforð-
um sem hún hefur gefið. Þegar
hafa hátt í fimm hundruð manns
skrifað undir undirskriftalista
sem henni fylgir að sögn Birgis.
Lækkun fasteignagjalda og tví-
sköttun sem eldra fólk þurfi að
búa við er meðal þess sem Félag
eldri borgara ætti að taka föstum
tökum. „Það læðist að manni sá
grunur að forystumenn í Félagi
eldri borgara séu bara þarna til að
koma í veg fyrir að þeir eldri
borgarar, sem er full alvara í sín-
um málflutningi, fari í framboð.
Það er að minnsta kosti augljóst
að þeirra skoðanir og baráttumál
fá hvergi hljómgrunn, hvorki hjá
þeim né annars staðar. Úr því sem
komið er hlýtur að vera ljóst að
sterkasta vopn okkar er atkvæði
hvers og eins og hvetjum við fólk
til samstöðu,“ segir í yfirlýsing-
unni.
Birgir segist fullviss að ef sam-
staða náist fljúgi menn inn á Al-
þingi. „Ég er mikið úti á meðal
fólks og heyri hvað það er orðið
þreytt á ástandinu. Fólk er ósátt
við hvernig peningum er varið og
má í því sambandi nefna Kristni-
tökuhátíðina, sendiráð, Sinfóníuna
og byggingu tónlistarhúss. Allt
það mannlega er látið sitja á hak-
anum. Það er fullt af eldra fólki
sem lifir á fátækramörkum en
stoltið er svo mikið að það lætur
ekki vita af því.“
kolbrun@frettabladid.is
Ólafur Ólafsson:
Sjómenn
velkomnir á
fund
FRAMBOÐ „Bréfið er að mínu mati
ekki sent réttum aðilum heldur á
að berast ríkisstjórninni,“ segir
Ólafur Ólafsson, formaður Félags
eldri borgara,
þegar Fréttablað-
ið leitaði eftir við-
brögðum við bréfi
sem eldri sjó-
menn hafa ritað
og hátt á fimmta
hundrað manns
undirritað. Þar er
skorað á forystu-
menn Félags eldri
borgara að standa
við gefin loforð
um að berjast fyr-
ir lækkun fast-
eignaskatta og
gegn tvísköttun
sem eldra fólk býr
við.
Ólafur segir að í bréfinu séu
talin fram málefni sem forystu-
nefnd félagsins ræði daglega.
Ótal fundir hafi verið haldnir,
meðal annars með ráðamönnum.
Lítið hafi verið um efndir. „Um
næstu mánaðamót verður farið
með fyrsta málið fyrir dómstóla.
Það lýtur að greiðslum til ellilíf-
eyrisþega úr lífeyrissjóðum. Ann-
að mál á dagskrá eru sérlífeyris-
sjóðirnir. Við erum orðnir leiðir á
bænabréfum og förum því þessa
leið.“ Um ásakanir á hendur for-
ystumönnum um að þeir beiti sér
fyrir því að koma í veg fyrir
framboð segir Ólafur miklar um-
ræður hafa verið í gangi um fram-
boðsmál innan félagsins. Það mál
sé enn ekki útkljáð.
„Hingað til höfum við lítið
heyrt frá sjómannasamtökunum
og er ánægjulegt til þess að vita
að menn virðast hafa vaknað og
eru loksins farnir að huga að hag
eldri sjómanna. Þeir eru velkomn-
ir á fund til okkar 1. október
klukkan 14.30,“ segir Ólafur að
lokum.
MENNTUN Þriðji áfangi í stefnumót-
unarstarfi Háskóla Íslands var
kynntur í gær. Í áætluninni eru
sett fram þrjú meginmarkmið sem
stefnt er að í starfi Háskóla Ís-
lands á næstu þremur árum, að
Háskólinn verði öflugri rann-
sóknaháskóli, að fjölbreytni náms-
ins verði aukin og alþjóðleg sam-
skipti efld og loks að starfsskilyrði
öll í háskólasamfélaginu verði
bætt.
„Stefnumótunarstarfið gerir
okkur kleift að vinna skipulegra og
markvissara starf,“ segir Páll
Skúlason, rektor Háskóla Íslands.
„Við höfum nú skipulagt okkur
rækilega og ætlum að hrinda
markmiðum í framkvæmd á næstu
árum.“
Meðal aðgerða sem gripið verð-
ur til er að fjölga nemendum í
framhaldsnámi, námskeiðum og
námsleiðum og opnun náttúru-
fræðihúss í Vatnsmýrinni og fleira.
Páll segir aðgerðirnar miða við
svipuð fjárframlög úr ríkissjóði og
fengist hafa undanfarin ár, þó ekki
sé launungarmál að háskólinn þurfi
aukið fjármagn. „Sum verkefnin
kalla á samstarf við utanaðkomandi
aðila, við stefnum líka að því að
sækja fé í erlenda sjóði.“ Páll vill
ekki nefna dæmi um námsleiðir
sem stefnt er að bjóða upp á í fram-
tíðinni, ætlast sé til þess að deild-
irnar sýni frumkvæði og bryddi
upp á nýjungum. „
Hundruð franskra hermannakom til Yamoussoukro, höf-
uðborgar Fílabeinsstrandarinnar,
í gær. Mikil ofbeldisalda hefur
gengið yfir landið eftir mis-
heppnaða valdaránstilraun síðast-
liðinn fimmtudag.
Jarðskjálfti af stærðinni 4,8 áRichter gekk yfir stóra hluta
Englands og Wales í fyrrinótt. Lít-
ilsháttar skemmdir urðu á bygg-
ingum en enginn slasaðist. Jarð-
skjálftar af þessari stærðargráðu
eru sjaldgæfir í Bretlandi.
Tugir þúsunda manna þurftuað yfirgefa heimili sín eftir
að fellibylurinn Isidore gekk yfir
Yucatanskaga í Mexíkó í gær.
Þakplötur fuku víða auk þess sem
rafmagnslaust varð. 8.000 starfs-
menn við olíuborun þurftu að yf-
irgefa vinnustað sinn í Mexík-
óflóa. Engin slys urðu á fólki.
BIRGIR BJÖRGVINSSON
Birgir segir að innan vébanda Sjómannafélagsin séu margir baráttujaxlar sem veigri sér
ekki við að fara í slaginn. „Sjómenn eru vanir að berjast fyrir sig og sína. Við höfum ávallt
að leiðarljósi að sókn sé besta vörnin.“
Gamlir sjómenn gagn-
rýna Félag eldri borgara
Gamlir félagar innan Sjómannafélags Reykjavíkur hafa blásið til sóknar
og senda forystumönnum Félags eldri borgara tóninn. Hvetja eldri
borgara til að huga að framboði.
Menn eru
óhressir með
forystumenn
Félags eldri
borgara og
segja þá varð-
hunda fyrir
stjórnmála-
flokka sem nú
eru við völd.
Tryggingamiðstöðin færir
út kvíarnar:
Stofnar
líftrygginga-
félag
TRYGGINGAR Tryggingamiðstöðin
hefur stofnað líftryggingafélag,
Líftryggingamiðstöðina hf.
Tryggingamiðstöð-
in á 99,92% hluta-
fjár félagsins.
Stjórn félagsins
skipa Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugs-
son formaður, Einar Sigurðsson
varaformaður og Hreinn Lofts-
son, en þeir eru allir í stjórn
Tryggingamiðstöðvarinnar. Fram-
kvæmdastjóri þess er Gunnar
Felixson sem jafnframt er for-
stjóri Tryggingamiðstöðvarinnar
Hlutafé félagsins er 250 milljónir
króna Sótt hefur verið um starfs-
leyfi til Fjármálaeftirlitsins og er
fyrirhugað að félagið taki til
starfa 1. janúar nk.
ÓLAFUR
ÓLAFSSON
„Um næstu mán-
aðamót verður
farið með fyrsta
málið fyrir dóm-
stóla. Við erum
orðnir leiðir á
bænabréfum og
förum því þessa
leið.“
HEILSA Hollustuvernd ríkisins hef-
ur látið innkalla filippeyska
sojasósu frá framleiðandanum
Asia Pacific food ind. Inc. Val-
enzuela Metro. Í sósunni hefur
fundist mikið magn efnisins 3-
MCPD, sem getur valdið krabba-
meini við langvarandi neyslu.
Ekki er um bráð eituráhrif að
ræða.
Sósan hefur aðeins verið seld í
verslunum Sælkerabúðarinnar á
höfuðborgarsvæðinu. Sósan er
merkt sem verandi best fyrir
18.12. 2003. Þeir sem eiga slíka
sósu eru hvattir til að skila henni í
þá verslun sem hún var keypt.
Sojasósa innkölluð vegna eiturefna:
Efni sem veldur
krabba í sósunni
HOLLUSTUVERND RÍKISINS
Í sósunni sem Hollustuvernd hefur
innkallað hefur fundist mikið magn efnis
sem getur valdið krabbameini við langvar-
andi neyslu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
PÁLL SKÚLASON, REKTOR
Segir að með útgáfu bæklings með markmiðum og aðgerðum Háskóla Íslands, sem
kynntur var í gær, sé hægt að gera almenningi skýra grein fyrir starfi háskólans.
Uppbygging Háskóla Íslands:
Fjölbreytni náms aukin og
alþjóðleg samskipti efld
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 87.47 -1.02%
Sterlingspund 136.18 -0.55%
Dönsk króna 11.59 -0.73%
Evra 86.14 -0.71%
Gengisvístala krónu 129,06 -0,81%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 235
Velta 5.603 m
ICEX-15 1.300 0,05%
Mestu viðskipti
Kaupþing banki hf. 150.375.000
Flugleiðir hf. 144.601.310
Íslandsbanki hf. 138.654.277
Mesta hækkun
Sláturfélag Suðurlands svf. 18,18%
SÍF hf. 4,65%
Flugleiðir hf. 3,85%
Mesta lækkun
Plastprent hf. -28,57%
Skýrr hf. -3,70%
Eignarhaldsfélagið Alþýðub. hf. -1,64%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 7851,1 -1,70%
Nsdaq*: 1190,8 -2,50%
FTSE: 3739,4 -3,10%
DAX: 2922,7 -4,70%
Nikkei: 9481,1 -2,00%
S&P*: 827,6 -2,10%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00