Fréttablaðið - 24.09.2002, Qupperneq 7
7ÞRIÐJUDAGUR 24. september 2002
LÖGREGLUFRÉTTIR
GENF, AP Rúmlega 25 milljónir
flóttamanna sem hafa þurft að
flytja sig um set í heimalandi
sínu þurfa að þola pyntingar,
nauðganir og annars konar of-
beldi. Þeir fá ekki sömu vernd og
þeir flóttamenn sem flýja til ann-
arra landa. Þetta kemur fram í
nýrri rannsókn Sameinuðu þjóð-
anna. Samkvæmt rannsókninni
gera stjórnvöld þeirra landa sem
um er að ræða lítið í því að vern-
da flóttamennina, sem eru oftast
í minnihluta í heimalandi sínu ef
litið er til trúarbragða eða upp-
runa.
RAMALLAH, AP Jasser Arafat, leið-
togi Palestínumanna, ætlar ekki að
verða við kröfum Ísraelsmanna
um að afhenda þeim lista yfir þá
sem dveljast með honum í höfuð-
stöðvum Palestínustjórnar í bæn-
um Ramallah á Vesturbakkanum.
„Ég ætla ekki að krjúpa á kné
fyrir Sharon, né veifa hvítum fána
fyrir Sharon,“ segir palestínski
þingmaðurinn Hatem Abdel
Khader að Arafat hafi sagt við sig
þegar þeir ræddust við í síma á
sunnudaginn.
Ísraelsher hefur að mestu lagt
höfuðstöðvar Jassers Arafats í
Ramallah í rúst. Einungis hluti af
einni byggingu stendur eftir af
húsaþyrpingunni í Ramallah, sem
Arafat hafði til umráða. Arafat
hefst nú við í fjórum herbergjum
ásamt 200 aðstoðarmönnum sínum
og öryggisvörðum.
Herinn umkringdi höfuðstöðv-
arnar í Ramallah á fimmtudaginn
eftir tvær sjálfsmorðsárásir
Palestínumanna á miðvikudag.
Fulltrúar Ísraels og Palestínu-
manna hittust í gær til þess að
semja um að umsátrinu verði
aflétt. Þar lögðu Ísraelsmenn fram
kröfu um að fá lista yfir nöfn allra
sem dveljast í herkvínni með Ara-
fat. Arafat hafnaði þeirri beiðni
samstundis.
Einangrun Arafats var stutt-
lega rofin í gær þegar Saeb Er-
ekat, einn ráðherra Arafats, fékk
að fara á fund hans og skýra hon-
um frá gangi viðræðnanna við
Ísraelsmenn, sem Erekat hafði
sjálfur tekið þátt í. Erekat sagði að
byggingin, sem Arafat dvelst í,
væri að hruni komin.
Ísraelsmenn halda því fram að
meðal þeirra sem dveljast með
Arafat í byggingunni séu hryðju-
verkamenn, sem beri ábyrgð á
dauða fjölmargra óbreyttra borg-
ara. „Við munum ekki aflétta um-
sátrinu fyrr en þeir hafa verið
dregnir fyrir dóm frammi fyrir
skapara sínum eða dómara,“ sagði
Raanan Gissin, sem er ráðgjafi
Ariels Sharons, forsætisráðherra
Ísraels.
Ísraelsmenn segja að 38 Palest-
ínumenn hafi nú þegar gefið sig
fram. Flestir þeirra hafi verið látn-
ir lausir á ný.
Svo virðist sem Bandaríkja-
menn hafi lagt mikla áherslu á að
Ísraelsmenn reyndu að semja við
Palestínumenn um að aflétta um-
sátrinu. Opinberlega hafa banda-
rísk stjórnvöld þó ekki sagt annað
um umsátrið en að það „hjálpi ekki
til“.
Evrópuríki og arabaríki hafa
mótmælt umsátrinu og krefjast
þess að því verði aflétt tafarlaust.
Palestínumenn hafa einnig mót-
mælt umsátrinu harðlega og látið
hug sinn í ljós á götum úti.
DÓMSMÁL Eigandi hússins Lækjar-
götu 10 hefur verið dæmdur til að
greiða fjórum starfsmönnum
veitingastaðarins Lækjarkots
vangoldin laun hjá fyrirtækinu
BAGS ehf. sem rak veitingastað-
inn.
Húseigandinn rifti leigusamn-
ingi við BAGS um miðjan október
vegna vanefnda á samningnum.
Eigandi hússins ákvað í kjölfarið
sjálfur að halda veitingarekstrin-
um áfram. Það gerði hann undir
nafninu Sí Senor og stofnaði utan
um þann rekstur félagið Gilli-
Veitingar ehf.
Nokkrir starfsmanna Lækjar-
kost sem áttu inni vinnulaun hjá
BAGS töldu að þar sem í raun
væri einfaldlega um að ræða
svokölluð aðilaskipti í veitinga-
rekstrinum bæri nýja rekstrarað-
ilanum, húseigandanum, að greiða
þeim vangoldin laun fyrri aðilans.
Héraðsdómur Reykjavíkur tók
undir sjónarmið starfsmannanna.
Um aðilaskipti hafi verið að ræða.
Því fylgi að nýr atvinnurekandi
taki við öllum réttindum og skyld-
um, sem fyrri atvinnurekandi bar
gagnvart starfsmönnunum: „Þyk-
ir ljóst að laun sem stefnandi
(starfsmenn) hafði áunnið sér hjá
hinum fyrri vinnuveitanda vegna
fyrri hluta októbermánaðar falla
undir framangreind réttindi sem
nýr aðili gengur inn í, enda eru
laun hluti af ráðningarkjörum
hans.“
HEILBRIGÐISMÁL „Það sem hefur
valdið misskilningi er að um er að
ræða tvenns konar tölur,“ segir
Ólafur Hjálmarsson, skrifstofu-
stjóri fjárlagaskrifstofu fjármála-
ráðuneytisins, um gagnrýni sem
ráðuneytið hefur sætt vegna
framsetningar á tölum um opin-
ber útgjöld til heilbrigðismála.
Hann segir að annars vegar sé um
að ræða útgjöld sem hlutfall af
landsframleiðslu. Ráðuneytið hafi
hins vegar verið að ræða um út-
gjöld á mann leiðrétt með jafn-
vægisgengi. „Þannig hafa gengis-
sveiflur ekki áhrif á samanburð-
inn.“
„Það sem við höfðum sérstak-
lega áhuga á er hversu hlutur hins
opinbera er stór hér á landi. Á það
bentum við. Þessar tölur liggja
fyrir opinberlega og ekkert meira
um það að segja.“
Þingmenn sem rætt hefur ver-
ið við segja að framsetningin hafi
verið undarleg og haft mikil áhrif
á umræðu um málefni Landspítal-
ans. Ólafur kannast ekki við að
tengsl séu á milli umræðu um
spítalann og framsetningu gagn-
anna. „Ef við hefðum verið að
ræða fjármál Landspítalans hefð-
um við einfaldlega rætt þau. Tek-
ið útgjöld til spítalans um eitt-
hvert árabil og skoðað hvernig
þau hefðu þróast. Þetta voru ein-
faldlega áhugaverðar tölur frá
OECD sem við sáum og birtum.“
Lögreglan á Akureyri kærði 23ökumenn fyrir of hraðan akst-
ur um helgina. Tveir þeirra óku á
yfir 100 km hraða þar sem há-
markshraði er 50 km. Annar
þeirra mældist á Hörgárbraut og
hinn á Drottningarbraut. Má sá
sem ók á Hörgárbrautinni búast
við ökuleyfissviptingu en hann
mældist á 112 km hraða. Báðir
ökumenn mega búast við háum
fjársektum.
Rúða var brotin í Borgarhóls-skóla á Húsavík um helgina.
Tveir vegfarendur sem leið áttu
hjá töldu víst að ungur maður
sem þar var staddur hefði verið
að verki. Lögreglan var kölluð á
vettvang og talaði hún við mann-
inn sem síðan var ekið heim,
enda mjög drukkinn.
Rannsókn Sameinuðu þjóðanna:
25 milljónir flótta-
manna pyntaðar
Á LEIÐ INN Í RÚSTIRNAR
Saeb Erekat, aðalsamningamaður Palestínumanna, fékk að fara á fund Jassers Arafats í
Ramallah í gær. Á myndinni má sjá bifreið Erekats aka upp að byggingunni þar sem Ara-
fat dvelst ásamt 200 manns.
Arafat hafnar
kröfum Ísraels
Höfuðstöðvar Arafats í Ramallah nánast rústir einar. Ísraelsmenn
ætla ekki að aflétta umsátrinu fyrr en félagar Arafats hafa verið
dregnir fyrir dóm.
AP
/N
AS
SE
R
N
AS
SE
R
LÆKJARGATA 10
Eigandi Lækjargötu 10 sem tók við veitingarekstri leigjanda síns á að greiða vangoldin
laun starfsmanna leigjandans.
Starfsmenn veitingastaðar sem áttu inni vangoldin laun:
Nýr atvinnurekandi greiði
launin frá fyrri rekstraraðilum
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Upplýsingar í vefriti ráðuneytisins um opinber útgjöld til heilbrigðismála
hafa sætt gagnrýni.
Skrifstofustjóri hafnar því að tölur séu vafasamar:
Bentum einfaldlega á
mikil opinber útgjöld
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
LEIKFÖNG „Ég held að fyrirtækið
ætti að hætta dreifingu á þessum
kengúruprikum. Mér skilst að
börn liggi stórslösuð víða um land
eftir að hafa fengið þetta í hend-
urnar,“ segir Bragi Sigþórsson,
faðir ellefu ára drengs sem slas-
aðist illa við leik á kengúrupriki
sem Vífilfell dreifði í Kóka kóla-
sumarleik sínum. Með því að
safna miðum af kókflöskum gat
fólk farið í Elko og keypt sér
ýmsa hluti, meðal annars
kengúruprikin.
„Drengurinn fékk að prófa
svona prik hjá félaga sínum og
það skipti engum togum, hann
skaust af prikinu og nefbrotnaði,
brákaði kinnbein og það blæddi
inn á augnbotnana. Þá fékk hann
verulegan heilahristing og kastaði
upp í tvo sólarhringa á eftir,“ seg-
ir Bragi sem fól lögfræðingi
sínum að senda markaðsdeild
Kóka kóla bréf með kvörtunum og
viðvörunum sínum. Síðan eru
liðnar þrjár vikur og Bragi ekkert
svar fengið.
„Við hörmum þetta slys en get-
um ekki verið ábyrgir frekar en
þegar fólk til dæmis kaupir sér
hjól eða skíði og slasast síðar,“
segir Þorsteinn M. Jónsson, for-
stjóri Vífilfells, sem framleiðir
Kóka kóla. „Ég veit ekki af fleiri
kvörtunum vegna kengúruprik-
anna. Hef aðeins séð þetta eina
bréf,“ segir hann.
„Ég veit um fjölda foreldra
sem vilja losna við þessi kengúru-
prik af heimilum sínum því hætt-
an liggur í augum uppi. Læknar á
slysadeild sögðu mér að börn
hefðu tilhneigingu til að halda sér
í handfangið á prikinu þó þau
væru að detta og bæru því ekki
hönd fyrir höfuð sér. Í því liggur
mesta hættan,“ segir Bragi sem
áskilur sér allan rétt gagnvart
Kóka kóla í máli þessu.
Hlynur Þorsteinsson, læknir á
slysadeild Landspítalans, segir
enga örtröð á slysadeildinni
vegna kengúruprikanna. Hann
hafi reyndar aðeins heyrt um
þetta eina slys.
Kvartað yfir varasömum vinningum:
Stórslasaði sig á
kengúrupriki
MIKLIR ÁVERKAR
Ellefu ára sonur Braga Sigþórssonar eftir
að hafa prófað kengúruprikið hjá félaga
sínum.