Fréttablaðið - 24.09.2002, Blaðsíða 8
8 24. september 2002 ÞRIÐJUDAGUR
RANNSÓKN Hreinn Loftsson, lög-
maður Baugs, hefur sent ríkislög-
reglustjóra bréf, þar sem hann
óskar eftir upplýsingum frá emb-
ættinu. Hreinn segist hafa upplýs-
ingar um að starfsmenn endur-
skoðunarfyrirtækisins Deloitte og
Touche hafi aðstoðað lögreglu við
rannsókn málsins. Endurskoðun-
arfyrirtækið vinnur fyrir Kaupás
sem keppir við Baug á matvöru-
markaði.
Hreinn vill vita hvort þeir sem
vinna við rannsóknina séu sér-
hæfðir á sviði verslunarrekstrar.
Hann vill að kannað sé hvort rann-
sóknarmenn séu hagsmunatengd-
ir samkeppnisaðilum Baugs.
Hreinn segir mikilvægt að borg-
arar landsins efist ekki um að
rannsókn sé óvilhöll.
Að auki segir Hreinn að þar
sem ætla megi að þeir sem vinni
við rannsóknina komist yfir gögn
sem gætu haft áhrif á gengi bréfa
Baugs á markaði sé nauðsynlegt
að nöfn og kennitölur þeirra verði
tilkynntar Kauphöll Íslands og
Fjármálaeftirliti. Vísar hann í því
sambandi til laga um innherjavið-
skipti.
Haraldur Johannessen, ríkis-
lögreglustjóri, segir bréfinu hafa
verið vísað til efnahagsbrota-
deildar lögreglunnar. Hreini verði
svarað efnislega með bréfi eins
fljótt og efni standi til. Í samræmi
við góða stjórnsýsluhætti sendi
embættið ekki svar sitt til fjöl-
miðla. Það sé Hreins að ákveða
um slíkt.
Lögmaður Baugs spyr um rannsókn:
Vill svör um
hagsmunatengsl
ÓTTAST UM UPPLÝSINGAR
Lögmaður Baugs vill taka af allan vafa um
hagsmunatengsl þeirra sem rannsaka fyrir-
tækið. Hann vill að rannsakendur fái stöðu
innherja í ljósi upplýsinga sem þeir komast
í við rannsóknina.
Norðurland eystra:
Betri vegir
aðkallandi
STJÓRNMÁL „Það er ljóst að sam-
göngumálin eru afskaplega að-
kallandi,“ segir Ólafur Örn Har-
aldsson, formaður fjárlaganefnd-
ar, eftir ferðalög nefndarinnar um
norðurland eystra og viðræður
við sveitarstjórnir á svæðinu.
Hann segir heimamenn hafa lagt
mikla áherslu á að bætt væri úr
samgöngum á svæðinu. Eins væri
kvartað undan háum flutnings-
kostnaði og daggjöldum á sjúkra-
stofnunum sem væru óviðunandi.
„Hafnamálin virðast yfirleitt
standa mjög vel.“
SRINAGAR, AP Mestar líkur þykja á
því að ungur maður, Omar
Abdullah, taki við af föður sínum,
Farooq Abdullah, sem æðsti ráð-
herra í indverska hlutanum í hinu
stríðshrjáða héraði Jammú og
Kasmír. Kosningar standa þar
yfir og verða haldnar í fjórum
áföngum nú í september og októ-
ber.
Þótt Omar Abdullah sé endreg-
inn stuðningsmaður indverskra
yfirráða, þá hefur hann engu að
síður í kosningabaráttunni lofað
því að veita héraðinu aukin sjálf-
stjórnarréttindi.
Þeir feðgar eru báðir í Þjóð-
fundarflokknum (NC), sem Mo-
hammed Abdullah, faðir Abdullah
eldri og afi Abdullah yngri, stofn-
aði árið 1932. Flokkurinn hefur
verið við stjórnvölinn í Kasmír
undanfarin sex ár. Ásakanir um
spillingu virðast ekki ætla að
koma í veg fyrir að flokkurinn
haldi völdum að loknum kosning-
um. Enda hefur Omar Abdullah
hreint ekki verið spar á loforðin.
„Þið hafið sagt mér að röntgen-
vélin á sjúkrahúsinu hérna sé bil-
uð, að þið viljið slökkviliðsstöð, og
að símarnir sem þið sóttuð um
hafi ekki verið settir upp enn,“
sagði hann á kosningafundi í bæn-
um Khag. „Ég lofa ykkur því, að
þið fáið þetta allt innan mánaðar
frá því við komumst til valda.“
Honum tókst þó engan veginn
að sannfæra alla. „Hann er bara
lygari og indversk strengjabrúða
eins og faðir hans,“ sagði leigubíl-
stjóri nokkur sem hlustaði á ræð-
una, Shameem Ahmed að nafni.
Omar Abdullah lofar einnig að
útrýma atvinnuleysi og stöðva
hryðjuverk. Ennfremur ætlar
hann að efla ferðaþjónustu með
því að láta gera góðar skíðabrekk-
ur og útvega húsbáta sem í eina
tíð nutu mikilla vinsælda meðal
jafnt indverskra sem erlendra
ferðamanna.
„Ég fullvissa ykkur um að
vopnuðu ferðamennirnir fara
fljótlega burt og þá koma raun-
verulegu ferðamennirnir aftur,“
sagði hann.
Og svo ætlar hann að veita hér-
aðinu á ný þau sjálfstjórnarrétt-
indi, sem indverska ríkisstjórnin
afnam árið 1953. Stjórn Indlands
hefur hins vegar jafnan sagt, að
það komi ekki til greina.
Kasmír hefur verið skipt á
milli Indlands og Pakistans í
meira en hálfa öld. Indland hefur
jafnan gert kröfu til þess að hafa
yfirráð yfir öllu héraðinu. Pakist-
an segist hins vegar styðja kröfur
aðskilnaðarsinna í indverska hlut-
anum, sem vilja stofna sjálfstætt
ríki í sameinuðu Kasmír.
Kosningaloforðin í Kasmír
Kosningar standa nú yfir í indverska hluta héraðsins Kasmír. Búist er við að Omar Abdullah
beri sigur úr býtum. Hann hefur verið óspar á loforðin.
UNGUR MAÐUR Á UPPLEIÐ
Omar Abdullah er þarna fyrir miðri mynd í rauðri úlpu. Hann er ekki nema 32 ára, en ætlar sér að taka við af föður sínum sem æðsti
ráðherra í indverska hluta Kasmírs.
AP
/A
IJA
Z
R
AH
I
ÓLAFUR ÖRN HARALDSSON
Á ferðalagi með fjárlaganefnd.
Það sárvantar endurnýjun á Al-þingi og í ríkisstjórn. Það nægir
að horfa hringinn í kringum fundar-
borð ríkisstjórnar-
innar til að átta sig á
því. Hvorki Sjálf-
stæðisflokki né
Framsókn hefur tek-
ist að endurnýja sig
nægjanlega hratt til
að standa undir
langri stjórnarsetu.
Að Tómas Ingi Ol-
rich, Jón Kristjáns-
son, Sólveig Péturs-
dóttir, Valgerður
Sverrisdóttir, Sturla
Böðvarsson og Siv Friðleifsdóttir
séu helmingur ríkisstjórnarinnar
bendir annað hvort til þess að ríkis-
stjórnin sé helmingi of stór eða að
stjórnarflokkarnir ráði ekki við að
ala upp nógu margt afreksfólk til
að fylla ríkisstjórn, bankaráð,
sendiherrastöður og aðra bitlinga.
Að þeim veiti ekki af hvíld frá völd-
um til að safna hæfu liði.
Þegar Davíð Oddsson var ungur
borgarstjóri sagði hann að ráðherr-
ar í ríkisstjórn væru alltof margir.
Miðað við verkefni ríkisstjórnar-
innar ættu fimm manns að anna
þeim. Undir forsæti Davíðs eru í
dag 12 ráðherrar; það er sjö er of-
aukið. Þetta fólk hefur að sjálfsögðu
ýmislegt fyrir stafni. Þannig er það
alltaf. Þegar aðkallandi verkefni
þrjóta snúa menn sér að þeim sem
eru minna aðkallandi; jafnvel hrein-
um óþarfa. Það er eitt helsta ein-
kenni óskilvirks ríkiskerfis sem
kostar skattborgara of mikið.
En skortur á endurnýjun á Al-
þingi og ríkisstjórn á sér aðrar ræt-
ur en þær að löng valdaseta leggur
mikið á flokkana að ráða í bitlinga-
stöður. Stjórnmálaflokkarnir eru úr
takti við samfélagið. Þeir eru stofn-
aðir og byggðir utan um þjóðfélag
sem er að hverfa; blessunarlega.
Þeim hefur ekki tekist að breytast
með samfélaginu. Þetta sést best á
því að fæstir flokkanna geta tekið
afstöðu til stærstu mála dagsins í
dag; Evrópumála, kvótakerfis, upp-
stokkunar heilbrigðis- og mennta-
kerfisins, landbúnaðar. Í öllum
stærri málum eru flokkarnir meira
og minna klofnir. Þeir hanga hins
vegar saman á óskilgreindri sam-
eiginlegri lífsafstöðu félagsmanna;
afstöðu sem er söguleg frekar en að
hún nýtist fólki til að kljást við
vanda dagsins. Skiljanlega sækjast
alltaf færri og færri eftir því að
ganga í slík félög. Það henti átthaga-
félögin, ungmennafélögin, góð-
templara ogß frímúrara.
Framundan eru prófkjör flokk-
anna og val á lista. Vegna uppstokk-
unar kjördæma mun uppstokkun
frambjóðenda farast fyrir. Það er
miður.
Miðað við
verkefni ríkis-
stjórnarinnar
ættu fimm
manns að
anna þeim.
Undir forsæti
Davíðs eru í
dag 12 ráð-
herrar; það er
sjö er ofaukið.
Of mikið af fólki – of lítið af hæfileikum
skrifar um skort á endurnýjun á Alþingi og
í ríkisstjórn í tilefni komandi prófkjöra.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
BRÉF TIL BLAÐSINS
Glæpur
og refsing
Albert Jensen skrifar:
Ofstækishópar í röðum músl-ima hafa sett óorð á trú sína
og mættu trúbræður þeirra gagn-
rýna þá meira en gert er. Stærstu
hóparnir eru talibanar og al-
Qaida, en mannfyrirlitning þeirra
sýnist takmarkalaus. Fyrir þessu
finna konur sárast og eru kjör
þeirra nánast miðuð við húsdýr.
Það var ekki Múhameð sem setti
konur skör lægra en karla, það
voru og eru pólitískir ofstækis-
menn. Víða um veröldina er
glæpalýður þessi og áhangendur
hans að undirbúa illvirki gagnvart
almennum borgurum. En það eru
fleiri sem setja ljótan blett á
ímynd mannsins. Hér heima hefur
skotið upp kolli sérlega ógeðfelld
stétt manna. Þeir eru þjóðfélags-
leg skömm þó þeir nái ekki ofan-
nefndum skaðvöldum. Menn
þessir sáu að hægt var að hagnast
á ógæfu annarra og varð græðgin
öllu yfirsterkari.
Erlendir súlustaðir eru al-
ræmdir sem hreiður vændis og
eiturlyfja. Súlustaðir eru niðurrif,
þeir eru hryðjuverk gagnvart kon-
um, kvenlegri ímynd og þjóðfélög-
um almennt. Það er sorglegt að til
skuli karlmenn sem borga lítil-
mennum fyrir að fá að sjá niður-
lægingu kvenna og stuðla að
henni. Athyglisverður vesaldóm-
ur.
Nýtt
Haust - Vetur 2002
Opið í Rauðagerði 26
á laugardögum frá 10-14
og þriðjudögum frá 15-19
Komið og fáið nýja
listann frá
GreenHouse, frítt
Dömufatnaður í
stærðum 36-48
Eldri vörur seldar með
góðum afslætti
Verið velkomin
Rauðagerði 26
Sími 588 1259
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.