Fréttablaðið - 24.09.2002, Side 10
Hverju þakkarðu fyrst og fremst
sigurinn á Íslandsmótinu?
„Sterkri liðsheild. Það stendur
upp úr,“ sagði Willum Þór Þórs-
son, þjálfari KR-inga og nýbakað-
ur Íslandsmeistari. „Við eigum
einnig því láni að fagna í Vestur-
bænum að þar er sterk hefð og
mikil og góð umgjörð bæði
stjórnar og stuðningsmanna.“
Hvað heldurðu að hafi farið
úrskeiðis hjá Fylkismönnum á
lokasprettinum? „Það er ómögu-
legt að segja. Það er í raun og
veru ekki rétt hjá mér að tjá mig
um það.“
Willum segir Íslandsmótið
hafa verið gífurlega erfitt. „Þetta
var jafnt mót og lítill getumunur
var á liðunum. Það þurfti að ná
upp fullum dampi og stemmn-
ingu og einbeitingu í hverjum
einasta leik.“
Aðspurður hvað hefði breyst
hjá KR frá því á síðasta sumri
þegar hvorki gekk né rak sagði
Willum að samtakamátturinn hjá
öllu félaginu og ekki síst leik-
mönnum hafi ráðið þar mestu
um. „Þeir lögðu á sig gífurlega
vinnu og þeir voru mjög stað-
ráðnir í því að leiðrétta sinn hlut.
Það var kannski ekkert mjög
erfitt fyrir mig að stíga þar inn
og hjálpa til.“
10 24. september 2002 ÞRIÐJUDAGUR
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
D
ub
lin
bí›ur
flín
á mann m.v. að 2 fullorðnir og 1 börn,
2ja-11 ára ferðist saman
Innifalið: Flug, gisting á The Ormond Quay
Hotel, morgunverður og flugvallarskattar.
á mann ef 2 fullorðnir ferðast saman
Ver›dæmi
Flugsæti
42.120 kr.
39.195 kr.staðgr.
á mann með flugvallarsköttum
staðgr.
staðgr.
32.120 kr.
GOLF Spænski golfleikarinn Sergio
Garcia segir að lið Bandaríkjanna
megi ekki vanmeta evrópska liðið í
Ryder-keppninni í golfi sem hefst
næstkomandi föstudag. Garcia
lenti í sjötta sæti á American Ex-
press-mótinu sem er nýlokið á Ír-
landi. Tiger Woods sigraði á mót-
inu. Garcia sagðist vilja etja kappi
við Woods í Ryder-keppninni. Hann
bætti því þó við að einstaklingsúr-
slit væru ekki eins mikilvæg svo
lengi sem Evrópa myndir bera sig-
ur úr býtum í heildarkeppninni.
„Ef ég leik gegn Tiger og tapa og
við vinnum síðan keppnina er mér
alveg sama,“ sagði Garcia.
Colin Montgomerie mun taka
þátt í keppninni fyrir hönd Evrópu
en óvíst var hvort hann gæti verið
með vegna bakmeiðsla sem hann
hefur átt við að stríða á árinu.
Hafði hann efasemdir um það í síð-
ustu viku hvort hann gæti spilað
fimm leiki á þremur dögum.
Sergio Garcia:
Má ekki vanmeta
evrópska liðið
GARCIA
Sergio Garcia segist vera tilbúinn í slaginn
í Ryder-keppninni í golfi. AP
/M
YN
D
LUNDÚNIR,AP Enska liðið Manchest-
er United mætir þýska liðinu
Bayer Leverkusen á útivelli í F-
riðli Meistaradeildarinnar í kvöld.
United á harma að hefna í leikn-
um því Leverkusen sló liðið út í
undanúrslitum Meistaradeildar-
innar í fyrra með fleiri mörkum
skoruðum á útivelli. Fyrir vikið
missti Sir Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri United, af tækifær-
inu til að stjórna liðinu í úrslita-
leiknum sem leikinn var á Ham-
den Park í heimaborg hans, Glas-
gow.
Leverkusen tapaði illa í fyrsta
leik sínum í Meistaradeildinni, 6-2
gegn gríska liðinu Olympiakos.
Manchester United bar aftur á
móti sigurorð af ísraelska liðinu
Maccabi Haifa með fimm mörk-
um gegn tveimur. Frakkinn
Laurent Blanc, leikmaður United,
hefur hrist af sér ökklameiðsli og
verður að öllum líkindum í vörn
liðsins í kvöld.
Enska liðið Newcastle, sem
tapaði fyrir Dynamo Kiev í fyrsta
leik sínum í keppninni, tekur á
móti hollenska liðinu Feyenoord.
Þá er búist við hörkuleik á Spáni
þegar Deportivo tekur á móti
ítalska liðinu AC Milan.
Meistaradeildin í kvöld:
Manchester á harma að
hefna gegn Leverkusen
Vilji og stemmning
nauðsynleg til sigurs
KR-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitil karla í knattspyrnu um síðustu helgi á meðan Fylkismenn
misstu af lestinni á lokasprettinum, þriðja árið í röð. Fréttablaðið ræddi við Willum Þór Þórsson,
þjálfara KR, og Aðalstein Víglundsson, þjálfara Fylkis, og spurði þá út í nýafstaðið Íslandsmót.
„Í leiknum á móti KR vorum við í
góðum gír og liðið var að spila
feikilega vel. Við vorum með þetta
í höndunum en fengum á okkur
slysamark í lokin. Síðasti leikur hjá
okkur er önnur saga,“ sagði Aðal-
steinn Víglundsson, þjálfari Fylkis,
aðspurður hvað gerðist á loka-
sprettinum hjá hans mönnum.
Voru það taugarnar sem brustu?
„Eitthvað verða menn að skrifa
þetta á því ekki gera menn það vilj-
andi að fara inn á völlinn og spila
eins og ræflar. Ég trúi því ekki upp
á nokkurn leikmann að slíkt eigi
sér stað.“
Töpuðuð þið mótinu í leiknum á
móti KR? „Ef ég lít til baka þá átt-
um við slæma kafla í upphafi móts
þar sem við fengum tvö stig af níu
mögulegum og svart á hvítu má
segja að þá höfum við misst af lest-
inni.“
Aðalsteinn sagði að jafnræði
hefði verið með flestöllum liðunum
á Íslandsmótinu. „Kannski snerust
hlutirnir meira um að hafa karakt-
er og vilja út allt mótið heldur en
kannski styrkleikamun.“
Ertu ánægður með sumarið í
heild sinni? „Það kemur í ljós á
laugardaginn. Ég treysti því að
menn hafi séð það síðasta laugar-
dag að þetta gengur ekki upp.
Menn þurfa að taka sig saman í
andlitinu og fara með dálítið öðru
hugarfari og öðrum vilja í svona
úrslitaleiki.“
Aðalsteinn Víglundsson:
Þurfa að taka sig
saman í andlitinu
Willum Þór Þórsson:
Voru staðráðnir í
að rétta sinn hlut
FAGNA ÞEIR Í KVÖLD?
David Beckham, fyrirliði Manchester
United, fagnar úrúgvæska framherjanum
Diego Forlan í fyrsta leik liðsins í Meistara-
deildinni gegn ísraelska liðinu Maccabi
Haifa. Leikurinn fór 5-2 fyrir United.
AP
/M
YN
D