Fréttablaðið - 24.09.2002, Qupperneq 14
Óútgefnu lagi hljómsveitar-innar Nirvana, „You Know
You’re Right,“ hefur verið lekið
á Netið að því er
kom fram á óop-
inberri aðdáenda-
síðu sveitarinnar,
www.nir-
vanaclub.com.
Lagið, sem var
tekið upp í janúar
árið 1994 eftir að
breiðskífan „In
Utero“ var gefin út, mun hafa
birst á Netinu síðastliðið laugar-
dagskvöld. Courtney Love, fyrr-
um eiginkona Kurt Cobain, hins
látna söngvara Nirvana, sagði í
viðtalsþætti í gær að lagið kæmi
út fyrir jól á nýrri plötu frá Nir-
vana. Ekki er vitað hvort um
safnplötu verður að ræða eða
hvort fyrirhuguð sé útgáfa á
safni sjaldgæfra og óútgefinna
laga með hljómsveitinni.
Upptökur á þriðju AmericanPie-myndinni hefjast í janú-
ar á næsta ári. Leikarinn Chris
Klein, sem lék Oz, og leikkon-
urnar Tara Reid,
Shannon Eliza-
beth, Mena
Suvari og
Natasha Lyonna
ætla ekki að
leika í myndinni.
Jason Biggs
verður aftur
móti á sínum
stað sem hinn klaufalegi Jim
sem á í sífelldum erfiðleikum í
ástarlífinu. Gamlir félagar á
borð við Stifler, Kevin og Finch
verða einnig til staðar.
Bernard Butler, fyrrverandigítarleikari hljómsveitarinn-
ar Suede, segir að hann hafi gert
mistök með því að yfirgefa
sveitina. Butler gekk úr hljóm-
sveitinni árið 1994 eftir að hafa
hljóðritað gítarleik fyrir aðra
breiðskífu sveitarinnar „Dog
Man Star.“ Butler segist hafa
hætt vegna deilna við upptöku-
stjórann sem tók upp skífuna og
segir hann þá ákvörðun ekki
hafa verið vandlega íhugaða.
14 24. september 2002 ÞRIÐJUDAGUR
THE SWEETEST THING kl. 8
LITLA LIRFAN - Stutt kl. 4, 4.30 og 5
PÉTUR OG KÖTTURINN 2 kl. 4 og 6
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4 og 6
Sýnd kl. 5.15, 8, 9 og 10.40 b.i. 14
Sýnd kl. 7.30 og 10.10
Sýnd kl. 5, 8 og 10 b.i. 12
kl. 8SIGNS
kl. 6 og 8MAÐUR EINS OG ÉG
HARRISON´S FLOWERS kl. 8 og 10.30
24 HOUR PARTY P. kl. 10.30
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 6
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
HAFIÐ kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 VIT433LILO OG STITCH kl. 4 og 6
VIT
430
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 3.45 VIT429
SIGNS kl. 5.50, 8 og 10.10 VIT427
PLUTO NASH kl. 4, 8 og 10.10 VIT432
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 VIT 435
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 427
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 436
TÓNLIST Áður en ég byrja vil ég að
það komi skýrt fram að ég átti
mér þann draum að hip hop-
sveitin The Streets myndi hreppa
Mercury-verðlaunin í ár. Svo fór
ekki og það var hin 21 árs gamla
Ms Dynamite sem stal verðlaun-
unum. Það var því með gremju
sem ég setti frumraun hennar „A
Little Deeper“ í tækið.
Ms Dynamite hefur sérstöðu
meðal „R&B“ stalla sinna. Hún
felst m.a. í því að „R“-in og „B“-in
hennar standa ekki fyrir „Rass
og Brjóst“. Þvert á móti svipar
viðhorf stúlkunnar að mörgu
leyti til hugsunarháttar
„straightedge“-stefnunnar sem
þekkist í harðkjarnarokki. Í
fyrsta lagi plötunnar byrjar Ms
Dynamite t.d. á því að setja
harkalega út á öll fíkniefni og
segir að tónlist sé það eina sem
hún þurfi. Í einu besta lagi plöt-
unnar, „It takes more“, setur hún
út á hversu margir tónlistarmenn
dásama kynlíf og ofbeldi án þess
að minnast á afleiðingarnar. Ms
Dynamite er kröftugur texta-
smiður, hikar ekki við að nota
„bannorðin“ og hefur mikið til
mála að leggja.
Tónarnir eru blanda af gömlu
bresku „garage“-stefnunni og
austurstranda hip hoppi. Öll
„sömpl“ eru t.d. mjög gróf í anda
Roni Size og ekkert gert til að
pússa þau upp. Urr... eins mikið
og sorgleg örlög The Streets
bjaga mig get ég ekki neitað því
að „A Little Deeper“ er bara
þrælfín plata.
Birgir Örn Steinarsson
FRÉTTIR AF FÓLKI
SJÓNVARP „Þetta er spjallþáttur
sem verður skipt í fjóra hluta,“
segir Finnur Þór Vilhjálmsson
umsjónarmaður Heita pottsins
sem Skjár einn sendir í loftið á
föstudagskvöld. „Í fyrsta hlutan-
um verður spjallað við viðmæl-
endur um það sem er að gerast
hverju sinni. Áherslan verður
ekkert endilega lögð á pólitík.
Eina reglan í vali á viðmælendum
er að fá enga stjórnmálamenn. Ef
talað verður um pólitík verður
það með poppaðri hætti. Ég ætla
að fá þarna fólk sem ég hef áhuga
á og finnst gaman að tala við. Rit-
höfunda, skáld og blaðamenn.
Skemmtilegt fólk.“
Þátturinn verður í beinni út-
sendingu, verður um fjörutíu
mínútur að lengd og fer í loftið
rétt fyrir klukkan átta á föstu-
dagskvöldum. Í öðrum hlutanum
ræðir Finnur við listafólk, hvort
sem það sinnir dægurmenningu
eða sérvitrari listgreinum. Í þrið-
ja hlutanum fjalla blaðamenn
tímaritsins Séð & Heyrt um hvað
sé á seyði í þeim geira mannlífs-
ins sem blaðið fjallar um. Að lok-
um verður boðið upp á stutt
skemmtiatriði.
„Það halda allir að þeir komi til
með að sjá einhverja góðborgara í
g-strengjum og litlum sundskýl-
um. Nafnið á bara að vísa í það
spjall sem fólk dettur inn í í heit-
um pottum. Það var ekki um það
að ræða að það yrði vatn í pottin-
um.“
Þegar Finnur verður uppi-
skroppa með hugmyndir að um-
ræðuefnum tekur hann til sund-
dótið sitt og heimsækir næsta
sundstað. „Ég veit fátt skemmti-
legra en að fara einn í heita pott-
inn og hlusta. Þar opnar fólk sig
um einkalíf sitt, talar um alls kon-
ar óhöpp sem það hefur lent í og
gamlir menn tala um hversu góðu
ástandi bílar þeirra eru í. Einu
sinni heyrði ég tvo gamla menn
tala um það hversu margir væru
gjarnir á það að fara ekki í sturtu
áður en þeir færu ofan í laugina.
Annar þeirra hafði verið fasta-
gestur frá 1950. Hann sagði að
þetta hefði verið jafn mikill ósið-
ur þá. Meira að segja hefði valda-
mesti maður þjóðarinnar, Ásgeir
Ásgeirsson forseti, hoppað beint
ofan í án þess að fara í sturtu. Það
var svolítið sjokk að heyra þenn-
an sannleik um þann mann en líka
gaman að sjá hversu mikil áhrif
þetta hafði á gamla manninn,“
segir Finnur rétt áður en hann
hoppar upp úr.
biggi@frettabladid.is
Popp pólitík
Á föstudagskvöldið hefur göngu sína spjallþátturinn „Heiti pottur-
inn“ á Skjá einum. Þar ræðir Finnur Þór Vilhjálmsson við alla nema
stjórnmálamenn um hina ýmsu þætti mannlífsins.
FINNUR ÞÓR VILHJÁLMSSON
Umsjónamaður „Heita pottsins“. Tekur meðal annars á móti þeim Sigtryggi Magnússyni og Birnu Önnu Björnsdóttur, blaðamanni
Morgunblaðsins, á föstudagskvöldið.
kl. 5.45 OG 10.15
FILMUNDUR
BATTLE ROYALE
útsölustaðir
kennsludiskarnir
Windows
Word
Excel
Outlook
2.990 kr stk.
BT
Fjarkennsla ehf. Sími: 511 4510
www.fjarkennsla.is
Sendum í póstkröfu
www.tolvuvirkni.net
netverslun
Skoðaðu Þetta!
Bæjarlind 14, sími 564 57 00
www.badstofan.is
„SANIT“ þýsk gæðavara
Upphengt salerni
með innbyggðum kassa.
Verð kr. 45.900 (allt settið)
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
KVIKMYNDIR Nú virðist sem fram-
haldsmynd Gladiator verði að
veruleika. Handritshöfundurinn
John Logan hefur að minnsta
kosti verið ráðinn til þess að
skrifa söguna. Hann skrifaði
handritið að fyrri myndinni ásamt
David H. Franzoni og William
Nicholson.
Leikarinn Russel Crowe verð-
ur þó fjarri góðu gamni í mynd-
inni þar sem hún á að gerast 15
árum eftir fyrri myndina. Ekki
hefur verið ákveðið hver fer með
aðalhlutverkið eða hver kemur til
með að leikstýra myndinni.
Það gæti því farið þannig að
enginn leikari sem kom að upp-
haflegu myndinni verði með í
framhaldsmyndinni. Mikil leynd
er yfir söguþræðinum en giska
menn á að aðal söguhetja myndar-
innar verði Lucius Verus. Fyrir þá
sem ekki muna var hann tíu ára
sonur Lucillu, systur hins illa
keisara Commodus, og þar með
barnabarn Marcus Aurelius keis-
ara.
Dínamítið springur
Ms. Dynamite:
A Little Deeper
TÓNLIST
GLADIATOR
Russel Crowe verður fjarri góðu gamni en
kannski snýr leikarinn Djimon Hounsou,
sem hér sést í ham, aftur.
Gladiator 2 í vinnslu:
Gerist 15 árum síðar