Fréttablaðið - 24.09.2002, Side 15
15ÞRIÐJUDAGUR 24. september 2002
MINORITY REPORT kl. 7 og 10 AUSTIN POWERS kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 7 og 10 b.i. 14 Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
SÍMI 553 2075
STUART LITTLE 2 kl. 4
PÉTUR OG BRANDUR 2 kl. 4 og 6
AUSTIN POWERS kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15
Sýnd kl. 8 og 10.15
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 4 og 5 VIT429 SLAP HER SHÉS FRENCH kl. 7
VIT
426
Kl. 3.40, 5.45, 8, 9.05 og 10.15 VIT 433Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 VIT 435
Segist Butler jafnvel vera tilbú-
inn til að sættast við Brett And-
erson, söngvara Suede, en þeir
deildu mjög eftir að Butler
hætti.
Njósnari hennar hátignar,James Bond, mun drekka
Finlandia-vodka í stað Smirnoff-
vodka í næstu
Bond-myndinni
„Die Another
Day,“ sem vænt-
anleg er í kvik-
myndahús. Hann
mun þó halda
áfram að biðja
um martinidrykk-
ina sína hrista en
ekki hrærða. Alla tíð síðan Sean
Connery hóf að drekka
Smirnoff-vodka í fyrstu Bond-
myndinni árið 1962 hefur njósn-
arinn haldið sig við sömu teg-
undina.
Áhættuleikarinn sem kemurfram í framhaldi kvikmynd-
arinnar „Tomb Raider“ í stað
leikkonunnar
Angelina Jolie, er
karlmaður. Við
tökur myndarinn-
ar gekk erfiðlega
að fá konu sem
væri eins vöðva-
stælt og Jolie til
að framkvæma
áhættuatriðin.
Var ákveðið að fá karlmann til
verksins og voru fest á hann
gervibrjóst til að útlitið yrði
sannfærandi.
Hjartaknúsarinn AntonioBanderas segist ekki ætla
að leika í framhaldi kvikmyndar-
innar
„Zorró.“
Honum var
boðið rúmir
1,7 milljarð-
ar króna fyr-
ir að leika í
myndinni við
hlið
Catherine
Zeta Jones,
sem lék með honum í fyrri
myndinni. Banderas segist frek-
ar vilja einbeita sér að öðrum
verkefnum. Vill hann meðal ann-
ars leikstýra mynd með eigin-
konu sinni Melanie Griffith í að-
alhlutverki.
Söngvarinn David Gray gefurút fimmtu breiðskífu sína, „A
New Day at Midnight,“ þann 5.
október. Gray sló í gegn með síð-
ustu skífu sinni, „White Ladder“
og er nýju skífunnar því beðið
með mikilli eftirvæntingu. Gray
verður á hljómleikaferðalagi um
Bretland í nóvember og desem-
ber til að fylgja gripnum eftir.
Stórsöngvarinn LucianoPavarotti og unnusta hans,
Nicoletta Mantovani, eiga von á
tvíburum. Samkvæmt ítalska
blaðinu Oggi, er Mantovani kom-
in fjóra mánuði á leið. Pavarotti
á fyrir þrjár dætur úr hjóna-
bandi sínu með fyrrverandi konu
sinni Adua.
FÓLK Talað er um það í erlendum
fjölmiðlum að ólétta Bjarkar
„okkar“ Guðmundsdóttur hafi
kveikt í henni gífurlegum líf-
fræðiáhuga. Björk á von á
stúlkubarni fyrir mánaðamót og
opinberaði hún nýlega í viðtali
að hún hefði lesið sig gaum-
gæfilega til um það sem væri að
gerast innra með henni.
„Í bókunum sem ég hef verið
að lesa hef ég komist að því að í
eggjastokkunum eru sex millj-
ón egg,“ sagði hún í nýlegu við-
tali. „Mér finnst það ótrúlegt að
allt þetta sé að gerast inni í lík-
ama mínum. Ég er að uppgötva
hversu dýrmætt þetta er allt
saman.“
Björk hefur þó ekki lagt iðju
sína algjörlega til hliðar vegna
fæðingarinnar því þann 7. októ-
ber gefur hún út eina safnplötu,
„Greatest Hits“, með vinsæl-
ustu lögum sínum og fimm
diska safnkassa sem hún kýs að
kalla „Family tree“.
Á heimasíðu sinni segir hún
meðal annars: „Kassinn er eins
og kort af ferli mínum fram að
þessu. Það er búið að vera lær-
dómsríkt að setja hann saman
því það gaf mér tækifæri til
þess að sjá hvað ég hef farið
yfir og hvað ekki. Mér líður eins
og ég sé í vorhreingerningum,
eins og ég sé að byrja alveg upp
á nýtt.“
BJÖRK
Söngkonan á von á öðru barni sínu í lok mánaðarins. Viku síðar kemur út safnplata og 5
diska safnkassi.
Björk Guðmundsdóttir:
Undirbýr fæðingu dóttur sinnar
FREDERIC SEAMAN
Seaman og Ono hafa verið ósátt frá árinu
1981. Myndin var tekin í mars á þessu ári.
Yoko Ono:
Kærir
fyrrum
einkaþjón
Lennons
TÓNLIST Yoko Ono, ekkja Johns
Lennons, hefur kært fyrrum
einkaþjón eiginmanns síns,
Frederic Seaman, fyrir að stela
munum af heimili þeirra og selja
aðdáendum bítilsins.
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem Ono og Seaman deila. Þau
hafa verið ósátt frá árinu 1981
þegar Ono rak hann eftir að hafa
séð til hans í fötum eiginmanns
síns á næturklúbb einum. Ono
krefst þess að Seaman afsali sér
réttindum 374 ljósmynda sem
hann tók af Lennon. Hún vill
einnig að hann skili um 75 þúsund
dollurum (rúmlega 6,5 milljónir
ísl. kr.) sem hann þénaði fyrir að
selja stolnum skjölum og bréfum.
Árið 1983 var Seaman dæmdur
í 5 ára skilorðsbundið fangelsi
fyrir stuld á heimili Lennons og
skipað að skila öllum mununum.
Ono heldur því fram að hann hafi
ekki gert svo og að hann sé enn að
græða peninga á misferli sínu.